Vísir - 16.11.1963, Side 13
VÍSIR . Laugardagur 16. nóvember 1883.
Nýkomið
sérlega fallegt úrval af
GJAFAKÖSSUM með:
baðolíu, baðsápu, bað-
púðri, baðsalti, baðbursta,
nuddbursta og naglabursta
Sendum gegn póstkröfu
um allt land.
SNYRTIVÖRUBÚÐIN
Laugavegi 76 . Simi 12275
ísland með í fiski-
málaráðstefnunni
Rfklsstjóm íslands hefur ákveðið
að taka þátt í fiskimálaráðstefnu
þeirri, er Bretar efna til 1 desem-
ber. En stjórnin tekur fram í svari
til brezku stjórnarinnar, að hún
muni ekki ganga til neinna við-
ræðna um takmarkanir í íslenzkri
fiskveiðilögsögu eða um ívilnanir
til handa erlendum aðilum á að-
stöðu á íslandi í fiskveiðimálum.
Her fer á eftir fréttatilkynning,
er Vfsi hefur borizt frá utanríkis-
ráðuneytinu um málið:
Eins og kunnugt er hefur brezka
ríkisstjórnin boðið til fiskimálaráð
/jb róttir um
helgina
Körfuknattleiksmót Reykjavíkur
hefst f kvöld að Hálogalandi.
Fyrstu leikir mótsins eru þessir:
Lagardag kl. 8.15:
K.R. - Í.R.-b 3. fl.
Ármann — Í.R. 2. fl.
K.F.R. - K.R. Mml.
Sunnudag kl. 8.15:
Ármann A — K.F.R. 3. fl.
K.R. - Í.R. 3. fl.
Ármann — Í.R. Mfl.
stefnu, sem hefst í London hinn
3. desember 1963. Til ráðstefnunn-
ar hefur þessum löndum verið boð
ið: Austurríki, Belgíu, Danmörku,
Frakklandi, Hollandi, írlandi, ís-
landi, Ítalíu, Luxemborg, Noregi,
Portúgal, Spáni, Sviss, Svíþjóð og
Þýzkalandi.
Svar fslenzku ríkisstjórnarinnar
við boði þessu var afhent brezka
utanríkisráðuneytinu 4. nóv. Er
svarið í meginatriðum þannig:
Ríkisstjórn íslends hefur ákveð
ið að þiggja boð ríkisstjórnar Bret-
lands uin’ •þátttökmri1 'fískfmáiaráð-
stefnufihi'í I.óndon, eh vérður hins
vegar að gera fyrirvara í því sam-
bandi.
Rfkisstjórnin telur, að verzlun
með sjávarafurðir verði að vera á
dagskrá ráðstefnunnar, en að rangt
sé að tengja það mál saman við
framleiðslumál í sjávarútvegi eða
fiskveiðitakmörk. Tekur ríkisstjórn
Íslands það fram, að hún muni
ekki ganga til neinna viðræðna eða
samninga um takmarkanir á ís-
lertzkri fiskveiðilögsögu, eða um
ívilnanir til handa erlendum aðilum
á aðstöðu á íslandi í fiskveiðimál-
um.
Að Iokum segir i svarinu að þeg
ar endanleg ákvörðun liggi fyrir
um þátttöku allra þeirra ríkja, sem
boðið hefur verið til ráðstefnunn-
ar, og um endanlega dagskrá, muni
ríkisstjórnin tilkynna frekar um
þátttöku íslands í ráðstefnunni.
13
Yfír 5 hundru
aðir ökumenn teknir
■ í ’Vfír ffmm hundruð ökúménn
hafa verið teknir fyrir ölvun við
akstur og er sú tala með lang
hæsta móti. í fyrra voru teknir
alls 425 ölvaðir ökumenn, sem
þá var miklu hærri tala en
nokkru sinni fyrr. Hér er um
mjög háa tölu að ræða, en þó
telur lögreglan að hún sé ekki
nema nokkur hluti þeirra ölv-
unarbrota, sem eiga sér stað
við akstur, einkum á kvöklin og
að næturlagi.
Meðfylgiandi mynd er tekin
af bifreið er valt skammt frá
Rauðavatni. Ölvaður, réttinda-
laus maður stal bifreiðinni, ók
henni síðan á ofsahraða og velti
henni með þeim afleiðingum
sem myndir sýnir. Eftir að bif-
reiðin hafði oltið, akreið maður-
inn út úr henni og fann lög-
reglan hann liggjandi á þeim
stað sem flaskan stendur.
Þegar eigandinn ætlaði að
nota bifreiðina, var hana hvergi
að sjá, og næst þegar hann sá
bifreiðina, var hún stórskemmd.
Þannig getur hinn saklausi
borgari orðið fyrir barðinu á
ölvuðum þjófum, sem svífast
einskis. Er því fyllsta ástæða til
að brýna fyrir mönnum að
ganga ætíð tryggilega frá bif-
reiðum sínuni.
Eftir því sem lögreglan hefur
tjáð Vísi, er oft fyllsta ástæða
til þess að stöðva bila að nóttu
til, enda hefur oft ýmislegt koni-
ið í fjós, sem varðar við lög.
Ekki aðeins það að ökumenn
geti verið drukknir og réttinda-
Iausir og jafnvel á stolnum bíl-
um, heldur er oft að finna í
bifreiðum ölvaða unglinga innan
lögaldurs. Þar hefur og stundum
fundizt þýfi eða þá smyglað á-
fengi og tóbak. Lögreglan telur
sig hafa fyllstu ástæðu til þess
að halda þessu eftirliti áfram,
þótt það hljóti stundum að bitna
á saklausum og heiðarlegum
ökumönnum.
Ástæðan fyrir þvf hversu
margir ökumenn eru teknir fyrir
ölvun við akstur er aukið eftir-
lit lögreglunnar. Árið 1955 kærði
lögreglan í Reykjavík 263 öku-
menn fyrir ölvun við akstur, en
næstu árin á eftir fór talan stöð
ugt lækkandi og komst lægst
niður f 186 árið 1959. En nú f
ár er talan komin upp í 502 frá
s. 1. áramótum, og þó er enn
eftir um íl/2 mánuður af árinu.
Helgarráðstefna um stefnuskrá Heimdallar
Verður
Teknir
haldin í Valhöll laugardag og sunnudag og hefst k!. 14.09 báða dagana.
verða fyrir 13 málaflokkar, er skipt verður niður á dagana eins og hér greinir:
Laugardagur:
1. Almennur inngangur
2. Stjómarskráin
3. Efnahagsmál
4. Landbúnaðarmál
5. Iðnaðarmál
6. Utanríkismál
Sunnudagur:
7. Fræðslu- og menntamál
8. Húsnæðismál
9. Æskulýðsmál
10. Vinnulöggjöfin
11. Samgöngu- og ferðamál
12. Sjávarútvegsmál
13. Tryggingarmál
í upphafi beggja daganna verður þátttakendum skipt niður ! nefnd-
ir, sem fjalla um hvern framkominn málaflokk fyrir sig. Að störf-
um þeirra ioknum verður gert kaffihlé, en síðan hefjast almenn-
ar umræður.
Umræðustjóri verður Jón E. Ragnarsson, stud Jur.
HEIMDELLINGAR ELDRI SEM YNGRI ERU HVATTIR TIL AÐ
FJÖLMENNA.
STJÓRNIN.
V *
ti