Vísir - 16.11.1963, Síða 15
VISIR . Laugardagur 16. nóvember 1963.
75
1 sólskinsskapi, að minnsta kosti
meðan eitthvað var í glas nu,
eða von á meiru stæði það tómt.
Það voru tvennar útgöngudyr og
vissu aðrar að Boulevard Saint
Martin og um þær vissu allir, en
hinar vissu út að Bondygötu. Og
þar voru tvær tröppur, til þess
að komast inn í eldhúsið.
Aldrei þessu vant var þarna
fátt um manninn nú. Nokkrir
menn sátu þar að öldrykkju,
tveir sátu og spiluðu domino.
Við smáborð nokkurt sat mað
ur alleinmanalegur og drakk ab-
sint. Hann virtist mjög einmana
og hugsi og studdi hönd undir
kinn og hann horfði á drykkinn
í glasinu, eins og hugur hans
væri bundinn við hann og áhrif
hans.
Þetta var dálaglegur maður,
nær þrítugu að því er virtist,
dökkur á hörund, en óhraustleg-
ur og sennilega blóðlítill. Augu
hans voru dökk og undir þeim
dökkir baugar. Einkennilegur
gljái var í augum hans og tillit
þeirra flóttalegt. Hann var með
svart alskegg, allhrokkið og ekki
vel hirt, hár hans var einnig
hrokkið og skipti hann því í
miðju. Skórnir hans voru nærri
gatslitnir. Það þurfti ekki að fara
í neinargrafgötur um, að mann-
inum hafði ekki vegnað vel, að
minnsta kosti ekki um nokkurn
undangenginn tíma.
Klukkan sló fjögur og maður-
inn leit til dyra, eins og hann
byggist við einhverjum. Hann
leit til dyranna, sem vissu að
breiðstrætinu. Og nú opnuðust
þær og inn kom maður nokkur
vel búinn. Hann var klæddur loð
feldi og loðskinnsfóðruðum vetr-
arfrakka. Hann virtist á svipuð-
um aldri og hinn. Ekki voru þeir
líkir, en flestir myndu hafa get-
ið sér þess til, að þeir væru
Suðurlandabúar, sennilega ítalir,
og það voru þeir.
Sá, er inn kom, leit í kringum
sig, og hinn gaf honum merki.
Og er hinn nýkomni sá það gekk
hann til hans og þeir heilsuðu
hvor öðrum eins og þeir væru
vinir.
— Þú óskaðir eftir, að ég
kæmi hingað, sagði sá, sem set-
ið hafði að drykkju. Jæja, vertu
velkominn, kannski þetta sé einn
minna fáu happadaga, og að þú
hafir mér góð tíðindi að flytja.
Maðurinn mælti á ítölsku.
— Góð tíðindi, nei, vinur
minn.
— Að minnsta kosti von um
starf?
— Nei, ég hef ekki haft heppn-
ina með mér.
— Það mátti ég svo sem raun-
ar vita, Sagði hinn og talaði
frönsku, án þess að vottaði fyrir
erlendum hreim. — Það vill eng-
inn við mér líta.
— Það viðurkenna allir hæfi-
leika þína, en þú ert ekki í góðu
áliti.
— Ég veit, — þeir kalla mig
absint-þambarann.
— Og það er ekki fjarri >sanni.
Þú drekkur of mikið.
— Og hverju er um að kenna.
— Ég veit, að þú getur komið
með ýmislegt þér til málsbóta,
— ég veit að þú leitar gleymsku
vegna sorga og mótlætis. Það
hef ég líka sagt mönnum.
— Og hvað segja þeir þá?
— Að þú ættir að leita
gleymsku í starfi — ekki í
drykkju.
— Menn leita alltaf eftir ein-
hverjum snaga til að hengja hatt
inn sinn á. Sannleikurinn er sá,
að stéttarbræður mínir '.eru öf-
undsjúkir, hefrtigjarnir. — ég
stóð þeim framar og þeir þoldu
það ekki. Þeir óttast samkeppni
mína, fengi ég tækifæri til
starfa.
— Og ekki að ástæðulausu,
kæri Angelo. Sú var tíðin, að
þú sóttir fram og varst álitinn
vísindamannsefni — og ef þú
fengir nú starf í einka-klinik,
hættir að drekka og spila fjár-
hættuspil, gætirðu enn náð
langt.
— Já, og eitt sinn hataði ég
áfengi og spil. Nú þykir mér
gott að drekka og ég spila fjár-
hættuspil, því að með því einu
móti get ég komizt yfir nokkra
skildinga til að draga fram lífið.
Og hvers vegna drekk ég? Af
því að undir áhrifum sé ég hill-
ingar, draumsýnir, Fata Morg-
ana — og kaldur veruleikinn
gleymist. En fái ég tækifæri til
að reisa mig við, fái ég sjúka
til að lækna, og eignist ég fram-
tíðarhorfur um heiðarlegt starf,
skulum við sjá hvort Angelo held
ur áfram að vera drykkjusvoli
og fjárhættuspilari.
X
— Þetta hef ég oft endurtek-
ið, er ég hef reynt að greiða götu
þína.
— Og ekki einn einasti þeirra
viðurkenndi, að ég hefði verið
beittur rangindum. í eigingirni
sinni hrundu þeir mér út í ör-
væntinguna. Ég hata þá og fyr-
irlít. Ég þrái ekkert heitara en
að hefna mín á þeim.
— Það geturðu.
— Hvernig?
— Með því að sanna öllum
hæfileika þína og yfirburði. Þig |
vantar aðeins stöðu.
— Stöðu, ertu að gera gtbb
að mér, vinur minn Hannibal?
Maður, sem getur ekki keypt sér
miðdegisverð, fær hvergi stöðu.
Þögn ríkti um stund. Loks
sagði vinur hans: Ég hef verið
að hugleiða að koma með upp-
ástungu.
— Þú segir þetta eins og það
væri sagt í alvöru.
— Mér er full alvara.
— Segðu þá allt af létta.
—•••Þú-þekkir Grinsky? . ,
— Pólverjann?
— Já'.
— Hvert er álit þitt á hon-
um?
— Hann er augnlæknir í
fremstu röð — en aðferðir hans
að verða úreltar. Hann fylgist
ekki með tímanum.
—- Það veit hann sjálfur og
þess vegna leitar hann að ung-
um manni, sem gæti tekið við
lækningastofu hans.
— Mér er kunnugt um það.
En sá, er hann vildi fá fyrir fé-
laga yrði að geta lagt fé fram
— er svaraði til helmings verð-
mætis stofu hans og tekna. Fjög-
ur hundruð þúsund franka — og
eftir fimm ára samstarf með jöfn
um tekjum af rekstri stofunnar,
drægi Grinsky sig í hlé og fé-
laginn héldi áfram á eigin spýt-
ur. Alls ekki óaðgengilegt, —
hefði maður peningana. En hver
er uppástungan?
Grinsky þekkir þig.
— Já, ég hef hitt hann tvisvar,
þrisvar sinnum.
— Hann viðurkennir dugnað
þinn. Ég hef heyrt hann fara
lofsamlegum orðum um hæfi-
leika þína í hópi vina minna, og
að þú mundir komast langt, ef
þú bættir ráð þitt.
— öllum þykir lofið gott, og
mér líka, en hver er uppástung-
an?
— Að þú heimsækir Grinsky
og tjáir honum vandkvæði þín,
dragir ekkert undan, og segir að
þú vitir ekki hvað til bragðs
skuli taka. Þú skalt játa ve;k-
leika þinn og lesti, en þú hafir
hugsað þessi mál, og sért sann-
færður um, að þú getir rétt þig
við í starfi. Minntu hann á hve
vel heppnaða uppskurði þú gerð
ir, er þú varst á lækningastofu
hans og klykktu út með því að
segja: Gerið mig að félaga yðar
og þrefaldi ég ekki tekjurnar af
lækningastofnun yðar á 10 árum
skiljum við aftur, en standi ég
við það gerum við samning, þér
látið mig fá lækningastofuna, og
ég greiði samningsbundna upp-
hæð á 10 árum.
HEPomE
Sfimplar - Slífar
og sfimpilhringir
Þ.JÓNSSON &CO
BRAUTARHOLTI 6 - SIMI 19215
v/Miklatorg
Simi 2 3136
P2 :n
T
A
R
Z
A
N
Við hlustum ekki á ókunna
menn, segir sá gamli, töframaður-
inn okkar sagði að ef við hefðum
leðju á höfðum okkar, þá mynd-
um við verða heilbrigðir aftur.
Leðju, hrópar Medu. Töframaður
ykkar hefur logið. Leðjan hefur
engan töframátt, sem getur tekið
hina stóru Yiyi orma úr líkama
ykkar. Það eru Yiyi ormar sem
eru að drepa ykkur, en ekki ein-
hver bannsett álög, hrópar Medu,
og ef þið ekki reynið að gera eitt
hvað, þá munu þeir drepa ykkur
alla. Vertu rólegur Medu, segir
Tarzan og snýr sér að vini sínum.
Þetta fólk er afar hjátrúarfullt og
við verðum að reyna að telja þvf
hughvarf á einhvern rólegan máta
16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
.Flestar gerðir sýningarlampa
Ódýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Lj ósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15 •
Sími 20235
SÆNGUR
Endurnýjum gömlu
sængurnar. Eiguro
dún- og fiðurheld ver.
Æða- og gæsadún-
sængur og kodda fyrir
liggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstíg 3 - Sfmi 18740
Áður Kirkjuteig 29.
Bílakjör
Nýir bílar,
Commer Cope St.
BIFREIÐALEIGAN,
Bergþórugötu 12 Slmar 13660.
14475 og 36598
LAUGAVE6I 90-02
Sölusýning á bifreiðum alla
virka daga vikunnar.
Stærsta úrval bifreiða á
einum stað.
•
Salan er örugg hjá okkur.
Hvítar
drengjaskyrtur
Li prjónanælon
Miklatorgi