Vísir - 16.11.1963, Page 16
VÍSIR
Laugardagur 16. nóvember 1963
Varðar-kaffi
verður ekki í dag
Söfnunarástríðunni svalað
Allan daginn i gær var mik-
ið um að vera í kringum Póst-
húsið í Reykjavík og í þvi. Það
var verið að selja frímerki
Rauða Krossins með fyrsta-
dags-stimpli. Utan dyra seldu
strákar 4 gerðir fyrsta-dags
umslaga og Pétur Hoffmann úr
Selsvör seidi eigin útgáfu af
umslögunum.
1 póstafgreiðslunni var margt
um manninn, allflestir að svala
söfnunarástríðunni, sumir að
reyna að hagnast peningalega á
frimerkjakaupum, en enn aðrir
að setja almenn bréf í póst. Þeir
siðastnefndu voru ekki sérlega
hrifnir: „Ég er búinn að bíða í
meira en 15 mínútur eftir af-
greiðslu," sagði einn óánægður.
Fyrir utan aðaldyrnar voru
nokkrir drengir að selja mynd-
skreytt fyrsta-dags-umslög. Stór
og gerðarlegur piltur sagði okk-
ur að hann hefði selt yfir 800
umslög þennan eftirmiðdag og
ætti aðeins lítilsháttar eftir.
Pétur bóndi Hoffmann seldi
einnig umslög, en hans umslög
voru með sérstökum hætti, með
álímdum merkjum af sjómanni,
„sem mætir afturgöngunni
Móra“ og mynd af bát hans og
húsi f Selsvör.
Framh. á bls. 6
GOSEYJAN nýr
grwmkittipunktar
Menn velta því nú mjög fyrir
sér, hvernig færi um eignar-
heimild á hinni nýju eyju, sem
hefur myndazt við Vestmanna-
eyjar og hvort tilkoma hennar
myndi hafa áhrif til stækkunar
á fiskveiðilandhelgi Islands. Að
sjálfsögðu munu íslenzk stjórn-
arvöld fylgjast vandlega með
Framh. á bls. 6.
TA YLOR aeitar
Richard Taylor, skip- Taylor skipstjóri og sagð
stjóri neitaði kæru varð- ist hann m. a. hafa týnt
skipsins Þórs, er hann
kom fyrir rétt hjá Bæjar
fógetanum á ísafirði i
dag. Réttarhöld í máli
hans hófust klukkan
1,30 og komu þá varð-
skipsmenn fyrir réttinn,
en síðan var réttarhöld
um frestað til klukkan
6, en þá mætti í réttinum
Framh. á bls. 6.
Ungir frímerkjasafnarar.
Rlchard Tayior, skipstjóri. Ljós-
mynd Vísis I.M.
FullttaSarteikning af Nor-
ræna húsinu tilbúin íjanúar
Alvar Aalto prófessor, sem
hefir tekið að sér að teikna
Norræna húsið, sem ákveðið er
að reisa hér, á lóð Háskóla Is-
lands, gerir ráð fyrir að hafa
lokið þessu hlutverki f janúar
næstkomandi. Á nýafstöðnum
fundi byggingamefndar hússins,
sem haldinn var í Helsinki, sýndi
hann frumdrætti að húsinu.
Þennan fund sat Þórir Kr.
Þórðarson prófessor, en hann er
nýkominn heim af fundinum, og
spurði Vísir hann fregna af hon-
um.
Hann kvað gang málsins hafa
verið þann, að á fundi mennta-
málaráðherra Norðurlanda hefði
verið ákveðið að skipa undir-
búningsnefnd, og lagði hún fram
tillögur sínar.. Á fundi utan-
rfkisráðherranna hér I sumar var
svo ákveðið að skipa byggingar
nefnd. Þórir Kr. Þórðarson pró-
fessor átti sæti fyrir Islands
hönd I undirbúningsnefndinni og
síðan I byggingarnefndinni. For-
maður hennar er Egil Thrane
skrifstofustjóri I danska menn-
ingarmálaráðuneytinu.
— Við sátum daglangt á fundi,
fyrst árdegis, og sýndi Aalto
Framhald á bls. S
Þórir Kr. Þórðarson.
Tollvörugeymslan tekur til
starfa í næsta mánuði
Búið að ráðstafa öllu geymslurýminu
Góðar horfur eru nú á
því, að Tollvörugeymsl-
an geti tekið til starfa í
lok næsta mánaðar. Er
fyrsta áfanga bygging-
arinnar mjög langt
komið. Þegar er lokið
við að reisa húsið en eft-
ir að vinna nokkurt verk
við innréttingar. Áætlað
er, að fyrsti áfanginn
muni kosta um 12 millj-
ónir króna.
Albert Guðmundsson formað-
ur stjórnar Tollvörugeymslunn-
ar tjáði Vísi I gær, að innflytj-
endur hygðu mjög gott til
þess að fá aðstöðu I Tollvöru-
geymslunni. Væri nú þegar búið
að ráðstafa öllu geymslurýminu
en alls eru 2500 fermetrar undir
þaki. Albert sagði, að opinberir
aðilar hefðu sýnt sérstaklega
góðan skilning I sambandi við
Tollvörugeymsluna. Fjármála-
ráðherra Gunnar Thoroddsen
hefði flutt frumvarp um málið
strax og óskað hefði verið
eftir því. Borgarstjórinn Geir
Hallgrímsson hefði útvegað lóð
á Laugarnestanga og Jóhann
Hafstein dómsmálaráðherra
hefði verið félagsstjórn til ráðu
neytis um fjármál og átt mikinn
þátt I þvi hve vel hefði gengið
að koma fyrirtækinu upp .
Nýlega hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri að Tollvöru-
geymslunni. Er það Helgi
Hjálmsson viðskiptafræðingur,
sem nú er fulltrúi hjá Verzlunar
ráði íslands. Er hann ráðinn frá
1. janúar n. k.