Vísir - 06.01.1964, Síða 6
6
V í S IR . Mánudagur 6. janúar 1964.
Ekkert leiðir á
langri útivist
1 veðurfregnum heyrum við
oft minnzt á veðurskip Alfa,
þegar það gefur staðarákvörðun
og veðurlýsingu. Fæstir munu
veita þvf mikla athygli, það fer
inn um annað eyrað og út um
hitt. Margir halda, að til sé
eitthvert veðurskip, sem heitir
Alfa, sem þvælist um heims-
höfin og geri veðurathuganir,
en svo er ekki.
Alfa er stöð A á korti veður-
fræðinganna. Staða hennar er
62 gráður norður og 33 gráður
vestur, en það mun vera ein-
hvers staðar miðja vegu milli
Reykjaness og suðurodda
Grænlands. Það gengur oft á
ýmsu á stöð A. Þar er tíðum
siæmt veður og kuldalegt um
að litast, en það er sama,
hvað á gengur, veðurskip Alfa
er alltaf á sínum stað. Fyrir
nokkrum dögum kom það þó
inn á Reykjavíkurhöfn til þess
að fá gert við eimingartækið,
sem notað er til að vinna fersk-
vatn úr sjónum. Fréttamenn
Vfsis brugðu sér niður á höfn,
og höfðu tal af skipstjóranum,
myndarlegum manni um fer-
tugt. Hann heitir Kenneth R.
H. Wem og er búsettur í Skot-
landi.
Alfa er 250 metra langt,
heitir í raun og veru Weather
Monitor, og á heimahöfn í
Skotlandi.
— Segið mér skipstjóri,
hvað eru margir menn um
borð?
, -i Við erum 57. Það er. á-
höfnin með yfirmönnum,- og
svo eru líka veðurfræðingar.
— Og hvað eruð þið lengi
úti I einu?
— Það er um einn mánuður
yfirleitt. 1 lok hvers mánaðar
förum við til Skotlands, og þar
er stanzað í tvær vikur eða
svo. Á meðan hefur áhöfnin
að sjálfsögðu frí. Annars er það
ekki alveg nákvæmt með úti-
leguna, það er miðað við, að
við förum átta ferðir á ári, og
sniðið út frá því.
— Er ekki einn mánuður
nokkuð langur tími að velkjast
á hafinu?
slæmt og það kann að virðast.
— En á jólunum, hvernig er
það þá? Og hvar voruð þið
núna um jólin?
— Jólin á hafinu eru alls
ekki sem verst. Við vorum á
stöð Alfa um þessi jól. Ég segi
náttúrlega ekki, að það væri
ekki meira gaman að vera
heima hjá fjölskyldunni, en við
skemmtum okkur ágætlega, og
það er mjög góður og hátíðleg-
ur jólaandi. Það er að sjálf-
sögðu allt gert til þess að svo
megi vera, jólamatur, kalkún
Stuff rabb við skipsfjórann á
Weatber ftlonitor,eðii veðurskipi Alffo
— Jú, það getur oft verið
anzi langt, sérstaklega ef veður
er slæmt, en við höfum nóg til
þess að dreifa huganum.
— Hvernig er það með fjöl-
skyldumenn, eru þeir ekki
stundum orðnir óþolinmóðir?
Eða er kannski enginn kvænt-
ur?
— Jú, það eru nokkrir fjöl-
skyldumenn, og tíminn er að
sjálfsögðu lengur að líða fyrir
þá, en þeir bæta sér það upp,
þegar þeir fá frí.
— Eru mennirnir oft lengur
en einn túr?
. Já,'iþeir eru yfirleitt-leng-.
,uf»j»jÞetta ,e$ ekki. ejns
auðvitað, og margt gert til
skemmtunar. Okkur leið öllum
mjög vel, og við vorum glaðir
og ánægðir.
— Á hvaða aldri eru menn,
sem ráða sig á svona skip?
— O, þeir eru eiginlega á
öllum aidri. Við höfum nokkra
unga menn um borð núna, og
það er sérstaklega einn, sem
mér kemur f hug. Hann er 15
ára gamall. Ég hafði aldrei séð
hann, þegar við gerðum iiðs-
könnum, eftir að við lögðum úr
höfn. Ég er nú ekki stór mað-
ur, eins og þið sjáið, en þegar
ég kom inn f káetuna hans,
varð ég að líta niður til að sjá
iHMlU.
Kenneth R. H. Wem, skipstjóri. (Ljósm. Vísis, B. G.)
hann. Og það fyrsta, sem hrökk
upp úr mér var: — Guð minn
góður, veit mamma þín, að þú
ert hérna?
— Hvernig fáið þið svo
fréttir frá umheiminum?
— Tja, bæði um útvarpið, og
svo er fleygt pósti og blöðum
niður til okkar úr flugvél.
— Og hvað gerið þið ykkur
til skemmtunar?
— Það er margt, sem við
getum gert til þess að hafa
•-
- l "T ;
■
.
Weather Monitor, eða Alfa eins og það er yfirleitt kallað. (Ljósm. Vís is B.G.)
ofan af fyrir okkur. Það er
gott bókasafn um borð, sýndar
eru kvikmyndir, og svo geta
menn spilað og teflt. Og ef allt
annað bregzt, látum við þá
bara vinna, bætir Kenneth við
brosandi.
— Hvernig er skap ykkar
eftir mánaðardvöl á hafinu?
Eruð þið ekkert orðnir leiðir
hver á öðrum?
— Nei, ekki verð ég var við
þafi. Skapið er yfirleitt ágætt.
Þetta eru góðir og^vel þjálfaðir
menn, og þeir hafa nóg við að
vera.
— En þá maturinn? Eru þið
ekki orðnir leiðir á honum?
— Nei, langt frá þvf. Hann
er mjög fjölbreyttur og góður,
svo að ekki er yfir neinu að
kvarta. Enda er það eitt af
undirstöðuatriðunum, þegar
verið er lengi á sjó, að hafa
góðan og fjölbreyttan mat.
— Hvernig er það með ykk-
ur, þegar kemur mjög vont
veður. Þið eruð auðvitað löngu
búnir að sjá það og komnir f
var?
— Hamingjan hjálpi mér,
nei, nei, hrópar Kenneth hlæj-
andi. Við erum á veðurskipi,
og getum alls ekki látið það
um okkur spyrjast, að við
flýjum undan veðrinu. Nei,
við erum kyrrir úti, hvað sem
á gengur.
— Er ekki þreytandi að vera
þarna í langvarandi illviðri?
Verðið þið ekki þreyttir á stöð-
ugum veltingi?
— Jú, það er oft anzi þreyt-
andi, þegar óveðrið stendur
lengi. En við erum nú ýmsu
vanir.
Lög um œskulýðs-
mál undirbúin
Menntamáiaráðuneytið hefur skip
að nefnd tll þess að scmja frum-
varp til laga um æskulýðsmál, þar
sem sett séu ákvæðl um skipulagð
an stuðnlng rfkis og sveitafélaga
vlð æskulýðsstarfsemi, er meðal
annars miði að þvf að veita æsku-
fóild þroskandl vfðfangsefni f tóm-
| stundum. Formaður nefndarinnar
er Knútur Hailsson, deildarstjóri í
I menntamálaráðuneytinu, og farið
hefur verið fram á að eftirgreindir
menn tæki sæti í nefndinni: Iþrótta
fulltrúi ríkisins, Þorsteinn Einars-
I son, æskulýðsfulltrúi Reykjavíkur-
borgar, síra Bragi Friðriksson,
tómstundaráðunautur Æskulýðs-
ráðs, Jón Pálsson, forseti íþrótta-
| sambands isl., Gísli Halldórsson,
sambandsstjóri Ungmennafélags Is-
j lands, sira Eiríkur J. Eiríksson,
l skátahöfðingi islands, Jónas B. Jóns
I son, forseti Æskulýðssambands ís-
i lands, Ólafur Egilsson, og æsku-
Iýðsfulitrúi Þjóðkirkjunnar, síra
Ölafur Skúlason.
I
|
! Ætlazt er til, að nefndin hafi
lolóð störfum svo snemma, að unnt
. verði að leggja frumvarp um æsku
; lýðsmál fyrir næsta reglulegt Al-
þingi.
Jólaget-
raunin
Lausnir í jóiagetraun Vísis
þurfa að berast til ritstjórnar
blaðsins fyrir 15. janúar.
— Er skipt reglulega um
yfirmenn?
— Nei, það er ekki gert. Þeir
eru bara skipaðir í sínar stöð-
ur, og þar verða þeir. Þeir
geta auðvitað fengið sig flutta,
ef þeir óska þess, en fæstir
gera það.
— Hvað verðið þið svo lengi
hérna?
— Þangað til búið er að gera
við eimingartækið.
Og þegar viðgerðinni er lok-
ið, mun veðurskip Alfa aftur
senda tilkynningar sínar frá
62 N og 33 W, í hvaða veðri
sem er. ótj.
a
BLH