Vísir - 20.03.1964, Side 3
f
V i s I R . f östudagur 20. marz 19íý
’■'!mtKwmaiK
1 >>
Arsþing
iðnrekenda
Knud Kaaber, Sigurplasti, Sveinn B. Valfells, VÍR, Böðvar Jónsson,
Vinnufatagerðinni, og Bjarni Björnsson, Dúk.
Ársþing iönrekenda stendur
yfir þessa dagana. Hófst þingið
s.l. miðvikudag í Sjálfstœðis-
húsinu en lýkur á morgun,
Iaugardag. Rætt er um öll
helztu hagsmunamál iðnaðarins
á þinginu. í setningarræðu
þeirri er formaður Félags ís-
Ienzkra iðnrekenda, Gunnar J.
Friðriksson flutti við upphaf
þingsýis, kom fram, að iðnað-
arframleiðslan jókst um 4—5
prs. s.I. ár til jafnaðar. En sam-
dráttur varð í nokkrum iðn-
greinum.
Iðnaðarmálaráðherra, Jóhann
Hafstein, flutti ávarp við þing-
setninguna. Kvað hann íslenzk-
an iðnað hafa náð góðum
þroska þrátt fyrir stutta sögu.
Ráðherrann sagði, að heima-
markaður iðnaðarins væri þröng
ur og því væru því mikil tak-
mörk sett hversu niikið væri
unnt að efla íslenzkan iðnað,
ef hann ætti eingöngu að grund
vallast á innanlandsmarkaði.
Hefði því verið rannsakað
hvort ekki væri unnt að koma
á fót útflutningsiðnaði, er
grundvallazt gæti á orku ís-
lenzkra fallvatna. Væri nú unn-
ið að athugunum á því hvort
kleift yrði að ráðast í slíkan
stóriðnað.
Myndsjáin er frá upphafi
þings iðnrekenda. Á efstu mynd
inni sér yfir salinn. Við borðið
yzt til vinstri má sjá Þóri Jóns-
son, forstjóra Sveins Egilssonar
h.f., Guðmund Guðmundsson í
Víði og Svein K. Sveinsson í
Völundi.
& •
V'-- -'x.'
Þorsteinn Guðbrandsson, Iðunni, Emanuel Morthens, Barðanum, Guðmundur Gíslason, Bifreiðar
og landbúnaðarvélar, og Sigurjón Sigurðsson, Álafossi.
Fimm smáflugvélar bætast
i fíugflotaua nú í vor
Það eru ekki aðeins Loftleið-
ir, sem von eiga á nýjum flug-
vélum í flugflota sinn í vor.
Fjórir aðilar aðrir standa í
flugvélakaupum um þessar
mundir, en þar er um að ræða
litlar farþegaflugvélar fyrir 10
manns. Eru flugvélar þessar af
Beechcraft C45H-gerð, tveggja
hreyfla.
Tryggvi Helgason, flugmaður
á Akureyri á um þessar mundir
4 flugvélar af þessari gerð og
eru allar i Bandaríkjunum.
Tryggvi sagði í viðtali í gær,
að hann mundi sennilega fara
utan I maí n.k. og reyna að
selja 2 vélanna í Bandaríkjun-
um en kaupa varahlutalager
fyrir andvirði þeirra. Tvær
flugvélanna mundi hann ferja
heim og reka þær frá Akureyri
eins og aðrar vélar flugflota
síns. Tryggvi á sem stendur 8
vélar, 4 Beechcraft C45H, sem
eru í Alabama í Bandaríkjunum
og fá þar viðgerð á hreyflum,
og eina vél af Piper Colt, Piper
Apache Piper Cup og Auster.
Sagðist Tryggvi vera þess full-
viss að nóg verkefni biðu vél-
anna á Akureyri.
Flugsýn i Reykjavík á von á
flugvél af sömu gerð og Tryggvi
fær, þ.e. 10 sæta Beechcraft.
Magnús Stefánsson hjá Flugsýn
sagði að flugvélin yrði einkum
notuð á áætlunarflugleiðina til
Norðfjarðar og hefði bæjar-
stjórn Norðfjarðar veitt Flug-
sýn styrk í þessu sambandi.
Flugsýn á fyrir 7 flugvélar, sem
eru notaðar í kennslu- og leigu-
flug. Á félagið 3 Cessna-140 og
eina Cessna-180, 1 Stinson,
Piper Colt og Navion.
Eyjaflug nefnist nýtt flugfé-
lag, sem hyggst bæta flugsam-
Þetta er flugvélin, sem verður áberandi í íslenzka flugflot-
anum - BEECHCRAFT C45H.
göngur við Vestmannaeyjar.
Félagið hefur í hyggju að kaupa
Beechcraft af sömu gerð og
Flugsýn og Tryggvi og mun það
mál komið á rekspöl, en einnig
hefur verið talað um kaup á
stærri flugvél.
Guðbjörn Charlesson á ísa-
firði mun að öllum líkindum
kaupa flugvél, sem bæjarstjórn '
Isafjarðar mun leggja í fé.
Verður þetta splúnkuný Piper
Apache-flugvél, sém tekur 5
farþega.