Vísir - 20.03.1964, Blaðsíða 8
8
V1SIR . Föstudagur 20. man lfM
VISIR
Otgefandi: BlaOaútgáfan VÍSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
AOstoOarritstjóri: Axcl Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn 0. Thorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiOsla Ingólfsstrœti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði
í lausasðlu 5 kr. eint. - Simi 11660 (5 linur)
Prentsmiðja Visis. - Edda h.f.
Merkar tillögur
'Pillögur Þorvalds Garðars Kristjánssonar til lausnar
á vandamálum íbúðabyggjenda eru mjög athyglisverð-
ar og benda á hvemig koma má bættu skipulagi á í
húsnæðismálunum. í dag bíða nær 2.500 umsóknir
um lán hjá Húsnæðismálastjórn. Til þess að fullnægja
þeim þarf yfir 200 millj. króna fjármagn. Augljóst er,
að við mikinn vanda er að etja, og er hann enn ekki
leystur.
Tillögur Þorvalds gera ráð fyrir, að komið verði á fót
fjómm veðlánakerfum í landinu. Fjármagnsins verði
leitað eftir ýmsum leiðum. Þar koma til greina vá-
• ryggingafélögin, aukinn skylduspamaður, meiri þátt-
taka Atvinnuleysistryggingarsjóðs og bein óafturkræf
framlög ríkisins. Með því að afla fjár frá þessum að-
ilum mætti auka ráðstöfunarféð til húsnæðis upp í
225 millj. krónur á ári, sem talið er lágmark þess sem
barf, en á síðasta ári hafði Húsnæðismálastjóm aðeins
/fir um 100 millj. krónum að ráða. Sjálfsagt er að
ylgja þessum tillögum eftir og þrautkanna, hvort ekki
ná auka húsnæðisfjármagnið á þennan hátt. En aukn-
ng lánsfjárins dugir ekki ein út af fyrir sig. Fleira
5arf að koma til. Efst á blaði er þar lækkun byggingar-
kostnaðar. Samkvæmt lögum á Húsnæðismálastjórn
ið vinna að því máli. En fram til þessa hafa ráðstaf-
mir hennar í því efni verið lítils eða einskis virði.
Þess vegna þurfa aðrir opinberir aðilar að koma hér
til, t. d. Iðnaðarmálastofnunin, auk þess sem einstakl-
ingar verða og að hafa hér forystu. Þá þarf og að koma
’óðamálunum í lag, þannig að einkasöluaðstaða í sam-
bandi við byggingar sem nú tíðkast hverfi úr sögunni.
það hefir engum dulizt, að lánsfjárskortur húsbyggj-
enda er ein af orsökum hinnar langvinnu og óheilla-
vænlegu verðbólgu, sem íslenzkt þjóðfélag hefir hrjáð.
Ef unnt yrði að fullnægja eftirspurn eftir lánum að
mestum hluta, lækka byggingarkostnaðinn og koma
betra skipulagi á heildarmál húsbyggjenda, myndi það
draga úr þeirri verðbólguþróun, er nú á sér stað. Þann-
ig er breytt heildarskipul. húsnæðismálanna snar þátt-
ur í lækningu þessa mikla vandamáls. Þess vegna er
þess að vænta, að þær tillögur, sem hér hafa verið
gerðar að umtalsefni, fái þann byr sem nægir til þess
að koma betri skipan á þetta mikla hagsmunamál nær
hverrar íslenzkrar fjölskyldu.
Heimsókn Edinborgarhertoga
JJeimsókn Filipusar hertoga af Edinborg hingað til
lands í sumar er merkisviðburður í samskiptum brezku
og íslenzku þjóðanna. Hún undirstrikar þau nánu
tengsl, sem liggja milli þessara tveggja þjóða. Forseti
landsins gerði ágæta för til Bretlands í haust og fagn-
a.i nú góðum brezkum gesti að Bessastöðum. Um hríð
var grunnt á hinu góða milli Breta og íslendinga. Sá
tími er nú liðinn og heimsókn hertogans er enn ein
staðfesting þeirrar staðreyndar.
Greindarbogi, er sýnir mismunandi greindarvisitölu.
Komin er út 5. úteáfa af
bók Ólafs Gunnarssonar sál-
fræðings „Starfsval". í bókinni
er athyglisverð grein um hæfi-
leika og skapgerð og fer hún
hér á eftir:
Tvennt þurfa allir, sem velja
sér ævistarf, öðru fremur að
hafa í huga. Annars vegar um
hvað er hægt að velja i þjóðfé-
laginu. Hins vegar hvernig hæfi-
leikar einstaklingsins samræm-
ast hinum ýmsu störfum.
Mikilvægt er, að hæfileikar
og starf séu 1 sem nánustu
samræmi hvort við annað.
Starf, sem ekki gerir nógu
sérðu, hvernig mannkynið
dreifist eftir gáfnafari. Til þess
að ganga úr skugga um, hvar
þú ert í greindarstiganum,
verðurðu, að ganga undir gáfna
próf, en þau hafa aðeins sál-
fræðingar tæki og kunnáttu til
að framkvæma. Hér á landi eru
svo fáir sáifræðingar, að mjög
fáir eiga þess kost að láta
mæla greind sína hjá þeim.
Flestir verða því að leita ann-
arra ráða til þess að gera sér
grein fyrir hæfileikum sínum.
Beztu ráðin til þess að komast
nærri réttu mati á náms- og
starfshæfileikum er að athuga
námsárangur I hlutfalli við
unglingnum sjálfum og hans
nánustu. Betri og einlægari
samvinna heimila og skóla hefði
oft getað komið í veg fyrir ó-
sigrana. Þess vegna skaltu I
fullri einlægni ræða við þá
kennara, sem þú þekkir bezt
og treystir fullkomlega.
Þótt einkunnir á prófum skól
anna séu mikilvægur leiðarvísir,
hvað val framhaldsnáms og aevi
starfs snertir, er þeim ekki ai|t-
af treystandi. Óvenjumikii iðni
eða vanræksla f námi geta haft
þau áhrif á prófeinkunnir, að
þær gefi ekki rétta hugmynd
um hina raunverulegu getu
nemenda.
Ekki má heldur gleyma þvf,
að áhugi manna og hæfileikar
beinast að mjög mismunandi
efnum. Sami maðurinn getur
skarað fram úr á einu sviði en
verið skussi á öðru.
Greindarstig mannsins og
ekki síður sérhæfileikar hans
ráða miklu um velgengni hans
í lifinu. Samt sker greindin ein
aldrei úr um það, hversu nýtur
hver og einn verður í starfi. I
því efni ræður skapgerðin
miklu og oft og einatt meiru en
gáfurnar.
Allir, sem náð hafa fullorðins
aldri, þekkja menn, sem þrátt
fyrir góða greind komast ekkert
áfram 1 lífinu. Brotalamir í
skapgerð þeirra verða þeim
Hæfileikar og skapgerð
miklar kröfur til hæfileika
mannsins, verður fljótlega leiði-
gjarnt og skapar ekki þá vinnu-
gleði, sem hverjum heilbrigðum
manni ér eðlileg.
Starf, sem er vandasamara
en svo, að hæfileikar einstakl-
ingsins séu f samræmi við það,
er jafn óheillavænlegt. Maður-
inn verður þá sf og æ að leitast
við að gera meira en hann get-
ur, en það leiðir óumfiýjanlega
til margs konar ósigra. Ósigrar
hins getulitla manns skapa oft,
þegar tímar Ifða, vanmetakennd,
sem einatt grefur undan Iffs-
hamingju manna og getur jafn-
vel orðið hættuleg geðheilsu
þeirra.
Munur á almennri greind
manna er mjög mikill, f greind-
arstigum fræðilega séð allt frá
0—200, en meðalgreind er mið-
uð við töluna 100. Meira en
helmingur mannkynsins hefur
því sem næst meðalgreind, ör-
fáir svo litla hæfileika, að þeir
verða ekki mældir. Fólk á svo
lágu greindarstigi nefnist örvit-
ar og er aila ævi ósjálfbjarga
með öllu. Jafnfáir skara langt
fram úr öðrum, hvað hæfileika
snertir. Þeir verða oftast, ef
skapgerðarþroski er í hlutfalli
við greindina, afburðamenn á
einhverjuni sviðum.
Á myndinni af greindarbog-
anum, sem fylgir þessum kafla,
námsástundun og starfsárangur
í hlutfalli við áhugasvið.
Kennarar þfnir og skólastjór-
ar eru yfirleitt beztu og hlut-
lausustu ráðgjafarnir, sem þú
getur ráðfært þig við með tilliti.
til náms- og starfsvals, en auk
þeirra er eðlilegt, að þú leitir
ráða fagmanna á ýmsum svið-
um og að sjálfsögðu foreldra
þinna.
Því miður kemur það stund-
eftir
Ólaf Gunn-
arsson
um fyrir, að ástrfkir foreldrar,
sem allt vilja fyrir börnin sfn
gera, telja þau á að velja sér
námsbraut, sem ekki samræmist
hæfileikum þeirra. Slfku náms-
vali fylgir oft mikil óhamingja.
Þegar verst gegnir eyða ung-
lingar fleiri árum f að stunda
nám, sem þeir ráða ekki við og
hafa engan eðlilegan áhuga á.
Stundunj liggur ósigurinn fyrir-
fram í augum uppi öllum. nema
fjötrar um fót, þannig að þeir
verða sjálfum sér verstir, og
sjálfskaparvítin eru verst.
I skólum, þar sem starfs-
fræðsla er orðin námsgrein,
getur það orðið efni í miklar og
gagnlegar samræður innan
bekkjanna, hvaða skapgerðar-
brestir standa lífshamlngju
maana mest fyrir þrifum, Er
það hyskni, leti, sérhlffni, þoi-
leysi, hringlandaháttur, bráð*
lyndi, kæruieysi, tiilitsleysi
gagnvart öðrum eða óáreiðan-
leiki í orði eða verki, svo a»-
eins nokkuð sé nefnt, sem fyrr
eða síðar leiðir til ófamaðar I
lffinu.
En jafnframt er sjálfsagt að
gera sér grein fyrir, hvaða eig-
inleikar eru veigamiklir þættir
f heilsteyptri skapgerð.
Þar má nefna góðiyndi og
glaðlyndi, jafnaðargerð, stefnu-
festu, iðni, samvizkusemi, á-
reiðanleika og fleira.
í stuttu máli má segja, að sá,
sem ber virðingu fyrir sjáifum
sér, verði oftast farsæli maður,
þvf sjálfsvirðingin forðar hon-
um frá óhappaverkum og skap-
ar virðingu hjá honum fyrlr
öðrum.
Þetta geturðu athugað betur
með þvf að Iesa ævisögur
nokkurra beztu manna sðgunn-
ar.
Nýjar reglur um afgreiðslu-
tíma verzlana taki gildi 1. apríl
Um næstu mánaðamót á að
koma til framkvæmda hin nýja
samþykkt um afgreiðslutíma
verzlana í Reykjavík en sam-
kvæmt henni er gert ráð fyrir
að verzlun í hverju hverfi verði
opin tU kl. 10 á kvöldin.
Hafa Kaupmannasamtökin
undanfarið unnið að þvi að at-
huga ýmis atriði varðandi fram-
kvæmd hinnar nýju samþykkt-
ar.
I .gar hin nýja samþykkt tek-
ur gildi verður bannSð að selja
vörur gegnum söluop á mat-
vöruverziunum og nýjar reglur
taka þá einnig gildi varðandi
sölutuma og sælgætisverzlanir,
þ. e. hinar svokölluðu „sjopp-
ur“. Er gert ráð fyrir, að
„sjoppurnar" selji emgöngu um
söluop og selji til kl. U.30 e.h.
eins og áður.
Framhald i Ms. «
mmmmmmmmmmmmmmm