Vísir - 23.03.1964, Blaðsíða 1
■ <$>
VISIR
54. árg. — Mánudagur 23. marz 1964. — 70. tbl.
ForsætisráSherra boðið til
íslendingabyggða í Kanada
Vestur-íslendingar hafa ir þeirra á 75. íslendinga boðið. Mun forsœtisráð
boðið dr. Bjama Bene- hátíðinni að Gimli í Kan herra og frú hans verða1
diktssyni forsætisráð- ada 3. ágúst n. k. Hefur boðið að ferðast um ís-1
herra og frú að vera gest forsætisráðherra þegið lendingabyggðir vestra!
<§>-
m ÚNDRIN AD SAURUM AF
MANNA VÖLDUM?
Blaðamaður frá Vísi var
sendur norður á Skaga að-
faranótt laugardags til þess að
athuga undrin þar. Hann
dvaldist daglangt að Saurum á
Nesjum til þess að Iýsa því,
sem hann sá og heyrði þar.
Hann komst m. a. að þvi, að
tveir sjónarvottar eða fleiri,
hafa aldrei séð sama „atvik“
gerast. Fólkið á bænurn er orð-
ið þreytt á glettunum. Hér kem-
ur frásögn hans af atburðunum:
■JTyrirbærin „úti á nesjum" á
Skaga byrjuðu aðfaranótt
miðvikudags I siðustu viku.
Að Saurum er bær, sem er
tvo kílómetra frá gömlu út-
róðrar- og verzlunarstöðinni
Kálfshamarsvík. Þar búa ölduð
hjón, Guðmundur Einarsson,
72 ára, og kona hans Margrét
Benediktsdóttir á svipuðum
aldri, ásamt dóttur þeirra Sig-
urborgu, 24 ára, og syni, Bene-
dikt, liðlega þrítugum.
Hundgamall bærinn hvílir á
malarkambi niður við sjávar-
mál. Þar er kyrrð. Sjófuglar
garga ámátlega annað veifið.
Vitinn í Kálfshamarsvík blikk-
ar út í djúpan flóann, og svo
tekur Dumbshafið við og heldur
út í óendanleikann.
Þessa nótt, þegar tunglið var
hálft — það þykir stundum
boða vá, ef það er rautt — og
vetrarbrautin lá yfir himin-
hvolfið, gerðist það i gömlu
blámáluðu baðstofunni á Saur-
um laust fyrir óttu - gömlu
hjónin sofa sitt í hvoru rúmi
undir innveggi, að sporöskjulag
að borð úti við gluggann kipp-
ist við eins og dýr og hendist
fram á gólf af þó nokkru afli
og fer um koll. „Fylgdi þessu
högg eða eitthvað þvíumlikt",
eins og Guðmundur bóndi sagði.
Húsfreyja vaknar og kallar
til bónda. Þau rísa bæði upp
við dogg, felmtruð. Dóttir
Bluðið í dug
BIs. 2 íþróttir.
— 3 og 8: Frásögn Vísis
af atburðunum aö
Saurúm.
— 9 Viðtal við Hjalta
Þórarinsson. Iækni
um skurðaðgerðir í
brjóstholi.
þeirra, Sigurborg, sem sefur í
litia herberginu milli eldhúss og
baðstofu, vaknar líka. Inni í
eldhúsi sefur sonurinn Bene-
dikt. Hann kemur líka á vett-
Svona byrjuðu hræringarnar. Fyrirbærin gernst aðeins«er einn eðn enginn er viðstaddur
Síðan hélt þetta áfram, að því
er heimilisfólkið á Saurum. , ..
sagði, næstu daga og nætur og |
barst víðar um húsið: inn í !
eldhúsið — þar er gamall ram-
ger skápur uppi við innvegg,
sem fór af heljarafli fram á ;
gólf og liðaðist í sundur; inn í
búr, þar sem leirtau hristist og
brotnaði. Fitonsandi hljóp í
eldhúsborðið við gluggann einn
morguninn, þegar gömlu hjón-
in voru þar, skömmu eftir að
flugmaðurinn að sunnan var
farinn með heimasætuna og syst
ur hennar til höfuðborgarinnar
og Spánverjann, sem kom til
að athuga dys samlandanna,
sem eru huslaðir á Framnesi.
Þá byrjaði ballið á nýjan leik.
Guðmundur bóndi sneri baki í
konu sfna og var að huga að
einhverju. Húsfreyjan sat við
borðið og var að drekka kaffi
— þá buldi við brestur og
dansinn upphófst. Margrét
lagðist fram á borðið og studdi
höndum við það af öllum mætti,
en borðið varð æ meira og
meira lifandi og þeyttist fram
á gólf. Á síðustu stundu tókst
henni að grípa mjólkurkönnu
á þvi og bjarga henni. Þá fóru
diskar í mél, nær allir á heim-
ilinu. Svona gekk það glatt á
Skaganum f það sinnið.
Stólskrifli í baðstofunni hafði
Framh. á bls. 3.
Sporöskjulagaö borð á Saurum við baðstofugluggann. Ævar Jóhannsson forstjóri situr við það,
Maður með dulræna hæfileika, sem Vísir fékk til að vera með í Skagaferðinni.
Bærinn Saurar klúkir dimmleitur á fjörubakkanum og snýr bakhliðinni að komumönnum.