Vísir - 02.04.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 02.04.1964, Blaðsíða 1
VISIR SIGLUFJARÐAR- SKARÐ RUn Nú má búast við stórhrið hvað úr hverju með fannmokstri og frosthörkum. Þessi veðurspá kemur að vísu ekki frá Veður- stofunni heldur frá Vegagerð rikisins, því hún hefur látið byrja að moka Siglufjarðar- skarð. 1 Það hefur á undanförnum ár- um þótt nokkuð óbrigðult að hafí Siglufjarðarskarð verið rutt snemma vors hafa veðurguðirn- ir umhverfzt og mokstrinum ekki fyrr verið lokið en göngin hafa fyllzt að nýju og skarð- ið orðið -ófært með öllu. En þrátt fyrir þetta aetlar Framh. á bls. 6 Þessa mynd tók BG ljósmyndari Vísis um kl. 8 í morgun í gömlu sundlaugunum. Þar er >51k að njóta morgunsólarinnar, en í lauginni var múgur og margmenni og munu um 70 manns hafa komið á einum stundarfjórðungi eftir að opnað var. SÓLBAÐ í MORGUN Góða veðrið að undanförnu hefur áhrif á mörgum sviðum. Þannig hefur það haft mikil á hrif á aðsóknina að sundstöðum Reykjavíkur. „£g held bara að sumargestimir okkar séu þegar famir að mæta,“ sagði einn sundlaugarvörðurinn í morgun. t FARA FRAMKVÆMÐIR AÐHEFJ- AST í SJÓNVARPSMÁUNU? Sjónvarpsnefndin hefur nú að I mestu lokið störfum, þ. e. hætt1 reglulegum fundum, sem hafa j verið nær því á hverjum degi. J Hún hefur samið mikla skýrslu um sjónvarpsmálin og er nú ver- j ið að leggja síðustu hönd á hana, vélrita hana, og verður það mikið plagg, sem fjallar bæði um fjárhagsmál, tæknimál og sjónvarpsefni. Verður hún mjög ýtarleg, og mun hún verða afhent menntamálaráðuneytinu næstu daga. Vísir átti tal við útvarpsstjóra I um málið í morgun. Hann sagði, að ekki væri hægt að svo komnu I máli að gefa neinar upplýsingar um tillögur þær, sem nefndin leggur fram í skýrslu, enda væri það mál ráðuneytis og ríkisstjórnar að á- kveða, hvort tillögur hennar yrðu framkvæmdar. Hins vegar má ætla, að sjón- varpsnefndin sé mjög áhugasöm og áfram um það, að framkvæmdir í sambandi við sjónvarpið hefjist ! hið fyrsta. Fram að þessu hefur málið verið á algeru undirbúnings- stigi, en nú er að því komið, að taka þarf ákvörðun um það, hvort farið verður að ráða starfsfólk, t^eknimenntaða menn og stjórn- endur til að hefja fyrstu fram- kvæmdir í stofnun sjónvarpsstöðv- ar. í gömlu góðu sundlaugunum var látlaus aðsókn f morgun en þó lang mest fyrst eftir að opnað var kl. 7.30. Þangað komu rnenn úr öllum stéttum til að fá sér bað og sundsprett áður en haldið skyldi til vinnu. Um kl. 10 í morgun höfðu hvorki meira né minna en 150 gestir komið þangað. í Sundlaug Vesturbæjar var biðröð út úr dyrum í morgun, þegar opnað var kl. 7.30. Þetta var mest fullorðið fólk, en skóla fólkið, sem lærir sund f lauginni kemur seinna um morguninn. Munu gestir f sundlauginni hafa verið hátt á 2. hundrað talsins snemma í morgun. SundhöII Reykjavíkur er yfir- leitt undirlögð af nemendum skólanna til kl. 16 á daginn og hefur nokkra sérstöðu og fær ekki eins marga gesti og hinar sundlaugarnar tvær. Jarðskjálftamælir að SA URUM Vísir hefur fregnað, að ætlunin sé að setja upp jarðskjálftamæli að Saurum til þess að kanna til hlítar, hvort fyrirburðimir þar eigi Blaðid s dug BIs. 3 Myndsjá frá aðalf. stórkaupmanna Umferðarsíðan fjall- ar um hin tíðu um. ferðarslys. Teikning gerð af kirkju í Bústaðahv. 9 Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, skrifar um Kjara- dóminn. - 4 - 7 rætur sínar að rekja til jarðhræringa. Hvíiir hin rnesta leynd yfir áformi þessu, en Vísi tókst þó að fá það staðfest í morg un, að óskað hefði verið eftir, að jarðskjálftamæl ir yrði settur þar upp. Mun jarðskjálftamælir sá, er var að Ármúla, hafa verið flutt- ur að Saurum, en ekki mun hann þó enn hafa verið settur upp. Vísindamenn norður? Vísir átti í morgun tal við Jón ísberg, sýslumann á Blöndu ósi, og innti hann eftir tíðind- um frá Saurum. Kvað hann fátt frétta, enda hefði heimilisfólkið þar nú ákveðið að láta ekkert uppi. hvort sem eitthvað gerð- ist eða ekki. Jón kvaðst hafa snúið sé,r til dómsmálaráðuneyt- isins og óskað eftir því að vís- indamenn yrðu sendir norður til þess að kanna atburðina, þar eð ekki hefði verið talin ástæða til þess að gera það. Þá hefur blaðið fregnað það úr héraðinu, að fyrirbærin á Saurum hafi haldið áfram, þó í minni mæli sé en f fyrstu. En nú er reynt að halda algerri leynd á málinu, Þegar Vfsir hringdi til Guðmundar Einars- sonar bónda á Saurum, sagði hann, að héðan f frá gæfi hann engar fréttir. Island tekur þátt í viðskiptaráðstefnuSÞ Nýlega er hafin í Genf mikil viðskiptaráðstefna á vegum Sam einuðu þjóðanna. Sækja ráð- stefnu þessa um 1500 fulltrúar frá 120 rikjum og stofnunum. Eiga öll rfki Sameinuðu þjóð- anna fulltrúa á ráðstefnunni. Ráðstefnan hófst 23. marz s.l. og búizt er við að hún standi í 3 y2 mánuð. Höfuðtilgangur ráð stefnunnar er að ræða um það á hvern hátt ríki þau, sem langt eru komin í iðnaðar- og tækni- þróun geti aðstoðað þau ríki, sem skammt eru á veg komin í slikri þróun. Hefur mikið verið um það rætt á þingi Sameinuðu þjóðanna, að hin auðugu ríki þyrftu að aðstoða þau fátækari 'og ráðstefnan er haldin í beinu framhaldi af slíkum umræðum. Utanríkisráðherra hefur skip- að fjögurra manna sendinefnd til þess að taka þátt í ráðstefn- unni af nálfu íslands. Munu sendinefndarmennimir skiptast á um að sitja ráðstefnuna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.