Vísir - 02.05.1964, Page 1
Mikil þátttaka í hátíBahöldum verk
lýðsfélaganna í Reykjavík í gær
Mikil þátttaka var í hátíða-
höldum Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna í Reykjavik i gær.
Var kröfuganga verkalýðsfélag-
anna fjölmenn og gífurlegur
niannfjöldi á útifundinum á
Lækjartorgi. Hefur ekki um
langt skeið verið eins mikil þátt
taka í hátíðahöldum 1. maí. Veð
ur var mjög gott og mun það
hafa átt stóran þátt i því hversu
mikið fjölmenni tók þátt i fund
inum og kröfugöngunni.
Um kl. 1.30 í gær tóku félag
ar úr verkalýðsfélögunum í
Reykjavík að safnast saman við
Iðnó, þar sem kröfugangan
skyldi hefjast. Kl. 2 lagði gang-
an af stað og var gengið und-
ir fánum verkalýðsfélaganna og
kröfuspjöldum um nokkrar
helztu götur borgarinnar en
gangan staðnæmdist um 15 min
útur fyrir 3 við Lækjartorg.
Á Lækjartorgi hófst síðan
útifundur, er Fulltrúaráð verka
lýðsfélaganna í Reykjavík stóð
fyrir. Óskar Hallgrímsson for-
maður Fulltrúaráðsins setti fund
inn og stjórnaði honum. Mælti
hann í upphafi nokkur orð.
Fagnaði hann því, að samkomu-
lag skyldi liafa náðst um hátíða
höldin 1. maí að þessu sinni og
alþýða Reykjavikur því geta
Framh. a bls. 6
Eftir því sem Vfsir hefur
fregnað mun skipið Jörundur
II. úr Reykjavik hafa orðið fyrst
ur til að veiða vorsíld að þessu
sinni. Um kl. 10 á fimmtudags-
morguninn var skipið statt rétt
norður af Þrídröngum og var
þá á leið til Þorlákshafnar með
um 35 tonn af þorski, sem
veiðst hafði í nót. Komu þeir
þá auga á mikla síldartorfu og
köstuðu Og höfðu á augabragði
fengið í nótina um 1000 tunnur
af all sæmilegri síld. Hélt Jör-
undur II. eftir það áfram til Þor
lákshafnar, þar sem hann land-
aði þorskinum og nokkrum
hluta af síldinni. Jörundur II.
er eign Guðmundar Jörundsson
ar, 267 tonn, alveg nýsmíðaður
í Englandi. Skipstjóri er Runólf-
ur Hallfreðsson frá Akranesi.
Síðar um daginn urðu fleiri
bátar varir við síld og virtist |
síldarmagnið mikið. Ekki varð
þó um mikla veiði að ræða m.a.
vegna þess að alger frídagur
var fyrir höndum og því ekki
hægt að taka við síldinni.
Viðey mun hafa fengið um
1400 tunnur, Eldey 1100, Heima
skagi með 900 sem fengust í
einu kasti og Engey með 500
tunnur.
Það er ábyggilega mikill hug
ur í sjómönnum að hefja vor-
sildveiðina, og má segja að þessi
vertíð ætli ekki að gera það
endasleppt við okkur, ef góð
vorsíldarveiði kemur nú í kjöl-
far þorskótaveiðinnar
Lóðað á miklu síldarmagni við suðurströndina
Vorsíldin er komin og
er það sögn sjómanna,
að á síðasta apríldegi
hafi þeir lóðað fyrir
mjög miklu síldarmagni
við suðurströndina. Þó
voru aðeins fáeinir bát-
ar sem köstuðu á síld-
ina, þar sem sýnilegt var
að mjög erfitt yrði um
á þorsknótaveiðinni enda er
þorskurinn nú skyndilega eftir
hrygninguna orðinn mjög magur
Hann hefur runnið með skjótum
hætti og virðist hann orðinn
lítið annað en bein og roð, þessi
fiskur, sem fyrir fáeinum dög-
um var spikfeitur.
móttöku á henni, þar
sem ekkert yrði unnið
1. maí.
Það kemur sér vissulega vel,
að síldin skuli vera komin, því
að menn eru að verða þreyttir
54. árg. — Laugardagur 2. maí 1964. — 99. tbl.
HAFNARFJÖRÐUR mun
stækka um 4200 hektara
Nýlega hafa Hafnarfjarðar-
bær og Garðahreppur gert sam-
komulag um það, að Hafnar-
fjörður fái land, sem nú er
innan marka Garðahrepps en
Garðahreppur fái svæði, sem
Hafnarfjörður hefur á leigu til
ársins 2015. Samkomulag þetta
mun færa Hafnarfirði 4200
hektara landsvæði fyrir sunnan
bæinn en Garðahreppur mun
fá ágætt byggingarland í
Hraunsholtslandi.
Framh á bls. 6
IBhH MUBi Píg™*w________________________________
Þessa mynd tók fréttamaður Vísis austur í Þorlákshöfn, þegar fyrsti síldarbáturinn, Jörundur II.,
kom þar að landi og verið var að háfa síldina upp.
VORSIL D VIIBARNAR HAfNAR
Blaðið í dag
BIs. 3 Myndsjá. Á skíðum
i Noregi.
— 4 Afmælisviðtal við
Magnús Jónasson bíl-
stjóra I Borgarnesi.
— 7 Síðari hluti erindis
lögreglustjóra um á-
fengismál.
— 8 Lögregluspjaldskrá
Dana.
— 9 Viðtöl við upprenn-
andi, ísl. leikkonur.