Vísir - 02.05.1964, Blaðsíða 15

Vísir - 02.05.1964, Blaðsíða 15
V í SIR . Laugardagur 2. maí 1964 75 Hann var í þungu skapj og von laus, er hann kom heim 17. Meðan Angela sat í vagninum reyndi hún að gera sér grein fyrir hversu hún skyldi haga bar áttu sinni. Henni var ljóst, að hún yrði framar öðru að komast að raun um með hverjum hætti vasabók Cecile Bernier hafði komizt í íbúð hennar — verið falin undir mosa í blómsturvasa. Og ennfremur með hverjum hætti Emma Rósa hafði horfið úr íbúð hennar. Þetta var tvennt aðskilið, ályktaði hún, — að minnsta kosti gat hún ekki fund ið nein tengsl þarna á milli, en ekki var hún þó í vafa um, að sömu öflin ^ætu hafa verið bama á bak' við og ef til vill höfðu sömu menn verið þarna rð verki Vagninn stöðvaðist fyrir fram ; ~n nr. 108 og hún leit sorgbitn- ■m augum á lokaða íbúð sína og ■'P í gluggana á íbúð sinni og ■.inningarnar streymdu fram í ’.ganum og henni vöknaði um gu. En svo hratt hún þessum irugsunum frá sér og lagði af ' taö upp í íbúð Katrínar og var f' irðu fljót á sér, ef tillit var tek hi til þess hve lengi hún hafði vorið í fangelsinu, en segja mátti, að hugurinn bæri hana ’iálfa leið. Þegar upp kom barði hún að dyrum hjá Katrínu og gekk inn án þess að bíða. Katrin sneri sér við og rak , ’ipp veikt gleðióp er hún sá hver komin var, en það var þó eins og hræðslu blandið, en það staf aði af því hve mikið henni varð um að sjá útlit hennar — og vegna þess, að hún vissi, að hún mundi spyrja um telpuna sína, en hún gat engu svarað,- sem gæti vakið neinar vonir hjá henni. Þær féllust í faðma grátandi og stóðu þannig um stund án , þess að geta komið upp nokkru orði. Það var Katrín, sem varð fyrri til að mæla: - Loksins, loksins eruð þér frjálsar, guði sé lof! Þegar Angela heyrði hana mæla svo náði hún aftur fullu valdi á sér og sagði: - Já, frjáls, en aðeins um stundarsakir og vegna þess að menn kenndu í brjósti um mig, og töldu eftir atvikum rétt, að ég fengi tækifæri til þess að leita að dóttur minni, en ég er enn grunuð, eg ligg enn undir ákæru. Ég verð því að hafa hrað ann á. Ég má ekki eyða einni ein ustu mínútu til ónýtis. Ég verð að forðast geðshræringu og varð veita ró mína - eins og leyni- lögreglumaður, sem haggast ekki. Og nú verðurðu að láta þér skiljast, Katrín, að ég verð að fá að vita allt, um hvert einasta smáatriði. Reyndu nú að rifja allt upp, smátt og stórt, sem gæti orðið til þess að varpa ljósi á það, sem gerzt hefir - um það, sem gerðist meðan ég var hjá dóttur minni i Saint-Julien-du- Sault. Hennar leita ég og, með því að rifja upp gætirðu hjálpað mér. Ég veit, að þú tókst hana að þér, er ég var fangelsuð, en við skulum einnig tala um dag- inn, er dóttir mín hvarf. En Katrín gat ekki annað en endurtekið það, sem hún hafði sagt René Dharville og Leon Leroyer. — Og þú hefir ekkert frétt síð an? spurði Angela. Katrín hristi höfuðið. — Og þú hefir spurt fólk hér ! í grenndinni hvort það hafi orðið | ! nokkurs vart? Og Katrín varð að segja henni, að það hefði engan árangur bor- ið. - Nei, ekkert nema, að gul- um vagni var ekið að húsinu um klukkan tvö, og að ung stúlka steig inn í hann, og menn sáu aðeins mjög óljóst mann, sem sat í vagninum. — Hún hefir verið lokkuð í gildru, án vafa, sagði Angela og lagði hönd að brennheitu enni sínu. Ef til vill hefir það verið notað sem agn, að hún mundi hitta mig. En hvert var farið með hana — og hvers vegna? Ég hefi verið að brjálast af tilhugsun- inni um hvað fyrir hana kann að hafa komið, en nú verðum við að bægja þeim hugsunum frá. Þú veizt hvað ég er ákærð fyrir. Katrín kinkaði kolli. - Og að þessi ákæra er studd með því, að leggja fram vasa- bók, sem fannst í íbúð minni? - Já. — Reyndu nú að muna allt vel. Ég sagði fyrir réttinum, sem satt var, að ég hefði aldrei séð þessa vasabók og það er satt. I — Það sama sagði ég þjónum ! réttvísinnar. - Já, en hún fannst þar, og einhver hefir laumað henni þang að. - Það er augljóst, en hver tautaði Katrín. — Enginn getur svarað þeirri spumingu, nema ef til vill þú. - Ég — ég hefi aldrei hleypt neinum þarna inn. - Engum? - Alls engum? Hugsaðu þig nú vel um. Katrín sat og hnyklaði brúnir og var allniðurlút. Allt í einu kipptist hún við. — Manstu eitthvað?, spurði Angela áköf. — Guð minn góður, sagði Katrín náföl. — Þú manst þá eitthvað? - Já. - f guðanna bænum, talaðu! — Það var svo smávægilegt, ég hélt að engu máli skipti um það. Það var brotin rúða — — Brotin rúða — hvar? - í herbergi Emmu Rósu. — Hvenær? — Daginn áður en þér kom-1 ! uð. | [ — Hvernig brotnaði hún og j hvað gerðist? - Það var maður úti á gang- stéttinni, hann kom spígsporandi eftir gangstéttinni með staf í hendi og hann flaug úr hendi hans og í rúðuna. Hann var ákaf- lega kurteis og svo kom gler- skurðarmeistari og bauðst til að setja rúðuna í. — Og var hann einn þarna í herberginu, þar sem vasabókin fannst? - Já, ég þorði ekki að skilja búðina eftir mannlausa. Angela fór að ganga um gólf fram og aftur. - Nú fer ég að skilja þetta allt betur. Samsæri! Saman tekin ráð! Glerskurðarmeistarinn hefir verið fenginn til þess að fela vasabókina þarna. Hann og mað- urinn með stafinn hafa verið samherjar. Geturðu lýst þeim — fyrst manninum með stafinn. - Hann var ósköp hversdags legur, eins og fólk er flest, og margafsakaði klaufaskap sinn. - Og ég hefi þá ekkert að styðjast við. Heldurðu, að þú gætir þekkt þá aftur? - Ég veit það ekki, ég er ekki viss. Það er víst það eina ■.■.■.V.VV.V.V.V.VAV DÚN- og FIÐURHREINSUN vatnsstíg 3. Sími 1874C SÆNGUR REST BEZT-koddar. \ Endumýjum gömlu ■i sængumar, eigum I; dún- og fiðurheld ver. I; Seljum æðardúns- og ;■ gæsadúnssængur — ;! og kodda af ýmsum ■; stærðum. .■.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.1. sem þér getið gert, að segja lög reglunni frá þessu. - Lögreglan - hún var nógu skarpskyggn, er hún lét fangelsa mig - en hún stendur máttvana, er hún leitaði dóttur minnar. — Reynið að vera hugrökk, kæra frú. - Hugrökk skal ég vera, ég veit að ég er að reyna að ráða gátu, sem kannski enginn getur leyst, en ég skal reyna, reyna, og guð mun gefa mér orku til þess að þrauka meðan nokkur von er. Mín eina von er, að móð urástin leiði til kraftaverks. Hún stóð upp og gekk í áttina til dyranna. - Hvert ætlið þér, frú? - Ég ætla að fara - og reyna að finna eitthvert spor. Hún fór til allra, sem ráku viðskipti í nágrenninu og allra annara, sem hún var málkunnug, og spurði menn spjörunum úr, en hún græddi ekkert á því, og er kvöld var komið og hún var orðin úrvinda af þreytu náði hún sér í leiguvagn og ók til íbúðar de Rodyls. Hann heilsaði henni hlýlega með handabandi. Hann sá þegar, á svip hennar, að hún hafði orðið fyrir nýjum vonbrigðum. Fonný Benonýs sími 16738 T A R Z A N Ég fer aftur til Dominies og sé hvað ég get gert til að halda hon- um á lífi, segir Naoml. Naomi sagði mér dálítið sem þú ættir Bvhpsala Matthínsor SEUUM í DAG: Hillmann Super Minx ’63 Commsr Cob ’63 Hillmann Husky ’55 Chevrolet Station ’58 Chevrolet ’58 ’57 ’56 ’55 Plymouth ’57 ’56 og ’55 De Soto ’55 Volvo ’58 Opel Cadett '63 Chevrolet vörubifreið ’59 og ’55 Komið og skoðið bílana á staðnum. Bílasala Matthíosar Höfðatúni 2 Símar 24540 og 24541 f fi S Hreinsum samdægurs Sækjum ■ sendum. Efnalaugin Lindin Skúlagötu 51, sími 18825 Hafnarstræti 18, 18821 Við seljum bílana, komið og gerið hag C kvæm viðskipti. 77>mia bílasaiaíTV. RAUÐARA SKÍJLAGATA 55 — SÍMI15812 SENDIBfLASTÖÐIN H.F. BORGARTÚNI 21 SlMI 24113 * Odýrar drengjaúlpiar vita Tarzan, segir Joe, hún ætlar að segja lausri stöðu sinni og koma hingað til þín aftur. Nei Joe, það má hún ekki gera, segir Tarzan, við þörfnumst hennar sem hjúkrunarkonu. Þá verður þú að gera eitthvað í málinu, segir Joe, þú verður að fá hana til að skipta um skoðun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.