Vísir - 02.05.1964, Page 7
VÍSIR . Laugardagur 2. maí 1964.
7
Afla verður sjúkrarýmis
fyrir drykkjusjúka menn
Lögreglustjórinn i Reykjavík, ræðir
um ölvun á almannafæri
Á miðvikudaginn birtist hluti af erindi Sigurjóns Sigurðs-'
sonar lögreglustjóra um áfengi og löggæzlu, hér í blaðinu, en það
hélt hann s. 1. laugardag á ráðstefnunni um áfengismáiin.
Hér birtist í dag seinni hluti þessa merka erindis. Þar fjallar
lögreglustjóri um ölvun á almannafæri hér £ höfðuborginni og
ráðstafanir og löggæzlu í sambandi við hana. Birtir hann nýjar
tölur úr bókum lögreglunnar um þessi efni.
Þá drepur hann einnig á vandamál unglinganna og athyglis-
verðar tillögur þar til úrbóta.
Jgg mun nú víkja nokkrum orð
um að ölvun á almannafæri
hér í borginni og greina í því
sambandi frá nokkrum tölum úr
bókum fangageymslu lögreglunn
ar til skýringar málinu.
Ölvun á almannafæri er títt
verkefni fyrir lögregluna hér,
eins og verða vill,í borgum.
Samkvæmt 21. gr. áfengislaga
nr. 58/1954, skal hver sá, sem
sökum ölvunar veldur óspekt-
um, hættu eða hneyksli á al-
mannafæri, opinberum samkom
um, í bifreiðum eða öðrum far-
artækjum eða skipum, sæta á-
byrgð samkvæmt lögum. Varða
brot gegn ákvæðum þessum
sektum frá 100 til 2000 krón-
um, nema þyngri refsing liggi
við að öðrum lögum.
Samsvarandi ákvæði og þessi
er að finna í lögreglusamþykkt-
um, m. a. 7. gr. lögreglusam-
þykktar fyrir Reykjavík, sem
bannar mönnum að sýna af sér
hneysklanlega hegðun á al-
mannafæri, m. a. með því að
yera þar áberandi ölvaður.
Allglögga mynd af verkefnum
lögreglunnar á þessu sviði gefa
talnaskýrslur um þá, sem setja
þarf í geymslu um stundarsakir
vegna ölvunarástands á al-
mannafæri eða öðrum þeim
stöðum, sem ég nefndi áðan.Eru
að vísu í þeim tölum einnig
innifalin þau tilvik, þegar Iög-
reglan er kvödd á heimili og
nauðsyn ber til að fjarlægja að-
ila þaðan sökum ölvunar.
2.300 teknir
í vörzlu.
Skal hér tilgreint tímabilið frá
1. desember 1961, er fanga-
geymslan við Síðumúla var tek
in í not, og til 1. janúar 1963.
Á því tímabili er um 2309
manns sett samtals 6680 sinn-
um í gæzlu. Ef litið er nánar
á tölur þessar, kemur í ljós, að
1486 manns gistir þar aðeins
einu sinni á tímabilinu, en 2099
eða rúm 90% af heildatölunni, .
5 sinnum eða sjaldnar. Hins
vegar er svo um 50 manns, sem
lendir 20 sinnum eða oftar í
fangageymslu, þar af 11 oftar
en 50 sinnum. Þeir, sem lenda
svo oft í fangageymslunni, eru
allir bágstaddir drykkjusjúkling
ar. Tölur þær, sem ég hef nefnt
hér, skiptast nokkuð jafnt á
mánuði, þó ber maímánuð, loka-
mánuðinn, alltaf hæst. Af viku-
dögum er ölvun mest á föstu-
dögum og laugardögum.
Á árinu 1963 var um 7300
varðhaldstilfelli að ræða, en ef
farið er 10 ár aftur í tímann,
er samsvarandi tala samtals
3465, en þá var mjög takmarkað
fangarúm í hinum svonefnda
ir Alþingi, megi verða til mik-
ils gagns, ef það pærv frarti að
ganga.
Ungmennin
og löggæzlan.
Áður en ég Iýk máli mínu,
vil ég leyfa mér að víkja örfá-
um orðum að lagaákvæðum og
löggæzlu í sambandi við ung-
menni.
Áfengisneyzla ungmenna er
þjóðfélagslegt vandamál, sem
vafalaust verður bezt ieyst með
uppeldislegum ráðum, þar sem
jákvæð uppbygging verður látin
sitja í fyrirrúmi. Ráðstafanir í
þá átt verða þó að vissu marki
að njóta stuðnings af aðhaldi
i i
!
K'm , ■ \ <■ '< .
Fangageymslan í Síðumúla.
„kjallara" lögreglustöðvarinnar.
Einstaklingar, sem teknir voru
í vörzlu á árinu 1963 voru 2375.
Að ekki hafi orðið meiri aukn
ing á þessu tímabili, má tví-
mælalaust þakka þeim lækn-
ingastofnunum, sem starfað
hafa að undanförnu, svo og fé-
lögum, sem lagt hafa mikið af
mörkum með fræðslu-, áróðurs-
og hjálparstarfsemi. Betur má
þó, ef duga skal í þessum efn-
um. Verkefni eru mörg fram-
undan, en lögreglan væntir
þess, að sem fyrst fáist sjúkra-
húsrými fyrir þá, sem verst
hafa orðið úti og gista fanga-
geymsluna oft f hverri viku
vegna drykkjusýki. Er þess og
að vænta, að frumvarp það um
meðferð ölvaðra manna og
drykkjusjúkra, er nú liggur fyr-
Tillögur til
úrbóta.
Eru þar m.a. ákvæði, er taka
af öll tvímæli um, að hvers
konar afhending áfengis til ung
menna er óheimil. Bannað verði
að bera með sér áfengi inn á
veitingastaði og áfengi, sem
ungmenni kann að hafa með
höndum, verði skilyrðislaust
gert upptækt. Ennfremur er lagt
til, að ökumönnum leigubifreiða
og annarra almenningsbifreiða
verði bannað að leyfa ungmenn-
um áfengisneyzlu í bifreiðun-
um eða flytja ölvuð ungmenni
á aðra staði en heim til þeirra.
Ungmennum undir vissum aldri
verði gerð óheimil dvöl í vín-
veitingahúsum að kvöldlagi,
nema í fylgd með forráðamönn-
um sínum. Loks er lagt til, að
sektir fyrir ölvunarbrot verði
hækkaðar, svo og refsing fyrir
leynivfnsölu.
I undirbúningi er ennfremur
lagafrumvarp um útgáfu nafn-
skírteina, en þau eru mikilvæg
gögn í sambandi við löggæzl-
una.
Gera má ráð fyrir, að breyt-
ing þessi á áfengislögunum
verði til bóta, ef samþykkt verð1
ur. Hitt ber að hafa í huga, að
löggæzluathafnir gagnvart ung-
mennum er viðkvæmt mál og
vandasamt. Er ekki að efa, að
læknismeðferð og félagslegar
ráðstafanir eru líklegri til þess
að sporna við ofdrykkju ungl-
inga heldur en margendurtekin
lögregluafskipti.
því, sem lagaákvæði og viður-
lög vegna brota á þeim geta
veitt.
- áfengislögum eru ýmis á-
kvæði, sem eiga að koma í veg
fyrir áfengisneyzlu ungmenna.
Má þar til nefna ákvæði 16. gr.,
sem segir að ekki megi afhenda
né veita yngri mönnum en 21
árs áfengi. Ákvæði þetta og
raunar ýmis önnur varðandi
þessi mál eru óglögg, þannig að
dómstólar hafa ekki getað veitt
lögreglunni þann stuðning, sem
æskilegt er í sambandi við þenn
an þátt löggæzlunnar.
Til þess að taka af nokkra
agnúa í þessum efnum, hefir
verið.Iagt fram á Alþingi stjórn-
arfrumvarp til breytinga á á-
féngislögunum.
Bridge —
Framhald af bls. 2.
geir fyrir valinu, Þeir munu taka
þátt í tvímenningskeppni mótsins,
sem stendur yfir dagana 5.-9. maí
Nánari fréttir af ferð þeirra félaga
munu birtast jafnóðum og þær ber-
ast.
Undanrásum í Firmakeppni
Bridgesambands ísl. er nýlokið og
tóku 227 firmú þátt í henni. Sam-
hliða fór fram einmenningskeppni
hinna ýmsu bridgefélaga bæjarins.
Sigurvegari í Bridgefélagi Reykja-
víkur var Einar Þorfinnsson, sem
spilar fyrir Agnar Ludvigsson H. F.
Hjá Tafl- og Bridgeklúbb Reykja-
víkur sigraði Pétur Einarsson, en
hann spilar fyrir Baðstofu Ferða
skrifstofunnar. í Bridgefélagi
kvenna sigraði Magnea Kjartans-
dóttir, sem spilaði fyrir Mjólkur-
samsöluna. Og sigurvegari í Bridge
deild Breiðfirðingafélagsins var
Bj’arni Jónsson, sem spilar fyrir
Egil Vilhjálmsson H.F. Sextíú og
fjögur firmu munu spila þrjár um-
ferðir til úrslita.
Blómabúbin
Hrísateig 1
simar 38420 & 34174
O
P. EYFELD
Ingólfsstræti 2
amowm&
sparar vinnulaunin.
Verzl. Regnboginn
Málningarv. Péturs. Hjaltested
Verzl. Vogaver.
Kristján Ó. Skagfjörð
Tryggvagötu 4 Sími 24120