Vísir - 17.07.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 17.07.1964, Blaðsíða 1
VISIR 54. árg. - Föstndagur 17. júlí 1964. - 161. tbl. Telpa beið bana / sundlaug fSLAND tekur þátt í matvælasýningu í París Fiskútflytjendur fá þar gott tækifæri Vörusýninganefnd hefur fyrir nokkru ákveðið, að Island taki þátt f mikilli vörusýningu í París í nóvember n. k. Verður þar um matvælasýningu að ræða og mun íslenzkum fiskútflytjendum gefast þar gott tækifæri til þess að kynna vörur sínar. íslenzkir fiskútflytjendur, einkum Sölumiðstöðin og Sam- bandið, leggja nú mikla áherzlu á aukna sölu freðfisks erlendis. Hafa þessir aðilar náð góðum árangri á bandarískum markaði en erfiðiega hefur gengið að ná fótfestu á markaði i Vestur- Evrópt’. Sala þessara aðila í Evrópu er mest í Austur-Evrópu, þar sem fiskurinn er seldur í stórum pakkningum. Á vöru- sýningunni í París gefst hinum íslenzku fiskútflytjendum gott tækifæri til þess að kynna vörur Framh. á bls. 6. Sjö ára telpa beið bana í Sund- laug Akureyrar um miðjan dag í gær, eða um hálf fjögurleytið e. h. Ekki er með vissu vitað hvernig slysið vildi til, en þegar það skeði var margt barna í lauginni og voru þau m.a. að leika sér að þvf að steypa sér út í laugina, Framhald á bls 6. Það síðasta í gær í gær varð hörmulegt slys i um- l'erðinni þegar tveggja ára drengur, Rafn Kristinsson að nafni og til heimilis að Laugarnesvegi 80 varð fyrir bíl og beið bana. .. Slys þetta er 6. banaslysið í "röðinni sem verður á þessu ári í Reykjavík, en það 12. á öllu landinu. Það skeði um stundar- fjórðungi, eftir kl. 11 f. h. fyrir utan mjólkurbúðina á Laugalæk 4. Atvik að slysinu voru þau að BLAÐIÐ I DAG Bls. 3 Kvennasiða. — 7 Þýzkalandsheim- sókn Elísabetar drottningar. — 8 Hagfræðingar láta æ meira til sfn taka. — 9 VWtal við danska verkfræðinginn Kai rétt áður hafði brauðflutningsbill frá Mjólkursamsölunni numið stað ar skáhallt fyrir utan dyr mjólkur- búðarinnar. Bílstjórinn tók að þvf búnu brauðin út um hliðardyr á bilnum vinstra megin og bar inn í búðina. Þegar því var lokið kvaðst bilstjórinn hafa gengið vinstra megin inn i bílinn, enda stýrið vinstra megin. Ekki kvaðst hann hafa litið út fyrir hægri híið bílsins og ekki fram fyrir hann. En þegar hann var búinn að setja í gang kvaðst hann hafa litið i spegla sin hvoru megin á bílnum og ekki hafa séð nein börn við bílinn. Ók hann þá af stað í átt að Hrfsateig og síðan suður hann og vissi ekkert hvað skeð hafði fyrr en hann var kominn á vinnu- stað sinn í Brautarholti, að lög- reglumaður á bifhjóii kom til hans og sagði þonum tíðindin. Var bíll- inn jafnframt kyrrsettur unz lög- | reglurannsókn hafði farið fram á bílnum og hugsanlegum ummerkj- um og ennfremur unz skoðun bif- reiðaeftirlitsmanna hafði verið framkvæmd. Vitað er um eitt vitni að þessum atburði, sem sá þó ekki þegar slysið sjálft skeði, en horfði á bíl- inn rétt áður en hann lagði af stað og varð fyrst allra til að sjá barn- ið liggjandi í slóð bílsins. Þetta vitni var starfsstúlka í verzluninni Anítu, sem er við hlið mjólkurbúð- arinnar á Laugalæk. Hún var að sópa stéttina fyrir utan búðina og leit upp þegar bíllinn renndi fram Framh á bts 6 /VWWWWWAAAAAA/W SKA TTSKRARNAR KOMA ALLS STAÐAR FYRSR MÁNAÐAMÓT í Reykjavík í næstu Skattskrárnar eru nú að verða tjáði blaðinu í morgun. Kvað tilbúnar í öllum skattumdæmum hann stefnt að því, að skrámar Iandsins, að því er Sigurbjöm yrðu alls staðar komnar fyrir Þorbjömsson ríkisskattstjóri mánaðamót. Á Norðurlandi eystra var skattskráin lögð fram 19. júní sl. eða um svipað leyti og í fyrra. En víðast annars staðar er skatt skráin sfðar á ferð en í fyrra. f Reykjavík er skattskráin mun seinna á ferð en í fyrra. Er hún væntanleg í næstu viku en í fyrra kom hún fram í kringum 20. júní. í Vestfjarðaumdæmi og Vestmannaeyjum er skatt- Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.