Vísir - 17.07.1964, Side 16
VISIR
Föstudagur 17, |öK $964.
BRÆLA Á
MIÐUNUM
Bræla var á miðunum sl. sól-
arhring og lítil sem engin veiði.
Flest skipanna létu reka, köst-
uðu lítilsháttar en án árang-
urs. 27 skip fengu lítilfjörlegan
reyting, 9970 mál. Hæstu skip-
in voru Fjarðaklettur 1350, Jón
Kjartansson 1100, Húni II. 1000
Velheppnuðum NATO-fundi lokið
Þmgmennirmr héldu heim í morgun
Þingmenn aðildaríkja Atlants
hafsbandalagsins, sem hér sátu
fund fyrr í vikunni, héldu flest-
ir heim í morgun. Síðustu daga
hafa þeir ferðazt um nágrenni
Reykjavíkur, Borgarfjörð, Þing-
velli o.fl. staði.
Vísir hafði tal af Matthíasi
Mathiesen alþm. í morgun, en
hann var fulltrúi íslands á áð-
urnefndum fundi. Sagði Matt-
hías, „að fundurinn, ferðalög
þingmannanna og koma þeirra
í heild hefði verið mjög vel
heppnuð. Við höfum eignazt
góða vini, þar sem þessir gest-
ir okkar eru. Heimsókn þeirra
mun sannarlega ekki draga úr
þeim góða skilningi, sem ísland
og málefni þess njóta innan
NATO.“
í gærdag fóru þingmennirnir
til Bifrastar í Borgarfirði og
flutti dómsmálaráðherra, Tó-
hann Hafstein, ávarp. Sagði
hann m.a.: „Ætla má að fram-
tíð samstarfsins innan Atlants-
hafsbandalagsins og vestrænna
þjóða felist í nánustu framtíð
í því að hagnýta betur en veríð
hefur það skipulag og stofnanir
sem fyrir hendi eru, bæði inn-
an NATO, OECD og Efnahags
stofnunar Evrópu, Evrópuráðs
og fleiri skyldra og hliðstæðra
stofnana og að í ljósi þeirrar
reynslu, sem þannig fæst, verði
lagður grundvöllur að ennþá
nánara og samstillts Atlants-
samfélags.“
Hjurtuverndarfélög stofn
uð
Að leik í
Nauthólsvík
Hvern einasta góðviðrisdag
streymir fjöldinn allur af Rvfk-
ingum, jafnt ungum sem göml-
um niður í Nauthólsvík til þess
að njóta sólarinnar og jafnvel
fá sér um leið stuttan sund-
sprett. B. G. Ijósmyndari Vísis
stóðst ekki freistinguna og
smellti mynd af þessum tveimur
blómarósum, sem voru að sóla
sig í Nauthólsvíkinni í hádeginu
í gær.
um
Albert Guðmundsson.
Nú hafa verið stofnuð 20
hjarta og æðasjúkdómafélög á
landinu og ætlunin er að stofna
landssamband þessara félaga.
Jafnframt verður hafin útgáfa
blaðs, sem nefnist „Hjarta-
vernd.“
Á blaðamannafundi í gær var
skýrt frá þessum fyrirætlunum
hjartavarnarmanna. Ætlunin er
Albert Guðmundsson
ræðismaður Frakklands
Hinn 1. júli var Albert Guð-
mundssyni stórkaupmanni veitt
nafnbót sem ræðismaður Frakk-
lands í Reykjavík, Jafnframt var
honum veitt viðurkenning sem
umboðsræðismaður Frakklands í
Hafnarfirði.
Albert Guðmundsson er for-
maður félagsins Alliance Fran-
cais og var hann um árabil bú-
settur í Frakklandi.
að stofnfundur landssambands-
ins verði í október. Prófessor
dr. Sigurður Samúelsson ferðað
ist um iandið í vor og sumar
til að stofna hjartavarnarfélög
í öllum landsfjórðungunum.
Bankar og sparisjóðir hafa
gefið vilyrði sitt fyrir móttöku
árstillaga og getur fólk snúið
sér til þessara stofnana og gerzt
stofnfélagar.
Allar upplýsingar verða fyrst
um sinn veittar á lögfræðiskrif-
stofu Sveins Snorrasonar, Klapp
arstíg 26, daglega nema laug-
ardaga, frá kl 2-5. Sími er
22681.
Félagið veitir þakksamlega
viðtöku fjárhæðum frá einstakl-
ingum, fyrirtækjum og stofnun-
um.
Á blaðamannafundinum sagði
dr. Sigurður Samúelsson að
fundirnir úti á landi hefðu ver
ið vel sóttir og sýndi það á-
huga fólks á félagsskapnum.
Alimiklar gjafir hefðu borizt
Reykjavíkurfélaginu frá ein-
staklingum.
Dr. Sigurður taldi meginverk-
efni félagsskaparins vera að ann
ast fræðslu um málefni sín, síð
ar að annast rannsóknir og
læknaþjónustu í sambandi við
hjarta- og æðasjúkdóma og
loks að kanna hvað unnt væri
að gera fyrir. þá, sem orðið
hefðu fyrir áföllum vegna þess
ara sjúkdóma.
Verkefnið er stórt, sagði pró-
fessorinn, en það auðveldar
starfið, ef sem flestir leggja
hönd á plóginn.
Hliðstæð félög hafa verið
stofnuð út um allan heim, en
hér er skilningur manna á nauð
syn hjartvarna augljóslega meiri
en gerist í nágrannalöndum okk
ar, segir dr. Sigurður Samúels-
son.
Á fundinum í gær voru stórn
armenn og framkvæmdastjóri
staddir, dr. Sigurður Samúels-
son', Pétur Benédiktsson banka
stjóri, Ólafur Jónsson fulltrúi
og Sveinn Snorrason lögfræð-
ingur.
ÓLÁFSVÍK
Fjórtán ára piltur, Vigfús Vig-
fússon að nafni, slasaðist illa er
hann féll 6-7 metra niður af vinnu-
Hufnarfrumk væmdir á 30 stöðum
Hafnarmálastjóri hefur mörg jórs! í eldinum
I suinar er unnið að hafnar-
franikvæmdum á 30 stöðum allt
í kringum landið. Er gert ráð
fyrir að um 100 milijónum kr.
verði varið til þessara fram-
kvæmda í ár, en það er svipuð
upphæð og í fyrra. Mest er um
að ræða epdurbætur og stækk-
un hafna, en ekki gerð nýrrá.
Að hafnarframkvæmdum er
unnið allt árið, eins og unnt er,
en að sjálfsögðu torvelda veður
og sjór alla vinnu í þeim efn-
um meir á veturna en á sumrin.
Reynt er því að nýta sumarmán
uðina sem mest og fullur kraft
ur settur á allar framkvæmdir
Þannig ier nú unnið á 30 stöð-
um eins og fyrr segir.
Stærstu verkin eru í Þor-
lákshöfn, Njarðvíkum og Rifi
og er gert ráð fyrir að höfnin
. Rifi (á Snæfellsnesi) verði
tilbúin i Iraust. Slippur er sett
ur upp Stykkishólmi, í Bol-
ungarvík er brimbrjóturinn
lengdur og endurbættur, byrjað
hefur verið á höfn í Greniv:T
stækkuð er hafskipabrvggja á
Raufarhöfn, á Vopnafirði, Seyð
isfirði og Eskifirði eru báta- og
hafskipabryggjur lagfærðar.
Höfnin í Vestmannaeyjum er
endurbætt, og endurbætur eiga
sér stað við brimgarðavarnir á
F.yrarbakka. Eru hér aðeins fá-
einir staðir nefndir.
Hafnarmálastjórnin hefur
;annarlega mörg spjót í eldin-
um um þessar mundir.
palli og lenti á steinsteyptri plötu
í Ólafsvík í gærmorgun.
Slysið skeði kl. rúmlega 10 f.h.
í sundlaugar- og íþróttahússbygg-
ingu, sem verið er að byggja í
Ólafsvík. Vigfús vár að vinna við
mótauppslátt innanhúss ásamt föð-
ur sínum sem er yfirsmiður bygg-
ingarinnar. En stigapallur, sem pilt-
urimí stóð á, sporðreistist og Vig-
fús féll niður á botn sundlaugar-
innar, sem búið var að steypa.
Þetta mun hafa verið 6-7 metra
fall og ekki mjúkt viðkomu, eins
og segir sig sjálft.
Ekki er vitað með vissu hve m<k
ið pilturinn hafði slazast, en hann
er brotinn á báðum handleggjum
hafði hlotið áverka á höfði og
fleiri meiðsli. Læknirinn í Ólafsvík
gerði við meiðslin til bráðabirgða,
en sjúkraflugvél var fengin frá
Reykjavík og lenti hún skömmu
síðar á flugvellinum hjá Hellis-
sandi, en þangað var Vigfús flutt-
ur í bíl. Hann var lagður inn i
Landsspítalann.