Vísir - 28.07.1964, Side 3
VÍSIR . Þriðjudagur 28. júlí 1964
II
iiffi
verðan hátt, Ríkharður reyndi að
sneiða framhjá honum af örstuttu
færi, en það tókst ekki. Clark var
kominn í grasið eftir skoti Rík-
harðar. Hér hefði Ríkharður átt að
gefa lærisveini sínm Eyleifi bolt-
ann, en hann var í mun opnara
færi fyrir markinu.
Eftir þetta sóttu íslendingar
mun meira en tókst aldrei að
skora. Á 30. mín. áttL Eyleifur
skalla en bjargað var í horn, en úr
horninu skall hurð nærri hælum
og bjargað var í horn aftur, en úr
því átti svo Ellert góðan skalla
rétt framhjá.
Ríkharður átti gott skot af víta
teig á 35. mínútu. Þar sáu vallar-
gestir raunar jöfnunarmarkið á
leiðinni í netið. Skotið var greini-
lega á leið í bláhornið, en þá þaut
Clark markvörður eins og kólfur
út í markhornið og kýldi boltann í
horn. Ellert Schram átti sitt eina
skot á 38. mín., Iangskot sem var
nauðuglega varið í horn. Hefði EIl-
ert gjarnan mátt skjóta meira í
leiknum. Er aðeins voru tvær mín.
eftir sóttu Skotar mjög og Högni
bjargaði á Iínu eftir að Heimir
hafði meiðst Iítilsháttar og lá f
valnum.
Þetta var heldur lélegur Iands-
leikur og hjá okkar liði verður fá-
um mönnum hælt. Heimir mark-
vörður varði vel og mistökin f
sambandi við slysamarkið verða
vart reiknuð á hann. Vörnin var
betri hluti liðsins. Bakverðirnir
Jón Stefánsson og Hreiðar voru
báðir góðir og Högni Gunnlaugs-
son var sennilega bezti maður fs-
lands f leiknum. Framverðirnir
tóku og þátt í varnaraðgerðum og
áttu þar góðan leik. Framlínan var
nokkuð sundurlaus. Kári Árnason
sá ágæti leikmaður var ekki nógu
góður til að uppfylla kröfur út-
herja, en Eyleifur og Ellert hafa
oftast átt betri leiki í sumra. Sama
má segja um Ríkharð, sem reyndi
mest, en tókst ekki að nýta góð
tækifæri. Bezti maður framlínunn-
ar fannst mér Gunnar Guðmanns-
son, en hann naut alltof lítillar að-
stoðar í leiknum og bisaði oft einn
við að leika á einn eða tvo menn.
Skozka Iiðið var skipað 10 leik-
mönnum Queens Park og einum
frá Dundee Utd. (Munro h.
framv.). Liðið er allgott 2. deildar-
lið f Skotlandi og er ekki komið
í þjálfun enn sem komið er, því 8.
Hér eru liðin meðan þjóðsöngvar landanna voru leiknir í gærkvöldi.
ágúst hefst keppnistímabil knatt-
spyrnumanna á Bretlandi. Bezti
maður liðsins var Clark markvörð-
ur eins og sjá má af framansögðu.
Bakverðirnir Pollatschek og Neil
voru góðir og h. útherjinn Hopper.
Framlínan skapaði sér ekki mörg
góð tækifæri og raunar má segja
að sú íslenzka, þótt ekki hafi ver-
ið góð, hafi skapað sér mun opn-
ari tækifæri.
Dómari leiksins, Erling Rolf 01-
sen frá Oslo, dæmdi mjög snotur-
Iega, en Ieikurinn í heild var frem-
ur auðdæmdur þó blístran hafi oft
fengið að gella, eins og „Ieikurinn
í tölum“ gefur til kynna. Samstarf
Olsens við línuverðina var til fyrir-
myndar. — jbp —
Söfnuðu pappír til uð kom-
/ íshméskrð
ust
Pappírinn gaf þeim góðan skilding
og kostnaðurinn við förina varð
aðeins 350 krónur!
Dönsku
drengimir,
knattspyrnu-
hér
sem
eru
staddir á vegum Þróttar
unnu sér inn peninga á
Ríkhárður fékk bezta tækifæri Ieiksins. Clark markvörður bjargar þarna frá marki.
nýstárlegan hátt. Þeir söfn
uðu pappír, mest megnis
gömlum dagblöðum, og
seldu pappaverksmiðjunni
í heimaborg sinni, Holbæk.
Þetta gaf þeim 4-5000
danskar krónur í ferðasjóð
inn, en það létti vissu
lega mikið undir.
iþróttasíðan ræddi í gær við
Henning Nielsen einn af Holbæk-
mönnunum. Hann hefur komið
hingað með Holbæk sem farar-
stjóri, en telur sig ekki fararstjóra
nú, enda þótt hann fylgist með
.hópnum.
j „Ég fékk styrk úr Carlsbergsjóðn
| um og mér er ætlað að kynna mér
; íslenzkt þjóðlíf og skrifa um það.
j Ég mun skrifa um síldarstúlkur á
; Seyðisfirði, um Akureyri, og loks
um Borgarfjörð, en það hérað er
í vináttutengslum við Holbæk.
Einnig getur verið að ég riti um
íslenzkt íþróttalíf“ sagði Nielsen,
; en hann skrifar í Holbæk Amts-
blad.
Hann sagði okkur frá hinum ó-
venjulega dugnaði piltanna við
pappirssöfnunina. 1 Danmörku eru
dagblöðin notuð aftur í pappír, og
talið að 30% af öllum pappír sé
þannig notaður aftur. Piltarnir fóru
fyrir hvers manns dyr og sníktu
sér pappír og þannig varð íslands-
ferðin smámsaman að raunveru-
Ieika og kostnaður piltanna varð
aðeins 350 d. kr. Þeir komu hingað
með Drottningunni en fara aftur
utan með Gullfossi.
'ýX
IfN
13111111%' WMí!‘: :'t;: 1-:7il" ~ ...
AmS|
Vöru-
happdra?tti
Hér kom markið, sem færði Skotum sigur í gærkvöldi. Heimir virðist hafa full tök á knettinum, en nokkrusiðar missti hann boltann.
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur.
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.