Vísir - 19.08.1964, Síða 6
V í S I R . Miövikudagur 19. ágúst 1964.
íþrótfir i—i
Framhald af bls. 2.
Evrópukeppninni? Vissulega. Sú
þátttaka ætti einmitt a8 ve.'a
fyrsta skrefið í áttina upp á við,
leiðin til nýrri átaka. Það er
engin skömm að því að tapa
fyrir góðum liðum, og enginn
þarf að bera kinnroða fyrir
slæmum úrslitum ef heiðariega
er barizt.
Hvenær hefði Albert Guð-
mundsson orðið jafn frábær
knattspyrnumaður og raun
varð á, ef hann hefði ekki starf-
að og leikið með og gegn því
bezta sem völ var á? Hvenær
geta ísl. knattspyrnumenn orðið
góðir ef þeir eiga að húka hér
uppi á íslandi í einangrun og
áhugamennsku?
Island er nú orðið eina iand-
ið i Evrópu a.m.k., þar sem
íþróttir eru eingöngu stundaðar
af áhugamennsku. Meðan svo
er, stöðnum við ekki aöeins,
heldur drögumst langt aftur úr
öðrum þjóðum. Munurinn á af-
rekum ísl. íþróttamanna og þess
bezta í heiminum verður sífellt
meiri og me'iri. Það ætti leikur-
inn ( fyrrakvöld að sanna okkur.
Spurningin er þvi sú, hvort
við gerum okkur ánægða með
það ástand. Er atvinnumennska
tímabær og framkvæmanleg á
íslandi?
Þá spurningu ættu íþrótta-
unnendur að hugleiða.
Ellert Schram.
Minning —
Framh. af bls. 7
hugfólgið til þess, og hann lók
lítinn þátt í félagslífi bæjarins.
Á héimili sínu undi hann bezt,
oft með gamla, fágæta bók í
hönd úr safni sínu, og hann
var höfðingi heim að sækja,
hverjum manni reifari, Þar
bjuggu kona hans, Maja Ba!d-
vinsdóttir, og Maja, dóttir nans,
honum gott heimili, sem haun
naut, ekki sízt í veikindum
síðustu ára, er sjúkdómar höfðu
svipt hann kennsluþreki.
Lengi munum við norðan-
menn geyma minningu Sigurð-
ar L. Páissonar. Hann var ekki
einungis hinn ágætasti fræðari,
heldur líka óvenju yfirdreps-
laus og hugheill maður.
Gunnar G. Schram.
Heimsókn —
Framh at bls 16
Fimmtudaginn 20. ágúst verður
flogið til Kuopio og komið þangað
um kl. 10 f.h. Bær þessi, sem er
um 300 km. norðaustúr frá Hpís-
ingfors, er nýtizku iðnaðarborg og
jafnframt eru þar einhver mestu
vatnasvæði Finnlands. Verður bær-
inn skoðaður, þar á meðal verka-
mannabústaðir, en því næst býður
bæjarstjórnin til hádegisverðar. Að
honum loknum verður farið í um
2 klukkustunda vatnaferð. Ráð-
gerð er móttaka hjá „landshöfð-
ingja“ en að henni lokinni verð
ur flogið aftur til Helsingfors.
Föstudaginn 21 ágúst verður
fyrrihluta dagsins varið í ne'm-
sókn á sveitabæ í nágrenni Helsing
fors, en eftir það býður Helsing-
forsborg til hádegisverðar. Um
kvöldið halda utanríkisráðherra-
hjónin kvöldverðarboð og lýknr
þar með hinni opinberu heimsókn
í Finnlandi.
I fylgd með utanríkisráðherra-
hjónunum verða Árni Tryggvason
ambassador fslands i Finnlandi og
kona hans, Sigrún ögmundsdóttir.
Spíritus
Framhald af bls. 16.
aðfaranótt s.l. laugardags, 15
þ. m. kom hörð frostnótt á
Norðurlandi austanverðu og olli
þar sýnilega miklu tjóni á kart-
öflugrösum, einkum I Þingeyj-
arsýslum og éinnig sums staðar
við vestanverðan Eyjafjörð.
Ef þessu heldur áfram, kulda-
tíð og frostnóttum, er erfitt að
spá um kartöfluuppskeruna 1
haust, sagði Jóhann Jónasson.
Samt eru líkurnar í heild a’i-
góðar, þótt sólskin hefði mátt
vera öllu meira hér sunnan-
lands. Og á ýmsum helztu kart-
öflusvæðunum hefur ekki frétzt
um neina frostskaða eins og í
Þykkvabænum, Hornafirðinum
og viðar.
Visir spurði Jóhann hvað
gert yrði við umfram fram-
leiðslu á kartöflum ef spá hans
rættist um að uppskeran í haust
entist meir en til manneldis.
Jóhann svaraði því til að þrenn-
ir möguléikar væru fyrir hendi,
þó enginn þeirra góður því ekki
væri unnt að greiða fyrir kart-
öflurnar það verð, sem bændur
ættu að fá.
Fyrsti kosturinn er sá, að
nota kartöflurnar sem húsdýra-
fóður. Það hefur einstöku sinn-
um áður verið gert, en annað
hvort er að bændur verða að
selja þær með miklum afföllum,
eða þá að fóðrið verður óvenju
dýrt.
Sá er annar kosturinn að
flytja kartöflur til annarra
landa, þar sem helzt er þörf
fyrir þær. I því sambandi má
geta þess, að meðal nágranna-
þjóða okkar svo sem Dana og
Hollendinga, sem myndu verða
helztu keppinautar okkar um
markaðinn, eru líkur fyrlr ó
venju góðri uppskeru f ár.
Þessa keppinauta okkar yrðum ■
við að undirbjóða til að komast ■
inn á markaðinn, því iítt
þekktir á því sviði. Við þetta
bætist mikill og dýr flutnings-
kostnaður með skipum, svo að
bændur myndu engan veginn
verða ánægðir með árangurinn.
Þriðji möguleikinn er sá, að
nota kartöflur til iðnaðar. Þar
kemur tvennt til greina. Annað
það, að búa til mjöl úr kart-
öflunum og hitt að framleiða úr
þeim spíritus. Síðarnefndi
möguléikinn virðist miklu hag-
kvæmari, einfaldlega af þeirri
ástæðu ,að markaður fyrir kart-
öflumél er mjög lélegur og lít.ill
hér á landi, en af spíritus fá
menn aldrei nóg. Þar þarf naurn
ast að óttast umfram fram-
leiðslu.
Þetta hefur orðið til þess að
leitað hefur verið upplýsinga
erlendis frá um möguleika tií
að reisa spíritusverksmiðju hér
á landi. Hefur verið leitað bæði
til Póllands og Noregs þessara
erinda, en málið er á algeru,
frumstigi enn sem komið ei
Samt er vitað að vélar til slikr-
ar framleiðslu myndu kosta
nokkrar milljónir króna, auk
verksmiðjubyggingarinnar sjáltr
ar. Það sem telja verður þó
allra örðugast í þessu sam-
bandi er rekstrargrundvöllurinn
sjálfur. Hann er ekki mikili
fyrir hendi á meðan landsmenn
rækta ekki nema 10. hvert ár
kartöflur umfram eigin matar-
neyzlu. Og þess vegna er það
þótt verið sé að athuga mögu-
leika á byggingu spíritusverk-
smiðju, Iangur vegur frá ar
hægt sé að spá nokkru um
byggingu hennar eða framtið
Sfjórnnrfundur —■
Framh at hls ln
sjá, dr. Rajah B. Manikam frá Ind
landi, dr. Stefano Moshi frá Afríku,
Tröllafoss siglir úr Reykja-
víkurhöfn / síðasta sim
— Já, ef tU vill verður þetta
1 sfðasta skiptið, sem Trölla-
foss slglir út úr Reykjavikur-
höfn, sagði Ragnar Ágústsson
skipstjóri á Tröllafossi, þegar
við hittum hann uppi á stjórn-
palli skömmu áður en Trölla-
foss lét úr höfn f gær. — Skoð-
unarmaðurinn lauk við að skoða
skipið kl. 10.30 í morgun og
eftir 48 stundir fær Eimskip að
vita, hvort úr kaupunum verður,
bætti Ragnar við.
Um eittleytið i gærdag sendi
Tröllafoss frá sér þrjú löng
flaut. Rétt á eftir voru land-
festar leystar og Tröllafois
lagði frá Ægisgarði og sigidi
út úr Reykjavíkurhöfn. — ef til
vill f síðasta sinn. Skipstjóri
í þessari ferð er Ragnar Ágú.its
son, sem undanfarið hefur ver-
ið 1. stýrimaður, en Guðvarður
Sigurðsson skipstjóri á Trölla-
fossi fór f frí eftir að skipið
kom úr síðustu ferð.
Venjulega er 32 manna áhöfri
á skipinu, en henni hefur verið
fækkað niður í 21 mann. Trölla
foss siglir tómur héðan til Ark-
angelsk í Rússlandi, en þar tek-
ur skipið timburfarm og flytur
til Leith.
Blaðamaður Vfsis hitti Ragn
ar að máli uppi á stjórnpalli
skömmu áður en Tröliafoss iét
úr höfn. — Ég held að enginn
yerði svikinn á því að kaupa
þetta skip, sagði Ragnar og
bætti síðan við: — Þessu skipi
hefur verið haldið mjög vel við,
eins og öðrum skipum félags-
ins og núna er það nýkomið úr
16 ára klössun m.a. málað frá
masturstoppi niður í kjöl,
48 klukkustundum eftir að
skoðunarmaðurinn lauk við að
skoða skipið verður skipafélag
ið, sem hefur í athugun að
kaupa það, að gefa ákveðið
svar. Verður það þvf ljóst að
fyrir kl. hálf ellefu í fyrramálið
hvort Tröllafoss verður seldur
suður-kóreönsku skipafélagi og
muni sigla undir Líberíufána.
Þegar Vísir hafði samband
við skrifstofustjóra Eimskipa-
félagsins í morgun hafði ekki
borizt skeyti varðandi kaupin.
og einnig koma stjórnarnefndar-
menn frá Suður-Ameríku og Indó-
nesíu. Ýmsar erlendar fréttastofur
og blöð munu senda hingað fu;l-
trúa sína í sambandi við þetta
þing.
Fimmtudaginn þriðja september
verður haldin almenn samkoma í
Þjóðleikhúsinu á vegum Lútherska
heimssambandsins. Þar flytja bisk-
up íslands og forseti heimssam-
bandsins ávörp, en ræður flytja
dr. Rajah B. Manikam, biskup f.'á
Indlandi og dr. Sigurd Aske, út-
varpsstjóri við útvarpsstöðina í
Adess Abeba, Eþíópíu, sem
Lútherska heimssambandið rekur,
en hún nær til milljóna manna i
Afriku og Asíu. Auk þess flytja
innlendir listamenn tónlist á þess-
ari samkomu I Þjóðleikhúsinu.
Stjórnarfundi Lútherska heims-
sambandsins verður slitið með
guðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju
stðdegis laugardaginn 5. septem-
ber. Erlendir þátttakendur verða
54 að tölu að starfsmönnum sam-
bandsins meðtöldum. Island á eng-
an fulltrúa í stjórn Heimssambands
ins en mun hafa um 20 áheyrnar-
fulltrúa á stjórnarfundinum, þeirra
meðal biskup og kirkjumálaráð-
herra.
Forsætísrh.
Framh aí bls 1
að viðræður okkar snerust á
neinn hátt um íslenzk mál, par
er um engin sérstök vandamál
að ræða og heimboðið til mfn
var aðeins til sýna íslandi vm-
semd og virðingu, úr því ég var
á ferðalagi I Vesturáífu.
Næst skýrði forsætisráðherra
frá miðdegisverðarveizlunni
með Dean Rusk utanríkisráð-
herra. Þá veizlu sátu líka Bjórr.
sonur hans og Thor Thors
sendiherra. Einnig voru þar
ýmsir helztu sérfræðingar
Bandaríkjanna í Evrópumálum.
Kvaðst forsætisráðherra hafa
setið á tali við Dean Rusk í rúm
ar hálftíma, og hefðu þær við
ræður verið mjög upplýsandi
um heimsmálin.
Að því búnu ók Bjarni Bene-
diktsson með fslenzka sendi-
herranum að grafreitnum í Arl-
ington. Þar tók hershöfðingi
einn á móti honum og fór þar
fram hernaðarieg athöfn með
heiðursverði er forsætisráðherr
ann lagði blómsveig á ieiði
Kennedys forseta, var þetta fög
ur og virðuleg athöfn. Mikdl
fjöldi fólks var í garðinum við
leiði hins látna forseta og þó
ekki fleiri en tíðkast venjulega
því að stöðugur straumur fólks
er þangað, til að heiðra minn-
ingu hins ástsæla forseta.
Að lokum bað Vísir forsætis
ráðherra að segja nokkur orð
um það, hvernig ferðin hefoi
gengið um Islendingabyggðirnar
Hann svaraði:
— Mér hefur hvarvetna veríð
tekið mjög vel. Ég tel mig hafa
lært mikið f þessari för. Ég hef
séð margt, sem ég hafði ekki
áður séð og sérstaklega hef
ég sannfærzt um það hvílíka
virðingu menn af fslenzK’im
ættum hafa áunnið sér vestra.
Það hefur og vakið nokkra at-
hygli mína, hvað ég hef hitt
ísl. menn víða og víðar en mað-
ur ætlaði og hve fjölmennur sá
hónur er vestanhafs, sem á ís-
'“--kar ættir að rekja. Þetta
- annars verið fremur erfið
ferð. Maður hefur verið á sf-
felldum ferðalögum og alltaf
að hitta fleira fólk og maður
verður hálf dasaður á þessu á
endanum.
Forsætisráðherra kvaðst
mundu fara um borð í íslenzkt
skip í New York sem siglir
heimleiðis á fimmtudaginn.
Siglufjörður —
Framh af bls I
um var hitinn við frostmark og
slydda, en á Hveravöllum var
frost og snjókoma. Sunnanlands
er veður skárra og hitinn víðast
4—8 stig.
Frá Siglufirði var Vísi simað :
morgun að þar hafi byrjað að rigna
I gærmorgun og samtímis tek:ð
að snjóa til fjalla. Herti mjög á
úrkomunni í nótt og í morgun vai
þar vonzkuveður og fjöll hvít langt
niður í hiíðar, Á Siglufjarðar-
skarði var komin þæfingsófærð í
gærkveldi, en þó ekki meiri en sí-g
að kraftmiklir bílar komust leiðar
sinnar. I morgun var útlitið him
vegar iskyggilegra og vafasamt
talið að Skarðið væri fært nokk-
urri bifreið. Þó mun áætlunarbif
reiðin hafa gert tilraun til að
brjótast yfir það.
Grátt var orðið niður í mið.iar
hlíðar við Akureyri strax f gæ-
morgun, en ekki var vitað hvori
nokkuð hefur bætzt ofan á snjn-
inn í nótt, bví slæmt skyggni va
til fjalla i morgun. Á Akurevr'
héfur rignt að heita má látlaust
frá því í fyrrinótt og hitinn aðeiris
2tt3 stig.
Kartöflugrös hafa víða látið á
sjá í nágrenni Akureyrar og er ót -
azt að ber hafi frosið.
... -.*St