Vísir - 19.08.1964, Qupperneq 8
8
V í S IR . Miövikudagur 19. ágúst 1964
VISIR
Utgefandi: Blaðaútgáfan VISIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 kr á mánuði
I lausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Visis. — Edda h.f
Sammála um, að
breytinga sé börf
l^fargir hafa eflaust hlustað í fyrrakvöld á útvarps-
báttinn „Sitt sýnist hverjum“. Fólki hefur áreiðanlega
leikið forvitni á að heyra, hvað fulltrúar hinna fjög-
urra stjórnmálaflokka, tveir núverandi ráðherrar og
tveir fyrrverandi — allir miklir valdamenn í flokkum
sínum — hefðu um skattamálin að segja.
Þess var þó tæplega að vænta, að mikið nýtt kæmi
fram í ræðum þeirra, fram yfir það, sem blöðin hafa
sagt undanfarið. Svo má heita, að forustugreinar dag-
blaðanna í Reykjavík hafi ekki um annað fjallað en
skattamálin síðan skattskráin kom út. Hefur þar margt
og mikið verið sagt, sumt rétt og sumt rangt, og vel
hefði mátt komast af með miklu færri orð. Sennilega
fer almenningur að þreytast á rifrildinu og innan tíðar
verður farið að deila um eitthvað annað, því að deilu-
efnin í íslenzkum þjóðmálum virðast óþrjótandi og
því lítil takmörk sett, hve miklum tíma og orku við
viljum eyða í innbyrðis rifrildi, í stað þess að leita
^ameiginlega lausnar á þeim vandamálum, sem við
er að etja. * 30 ,“fariívlörcí jbí
En eftir ræðum fyrrnefndra fjögurra stjórnmála-
nanna í útvarpsþættinum að dæma, er svo að sjá, að
)llir flokkar séu sammála um að þörf sé mikilla breyt-
■ nga á skattalöggjöfinni, og í meginatriðum virðast
beir einnig vera sammála um, hverjar þær breytingar
úgi að vera. Þess má því vænta, að þegar á næsta
Mþingi verði gerðar lagfæringar, sem allur þorri skatt-
^reiðenda megi vel við una, enda hefur ríkisstjórnin
þegar falið ríkisskattstjóra að undirbúa þær.
Hærri tekjur en
búizf var við
|>að kom skýrt fram í ræðum allra fjórmenninganna,
að þegar Alþingi var að breyta skattalögunum s.l.
vor, hafa þingmenn reiknað með að launatekjur yrðu
almennt miklu lægri en þær reyndust. Segja má, að
þeir hefðu átt að kynna sér þetta betur, en þar eru
bá allir flokkar undir sömu sökina seldir, ekki síður
=rjórnarandstaðan en hinir. Þingmenn Framsóknar og
kommúnista höfðu hamrað á því allan veturinn, og
blöð þeirra líka, að tekjurnar yrðu miklu lægri, en þá
var líka verið að berjast í öðrum tilgangi, þar sem
þessi málflutningur hentaði vel.
En þegar samkomulagið um kjaramálin var gert,
nú í sumar, lágu framtölin fyrir, og því auðvelt fyrir
alla aðila að kynna sér þær breytingar, sem orðið
liöfðu á launatekjum. Það er því alveg út í hött hjá
stjórn Alþýðusambandsins, að halda því fram, að hún
hafi verið hlunnfarin í samningunum að þessu leyti.
fíenni var í lófa lagið að vita þá þegar allt, sem hún
veit nú, um tekjurnar og álagninguna.
Næstkomandi mánudag kem-
ur saman í Atlantic City á aust-
urströnd Bandaríkjanna 3é.
flokksþing demokrata til þess
að velja forsetaefni í kosning-
unum, sem fara fram í nóvem-
ber næstkomandi, svo og vara-
forseta-efni.
Johnson forseti hefir ekki
enn tilkynnt neitt um það opin
berlega, að hann gefi kost á sér
sem forsetaefni, en enginn dreg-
ur í efa, að hann verði þar
„efstur á blaði".
En um varaforsetaefni ríkir
meiri vafi. Forsetaefni nýtur
þeirra hefðbundnu forréttinda,
að ráða vali varaforsetaefnis,
og Johnson forseti hefirekkienn
tekið ákvörðun sína, að minnsta
kosti ekki gefið neitt í skyn um
hana opinberlega, en mjög er
rætt um þá öldungadeildarþing
menn’ina frá Minnesota, Hubert
H. Humphrey og Eugene
McCarthy, en það voru frétta-
menn, sem settu þá efst á blað
sem varaforsetaefni, eftir að
Johnson hafði sagt, að hann
myndi ekki velja varaforsetaefni
úr flokki ráðherra sinna.
Þá verður það hlutverk ráð-
stefnunnar, að samþykkja
stefnuskrá flokksins í kosning-
unum.
Þess er að geta, að þar fi)
1936 þurfti forsetaefni að tá
% atkvæða til gildrar kosning-
ar, en eftir að flokksþingið hafði
samþykkt Franklin D. Roose-
velt með lófataki var reglunum
breytt, og gildir nú einfaldnr
meirihluti.
Á flokksþingi demokrata þar1
forsetaefni að fá 1159 atkvæði
af 2316 (á flokksþingi republik-
ana þurfti 655 af 1308 kjör-
Johnson forseti.
Flokksþing demokrata til
forsetakjörs keaiursaman
mánudag næstkomandi
mannaatkvæðum). B Æm &BÆS'SM £jff
Flokksþingið verður sett há- U tBuUSuB fLjf®* (ÉL, B Hr
tíðlega svo sem venja er og ^
fyrsta kvöldið fer í ræðuhöld
og slíkt, en daginn eftir verður
stefnuskráin lögð fram. Gengið
verður til atkvæða um forseta-
efni og varaforsetaefni á mið-
vikudagskvöld, en í lok fjórða
fundar mun Johnson forseti tiJ-
kynna, að hann taki að sér að
vera í kjöri sem forsetaefni
flokksins.
Bandaríkin senda
Tsjombe flugvélar
Landvarnarráðuneyti Bandaríkj-
anna tilkynnir, að ákveðið hafi-j
verið að verða við beiðni
Tsjombe forsætisráherra Kongo
um að senda til Kongó flugvél-
ar til langflugs könnunarflug-
ferða, í baráttunni gegn upp-
reisnarmönnum. Eru það flug-
vélar af gerðinni B-26 sem send
ar verða. Tekið er fram, segir
brezkur fréttaritari í Leopold-
viile, að hvorki bandarískir né
belgiskir þegnar muni stjórna
flugvélunum fíkönnunarflugferð;
unum.
Tsjombe sem áður hafði lýst yfir
að hann myndi ekki biðja um
herlið frá öðrum löndum tii
þess að halda uppi lögum og
reglu i landinu er nú sagður
hafa snúið sér til fimm Afríku-
landa og beðið um herlið: N’
geriu, Eþíóopiu. Líberíu, Mada
gascar og Senegal. Ekki hefur
verið sagt frá þessu opinber-
lega en fullyrt, að áðurgreinoar
rkisstjórnir séu búnar að fá til
mælim.w>