Vísir - 05.09.1964, Side 4
4
V í SIR . Laugaraagur 5. september 1964,
Hillman IMP stærsta von
Rootesverksmið janna
Nú eru komnir hingað tii lands
tveir bílar af gerðinni Hillman
IMP. Þessi fimm manna fjöl-
skyldubíll hefur vakið mikla at-
hygli og segja má að hann sé
stsersta von Rootes-verksmiðj-
anna. Framleiðsla á þessum bíl
um hófst fyrst 1962 og þá í
nýbyggðri verksmiðju í Lin-
wood í Skotlandi, sem fyrirtæk-
ið byggði eingöngu til fram-
leiðslu á þessum bíl.
Fyrstu árin var blllinn ein-
göngu 1 Bretlandi, því fyrir-
tækið vildi ekki senda hann á
markaðinn, fyrr en minnst árs
reynsla hafði fengizt á notkun
hans. í heimalandinu. Það var
því fyrst 1963, sem Bretar hófu
útflutning á Hillman IMP.
Verksmiðjurnar í Línwood eru
einhverjar þær fullkomnustu
sinnar tegundar í Evrópu og
framleiðir Rootes nú um 5
þúsund bíla af þessari gerð á
viku.
Hillman IMP er tveggja dyra
fimm manna fjölskyldubíll.
Hann er fyrsti bílinn frá fyrir-
tækinu sem hefur mótorinn aft
ur í. Aluminium-blokk er í vél-
inni, sem er 42 hestöfl. Bfllinn
er gefinn upp fyrir 120 km.
hraða, en benzíneyðsla að jafn-
aði 6 lítrar miðað við 100 km.
alcstur. — Hillman IMP kostar
kominn á götu hér um 136 þús.
krónur, með miðstöð. Bíllinn
er 4ra gíra, og eru þeir alsam-
hæfðir.
Hin nýja bílaverksmiðja Root-
es, sem vakið hefur mikla at-
hygli er í Linwood, sem er um
14 mílur frá Glasgow. Verk-
smiðjurnar voru formlega opnað
ar af hertoganum af Edinborg 2.
maí 1963.
Yfir 60 Singer
fluttir hingað
Singer Vogue er þegar orðinn
þekktur bíll hér á landi enda
hafa yfir sextíu slíkir bilar ver-
ið fluttir hingað. Fyrstu bílarnir
af þessari gerð komu hingað
1962, en síðan hefur verksmiðj
an gert litlar breytingar á þess-
ari tegund. Þá má einnig geta
þess að Rootes framleiðir Singer
Gazelle, sem er mun ódýrari
bíll með 56'/2 hestafla vél.
Eins og fyrr segir, hafa sára-
litlar bréytingar verið gerðar á
Singer Vogue frá því 1962. Bíll
tnn hefur einkum vakið athygli
fyrir vandaðan frágang. Hann
eyðir um 10 lítrum miðað við
100 km. akstur. Singer Vogue
kostar 196 þús, og er með 62
hestafla vél.
Sá bíll frá Rootesverksmiðj-
unum sem mest hefur verið
seldur hér ásamt Singer Vogue,
er hiklaust Commer 2500, sendi
ferðabifreið, sem flytur um eitt
tonn. Á þessu ári hafa þegar
selzt um 30 bflar og virðast
þeir eiga auknum vinsældum að
fagna hér. — Elzti bílinn, sem
er í umferð hér frá Rootes er
Hillman, árgerð 1936.
LÓÐUM ÚTHLUTAÐ í
ÁRBÆJARH
Borgarráð úthlutaði á fundi sín-
um s.l. þriðjudag eftirtöldum lóð-
um:
Hraunbær 1—7:
Ari Jósefsson, tollþj., Langholts-
vegi 79,
Ólafur Gústafsson, múrari, Gufu-
nesi.
Ingólfur Gústafsson, húsasmiður,
Langholtsvegi 79,
Magnús Ásge'iifsson, verkamaðut.
Vesturgötu 24.
Hraunbær 9—15:
Örnólfur Valdemarsson, bankarit-
ari, Langholtsvegi 23,
Hugo Andreassen, skrifari, Lang-
holtsvegi 103.
Ólafur Þorsteinsson, framkv.stj.,
Stóragerði 24,
Steingrímur Jónasson, eftirlitsm.,
Sogavegi 206.
Hraunbær 17—33:
Haraldur Haraldsson, húsasmiður,
Skipasundi 32.
Jóhannes Pétursson, kennari, Álf-
heimum 58,
Brynjólfur Ámundason, Sólheim-
um 24,
Karl Adolf Ágústsson, verzl.m.,
Baldursgötu 26,
Jóhann Emil Björnsson, framkv,-
stj., Mávahlíð 13,
Stefán E. Jónsson, múrari. Lang-
holtsvegi 14,
Stefán Stefánsson, Kleppsvegi 16,
Hólmsteinn Steingrímsson. Hóf-
gerði 11, Kópav.,
Óskar Ólafsson, framkv.stj. Háa-
gerði 35.
Hraunbær 47—53:
Guðmundur Jóhánnssön, fiúsam .
Álfheimum 52,
! Einar M Jóhannsson, eftirlitsm., ;:i
Sólheimum 23,
Vigfús Þórðarson, Njálsgötu 35, b
| Ingimar Hallgrímsson, trésmiður, i
Háaleitisbraut 40. '%
Hraunbær 43—45—55—57:
Einar Strand, verzlunarm., Sörla- %
1 skjóli 3, Í
Halldór Kr. Ingólfsson, húsasm.,
Blönduhlíð 27,
Jóhann E. Sigurjónsson, pren'tari,
! Laugarásvegi 67,
Sigurðúr Kristinsson, kennari,
Hitaveitut. 3, Smálöndum.
Hraunbær 35—37- 39—41—57—
61-63-65—67:
Sverrir Sveinsson, prentari, Þing-
holtsstræti 23,
Vioar Jónsson, .vélvirki, Stóra-
, gerði 8,
Framh. á 10. síðu.
Sunbeam Rapier
í eigu íslendings
dyra sportbíii, sem fékk nú fyrir
skömmu gullverðlaun á alþjóð-
legri bílasýningu í Danmörku.
Sunbeam Rapier er tveggja
Sl. sumar kom hingað til lands
fyrsti bíllinn, sem er í eigu ís-
lendings og á hann A. Lorenge
píanóleikari, en allmargir slíkir
bílar eru í eigu Bandaríkjamanna
á Keflavíkurflugvelli.
Sunbeam Rapier er með 86
hestafla vél og byggður fyrir
mikinn hraða. Árgerð 1965 af
þessum bll verður kynnt nú í okt
óber. Sunbeam Rapier er fimm
manna bíll og eyðir milli 10 og
11 lítrum að meðaltali á 100
km. Hann kostar hingað kominn
um 220 þúsund krónur.
Einnig er til Sunbeam Alpine,
sem er tveggja manna sportbíll
og gerður fyrir mun hraðari
akstur en Rapier. Enn hefur ekki
verið fluttur blll af þeirri gerð
hingað til lands. Rootesfyrir-
tækið selur mikið af þessum
Sunbeam bílum á erlendan mark
að, einkum þó til Bandaríkjanna.
Hér á íslandi hefur Raftælóii h.f.
umboð fyrir Sunbeam.