Vísir - 27.11.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 27.11.1964, Blaðsíða 1
VÍSIR 54. árg. Föstudagur 27. nóvember 1964. - 263. tbl Varð aðjárna óðan innbrots þjóf / DÓMKIRKJUNNI Hafði rifið altarisklæðið til að binda um sár sín Drukkinn ógæfumaður brauzt inn í Dómkirkjuna í Reykjavlk f gær, en var handtekinn inni í kirkjunni. Þessi maður, sem er ungur utanbæjarmaður, hefur oftlega komið við sögu lögreglunnar í Reykjavík áður .Hann mun og áður hafa gerzt sekur um inn- brot í kirkju Ekki er ljóst í hvaða skyni maðurinn brauzt inn í kirkjuna, en rúðu braut hann í glugga til að komast inn. Við það tiltæki sitt skar hann sig á glerbrotun- um og blæ'ddi talsvert úr. Ekki dó hann þó ráðalaus, því hann reif altarisklæði kirkjunnar nið- ur til að binda um sár sín. Þegar lögreglumennirnir komu á vettvang til að handsama pilt- inn, varð hann óður, sparkaði og barði, svo að járna varð hann bæði á höndum og fótum. Hann var fyrst fluttur í Slysavarð- stofuna til að sauma sár hans saman, en að því búnu í fanga- geymsluna í Síðumúla, þar sem hann fékk gistingu í nótt. ' . Stjórn LlÚ kom saman til fundar í gær í fundarsal sambandsins íHafnarhvoIi og tók IM þessa mynd á fundinum. — Frá vinstri í fremri röð eru þessir: Ágúst Flygenring, Hafnarfirði, Valtýr Þorsteinsson, Akureyri, Loftur Bjarnason, varaform., Hafnarfirði, Sverrir Júlíusson, formaður LÍÚ, Reykjavík, Sveinn Benediktsson, Reykjavík, Finnbogi Guðmundsson, Reykjavík, Hafsteinn Bergþórsson, Reykjavik. I aftari röð talið frá vinstri: Kristján Ragnarsson, fulltrúi, Ingimar Einarsson, fulltrúi, Gunnar Hafsteinsson, fulltrúi, Jónas Jónsson, Reykjavík, Ingvar Vilhjálmsson, Reykjavík, Sigurður H. Egilsson, framkv.stjóri, Jón Árnason, Akranesi, Jóhann Pálsson, Vestmannaeyjum, Víglundur Jónsson, Ölafsvík, Ólafur Tr. Einarsson, Hafnarfirði, Baldur Guðmundsson, Reykjavík, Þórarinn Pétursson, Grindavfk, Matthías Bjarnason, ísafirði, Hallgrímur Jónasson, Eskifirði. Meðalhlutur sjómannu á stærstu bát- unum / 4 ý mánuð 144 þásund kr. r r Aðallundur LIU hófst í gær — Ræða Sverris lúlíussonar Á aðalfundi LÍÚ, sem hófst í gær, flutti Sverrir Júlíusson, “ormaður sambandsins setning- arræðu, þar sem hann ræddi al mennt um útvegsmál. Þá flutti framkvæmdastjóri sambandsins, -4> Viðræðurum al- menna vaktavinnu verzlunarfólks Sigurður M. Egilsson, ræðu, þar sem hann skýrði ársreikninga sambandsins og innkaupadeild ar þess. Fundarstjóri var kjör inn Jón Árnason frá Akranesi og fundarritari Gunnar I. Haf- steinsson. I upphafi ræðu sinnar vék Sverrir Júlíusson að kjaramál- unum. Hann sagði m.a. að L.l.Ú. væri ekki aðili að samning- unum í júnímánuði sl. og hefði ástæðan verið sú að kjarasamn ingar sjómanna og útvegsmanna giltu til áramótanna. Þrátt fyrir það, að útvegs- menn eru ekki aðilar að þessu samkomulagi leggst þungi þess jafnt á útvegsmenn sem aðra Framhald A bls. 6. Verður hluup í Skeiðurú? Búizt er við að Skeiðará geti hlaupið hvaða dag sem er úr þessu en hiaupin eiga upptök sln f Grfnts- vötnum eins og kunnugt et. Sl. vor mældu leiðangursfarar frá Jöklarannsóknafélag'inu yfir- borðshæð Grímsvatna. Vantaði þá aðeins 4 y2 m. á þá hæð sem Grímsvötn voru komin í í septemb ermánuði 1959, þrem mánuðum áð ur en Skeiðará hljóp sfðast fram. Samkvæmt mælingum Jökla- rannsóknarmanna á undangengn- um árum nemur meðaltalshækkun f Grímsvötnum 12-14 m. á ári. Þeg ar síðasta hlaup kom úr Gríms- vötnum hafði vatnsflöturinn hækk að um 68 m. eftir næsta hlaup áð ur úr Grímsvötnum. En þá höfðu orðið rétt um fimm ár á milli hlaupa. Miðað við framangreinda meðal talshækkun í Grímsvötnum, eiga þau nú að vera komin í áþekka hæð og þau voru í þegar síðasta hlaup varð. Það má því búast við hlaupi hvenær sem er úr þessu. BLAÐIÐ I DAG í gærkvöld var haldinn fundur í Verzlunarmannafélagi Reykjavik- ur og fyrir honum lágu tilmæli frá samtökum kaupmanna um að taka upp hið svonefnda hverfaskipulag varðandi afgreiðslutfma matvöru- i búða, en gert er ráð fyrir því fyr- I irkomulagi f reglugerð, sem borgar ráð hafði samþykkt. Jafnframt lágu fyrir fundinum tilmæli frá öðr- um sérgreinafélögum um að VR BEITI EKKI bannákvæði, -— sem það hefir heimild til að beita sam- kvæmt úrskurði Félagsdóms — á föstudögum í desembermánuði. Fundurinn taldi sig ekki geta orðið við þessum sérstöku tilrrtæl um, en samþykkti þó jafnframt að óska eftir viðræðum við viðsemj- endur sína almennt um vaktavinnu fyrirkomulag hjá verzlunarfólki. 70 þúsund „ támtunnur afgangs norðanlands vegna lítillar söltunar þar í sumar Eins og kunnugt er vantaði um 100 þúsund tunnur upp á að síld væri söltuð upp í gerða samninga í sumar og kom það langharðast niður á Norðurlandi sem kunnugt er. Þar eru því af- gangs í birgðum um 70 þúsund tómar tunnur þrátt fyrir bruna tunnuverksmiðjunnar á Siglu- firði í fyrra. Þetta eru tunnur, smíðaðar í verksmiðjunni á Ak- ureyrl og átti eðlilega að flytja þær sem stytzt og nota til sölt- unar norðan lands í sumar. En þar var þá svo til engin söltun. Jón L Þórðarson, varaformað ur Síldarútvegsnefndar, sagði viðtali við blaðið ( morgun að þessar miklu tunnubirgðir á Ak- ureyri væru t'il óhagræðis er starfsemi tunnuverksmiðjunnar þar hæfist f vetur og því væri hugleitt að flytja af þessum birgðum til Suðurlands, ef Suð urlandssíldin glæðist. Jón sagði, að smíði nýrrar tunnuverksmiðju á Siglufirði gengi ágætlega og yrði bráðlega farið að ganga frá vélum í verk- smiðjuhúsinu. í gömlu' verk- smiðjunni á Siglufirði var hægt að setja saman 500 tunnur á 8 klukkustundum. Afköstin verða sízt minn’i í nýju verksmiðjunni og véltækni og vinnuaðstaða Framh. á bls. 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.