Vísir - 27.11.1964, Blaðsíða 4
4
VlSÍR . Föstwdapuv 27. nóvenabev 1985
I Heimdalli getur hver og einn
fundið eitthvað við sitt hæfi
/ vetur eignast Heimdailur sitt fyrsta féiagsheimili
Allt frá því að Heimdallur F.U.S., var stofnað fyrir
37 árum hefur félagið verið lang fjölmennasta og virk-
asta æskulýðsfélag landsins. Margir virðast álíta að
félag, sem Heimdallur sé aðeins pólitísk uppeldisstöð,
en svo er ekki. í Heimdall ganga þeir sem vilja sam-
einast um hugsjón sjálfstæðishreyfingarinnar, — þeir
er vilja stuðla að því að Sjálfstæðisflokkurinn fylgist
með straumi tímans og sé jafnan frjálslyndasti og víð-
sýnasti stjórnmálaflokkur landsins og stefna hans í
samræmi við hugsjónir samtímans. í Heimdall ganga
þeir sem vilja verða útverðir þess, að allar stéttir njóti
sömu þjóðfélagsréttinda og hver og einn einstaklingur
njóti sín sem bezt.
Félagsstarfsemi Heimdallar er
fjölþætt og getur þar hver og
einn fundið eitthvað við sitt hæfi.
Má sem dæmi nefna, hina vinsælu
klúbbfundi, sem haldnir hafa ver-
ið á þriggja vikna fresti um skeið.
Heimdellingar koma þá saman á
laugardögum og snæða hádegisverð
saman Undir borðum flytur gestur
fundarins ræðu, og er þá gjarnan
tekin fyrir þau mál, sem ofarlega
eru á baugi hverju sinni. Á eftir
eru frjálsar umræður og fyrirspurn
ir. Hafa klúbbfundir jafnan verið
vel sóttir og umræður hinar fjörug-
ustu.
Málfundaklúbbur
er starfræktur vetur hvern. Þar er
mönnum gefið tækifæri á kennslu
og þjálfun í mælskulist og fundar-
störfum.
Launþegaklúbbur var stofnsettur
s.l. vetur Þátttakendur í honum
eru úr röðum iðnaðar og verka
manna. Tókst starfsemi klúbbsins
með ágætum. Á fundum hans voru
flutt erindi um verkalýðsmál og
sýndar kvikmyndir. Þá fóru með-
limir klúbbsins í heimsókn í Al-
þingishúsið og til Morgunblaðsins.
Stofnun klúbbs þessa var mikill á->
vinningur bæði félaginu og og þátt-
takendum hans. Þeir ræddu vánda-
mál sín og áttu kost á að koma
skoðunum sínum á framfæri við
ýmsa forystumenn flokksins,
Tafl og bridgekvöld
eru haldin öðru hverju og vetur
hvern er háð hraðskákkeppni og
tvimenningskeþþni 'í bridge innan
félagsins. Á súmrin er farið i lengri
eða skemmri skemmtiferðir og á
vetrum er farið í stuttar kynnis-
heimsóknir í þekkt fyrirtæki í borg
inni eða nágrenni hennar. Árshátíð
og jólagleði hafa verið fastir liðir
í starfsemi félagsins og hafa jafnan
verið fjölmennar samkomur.
í vetur mun svo langþráð tak-
mark nást. Heimdallur eignast sitt
fyrsta félagsheimili Verður það í
kjallara Valhallar við Suðurgötu.
Verður þar stórt fundaherbergi og
setustofa. Vonir standa til að fram
kvæmdum við félagsheimilið verði
lokið um áramót, og er ætlunin að
það verði opið 5—6 daga í viku.
Þar mun fara fram tónlistar og bók-
menntakynningar svo og ýmiss kon
ar tómstundastarfsemi. Þar eiga
menn einnig að geta komið, rabb-
að saman og sinnt sínum áhuga-
málum.
Með þessu félagsheimili er að
leysast eitt mesta vandamál Heim-
dallar allt frá stofnun félagsins, og
Heimdellingar eru staðráðnir í að
láta einskis ófreistað til að félags
heimilið verði sú lyftistöng félag-
inu, sem eigi eftir að auka hróður
þess enn að mun.
Heimdallur er félag unga
1 fólksins.
Ungir Reykvíkingar hafa skipað
sér undir merki þess og tekið þátt
| í fjölbreyttu og þroskandi félags-
. starfi á vegum þess. Við bjóðum
! nýja félaga velkomna í hópinn og
væntum góðs af samstarfi við þá.
Stjórn Heimdallar 1964-’65: Fremri röð frá vinstri: Valur Valsson, framkvæmdastjóri, Grétar Br. Kristjáns-
son, varaform., Styrmir Gunnarsson formaðúr, Már Gunnarsson ritari, Eggert Hauksson gjaldkeri. Aftari
röð: Halldór Runólfsson, Gylfi Þór Magnússon, Haraldur Sumarliðason, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Jón
Magnússon Bragi Kristjánsson, Steinar J. Lúðvíksson.
LHEPPNUÐ ÁRSHÁTÍÐ
HJÁ FRAMTfÐINNI
Framtíðin, en svo nefn-
ist málfundafélag
Menntaskólans í Reykja
vík, hélt árshátíð sína
18. nóv. s.l.
Undanfarin ár hefur
árshátíðin verið haldin
í tvennu lagi, þar sem
erfitt hefur verið að
finna samkomuhús er
rúmaði allan þann fjölda
sem í skólanum er. Nú
var hins vegar öllu stokk
að í eitt og stærsta sam-
komuhús borgarinnar,
Hótel Sap '’ngin fyr-
ir fagnað
IÍR
FELAGSLÍFI
SKÓLANNA
Þegar við komum, um hálf
níu leytið, streymdi að prúðbú-
ið fólk, kennarar og nemendur.
Skólabækur, kennslustundir og
próf voru gleymd. Menn komu
hingað til að varpa af sér oki
hversdagsins — skemmta sér.
Þegar hvert sæti í húsinu var
skipað og vel það, gekk forseti
félagsins, Jón Sigurðsson, að
hljóðnemanum, bauð fólk vel-
komið og setti samkomuna.
Þessu næst tók til máls ræðu
maður kvöldsins, Sverrir Hólm-
arsson kennari. Flutti hann
skegglega ræðu og ávítaði nem
endur sína föðurlega fyrir fagur
fræðilegt áhugaleysi og að ljá
jafn ómerkilegu fyrirbæri og
Bítlunum eyru sín. Þegar Sverr-
ir hafði lokið ræðu sinni var
píanóið dregið fram og við það
settust tvær ungar stúlkur,
Anna Áslaug Ragnarsdóttir og
Lára Rafnsdóttir. Var auðheyrt,
að þar voru engir viðvaningar á
ferð, enda er þess að minnast
að önnur þeirra, Áslaug, lék ein
leik á píanó á sinfóníutónleik-
um í fyrra vetur. Léku þær fjór
hent þrjú létt og fjörug tón-
verk og var óspart klappað lof
í lófa fyrir.
Þá upphófst dansinn með fjör-
ugum marsi. Buðu nemendur
kennurum sínum upp, og fóru
þeir fremstir í flokki. Siðan bætt
ist stöðugt við og varð úr löng
halarófa er marséraði um króka
og kima. Eftir stutta stund var
gert hlé á dansinum og gaman-
vísnasöngvarinn Ómar Ragnars-
son birtist í sviðsljósunum. Byrj
aði hann á að minnast þess, að
Eftir að skemmtiatriðum lauk var stiginn dans (Ljósm. B. Þ. B.)
nú eru liðin sjö ár síðan hann
gerðist sprellari, en það vár ein-
mitt á árshátíð Framtíðarinnar.
Skemmti Ómar síðan um stund
við mikinn fögnuð áheyranda og
horfanda.
Eftir að Ómar hafði lokið
skemmtiskrá sinni dunaði dans-
inn á ný, allt til að tveir vörpu
legir menn snöruðust upp að
hljóðnemanum og stjórnuðu
fjöldasöng. Var sungið á ís-
lenzku, frönsku, þýzku, ensku
og latínu af krafti miklum, —
auðvitað hver með sínu nefi.
Og enn var dansað. Rómantík
in og „shake’ skiptust á, þar til
kl. hálf þrjú, en þá var samkom
unni slitið og hver hélt til sinna
heima með minningar um árs-
hátíðina í huga sínum.
á næsta leiti
N.k. laugardag verður haldinn
khibbfundur í Sjálfstæðishúsinu
og héfst hann að venju kl. 12,30.
Þar mun Magnús Z. Sigurðsson for-
stjóri flytja erindi sem hann nefn-
ir „Skipulag útflutnings og mark-
aðsmála“. Klúbbfundirnir eru einna
vinsælasti liðurinn í starfsemi Heim
dallar og ávallt mjög vel sóttir.
I næstu viku heldur erindaflokk-
ur Heimdallar um „Stjórnmála-
stefnur samtímans“ áfram, og mur.
þá dr. Gunnar G. Schram, ritstjóri
flytja erindi. Fundarefni og fund-
ardagur verður auglýstur síðar.
Þessi erindaflokkur Heimdallar virð
ist njóta vaxandt vinsælda og að-
sjálfsögðu er allt ungt fólk velkom-
ið.
(