Vísir - 27.11.1964, Blaðsíða 16

Vísir - 27.11.1964, Blaðsíða 16
Haustmót í Gullbringusýslu Haustmót Sjálfstæðismanna í verður haldið laug- ardagínn 28. þ. m. kl. 9 síðdegis í Sandgerði. Bjarrii Benedikts- ion forsætisráð- og Axel Jónsson, alþingis maður, flytja á- /örp. Leikaramir Róbert Arnfinns- son og Rúrik Haraldsson skemmta. Að lokum verður dansað. SmíSi varðskips í undirbúningi Ægir orðinn 35 ára — Nýja varðskipið verður að vera ganggott, sterkt, auðvelt í rekstri og sérstök áherzla verður lögð á radartæknina. Þá verður þyrluþiifar á skipinu og skýli fyrir þyrlu. Þannig komst Pétur Sigurðsson, forstjóri Iand helgisgæzlunnar, m. a. að orði, þegar hann var að lýsa því hvernig hið nýja skip Iandhelg- isgæzlunnar yrði að vera. Vænt anlega verður skipið á stærð við Óðin og gert er ráð fyr'r. að smíði þess verði Iokið 1967. Pétur Sigurðsson, \ forstjóri landhelgisgæzlunnar, ræddi við fréttamenn í gærdag og skýrði frá því, að ríkisstjórnin hefði samþykkt tillögu dómsmálaráð- herra, Jóhanns Hafstein, um byggingu nýs varðskips. — Okkur er það nauðsynlegt að hafa minnst tvö stór skip á sjó í einu og nú er Ægir gamli orðinn 35 ára gamall og að sjálfsögðu nálgast sá timi óð- um að endumýja þurfi hann, sagði Pétur. Hann gat þess einn ig að Ægir væri vandað skip og hefði reynzt landhelgisgæzlunni mjög.vel alla tíð, en með út- færzlu landhelginnar og stækk- un fiskiskipa flotans, verður landhelgisgæzlan að fylgjast — Gert er ráð fyrir þvf, að undirbúningsvinna fari fram i ár. — Athuga þarf með þarfir, stærð, gerð og hraða og mun landhelgisgæzlan ræða málið við sina reyndustu starfsmenn, bæði skipstjóra og vélstjóra, sagði Pétur. Um áramótin flyzt svo undirbúningsvinnan til Álaborg ar, en skipasmiðastöðin þar hef ur lofað að gera frumteikning- ar að skipinu og útboðslýsingu. Gera má ráð fyrir að nýja varðskipið verði á stærð við Óð in, eða um eitt þúsund tonn, en Iandhelgisgæzlan mun að sjálfsögðu við smíði þessa nýja varðskips. notfæra sér þá reynslu, sem fengizt hefur af Óðni. Auk þess sem Ægir er orðinn 35 ára gamall, þá rennur á næsta ári út leigusamningur milli ríkisins og Slysavamafé- lagsins um Sæbjörgu. VERÐTRYGGÐ SPARlSKÍRTFJNi ■ . tt9 $&* ■&*&* S»*«#**J «NtM NtlNBIKW KnÓMXttt Nw» •< ÍXt. CM NM, *» V* ioto 3mWnt - vmktm* 'AwAyn ■#*&$/*** mfo’ Mdt W-Oioon oc woiv Qim&u «r>öo% * ribrtwv iksMm,j iHUSMdídd ifrc ribiOulMli o! Jioml vxukxtum c mm N* m ***»*>. : ......... A ....'..'.... f.h. BlKiswóaa islanps • :>iO. . ■ .{ Í3 V \ y'i' . "<>* ' — segir Gunnar Guðjónsson formaður stéttarsambands fiskibnaðarins Gunnar Guðjónsson Hið nýja stéttarsamband fisk iðnaðarins á að gæta hagsmuna allra fiskframleiðenda, sagði Gunnar Guðjónsson, hinn nýi formaður sambandsins í stuttu- viðtali við Vísi £ morgun. Okk- ur þykir sem aðsfaða fiskiðnað- arins hafi verið nokkuð slæm oft og ekki rikt nægilegur skiln ingur á mikilvægi fiskiðnaðar- Ins fyrir þjóðarbúskapinn, Fisk- framleiðendur hafa hins vegar verið skipulagðir í mörgum söla samtökum og okkur virðist sem ekki sé vænlegt að vlnna að málum þessum hver £ sínu horn- heldur muni verða bctra fyrir fiskframleiðendur að sameinast I einu stéttarsambandi. Gunnar sagði, að allir stærstu aðilar í fiskiðnaðinum væru með I stéttarsambandinu. Kvað hann sambandið opið þeim, sem enn vildu bætast í hópinn. Gunnar sagði, að stofr.funduriun á Sögu hefði verið vel sóttur og lofað góðu um samtökin. Hann sagði að fyrir dyrum stæði nú að skipuleggja starf hinna nýju samtaka. Mundi verða ráðinn sérstakur framkvæmdastjóri, en ennþá hefði ekki verið ákveðið hver það yrði. 16 árekstrar í gær Eftir því sem Vísir fregnaði i , morgun hefur færð enn ekki spillzl i neitf sem nemur a. m. k. ekki í | nágrenni Reykjavíkur. | Þó mun sums staðar hafa hvesst Danskir vísiadamenn reka úróðar en gefa þingnefnd engar skýrslur Það vekur nú talsverða at- hygli 1 sambandi við handrita- málið, að á meðan ýmsir vís- indamenn, sem eru mótfallnir afhendingu handritanna, láta móðari mása í dönskum blöðum og halda uppi harðvítugum a- róðri með vafasömum og ein- hliða röksemdum, þá hafa þeir ekkert gert til þess að koma skoðunum sínum fram við þing- nefnd þá, sem hefur málið nú til meðferðar í þjóðþ’inginu. Formaður nefndarinnar, Poul Nilsson, hefur látið I ljósi furðu yfir því að þessi hópur vísinda- manna, sem heldur uppi áróðr inum skuli ekkert hafa gert ti; að gefa þingnefndinni hlutlægar upplýsingar. En búast má við að þingnefndin láti sér ekki nægja e’inhliða áróður eins og þann sem birtist í bæklingnum fræga, heldur vilji kanna málin frá öllum hliðum. Þingnefndina sem skipuð var til að kanna handritamálið sitja 17 þingmenn. Starfar hún eins og allar aðrar þingnefnd'ir og er það yfirleitt siður þar, að þeir sem hafa einhvern áhuga á málum, sem þar eru til um- ræðu, leita til nefndarinnar með upplýsingar sínar. En það hafa hinir andsnúnu vísinda- menn ekki gert. Eru menn að velta því fyrir sér, hvort þeir vilji ekki mæta nema þeim sé boðið, en slikt tíðkast ekki. Nilsson formaður nefndarinnar upplýsir að 16 spurningar hafi verið lagðar f-yrir hana til at hugunar, mestmegnis af einstök um nefndarmönnum sjálfum. Á að fá svar við þessum spurn- ingum til að upplýsa mál'ið. Má sjá af nokkrum þeirra, að nefnd in vill m.a. kanna, hvort ýmsai staðhæfingar mótstöðumanna at hendingar eru réttar. Hér eru nokkrar spurninganna: 1) Er bókakostur konunglega bókasafnsins nauðsynlegur til þess að geta rannsakað hand- ritin. Framh á bls. 6 í nótt, og í morgun var talsverður skafbylur á Þrengslaveginum. Samt kom hann ekki að sök hvað færð- ina snerti því það skóf af veginum, en h’ins vegar var eitthvað sein- keyrðara fyrir bragðiið. I Ekki höfðu fregnir borizt af færð i inni í Hvalfirði f morgun, nema j hvað mjólkurbíll kom úr Borgar- I nes'i á eðlilegum tíma til Reykja- i víkur. i Vestur á Snæfellsnesi var færð | tekin að þyngjast í gær og f gær- ; kvöldi og nótt mun hafa gert skaf- ! hríð þar. Á Norðurlandi var byrjað að hriða hingað og þangað í morgun, en samt ekki svo mikið, að vegir tepptust. f Reykjavík sjálfri var sama hálka á götunum og áður, enda 16 árekstrar bifreiða bókaðir hjá lög- reglunni. Slys urðu ekki ð fólki i umferðinni f gær. ★ Suður-Afríkustjórn hefur lýst ánægju sinni yfir þvf, að brezka stjórnin hefur ákveðið að rifta ekki samningunum um sölu á 16 Buckaneer-þotum, og segir Breta geta áfram haft nat af Simonstown-flotastöðinni, að ó- breyttu. Skuldabréfin komin og safa hefst eftir helgi Svona líta nýju skuldabréfin út, sem Seðlabankinn tók við í gær- kvöldi. Samtals er verðmæti þeirra 50 milljónir króna. Meira en helmingur þeirra er þegar seldur fyrirfram og hafa menn fengið ávísanir út á skuidabréf- in fram að þessu. Sjálf bréfin komu í gærkvöldi með Flugfé- lagsvél frá Kaupmannahöfn, en þau lögðu af stað í gærmorgun frá Helsinki, þar sem þau eru prentuð, hjá Finnlandsbanka. Þau komu í fjórum kössum, sem vógu alls 230 kg. Þótt þau séu nú komin til landsins, hefst sala þeirra ekki fyrr en eftir helgi, og verður áfram notazt við á- vfsanir á skuldabréfin fram að því. — Samkvæmt lauslegri at- hugun virðast bréfin nokkuð ai- mennt keypt, þannig að fáir kaupi mörg bréf en margir bréf fyrir tiltölulega Iitlar upphæðir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.