Vísir - 27.11.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 27.11.1964, Blaðsíða 5
5 ut I önd 1 niorgun utlÖnd 1 morgun útlöhd í morgun utlönd í morgun Enn bnrizt í Stunleyville Kongóherinn hefur fengið liðsoukn Um leið og kommúnistafor- sprakkar hamast út af mannúðarað gerðum Belga og Bandaríkjamanna berast hinar hroðalegustu fréttir um aðfarir uppreisnarmanna. Brezka útvarpið segir frásagnir flóttamann f því, sem gerzt hef ir f Stanleyville svo hroðalegar, að ekki sé hægt að endurtaka það í út varpi, svo sem lýsingar á drápum O'j mannáti. Og enn er barizt f Stanleyville og í gærkvöldi var ekki nema hluti borgarinnar alger lega á valdi stjórnarhersins, en hann mun hafa fengið mikinn liðs- auka. Megn óánægja var meðal hvítra málaliða í stjórnarhernum. Höfðu þeir safnazt saman á flugvell inum í borginni og neituðu að halda áfram að berjast, nema þeir fengju mála sinn greiddan í gjald miðl: landa sinna. Spaak, utanríkisráðherra Belgíu sagði í gær, að hlutverki belgiska liðsins yrði lokið með brottflutn- ingi hvftra manna, sem það bjarg aði í Paulis f ■ Norður-Kongó, um 200 manns. Gert er ráð fyrir að belgiska fallhlífarliðið safnist sam an í Kamina-flugstöðinni og verði flogið heim þaðan, næstu nótt eða á morgun (laugardag). Enn munu vera nokkur hundruð hvftra manna í Norður-Kongó, að allega í Watsu og öðrum bæ íil. Hvort fallhlífarliðið á að bjarga þeim er ekki ljóst. UPPÞOT í HÖFUÐBORGUM Uppþot urðu í gær í Kairo og Nairobi og fleiri borgum, til þess að mótmæla aðgerðum Belga og Bandaríkjamanna til þess að bjarga hvftum mönnum. Ruðzt var inn í bókasafn sendiráðsins og kveikt í þvf og brann það til ösku. Fyrir utan sendiráð Nairobi var hvolft bifreiðum og kveikt í þeim. Og kommúnistaforsprakkar hvarvetna hamast út af mannúðaraðgerðun- um og fordæma þær og ríkir um það eining milli sovézkra og kfnverskra kommúnistaforsprakka. I Nairobi gagnrýndi Nyerere Breta fyrir aðild að aðgerðunum þar sem þeir hafi leyft afnot af Scunsioney sem millistöð fallhlífarliðsins. MANNÚÐARAÐGERÐIN OG SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Brezka útvarpið segir, að ekki hafi náðst samþykki helmings Afríkuþjóða til þess að taka mál ið fyrir á vettvangi Sþ og ekki Iíklegt að það verði gert, a.m.k. ekki eins og horfir þessa stundina. Kynsjúkdómar breiðast út í sænska læknablaðinu eru látnar i ljós áhyggjur út af ört vaxandi útbreiðslu syfilis. Árið 1958 bættust við 73 ný tilfelli, en 1963 voru þau komin upp í 316. Prófessor Hellerström yfirlæknir í Karolinska sjúkrahússins (húð- og kynsjúkdómadeildarinnar), segir, að gera megi ráð fyrir aukinni út breiðslu kynsjúkdóma í heiminum yfirleitt, nema gert verði sameig- inlegt átak þjóða til þess að stemma stigu við þeim. Orsakirnar , segir hann margar: Breytt þjóðfé lagsleg skilyrði, bráðari líkams- þroski unglinga og meira frjáls- ræði, aukin skcmmtiferðalög og meiri tilfærslur og umrót á ýmsum sviðum. I Danmörku hafa syfilis- tilfelli tvöfaldazt og í meira en helmingi tilfella barst smitunin er lendis frá. ERLENDAR FRETTIR í STUTTU MÁLI Vegna vaxandi starfsemi SAMVINNUTRYGGINGA og Líftryggingafélagsins ANDVÖKU mun félögin þurfa á auknu starfsliði að halda nú þegar og á næstu mánuðum. Hér er um ýmiskonar störf að ræða svo sem við sölu trygginga, uppgjör tjóna, endurtryggingar, bókhald, skýrsluvélar (IBM), vélritun og símavörzlu. Æskilegt er að umsækjendur hafi góða verzlunarmenntun og reynslu í viðskiptum. Lögð verður áherzla á, að starfsfólkið eigi kost á víðtækri þjálfun og reynslu, sem geri því kleift, að taka að sér ábyrgðarmeiri og þar með betur launuð störf, gerðar verða kröfur um áhuga, ástundun og nám m. a. um þátttöku í Trygg- ingaskóla S.l.T. Vinnuskilyrði verða mjög góð. Með umsóknir verður farið sem trúnaðarmál, sé þess óskað. Umsækjendur snúi sér til Helga Sigurðssonar, sjónar, sem mun veita nánari upplýsingar. forstöðumanns Skrifstofuum- mmsm ic Á landsfundi jafnaðarmanna- flokksins í Vestur-Þýzkalandi, höldnum i Karlsruhe, var sam- þykkt að stuðla að nánari tengsl um Efnahagsbandalags Evrópu og Fríverzlunarbandalagsins (EFTA). •k Utanrikisráðherrar Bandaríkj anna og Vestur-Þýzkalands, De- an Rusk og Gerhard Schröder, hafa látið í ljós ósk um, að samkomulag náist bráðlega um stofnun kjarnorkuflotadeildar, og að sem flest NATO-ríki ger- ist aðilar. ★ Herlög hafa verið sett í Sai- gon í Suður-Vietnam og aðal- stöð Buddhista umkringd her- liði. k Sovétríkin vara Bandarikin við að hefja sprengjuárásir á Norður-Vietnam. ★ Chen Yi utanrikisráðherra Kína er allt f einu kominn al- gerlega óvænt til Jakarta ■ Indónesíu. Hann sagði við kom- una, að engin sérstök vandamál væru á döfinni milli Kínverja og Indónesa. k Portúgalsstjórn tekur fram ) tilefni ummæla Harolds Wilsons forsætisráðherra Bretlands neðri málstofunni nýlega, — (þau voru þess efnis, að Bretar ætluðu ekki að selja vopn til Portúgals til notkunar í nýlend- um þeirra) — að Portúgal geti keypt vopn á markaði, sem sé hagstæðari en brezkur markað- ur. k Vitað er með vissu, að 13 skipverjar af norska olíuflutn- ingaskipinu, sem sökk eftir á- rekstur úti fyrir New York, hafa farizt, en 4—5 er saknað. jDÍngsjá Visis þingsjá Vísis þingsjá Vísis Leiklistarstaiísemi — Veiting prestakalla í gær voru fundir i báðum deild um og sameinuðu þingi. í sameinuðu þingi fóru fram atkvæðagreiðslur um mál, sem rædd voru s.I. miðvikudag. f efri deild voru 3 mál á dag- skrá en 2 þeirra voru tekin úí af dagskrá, en Karl Kristjánsson mælti fyrir frv., sem hann flytui um breytingar á landskiptalögum í neðri deild voru 2 mál á dag- skrá, leiklistarstarfsemi áhuga- manna, sem kom frá nefnd, og haldið var áfram 1. umræðu um frv. kommúnista um endurálagn- ingu útsvars og tekjuskatts. Þá tók Björn Fr. Biörnsson sæti sitt á Alþingi. LEIKLISTARSTARFSEMI ÁHUGAMANNA Pétur Pétursson mælti fyrir nefndáráliti á frv. um leiklistar starfsemi. Sagði hann nefndina vera sammála í öllum meginat- riðum og flytja nokkrar breyting artillögur. Rætt hefði verið við ýmsa aðila um málið m. a. framkvæmdastjóra Bandaiags is- lenzkra leikfélaga. Þá sagði hann, að nefndin væri .^ammála um, að ef frv. yrði að lögum, þá væri það mikiil styrkur fyrir starf áhugamanna um leik list. Eins og áður segir flytur nefnd- :n nokkrar breyttill. og eru þas: riestar fluttar í samráði við nefnd þá, er upphaflega samdi frv. Breytingartillögur nefndarirmar miðast fyrst og fremst við að auka áhuga leikfélaga á þvi að sýna barnaleikrit, en það telur nefndin mjög þýðingarmikið og í öðru Iagi að auka áhuga á flutningi íslenzkra leikrita, bæði nýrra og eldri, með þvi að styrkja þær sýningar sérstaklega. Þá segir I áliti nefndarinnar, að gert sé ráð fyrir í frv. að bæjar- og sveitarsjóðum sá skylt að greiða jafnhá framlög rikinu í A-flokki, en 50% í B. og C-flokkum, og séu viðbótartekjur umfram ríkis- framlög tryggðar með þessu. Þá sagði ræðumaður uir, tillögu Sig- urvins Einarssonar, sem gerir ráð fyrir að Bandalag íslenzkra leik- félaga hafi tillögurétt um úthlut un styrkja til leiklistarsarfsem;, að sér fyndist eðlilegt að mennta- málaráðuneytið hefði þessa út- hiutun með höndum I byrjun þar sem hér væri um algert nýmæli að ræða. Síðan voru breyttill. nefndar innar samþykktar, en tillaga Sig- urvins felld og frv. vísað tií 3. umræðu. í STUTTU MÁLl Karl Kristjánsson mæiti fyrir frv. um breytingar á landskipta- lögum. Sagði hann, að frv þetta væri flutt til að skera ákveðið úr um viss ákvæði núgildandi laga, sem væru mjög loðin. Þá var fram haldið f neðri deilcf 1. umræðu um frv. um endur álagningu skatta og útsvars. Tóku til máls þeir Einar Ágústsson, Lúð vík Jósefsson og Eðvarð Sigurðs- son. VEITING PRESTAKALLA Lagt hefur verið fram á Alþingi frv. um breytingar á lögum um veitingu prestakalla. Kom frv þetta fram á Alþingi I hittifyrra en hlaut þá ekki afgreiðslu og var sent til umsagnar nýlokins kirkju- þings, þar sem það var samþykkt 1 frv. er gert ráð fyrir, að sé prestur ekki kallaður til embætt- is, þá verði hann kosinn af sér- stökum kjörmönnum, sem eru sóknarnefndarmenn og safnaðar- fulltrúar. Að lokinni kosningu skaf veita þeim umsækjanda emb- ættið, sem hlot’ið hafi % atkvæða og telst það þá Iögmæt kosning. Hafi hins vegar enginn umsækj- anda hlotið tilskilið atkvæða- magn, skal biskup mæla með ein- hverjum tveimur, ef fleiri en einn sækja, er hann telur, þegar tillit er tekið til allra aðstæðna, standa næst því að hljóta embættið, og I þeirri röð, sem næst liggur að hans dómi, og skal ráðherra þa veita öðrum hvorum þessara manna embættið. Einnig er kjörmönnum heimilt að kalla prest, ef % þeirra eru sammála um einhvern tiltekinn mann. Ennfremur er gert ráð fyrir, að prestsembættin að Skálholti, Hól- * um og Þingvöllum séu veitt at forseta íslands samkvæmt tillögu biskups og kirkjuráðs. Þá hefur og verið lagt fram frv. um skipan sóknarnefnda, og er það komið óbreytt frá kirkju- þingi. Gert er ráð fyrir tveim breytingum frá núgildandi lögum: að sóknarprestar og safnaðarfull- trúar sitji fundi sóknarnefnda, þó án atkvæðaréttar, og þá er lagt til, að í sóknarnefnd megi vera allt að 11 menn. En reglur um sóknarnefndar menn eru þær samkv. frv. að þeir séu 3 f sóknum með færri en 500 íbúa, annars 5, unz tala sóknar manna nær 1000 eða fleiri, þá skal kjósa tvo menn til viðbót- ar f sóknarnefnd fyrir hver full 2000 sóknarmanna, sem við bæt- ast, en þó aldrei fleiri en 11. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.