Vísir - 23.12.1964, Page 6
6
V í S I R . Miðvikudagur 23. desember 1964.
Sföðv/ð heiminn i
., ... ,. . jjo /Jiioll
Jólaleikrit Þjóðleikhússins er að þessu sinni Stöðyjð heiminn hér fer ég
út. Frumsýning er annan jóladag. Einnig verður Sardasfurstinnan sýnd
og Mjalihvít, bamaleikritið. — Stöðvið heiminn er brezkur gamansöng-
leikur í nútímastil og felst í honum þung ádeila. Aðalleikendur eru
Bessi Bjarnason, sem leikur Litla karl eða trúðinn sem brýzt úr sár-
ustu fátækt til hinna æðstu metorða. Vala Kristjánsson Ieikur konu
hans og einnig fylgikonur hans í mörgum gervum. Bregður hún sér í
gervi vestur-þýzkrar stúlku, stúlku frá Moskvu og stúlku frá New York.
Leikhúsin um jólin
Ævintýri á
gönguför
Á þriðja í jólum fnunsýnir
Leikfélag Reykjavíkur Ævintýri
á gönguför eftir Hostmp. Er það
í níunda sinn, sem leikurinn er
sviðsettur í Iðnó. Fyrst var
Ævintýrið sett á svið í Stift-
amtmannshúsinu einhvern tima
á árunum 1850—60 og mæltu
leikarar þá á danska tungu,
næst var það sýnt í Gildaskál-
anum á árunum 1860—62 og síð
an hefur það margsinnis verið
tekið upp til sýninga og er sýn-
ingafjöldi nú orðinn á þriðja
hundrað.
Þýðingin er eftir eldri þýð-
ingu Jónasar frá Hrafnagili, sem
Lárus Sigurbjörnsson breytti, en
Tómas Guðmundsson endur
samdi suma söngvana. Leikstjóri
er Ragnhildur Steingrímsdóttir
og er það í fyrsta sinn, sem hún
setur leikrit á svið hjá Leikfé-
laginu, en alls hefur Ragnhildur
sett Ieikrit á svið um 20 sinn-
um, víða um land, t. d. setti
hún á svið á Akureyri síðasta
vetur leikritið Galdra-Loft, en
með aðalhlutverkið fór þá Gunn
ar Eyjólfsson sem gestur Leik-
félags Akureyrar.
Leikendur í Ævintýrinu nú
eru þessir: Krantz, birkidómari,
Brynjólfur Jóhannesson, asses-
sor Svale, Haraldur Björnsson,
Skrifta-Hans, Erlingur Gíslason,
frú Krantz, Inga Þórðardóttir,
Vermundur, Gísli Halldórsson,
Lára, Björg Davíðsdóttir, Jó-
hanna, Guðrún Ásmundsdóttir,
Ejbæk, Arnar Jónsson, Herluf,
Pétur Einarsson, og Pétur bóndi,
Karl Sigurðsson. Leiktjöld eru
eftir Steinþór Sigurðsson. Undir
leik annast til skiptis Guðrún
Kristinsdóttir og Máni Sigur-
jónsson.
Skömmu eftir nýár verður
barnaleikritið Almansor kon-
ungsson eftir Ólöfu Árnadóttur
frumsýnt í Tjarnarbæ. Er leik-
ritið gert eftir austurlenzku æv
intýri. Leikstjóri er Helgi Skúla
son.
^V&ugcítis ,
Jaroa/ðer/a/s
/ pöMÆum
ístertur, skreyttar
úr vanilluis og súkkulaðiís,
Þrjár stærðir.
6 manna
9 manna
12 manna
ístertur þarf að panta með tveggja
daga fyrirvara í útsölustöðum á
Emmess-ís.
Mjólkursamsalan.