Vísir - 06.04.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 06.04.1965, Blaðsíða 2
Maður framtíðarinnar Rætt um helztu þróunarbreytingar mannsins Jjróunarkenningin boðar okkur að dýrategundirnar á jörð- inni hafi stöðugt, verið að breyt ast. Kjami kenningarinnar er sannaður með f jölmörgum dýra- leifum sem fundizt hafa frá um- liðnum forsögutímum. Á vissum tímabilum hafa skordýr og eðlur verið blómi lífsins á jörði'nni, síð an hefur þetta þróazt, unz spen- dýrin komu fram og svo innan þeirra apar og loks hámark þró- unarinnr ~iennimir. Öll þe próun hefur orðið á óhemju löngum tima, það verð ur að telja hana í milljónum jafnvel tugmilljónum ára. Þegar tillit er tekið til þess, þá hafa breytingarnar, hversu miklar sem okkur sýnist þær nú, ver- ið svo hægfara, að kannski hef ur verið ómögulegt að verða þeirra var, hverju sinni. Tjað eru nú komin 10—20 þús- und ár síðan fyrstu mann- legu verurnar með útlit núlif- andi manna komu fram á jörð- inni og áður höfðu aðrar mann tegundir grófari og líkari öpum verið á ferli drjúgan tíma. En svo virðist sem á þessum tíu þúsund árum sé ekki um mikla breytingu að ræða, höfuðlagið og lfkamsbyggingin er nokkuð sú sama. Þá má einnig minnast þess, að við getum ekki verið í nokkr- um vafa um það, að andleg full komnun mannsins var búin að ná því marki sem nú er, þegar fyrir 2300 árum þegar blóma- öld Grikklands stóð. Það er stað reynd, að hugsanir þær, sem þá voru hugsaðar ristu jafn djúpt og hugsanir nútímamanna, þó allt skipulag vísinda og tækni hafi nú náð meiri árangri. Þannig hafa meira en tvö á'r- þúsund liðið án þess, að um nein farið að nálgast apana upp á nýtt. Því er haldið fram að atriði í þróuninni sé ekki hægt að sjá nema á mjög löngum tíma, hundruðum ára að minnsta kosti. En svo hafa menn veitt einkennilegum fyrirbærum at- hygli á síðasta mannsaldri, sem sýnir talsverða breytingu á mannkyninu á tiltölulega mjög skömmum tíma. ar stórfelldar breytingar sé að ræða með manninum. Táknar \7"ísindamenn velta því nú mjög það þá, að maðurinn breytist ekki, er þróunin stöðvuð með tilkomu hans. llJér er komið að einu vanda- 1 samasta viðfangsefni vfsind anna. Þau halda því fram að þró unin muni ekki stöðvast. Mann- kynið mun ekki geta haldizt ó- breytt um aldur og ævi, nýjar manngerðir og að líkindum full komnari en þær sem til hafa verið munu myndast. Nú er það að' sjálfsögðu hugur og andi sem hefur mesta þýðingu f heimi mannsins og því ætti þróunin að verða sú, að mannkynið verði smám saman gáfaðra og skarp- ara. En ýmsir þröskuldar eru í vegi fyrir því, m.a. sú ein- kennilega staðreynd, að það eru sjaldnast þeir gáfuðustu og greindustu, sem hlaða niður börnunum og þannig myndast þverbrestur í sjálfa þróunar- kenninguna. Menn gætu jafn- vel írtiyndað eftir að athuga barnamergð hjá hinum ýmsu þjóðfélagsstofnunum, að mann- kyninu væri fremur að miða aftur á bak og fara aftur. Að það yrði með sama framhaldinu Bítlamenning BftSll er strákur, sem stendur ekki niður úr sínu eigin hári... Sumir þeirra emja og veina við ferlegar misþyrmingar skikkan- legrar hljóðfæra, aðrir emja og veina undirgargslaust. Samtið Bítlanna skilur þá ekki, en þeir láta sér algerlega á sama standa og., eru blessunarlega lausir við að benda á það í tíma og ótíma að samtíðin hafi aldrei skilið sfna snillinga, þeir eru ef til vill ekki algerlega andlega he'ilir að dómi sálfræðinga, en þeir eru a.m.k. lausir við alla píslarvætt- isdellu ... þeim finnst ekki nema eðlilegt að aðrir skilji þá ekki, því að þeir sk’ilja síg ekki sjálfir, enda hafa þeir aldrei gert neina tilraun f þá átt Þeir eru eins og Viss grastegund, er vex úr vissum jarðvegi við viss- ar aðstæður og eins og grasið gera þeir heldur ekk'i neinar kröfur til að láta líta á sjálfa sig sem tré, enda gera þeir það ekki sjálfir ... Þeir eru ósjálf- ráð, og þvf heilbr'igð og rökrétt uppreisn gegn falskri og sjúk- legri yfirborðssnyrtimennsku- grfmu samtíðarinnar að einum þræð’i, skilgetið afkvæmi hraða og tækni, sem manninum hef- rr skki enn tekizt að samrým- ast öðrum þræði og heilbrigðr- ar löngunar æskunnar til ærsla og óláta að þeim þriðja ... Þeir eru, eins og unglingum er eig inlegt. glöggskyggnir á galla og veikleika þeirra fullorðnu — og notfæra sér þá m'iskunnarlaust — nýjungagirnina og fstöðuleys ið gagnvart öllum áróðri og auglýs'ingaskrumi t. d. Af sama miskunnarleysi húðfletta þéir eldri kynslóðina fyrir yfirborðs- dýrkun hennar á öllu viður- kenndu og sígildu, sem hún ber þó ekki minnsta skynbragð á, svo sem „æðri tónlist" um leið og hún lætur hlunnfara sig af frökkum og kunnáttulausum loddurum á öllum sviðum lista og mennta ... Þeir eru aldir upp við síglymjandi útvarpsviðtæki, sem fullorðna fólkið þorir al- drei að loka fyrir, af ótta við að verða berir af sinnuleysi gagnvart ,,menningunni“, og önnur sfmalandi fjölmiðlunar- tæki, sem umbreyta allri sannri tjáningu fyrir vélræna túlkun í moðsoðinn dósamat... Þéir eru sumsé hálfærðir af hávaða frá þvf í vöggu, og nú er þeirra dagur uppgjörs og hefnda upp risinn, þar sem þeir ega kval- ara sína sínum eigin vopnum hins innihaldslausa, emjandi, vél ræna hávaða ... Þeir eru ekki annað en refsivöndur, sem eldri kynslóðin hefur sjálf bundið sér úr hrísi hégómans ... meinlaus og höggléttur að vísu, en þó ber að taka h'irtingu þeirra al- valega, sem fyrirboði annarra og sárari, sem ekki verður um- flúinn, ef haldið verður áfram, sem horfir. fyrir sér, hvemig á þvf stendur, að mannfólkið hefur hækkað stórkostlega að líkams vexti á tiltölulega mjög skömm- um tíma. Það er staðreynd hvar sem málið er rannsakað, að með alhæð manna er nú orðin 7—10 cm meiri en hún var fyrir hundr að árum. Sú skýring hefur verið gefin á þessu, að næring manna sér- staklega í hinum vestræna heimi sé miklu betri núna en áður. Það er mikið til í því, en þar með er þó ekki gefin öll skýring á þessu. Vafalaust er hér um að ræða aðrar breytingar, sem að ná niður í erfðaeiginleikana. Og þessi þróun heldur áfram. Næsta kynslóð verður ennþá einum til tveimur sentimetrum hærri en sú sem nú er uppi. Það er því ekki fjarri lagi, að það megi draga þá ályktun, að maður framtíðarinnar verði risi, um tveir metrar á hæð að meðal tali. Og þessi breyting virðist ætla að gerast á miklu skemmri tíma, en menn annars hefðu ætl. að. jjnnur breyting er þó hún sé ekki eins greinileg, að með- alstærð höfuðs og heilabús fer stækkandi. Engar fullnægjandi skýringar er að finna á þessu, en þar hefur það líka verið til nefnt að næringin sé betri en áður. Ef svona heldur áfram má vænta þess að framtíðarmað urinn hafi miklu hærra enni en áður og þó gáfur fari ekki alltaf Maður næstu aldamóta, 2 m. hár og sköllóttur. eftir stærð heilabúsins, ætti þetta þó heldur að miða f þá átt. Annað sem menn þykjast hafa tekið eftir ,er að skalli hefur farið stórlega f vöxt á seinustu áratugum. Það er sama með það og önnur einkenni að örðugt er að útskýra það, hvort slíkar breytingar verða vegna umhverf isins eða vegna breyttra erfða- einkenna. Breyttir þjóðfélags- hættir valda auðvitað miklu um, því að aldrei hefur orðið þvílík bylting á þjóðfélaginu eins og síðasta mannsaldurinn. En sé einhvér slík breyting mjög greinileg, þá hneigjast vfsinda- menn að því að álykta, a ðein- hverjar forsendur fyrir breyting Framh. á bls. 6 Kári skrifar: jVú fer að líða að þvf, að merkjasöludagarnir byrja og friðurinn á sunnudagsmorgn- um er úti. Merkjasölur eru á svo t'il hverjum einasta sunnu- degi vor og haust og sama er að segja um marga hátíðisdaga. 36 merkjasöludagar á ári. Mér datt f hug að hringja í Ólaf Björnsson fulltrúa í Dóms- málaráðuneytinu, sem hefur að gera með leyfisveitingar fyrir merkiasöludögum og happdrætt um. Ólafur gaf mér þær upplýs- ingar, að nú væru á ári hverju 36 merkjasöludagar, sem hin ýmsu líknarfélög og góðgerða- stofnanir hafa fengið úthlutað. Flest þessara félaga hafa haft sama merkjasöludaginn sfðan 1946, en á undanförnum árum hafa nokkur ný félög bætzt f hópinn, svo að dögunum fjölg- ar alltaf smátt og smátt, enda er svo komið að merkjasala er hvern einasta sunnudag í Rvík stærstu kaupstöðum og kaup- túnum landsins vor og haust. Hringingar á sunnudagsmorgnum Þeim fjölgar stöðugt sem eru á þeirri skoðun, að þessi merkjasala hér á íslandi sé að verða hreinasta plága. Þennan eina dag vikunnar, sem fólk má almennt sofa út og hvíla sig. er það ónáðað, og stundum margsinn'is. Ekki er heldur hægt að komast um götur og torg án þess að vera beðinn um að kaupa merki. Margir kjósa því að kaupa merki eingöngu til þess að fá að vera f friði — en ekki til þess að styrkja viðkom- andi félagsskap. Verð merkj- anna hefur einnig hækkað mik- ið á undanförnum árum. en ef maður gerir ráð fyrir að maður kaupi eitt merki á t.d. 15 kr. hvem einasta merkjasöludag ársins hverfa 540 kr. úr budd- unni. Úrelt fjáröflunar- starfsemi. í mörgum löndum hafa merkjasölur verið bannaðar og í sumum löndum hafa nokkur félög fengið leyfi til þess að hafa almennan samskotadag einu sinni á ári, en húsgangur, eins og tíðkast hér er bannaður. Á þessum samskotadögum geta menn greitt eins mikið eða lít- ið og þeim sýnist, en þess í stað fá þeir merki. Án efa eru merkjasöludagarnir orðnir allt of margir hér á landi og merkjasala orðin að einhverju leyti úrelt fjáröflunarle’ið. Það er sjálfsagt að leyfa fólki að styrkja þau félög og góðgerða- stofnanir sem það hefur áhuga á, en það á banna þennan hvim leiða húsgang. Mörg eða flest öll þessara félaga og stofnana efna til happdrættis öðru hvoru og sum hver árlega. Þannig hafa þau tvær fjáröflun arherferðir á ári. Væri t.d. ekki ráð að leyfa þessum félögum að eins eina fjáröflunarherferð á ári, annað hvort merkjasöludag eða happdrætti. Þannig myndi merkjasöludögunum fækka og svo hitt að það mynd margir fagna þvl ef þess'i ágætu félög og stofnanir myndu hætta þess- um hvimleiða húsgangi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.