Vísir - 21.05.1965, Qupperneq 5
▼tSIfi . Föstudagur 21. maí 1965.
5
útlönd í nor^un úbl'önd í morgun utlönd 1 morgim • utlond í morgun
Sólarhrings vopnahlé / Dominiku
til þess ai siuna særðum
Satnkomulag náðist í nótt um
sólarhrings vopnahlé í Dóminiku
til þess að Rauði krossinn gæti
flutt burt særða menn. Áður hafði
verið gert samkomulag um 12 klst.
vopnahlé, og hafði verið óskað
eft'r f'-'.mlengingu þess. Caamano
ofu - 1 'éllst á að framlengja það,
en i ’ -t Bereira hafði engu svar-
að e irninn var útrunninn 1 gær-
kvöld:, en í morgun birti brezka
útvarpið frétt um áðurgreint sam-
komulag.
Tveir ráðherrar úr stjóm upp-
reistarmanna (Caamano-manna)
féllu í gær í götubardaga nálægt
þinghúsinu. Caamano kennir banda
rískum hermönnum um, en Adlai
Stevenson sagði á ráðsfundi í gær-
kvöidi, að er mennirnir féllu hafi
bandarísku hermennirnir verið bún-
ir að grípa til vopna, vegna þess
að uppreistarmenn höfðu hafið
skothríð á þá.
Federemkov fulltrúi Rússa itrek-
aði fyrri kröfu sína um atkvæða-
greiðslu þegar um tillögu sovét-
stjómarinnar, að Bandaríkin kalli
heim her sinn.
Bandah'kjastjórn neitar algerlega,
ÁUGLÝSING
um dráttarvexti
Með hinni almennu vaxtabreytingu, sem
tók gildi við innlánsstofnanir um s.l. áramót,
var ákveðin sú regla, að' heimilt væri að taka
1% dráttarvexti á mánuði eða fyrir brot úr
mánuði af öllum lánum nema víxlum. Var þá
tekið fram í tilkynningu Seðlabankans, dags.
30. desember s.l., að leitað yrði nauðsynlegr-
ar lagaheimildar þannig, að sömu reglu mætti
taka upp um víxla.
Hin 10. þ. m. voru afgreidd frá Alþingi lög
um breytingar á lögum um víxla og tékka,
sem voru staðfest í dag. Fela þau í sér að
Seðlabankanum er falið að ákveða dráttar-
vexti af þessum skuldaskjölum.
í framhaldi þessa, með tilvísun til 13. gr.
laga nr. 10/1961, sbr. nefndar breytingar á
víxla- og tékkalögum, hefur bankastjórnin
ákveðið, að höfðu samráði við bankaráðið,
að dráttarvextir (vanskilavextir) af víxlum
og tékkum við innlánsstofnanir skuli vera
1% á mánuði eða fyrir brot úr mánuði, en
þóknun, sem nam Vz% fjárhæðar víxils eða
tékka, fellur niður. Með mánuði er átt við
hvert 30 daga tímabil. Gildir vaxtabreytingin
frá og með í dag.
Á það skal bent, að í lánsviðskiptum utan
innlánsstofnana, er heimilt að áskilja þá
vexti, sem Seðlabankinn leyfir innlánsstofn-
unum að taka hæsta.
18. maí 1965
SEÐLABANKI ÍSLANDS
að lið Bandaríkjanna styðji lið
Bereira gegn uppreistarmönnum.
Bereira segir lið sitt vera að
„hreinsa til“ í norðurhverfum
borgarinnar eftir að sigrazt hafði
verið á uppreistarmönnum þar.
í fyrrad. var deilt í ráðinu. Steven
son sagði, að bandaríska liðið
hefði ekkert umboð til þess að
stöðva átökin. — Bandaríkin hefðu
í upphafi skuldbundið sig til þess
að styðja hvorugan aðila, hlutverk
liðsins væri að vernda líf og eignir
Bandaríkjamanna og það hefði
tekið að sér vernd nokkurra sendi-
ráða, sem um það hefðu beðið.
Mönnuðu Gemini-geimfuri
skotið ú loft 3. júní
í NTB-frétt frá Washington seg-
ir, að Geminigeimfarinu banda-
ríska mönnuðu tveimur geimförum
verði skot'ið á loft 3. júní ef veður
skiiyrði verða hagstæð, annars svo
fljótt sem þau leyfa. Það er ráð-
gert, að það verði 4 daga á ferð
kringum jörðu.
Geimrannsóknastofnunin 1 Wash
ington NASA, vildi ekkert um það
segja í morgun, hvort geimfararnir
yrðu látnir gera tilraun til þess að
yfirgefa geimskipið, meðan bað er
á ferð sinni umhverfis jörðina.
Munu enn verða tilraunir með
geimklæðnað geimfaranna og loku-
útbúnað á geimfarinu, áður en á-
kvörðunin verður tekin um, hvort
þeir muni reyna að vinna sama,
svipað eða enn meira afrek en
Alexei Leonov, sovézki geimfarinn.
Geimfaramir eru James Mc
Dovitt 35 ára og Edward White að
stoðarmaður hans 34 ára.
Hinn ráðgerða geimferð þeirra
er hin næstlengsta, sem gerð hefir
verið.
Formaður Dansk-skánska fé-
lagsins, Erik Weggerup með
fánann.
Fúnamúl
ú Skúni
Blaðið Aktuelt i Kaupmanna-
höfn segir Málmey f Svíþjóð
fyrr hafa verið höfuðstöð ný-
nazista i Evrópu, en siðan einn
hinna sænsku, sjálfskipuðu
„foringja“, fluttist þaðan til
Stangness nyrðra, hafi þeir ekki
látið sjá sig opinberlega. En
þama sé stöðugt við lýði fasc-
istisk þjóðemishreyfing, sem
miðar að þvf að koma á sams
konar fyrirkomulagi og Musso-
lini, og neita leiðtogar hennar
harðlega að vera nazistar, en
svo er lika á Skáni félag sem
heitir DANSK-SKANSK FOR-
ENING, en Skánn var einu sinnl
danskt land. Félagið vill efla á-
hrif danskrar menningar á
Skáni og hefur sinn eigin fána,
sem það vill að verði fáni Skán-
ar, komgulur kross á rauðum
feldi.
í STUTTU
MÁLI
► Brezkur, heimskunnur efna-
hags- og félagsmálasérfræðing-
ur Sir Roy Harrod segir f nýút-
kominni bók hjá Mcmillanfor-
laginu, að Bretland verði ef til
vill að láta auka-innflutnings-
tollinn vera i gildi i 4 ár. Sir
Roy er háskólakennari í Oxford
og höfundur margra bóka um
efnáhags- og félagsmál og hann
hefir verið ráðunautur Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins, og Sir Winst
ons Churchills er hann var for-
sætisráðherra. „Það er hugsan-
legt, að skilningsríkir banka-
menn þjóðbanka reynist fús-
ir til jjess að fá okkur til
umráða einn milljarð punda á
næstu 4 árum, en ég efast um
það, og ef við höfum ekki pen-
ingana handbæra, verðum við
að halda f auka-innflutningstoll
inn, þótt óæskilegt sé. Maður
verður að óska þes, að brezka
stjómin — án tillits til hvaða
flokkur kann að fara með stjórn
sé nægilega vitiborin til að gera
þetta.
► Bandarískar flugvélar gerðu
sprengjuárásir f fyrrinótt á her-
flutningalestir 145 km. fyrir
sunnan Hanoi. Fjórir af 15 her
flutningabílum vora eyðilagðir.
Flugvélamar vom frá flugvéla
skipinu Coral Sea og komu allar
aftur.
► Ráð sem starfar i tengslum
við WHO (Heilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna) ætlar að
koma upp sinni eigin stofnun
til rannsókna á krabbameini.
► öryggisráðið hefir krafizt
þess að Portúgal hætti að
skerða hlutleysi Senegal með
flugferðum frá Portúgölsku
Guineu inn yfir landamæri Sene
gal og með skyndiferðum á landi
inn yfir landamærin.
► Það er nú opinberlega til-
kynnt f Pakistan, að 12.033
manns hafi farizt af völdum
hvirfilvindsins og flóðbylgjunn-
ar og 1334 saknað.
► Argentinustjóm hefir aftur
kallað tillögur sinar um að
senda Ilð til Santo Domlngo
vegna mikillar andspymn gegn
þvf heima fyrir.
► Bandaríkj amenn skutu ný-
lega á loft átta gervihnöttum I
einu, öllum með sömu eldflaug-
inni (Thor Agena) og fara nú
gervihnettir þessir kringum
jörðu i 902 — 940 km f jarlægð.
ALLT A AÐ SELJAST
Seljum næstu daga bólstruð stálhúsgögn. Eins og:
Eldhúsborð 120x70 eða 60x100 og 4 stólar (bak
sett (innbrennt) ............. kr. 2.300.00
Eldhúsborð 120x70 eða 60x100, fallegt mynstur — 895.00
Bakstólar ..................... — 375.00
Kollar, bólstraðir — aðeins.... — 100.00
ALLT VANDAÐAR OG GÓÐAR VÖRUR
Athugið, að við erum að hætta og gefum þetta einstaklega lága
verð, sem er allt að helmingi lægra en búðarverð. — Sendum heim.
Þér getið fengið vörumar heim með yður strax. — Ath., að þetta
stendur stuttan tíma.
Stúlhúsgagnabélstrun Álfabrekku v/Suðurlandsbraut