Vísir - 21.05.1965, Blaðsíða 11
VlSIR . Fimmtudagur 20. maí 1965.
KR VARÐ REYKJA VÆISTARI
Buldvin Baldvinsson skoraði bæði mörk-
in ó lánsskóm félaga síns
Baldvin Baldvinsson, hinn nýi miðherji KR-liðsins, vann Reykjavíkurbikarinn
handa liði sínu í gærkvöldi eftir glæsilega frammistöðu sína. Hann skoraði bæði
ronrk liðsins og var „hinn hættulegi“ maður, sem Valsvörnin gat ekki stöðvað.
Það er greinilegt að skarð er fyrir skildi í Framliðinu sem sér á bak svo góðum
liðsmanni. Nú er það bara spurningin hvort Baldvin hafi unnið sín afrek í seinni
hálfleik eftir að hann fékk lánaða góða knattspyrnuskó hjá einum varamanna
liðsins? í fyrri hálfleik lék hann á miklum hnöllum, sem hann hafði nýlega
keypt á hundrað krónur, gömlum skóm með uppbretta tá og uppháir upp á
gamla móðinn. í seinni háífleik var hann á fisléttum Adidas-skóm og fannst sem
hann væri berfættur miðað við gömlu þungu skóna. Hvað um það, — það var
Baldvin sem var sigurvegarinn í þessum leik, og einnig hann varð til þess að
KR fékk þennan úrslitaleik, því það var honum að þakka að KR vann Fram á
dögunum.
Reykjavíkurmeistarar KR i knattspyrnu.
Leikurinn í gær var hressilegur á
svipaðan máta og veðrið. Liðin
sýndu ágætan leik, ekki sízt KR,
sem var betri aðilinn og vann þarna
mjög sanngjarnan sigur.
Fyrri hálfleikurinn var fremur
jafn. Valsmenn voru í miklum víga-
móði og voru oft fljótari á bolt-
ann og ákveðnari. KR-ingarnir
voru þó öllu hættulegri í sóknum
sínum.
★ Á 43. mín. kom loks mark.
Valsmenn fengu aukaspyrnu fyrir
utan vitateig og skutu háum bolta
að marki. Heimir greip boltann en
missti hann yfir sig og og Reynir
Jónsson sem hafði sótt vel ýtti
boitanum inn í tómt markið.
★ Ekki liðu nema 4 mínútur af
seinni hálfleik áður en KR hafði
jafnað. Hár bolti kom að Vals-
markinu og markvörðurinn Sigurð-
ur Dagsson leyfði honum að hoppa
fyrir framan sig, en þar misreikn-
aði hann sig, því enda þótt nann
sé með gjörvilegri mönnum
fór boltinn hátt yfir uppréttar
hendur hans, yfir annan bakvörð-
inn og í ágætasta færi þar sem
KR-ingar fengu gott færi, en Bald-
vin Baldvinsson var sá sem ýtti
boltanum í netið og jafnaði.
★ Og ekki liðu nema nokkrar
mínútur, þar til KR hafði forystuna.
Það var Sigurþór sem lék laglega
upp að endamörkum og gaf þar
fyrir á Baldvin, sem hafði fylgt
§ökff{ntiF43yggneg^áI‘:^ftífcío|1yaT'JTiö
í' Sgætu' skötfærT þ'ég'ár' háiin fékk
sþhdih^u’ S ié'tfrþÖrs T3 oý<JS 4kórað i
með fallegu skoti af fremur stuttu
færi — 2:1.
KR-ingar léku nú mjög taktískt
og léku stífa varnartaktík á móti
sóknum Valsmanna, en áttu á milli
stórhættulegar sóknir, ekki sízt
þegar Sigurþór og Baldvin fengu
boltann til meðferðar og munaði
oft mjög litlu að KR-ingar bættu
við.
Hins vegar áttu Valsmenn líka
tækifæri á að jafna og stærst allra
var óvænt færi sem Ingvar fékk,
þegar Ellert missti skallabolta aft-
ur fyrir sig inn á markteig, en bolt-
inn þvældist fyrir Ingvari og hætt-
unni var bægt frá.
KR-liðið var sterkt I gær eins og
j oft þegar virkilega reynir á. Gildir
það um allar stöður, allt frá mark-
Magnús fékk góð orð fyrir
sinn fyrsta landsleik
Fyrir nokkru dæmdi Magnús
Pétursson sinn fyrsta landsleik,
leik Svia og Kýpurbúa í heims-
meistarakeppninni, og hafa
blaðaumsagnir borizt af leiknum
og er Magnúsi þar hælt mjög
fyrir góðan dóm. Segja blöðin
að þáttur íslenzkra dómara í
milliríkjaviðskiptunum sé enn
lítill, en mjög góður. Og annað
blað hælir mjög dómi Magnúsar
ekki sízt fyrir það hvað hann
falli vel inn í leikinn og láti
smámunasemina eiga sig.
í gærkvöldi rabbaði blaða-
maður Vísis lítillega við Magnús
um ferðalag hans:
„Það var sérlega vel tekið á
móti mér af Svíunum og allt
fyrir mig gert og mér mikill
sómi sýndur. Ég kom til Stokk-
hólms tveim dögum fyrir leikinn
og var komið fyrir' á lúxus-
hóteli og stjanað við mig eins
og þjóðhöfðingja“.
— Varstu ekki kvíðinn fyrir
leikinn?
„Jú, ég get ekki neitað því.
En strax eftir nokkrar mínútur
var það búið. Ég gleymdi mér
alveg og hugsaði eingöngu um
leikinn. Þarna voru 20 þúsund
áhorfendur samankomnir á
stærsta leikvangi Norrköbing,
en í þeirri borg búa liðlega 100
þús. manns og var völlurinn al-
veg þétt setinn og raunar upp-
selt“.
— Og hvernig fannst þér að
dæma þinn fyrsta landsleik?
„Hann vsr erfiður. En ég get
þakkað því að ég slapp vel að
ég hefi æft a.m.k. annan hvern
dag í meira en tvo og hálfan
mánuð og var í góðri æfingu
og gat fylgzt vel með. Það tel
ég algjöra nauðsyn fyrir dóm-
ara, sem vill ná langt í starfi
sínu. Annars gekk allt vel, utan
einu sinni í leiknum. Það var i
seinni hálfleik að Svíar fengu
aukaspyrnu á Kýpurbúana rétt
fyrir utan vítateiginn. Spyrnan
var óbein og mátti þvi ekki
skóra úr henni beint. Svíinn
skaut hins vegar og markvörð-
urinn hjá Kýpurbúum gerði þá
'’ skyssu áð kasta sér eftlr boltan-;
um og snerti hann áður en hann J
fór- inn. Ég dæmdi mark, en-
þ^ð vildu Kýpurbúar ekki fallast
á fyrr en ég Kafði útskýrt fyrir
þe!fh<'að úm'leið og markvörð-
urinn hafði komið við boltann
var boltinn aftur í leik. Eftir
leikinn var haldið hóf fyrir Ieik-
menn og starfsmenn við leikinn,
mjög glæsileg veizla. Kýpur-
búarnir þökkuðu mér alveg sér-
staklega og mér fannst það mikil
uppörvun að fá hól frá þeim.
Þarna hitti ég líka Gunnar
Nordahl, frægan atvinnumann
Svía. Hann var þarna að skrlfa
fyrir eitt dagblaðið og fannst
lítið til sinna manna koma.
Hann spurði alveg sérstaklega
eftir Albert Guðmundssyni, en
þeir voru og eru góðir vinir
ao léku saman á ftalíu“.
Baldvinsson skoraði bæði
mörk KR.
verði til vinstri útherja, en vissu-
lega má gera endurbætur á liðinu.
Hvers vegna er Sveinn Jónsson t.
d. ekki enn í liðinú sém framvörður
og Ellert Schram í innherjastöðu?
Og hvar er Guðmundur Haraldsson,
mjög efnilegur og lipur leikmaður?
Valsliðið féll hins vegar saman
við mótspyrnu KR:ingá' ög var ekki
eins gþtt og í fy/ri leikjum móts-
ins, en átti þó dágodá' spretti og
spái ég því að þeir eigi eftir að
koma vel út á íslandsmótinu, sem
mun allra náðarsamlegast eiga að
fá að byrja á sunnudaginn kemur
með leikjum á Akureyri og Kefla-
vík.
Dómari í gær var Magnús V.
Pétursson og dæmdi mjög vel.
Einnig var það honum góður styrk-
ur að hafa línuverði þar sem voru
góðir dómarar, Hannes Þ. Sigurðs-
son og Baldur Þórðarson. — jbp.
Lokastaðan
á Reykjavíkur-
mótinu
Úrslitin og markhæstu menn
i Reykjavíkurmótinu 1965:
KR 5 4 1 0 9 12:3
Valur 5 3 1 1 7 15:3
Fram 4 1 1 2 3 6:7
Þróttur 4 0 2 2 2 5:12
Vikingur 4 0 1 3 1 2:15
VáíIIBlI f Mörk:
—Haukur Þorvaldsson, Þrótti 4
Ingvar Elíssón, Val 4
Baldvin Baldvinsson, KR 3
Hallgrímur Scheving, Fram 3
Gunnar Felixson, KR 3
Reynir Jónsson, Val 3
Fundur hjá
knattspyrnu-
dómurum
i Fundur verður í Knattspyrnu-
dómarafélagi Reykjavikur á þriðju-
dagskvöldið kl. 20.30 á Hótel
Skjaldbreið. Eru félagar beðnir um
að fjölmenna á fundinn og mæta
i stundvíslega.