Vísir - 14.06.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 14.06.1965, Blaðsíða 16
w= . ■■ ■ > <'NCr**q&%£S ÍÍÍÍ Mánudagur 14. júní 1965 Bonaslys við höfnina Banaslys varð við Reykjavíkur- höfn nokkru fyrir hádegi á laug- ardaginn. Slysið varð í togaranum Agli Skallagrímssjmi og vildi til með þeim hætti að maður Sigurður Jónsson til heimilis að Ásgarði 41, var á leið úr landi og um borð í togarann. Sigurður var kominn neðarlega í stigann þegar honum varð fótaskortur og féll úr stigan- um. Hann lenti með höfuðið á lestarborði og hlaut við það mik- inn áverka á höfuðið. Sigurður var þegar í stað fluttur í slysavarðstofuna, en var látinn þegar þangað kom. Seint síðastliðinn föstudag kom seglskipið Stormsvalan til Reykjavíkur. Það hafði verið rétta 9 sólarhringa á leiðinni frá eyjunni Bute í Ciyde-firði. Skipið kom við í Stomaway og í Færeyjum. Fimm menn sigldu seglskipinu heim og hittu tíð- indamenn einn þeirra, skipstjór ann Hörð Jóhannesson um borð í Stormsvölunni í gær þar sem hún lá við festar í Fossvog inum. Hörður sagði að mesta vanda mál heimferðarinnar hefði ver ið lognið, en þar eð þeir hefuð ekki haft tíma til þess að bíða eftir vindi notuðu þeir hjálp- arvélina á leiðinni frá Stoma- way til Færeyja. Með hjálpai vélinni gengur skútan tæpar 6 mílur á klukkustund. Frá Fær- eyjum notuðu þéir aftur á móti einungis segl og varð vindurinn Framh. á bls. 6. Stormsvalan var 9 sólarhringa fró SkotBandi Stormsvalan í Fossvogi i gær. Myndin til vinstri er tekin í setustofunni. Til vinstri Guðjón Ólafsson með börnin Gunnar og Ágústu, til hægri Gunnar Sveinbjörnsson. Á myndinni til hægri em Gunnar Svein- björnsson^ Hörður Jóhannesson skipstjóri á leiðinni heim og Ingimar Sveinbjörnsson formaður félagsins. I FRIÐRIK MEIST- ARI HÉLT VELLI Friðrik Ólafsson hinn gamli og góði stórmeistari okkar í skák stóðst nú atlögu þá sem yngri maður gerir gegn honum. Það var hinn nýi Islandsmeist- ari í skák, ungur piltur að nafni Guðmundur Sigurjónsson, sem tók ásamt Friðrik þátt í júní- skákmótinu. Þeir voru báðir sig ursælir og allt fram í síðustu umferð voru þeir jafnir og hæst- ir. Svo mættust þeir í síðustu umferðinni og þótti það tals- verður og spennandi atburður að þeir mættust. En Friðrik vann keppinaut sinn auðveld- lega. Guðmundi urðu á alvarleg mistök snemma í taflinu, sem Friðrik var ekki lengi að hag- nýta sér og náði mátsókn. Gaf Guðmundur taflið eftir aðeins 22 leiki, þegar mát var óhjá- kvæmilegt. Friðrik hafði út úr mótinu 4]/2VÍnning, Guðmundur 3y2, Freysteinn Þorbergs 2%. Jón Hálfdáns og Björn Þorsteins 2 og Haukur Angantýsson V2 vinning. þegar slösuðust Stolið af sof- andi mönaum Aðfaranótt s.l. sunnudags varð umferðarslys í Kjós. Skemmtisamkoma hafði verið í Börn kveiktu í Dvergi I gær kviknaði í timburverk- smiðjunni Dvergi í Hafnarfirði. Kom eldurinn upp í spónageymslu sem var í gömlu húsi verksmiðj- unnar um 3-leytið síðdegis. Lagði töluverðan reyk af því. Það má þakka slökkviliðinu hve fljótt það brá við, að eldurinn var skjótlega stöðvaður. Þetta er gamalt stein- hús en allt úr timbri innan í þvi. Mestöll starfsemi verksmiðjunnar hefur verið flutt úr því í nýrra hús, en þar geymt töluvert af efni allt bráðeldfimt og skammt frá því miklar timburbirgðir. Slökkviliðinu tókst að hindra að eldurinn breidd ist út víðar nema hann komst rétt upp í gegnum loftið fyrir ofan en var þar stöðvaður. Á loftinu fyrir ofan voru geymd húsgögn og urðu skemmdir á þeim. Talið er að um íkveikju sé að ræða, bern hafi verið að leflc og valdið brennunni. samkomuhúsi sveitarinnar, Félags- garði hjá Laxá á laugardagskvöldið. Klukkan um 2 eftir miðnætti fór bíll þaðan, áleiðis suður með fjór- um farþegum, auk bílstjóra. Þegar bifreiðin var komin á að gizka 1 km frá félagsheimilinu lenti hún í lausamöl í beygju á veginum. Við það missti ökumaðurinn stjórn á henni með þeim afleiðingum að bifreiðin valt og fór a.m.k. tvær veltur, að því er ökumaður sjálfur taldi. Tvær stúlkur, sem £ bifreiðinni voru, slösuðust og önnur það mik- ið að flytja varð hana í sjúkrahús að lokinni athugun í slysavarð- stofunni. Hin stúlkan hlaut skurð á höfuðið, en þó ekki meir en svo að henni var leyft að fara heim til sín eftir að búið var að gera að meiðslum hennar. Bifreiðin, sem var af Moskvits- gerð, var talin ónýt, eða því sem Vísitalan óbreytt Kauplagsnefnd hefur reiknað út vísitölu framfærslukostn. í byrjun júní. Reyndist hún vera 171 stig og hafði ekki hækkað frá því í byrjun maí. næst, eftir óhappið. Ökumaðurinn var allsgáður og hann taldi sig ekki hafa verið nema á 65 km. hraða þegar bifreiðin valt. Stúlkan, sem slasaðist meir, heitir Björgvina Magnúsdóttir til heimilis að Efstasuncji 51, en hin heitir Guðríður Jóhannesdóttir, Bólstaðarhlíð 26. í gær ^varð umferðarslys í Reykjavík. Tvær bifreiðir lentu í hörkuárekstri eftir hádegið á gatna mótum Lönguhlíðar og Drápuhlíð- ar. Kona, sem var farþegi í annarri bifreiðinni, kastaðist fram yfir sig og skarst í andliti. Hún var flutt í slysavarðstofuna. Á föstudaginn tók lögreglan tvo drengi, sem höfðu stolið peningum af sofandi, drukknum manni. Rétt áður hafði þessi maður gefið drengjunum tvö hundruð krónur úr veski sínu. En dreng- imir siðan fylgt honum eftir unz maðurinn lagðist fyrir og sofnaði. Þá laumuðust þeir eftir veskinu úr vasa hans, hirtu úr því 400 krónur og skiptu á milli sín. En rétt í þeim svifum sem dreng irnir voru að skipta peningunum á milli sín, var komið að þeim og þeir teknir. Af öðrum sofandi manni var peningum og ávísanahefti stolið í fyrrinótt. Sá sem fyrir þessu varð kom í lögreglustöðina í gær og kærði þjófnaðinn. Skýrði hann frá að í fyrrinótt hefði hann hitt ókunnugan mann og tóku þeir tal saman. Þar kom að maðurinn bauð Framh. á bls. 6. Kauptaxtar ekki auglýstir enn austanlands Verklýðsfélögin á Austfjörð- um sem að Egilstaðafundinum stóðu hafa ekki auglýst kaup- taxta, eftir þeim fregnum sem blaðið aflaði sér £ morgun. Á laugardaginn var haldinn fund ur £ verlfamannafélaginu á Seyð isfirði. Var þar samþykkt að fela stjórn félagsins að vinna að þvf að fá kröfur þær sem sett ar voru fram á Egilsstaðafundin um viðurkenndar £ samráði við önnur félög á Austfjörðum, en ekki var ákVeðið að auglýsa taxtann. Má þvi segja að málið sé enn á umræðustigi hjá þeim verklýðsfélögum austanlands, sem ekki rituðu undir hvita- sunnusamkomulagið. Trúnaðarmannaráð verklýðs- félagsins á Vopnafirði mun hafa ákveðið að auglýsa kaup- taxta með 44 stunda vinnu- viku og 8% grunnkaupshækk- un, en sú ákvörðun hefur ekki enn komið til framkvæmda eft- ir þvi sem bezt var vitað f mórgun. Af öðrum samningagerðum er það að segja að ekki hefur verið boðaður sáttafundur i deilu Dagsbrúnar og Hlifar. Eng inn fundur hefur heldur verið boðaður i vinnudeilu þerna og þjóna á kaupskipum, en verk- fall hefur staðið á skipunum í Framh. á bls. 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.