Vísir - 16.06.1965, Qupperneq 1
-----1
. ,
■Mvm
|i!?l
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
hélt aukafund f gær vegna mik-
ils vandræðaástands sem verk-
fall þema, matsveina og þjóna
hefur valdið í Eyjum. Hefur
það haft það í för með sér að
Herjólfur hefur stöðvazt, en
skipið hefiflr flutt vatn og mjólk
út í Eyjar að undanförnu. Mikl
ir þurrkar hafa verið í Eyjum
að undanförnu og vatnsleysi, ef
ekki hefðu flutningar skipsins
komið til. Mjólk er einungis nú
til í Eyjum fyrir sjúkrahúsið
og þurrmjólkurbirgðir til þurrð
ar gengnar. Hefur Herjólfur að
undanförnu flutt 400 tonn af
vatni frá Reykjavik. Sjá Vest-
mannaeyingar fram á mikla
erfiðleika f þessu efni og ræddi
btejarstjómin um það til
hverra ráða skyldi grípa sökum
verkfallsstöðvunar skipsins.
Reynt hefur verið að fá und-
anþágu hjá félögum þerna, mat
sveina og þjóna, svo skipið
mætti halda hinum lífsnauðsyn
legu flutningum áfram, en
þeirri beiðni hefur verið synj-
að. Munu samtökin þó láta á-
tölulaust þótt vatn og mjólk
verði flutt með öðrum skipum.
Verkfallið stöðvar
vatnsfíutningana
í dag mun þó umsókn bæjar
stjórnarinnar um undanþágu
fyrir fhttninga skipsins verða
aftur tekin til umræðu af fé-
lögum verkfallsmanna
FRAMKVÆMDIR VID
VERKSMIÐJUNA AD HEFJAST
Framkvæmdir við kisilgúr-
verksmiðjuna við Mývatn eru
f þann mund að hefjast. Dælu-
prammi, sem á að vera á vatn-
inu og á að dæla leðjunni upp
á yfirborðið, kemur til lands-
ins seinni hluta- júnímánaðar
og verður fljótlega fluttur á
vatnið. í sumar verður unnið
við að koma upp leiðslum úr
prammanum í land og frá dælu
stöð sem verður staðsett í landi
og að verksmiðjustæðinu. Fyrri
leiðslan verður 500 metra löng,
en sú seinni um 3 km. Fram-
kvæmdir við dælustöðina eru
að hefjast, en hún á að rísa við
Helgavog sem er skammt frá
Reykjahlíð. Verið er að semja
við bandariska fyrirtækið John
Manville um sölu og dreifingu
á kfsilgúrnum, samkvæmt þvf
sem Halldór Jónatansson deild-
arstjóri f Viðskiptamálaráðu-
neytinu tjáði blaðinu i gær.
Þrír jarðfræðingar frá fyrir-
tækinu John Manville eru
staddir norður við Mývatn til
þess að kynna sér gæði kls'il-
gúrsins, en þetta fyrirtæki, sem
er stærsta sinnar tegundar í
heiminum fer aldrei út í neitt
án þess að sérfræðingar þess
hafi athugað allar aðstæður. Af
hálfu Islands hafa þeir Tómas
Tryggvason og Baldur Líndal
athugað botnleirinn f Mývatni.
Ráðgert er að næsta sumar
verði verksmiðjan sjálf reist,
en í haust mun verða byrjað að
dæla upp hráefnunum upp að
verksmiðjustæðinu. Árið 1967
mun verksm'iðjan hefja starf-
semina og verða ársafköst
hennar 12000 tonn í fyrstu. All
ar dýrari vélar verða keyptar
með tilliti til þess, að auka
megi afköst verksmiðjunnar
um helming.
Ekki er hægt að segja um
það á þessu stigi málsins hverju
útflutningsverðmæti kfsilgúrs-
ins muni nema á ári, það fer
eftir samkomulag’i við kaupend
ur og mun verðlag vera nokk-
uð mismunandi eftir því hvert
selt er og til hvers kísilgúrinn
er notaður. Framleiddur er
Framh. á bls. 6.
55. árg. — Miðvikudagur 16. júní 1965. 134. tbl.
%AAAAAAA/WWWWVW\AAAAAA/WVW'WWNAAAAA/N«
Bros og hvítir kollar
í gær var Menntaskóla Reykja-
víkur og Lærdómsdeild Verzl-
unarskólans slitið. Menntaskóla
Reykjavíkur var slitið í 119.
skipti en Verzlunarskólanum í
20. skipti. Nú bar svo skemmti
lega til að það voru stúlkur,
sem fengu tvær hæstu einkunn
inar í báðum skólunum, en nú
er einmitt 50 ára afmæli kjör-
gengis kvenna, svo segja má,
að stúlkur þessar séu verðugir
fulltrúar kvenþjóðarinnar.
Stúdentar munu setja mikinn
svip á bæjarlffið næstu daga og
ekki sízt stúdínunar. Vfsir birt-
ir því mynd af nokkrum stúd-
ínum, sem var tekin í Hljóm-
skálagarðinum í gær. Þær eru
taldar frá vinstri: Edda Edmund
sen, Sigrún Vilbergsdóttir,
Birna Þórisdóttir og Erla Jóns-
dóttir. Á myndsjársíðu blaðsins
er nánar sagt frá skólaslitunum.
Finun á fíoti / Reykjavíkurhöfn
Tveir nærri drukknnðir og só þriðji nð þrotum kominn
Tveir menn lentu i
Reykjavíkurhöfn annar f gær-
morgun og hinn í nótt. Báðum
var bjargað lifandi upp úr höfn-
inni, en illa komnum. Var ann-
ar meðvitundarlaus orðinn, en
hínn var fluttur í sjúkrahús.
Um frekari afdrif þeirra veit
blaðið ekki.
Á áttunda tímanum í gær-
morgun virðist æði hafa gripið
skipverja nokkurn af einu Mur-
manskskipinu, sem liggur um
þessar mundir í Reykjavíkur-
höfn. I þessu æðiskasti skar
hann á :lagæðarnar á báðum
úlnliðum og kastaði sér að
því búnu í sjóinn. Lögreglunni
var gert aðvart um þetta, en áð-
ur en hún kom á vettvang hafði
skipsfélögum hans tekizt að ná
honum og koma á þurrt. Mað-
urinn var fluttur í slysavarð-
stofuna og þaðan í Landakots-
spítala.
H:.l óhappið varð á 3ja tím-
anum eftir miðnætti í nótt við
Grandagarð. Átján ára gamall
sjómaður, skipverji á bát cem
lá í höfninni, var á leið úr landi
og út í bátinn. Hann var ölv-
aður, enda fór illa fyrir honum
því honum varð fótaskortur, og
stevptist hann fram af hafnar-
garðinum og beint í sjóinn.
Nærstaddur maður, Þorleifur
Hjalti Þorleifsson, vélstjóri á
v.b. Húna frá Skagaströnd sá
til ferða piltsins og varpaði sér
í sjóinn á eftir honum. Náði
hann taki á hinum drukknandi
pilti en sjálfur hékk hann í
björgunarhring unz honum barst
hjálp. Mátti hún þó ekki berast
öllu seinna því Þorleifur Hjalti
var að þrotum kominn þegar
tveir lögreglumenn komu til
hjálpar og steyptu sér einnig í
sjóinn til að bjarga báðum
mönnunum.
Lögreglan rómar hugdirfsku
og snarræði Þórarins Hjalta,
sem var alveg ósyndur. —
Hann fór samt f sjóinn til að
freista þess að bjarga drukkn-
andi manni — og tókst það.
Segja lögreglumennirnir að á
þvf leiki enginn vafi, að hefði
hans ekki notið við og hann
ekki brugðizt jafn skjótt við og
hann gerði, hefði pilturinn
drukknað.
Þegar piltinum var bjarg-
að á land var hann meðvitundar-
laus orðinn og hafði þá drukkið
mikinn sjó. Voru strax gerðar á
honum lífgunartilraunir með
súrefnisgrímu og tókst að ganga
úr skugga um það að lífsmark
var með honum áður en hann
var fluttur í slysavarðstofuna í
nótt.
ingir
samninga-
fundir
Engir samningafundir hafa verið
boðaðir f deilu Dagsbrúnai og Hlff
ar f dag með sáttasemjara og engir
samningafundir voru haldnir með
þessum félögum í gær. Þá hafa
heldur engir fundir verið boðaðir f
vinnudeilu þerna og þjóna á far-
skipum.
í gærmorgun bárust skipafélöp
unum kröfur sjómanna um nýja
kjarasamninga, en viðræður hafa
farið fram að undanförnu milli
vinnuveitenda og fulltrúa Sjú
mannafélags Reykjavíkur. Eru
kröfurnar nú f athugun hjá vinnu-
veitendum.
Enn hafa ekkl kauptaxtar verið
auglýstir á Austfjörðum, þótt nokk
ur félög hafi samþykkt að auglýsa
taxtann. Situr þvf allt við það sama
þar og er beðið átekta.