Vísir


Vísir - 16.06.1965, Qupperneq 3

Vísir - 16.06.1965, Qupperneq 3
VI§IR . Miðvikudagur !G. júní 1965. Nýstúdentar frá M. R. í Hljómskálagarðinum. Skólauppsögn Menntaskóla Reykjavíkur í gær var Menntaskóla Reykjavíkur slitið í 119. skipti, en menntaskóli hefur verið starfandi hér £ Reykjavík síðan 1846. Athöfnin fór fram í Há- skólabíó og sleit rektor mennta- skólans, Kristinn Ármannsson, skólanum nú í niunda skipti. Hann hefur verið rektor f hálft níunda ár, en lætur nú af störf- um fyrir aldurs sakir. Rektor gat þess í upphafi ræðu sinnar að vegna óviðráð- anlegra ástæðna færi fram útför Alexanders Jóhannessonar fyrr- verandi háskólarektors á sama tíma og skólaslitin og bað hann menn risa úr sætum og minnast hans. Næst minntist rektor lítils- háttar á byggingarmál skólans og sagði að s.l. haust hefði náðst merkur áfangi í byggingamál- unum, þegar nýbyggingu fyrir ofan gamla skólann hefði verið lokið. Með þeiiri byggingu væri framtíð menntaskólans tryggð á sama stað framvegis. Gamli skólinn hafi upphaflega verið reistur fyrir 100 nemendur, en nú í vetur hafi nemendafjöldinn verið kominn upp í 930. Lengi hafi verið deilt um hvað gera ætti í byggingamálum. Nefnd, sem hafi verið skipuð af mennta málaráðherra 1960 hafi lagt til að þegar yrði ráðizt í það, að reisa nýtt skólahús í svoköll- uðu olíuporti fyrir ofan Mennta skólann sjálfan, en jafnframt hafi hún lagt til að þegar næsta ár yrði hafizt handa um að reisa nýjan menntaskóla á öðrum stað i borginni. Ekkert hefði þó orðið úr framkvæmdum við það af skipulagsástæðum. Kristinn ^agði að samkvæmt reynslu annarra þjóða væri þörf á þrem- ur menntaskólum í Reykjavík, eða um þáð bil einum mennta- skóla á hverja 25000 íbúa. Ekki gengu eins margir undir stúdentspróf nú eins og í fyrra. Nú gengu 166 nemendur undir stúdentspróf og luku 164 stúd- entsprófi, einn varð veikur og einn stóðst ekki. 1 fyrra luku 211 prófi. Einkunninar á stúdentsprófinu skiptust þannig nú: 5 hlutu á- gætiseinkunn, 70 1. einkunn, 86 2. einkunn og 3 3. einkunn. Tvær hæstu einkunnirnar féllu í , hlut tveggja stúdína, Borghildar Einarsdóttur, fékk 9,41 og Sig- rúnar Helgadóttur, fékk 9,32. Á öðrum stað í blaðinu er við- tal við þær og mynd. Framh. á bls. 6. 24 NÝSTÚDENTAR FRÁ VERZLUNARSKÓLANUM Lærdómsdeild Verzlunarskóla íslands var slitið í gær við há- tiðlega athöfn. Að þessu sinni voru brautskrá'ðir 24 stúdentar en með þeim hópi er fjöldi brautskráðra stúdenta orðinn 392 þar af 287 piltar og 105 stúlkur. Hæstu einkunnir hlutu: Arn dis Björnsdóttir I. ágætiseink- unn 7.57 Gunnhildur S. Jóns- dóttir 7.38 og Gunnar Björns son 7.26. Hlutu þau öll bóka- verðlaun. Auk þess hlaut Arn- dís Björnsdóttir silfurbikar i verðlaun fyrir beztan árangur á stúdentsprófi 1965 sem stú dentaárgangur 1954 gaf en bik- arinn var fyrst veittur i fyrra. Ennfremur gaf skólinn Arndísi bókaverðlaun en hún er hundr aðasti kvenstúdentinn, sem brautskráist úr Verzlunarskólan um. Elín Jónsdóttir, nemandi 5. bekkjar hlaut bókaverðlaun en á vorprófi hlaut hún I. ágætis einkunn, sem er fátítt á prófi úr 5. bekk. Að lokinni afhendingu próf skírteina og verðlauna flutti skólastjóri dr. Jón Gíslason ræðu og árnaði nýstúdentum allra heilla. Viðstaddir athöfn- ina voru 20 ára stúdentar, en sá árgangur var fyrstur til þess að brauskrást með stúdents- próf. Tók fulltrúi þeirra Val- garð Briem til máls og færði skólanum að gjöf málverk af Vil hjálmi Þ. Gíslasyni fyrrverandi færtði skólanum að gjöf styttu skólastjóra, sem Sigurður Sig- af Þorláki Johnson, sem Rík- urðsson listmálari gerði. Fyrir - harður Jónsson myndhöggvari _ ____^_ _____ hönd 10 ára stúdenta tók Árni gerði. Fluttar yoru Þakkir fyr lKristinn Armannsson rektor veitir Borghildi Elnarsdóttur ein" af stiiirrs Lf^ o/v,asr»sSz»«-”«»■«»«»«^ kv.stj. tók næstur til máls og sungu Verzlunarskólasönginn.------------------------ Nýstúdentarnir 24 frá V.í. hafa sett upp kollana og tekið á móti stúdentsprófsskírteinum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.