Vísir - 16.06.1965, Síða 11
VISIR . Miðvikudagur 16. júní 1965.
11
PYLSUSALA EÐA
UPPB YGGINC
ÍÞRÓTTA ?
Þrír hlauparar náðu sínum lang-
beztu tímum í 800 metra hlaupi,
sem fram fór í fyrrakvöld á Laug-
ardalsvellinum, en 3000 áhorfendur
hvöttu hlauparana óspart til dáða.
Hinir ungu hlauparar voru ánœ^ jir
en þreyttir að loknu hlaupi. Þeir
sögðu það mikinn mun að hlaupa
frammi fyrir áhorfendum, það er
mjög hvetjandi. Hlaupið fór fram
í hléi á leik Akraness og KR.
Það er sagt að það ha?i kostað
talsvert þras og fyrirhöfn að fá
framgengt þessu hlaupi sex okkar
beztu 800 metra hlaupara f leikhléi
knattspyrnukappleiks. En nú er
ísinn vonandi brotinn og þegar
FH náði að-
© ••
eins
við Víking
... .Tti-
FH og Víkingur léku í gærkvöld
í 2. deild á vellinum á Hvaleyrar-
holti í Hafnarfirði. Leiknum lauk
án þess að liðin fengju skorað
mark. Víkingur er neðsta liðið f
b-riðli en FH efsta liðið.
FH átti öllu meira í leiknum en
fór mjög illa með tækifæri sín.
Eftir leikinn er staðan i riðlinum
þannig, að FH hefur 5 stig, ísa-
fjörður 2, Vestmannaeyjar 2,
Breiðablik 2 og Víkingur 1 stig.
Öll liðin nema Vfkingur og FH hafa
leikið tvo leiki, þessi tvö hafa leik-
ið 3 leiki.
► Það sætir vaxandi gagnrýni
í Brezka samveldinu, að The
Beatles voru sæmdir heimsveld-
isorðunni brezku. Líta margir
svo á, að með veitingunni hafi
lftilsvirðingarblær verið settur á
- heiðursmerkið, og hafa nokkrir
menn skilað því aftur.
| stærri kappleikir fara fram verður
í vonandi eitthvað slíkt á boðstólum
j í leikhléi. Það er skemmtilegt fyr-
' ir áhorfendur, og ekki sízt mjög
| gott fyrir frjálsíþróttamenn okkar,
sem sjaldnast fá marga áhorfendur
á mót sín og því sjaldnast mikla
hvatningu.
Ástæðan fyrir því að ekki hefur
gengið betur að fá að hlaupa í
leikhléi mun vera sú, að ÍBR rekur
I pylsu- og sælgætissölu á völlunum
] og taldi að skemmtun f hálfleik
] mundi drag’ stórkostlega úr við-
skiptunum. Hvort sem það er rétt
eða ekki finnst fólki áreiðanlega
óeðlilegt ef ÍBR ætlar að standa í
veginum fyrir því að frjálsar
íþróttir í landinu rétti, úr krypp-
unni, því að vissulega er það góð
auglýsing fyrir íþróttirnar að geta
sýnt fyrir þúsundum skemmtilega
grein.
Það er því áreiðanlega fyrir
munn flestra fþróttaunnenda, sem
hér með er skorað á ÍBR að standa
ekki í veg fyrir því að frjáls-
íþróttamenn geti brúað 'hin Ielð-
inlegu hlé með stuttu hlaupi eins
og þarna fór fram. Tekjumissir
bandaiagsins ætti ekki að verða
mikill, ef nokkur. Og þó svo væri
er það vel þess virði að fóma ein-
hverju af því fé sem græðist á
pylsu- og gotterissölu, en á síð-
asta ári var það hátt á 3. hundrað
þúsund sem ÍBR fékk í sjóði sfna
á þann hátt.
En svo vikið sé að hlaupinu í
fyrrakvöld, þá vann Halldór Guð-
bjömsson það hlaup, sem var
mjög skemmtilegt á 1.55.9, sem
er hans lang bezti tími, en annar
varð Agnar Leví, líka á sínu lang-
bezta, 1.56.4, og var keppni þeirra
hnífjöfn og skemmtileg. Þórarinn
Arnórsson, ÍR, varð þriðji á 2.023,
Þórður Guðmundsson, Kópavogi,
fjórði á 2.03.9, sem er hans lang-
bezti tími. Fimmti var Kristleifur
Guðbjörnsson og 6. Marinó Egg-
ertsson. — jbp —
Akureyrarstúlkur
stóðu sig ve!f
handknattleik
Mfl, kvenna og II. fl. kv. I.B.A.
Akureyri dvöldu hér um helgina
í boði Vals.
Þær léku hér 6 leiki í fþróttahúsi
Vals og á grasvelli í Kópavogi. —
Á laugardaginn í íþróttahúsi Vals:
II. fl. kv. Í.B.A. — Valur 2—6
Mfl. kv. Valur B — Í.B.A. 3—3
Mfl. kv. Í.B.A. — Valur A 6—9
M.fl. kv. Breiðablik/Stjarnan
— Í.B.A. 9—10.
Á sunnudaginn á grasvelli f
Kópavogi:
II. fl. kv. Valur — l.B.A. 6—2
Mfl. kv. Í.B.A. — Breiðablik/
Stjarnarí 9—4.
Nýjar reglur / knattspymu
Á laugardaginn kenuir fer fram merkilegur knattspyrnuleikur í Edinborg í
Skotlandi. Allur knattspyrnuheimurinn mun fylgjast með þeim leik af áhuga.
Þá leika tvö skozk lið reynsluleik eftir nýjum reglum, sem til kemur að
teknar verði upp um allan heim. í stúkunni mun stjóm FIFA — alþjóða-
sambands knattspyrnumanna sitja og fylgjast vel með. Þessar reglur mundu
breyta knattspymunni mjög, gera hana skemmtilegri, og að sögn sjónvarps-
manna, betri á skerminum. Hér sýnum við nokkur atriði sem munu breyt-
ast ef ráðamenn samþykkja það að loknum leiknum 19. júní í Edinborg.
Rangstaðan að mestu úr sögunni . . .
Rangstöðu „taktík“ hefur tröllriðið knattspyrnunni í heiminum í allmörg ár og eyðilagt margt
skemmtilegt augnablikið fyrir áhorfendum. Á fyrri teikningunni sjáum við rangstöðu eins og hún
er dæmd í dag. Á síðari teikningunni sjáum við línuna, sem rangstaðan verður miðuð við, en
það er vítateigslínán í stað miðlínu áður.
Vítaspyrnur fleiri en fyrr . . .
í dag dæmir dómarinn aukaspyrnu fyrir hindrun. Bakvörðurinn hefur þarna hindrað útherj-
ann (teikning til vinstri) og það er óbein aukaspyrna. í nýju reglunum sjáum við á myndinni
til hægri að vítaspyrna er dæmd fyrir hindrunina. öll brot innan vítateigs þýða sama: VÍTA-
SPYRNU. Og annað sem gerist með hinum nýju reglum. Vítateigurinn nær alveg út að hliðarlínu.
Brotið á myndinni er við hornfánann og samt sem áður er dæmd vítaspyrna.
Innköst hverfa . . .
Innkastið hverfur. Innspyrna kemur í staðinn. Það getur komið markinu í meiri hættu en
innkastið. Þess vegna munu menn reyna að halda boltanum í leik fremur en að tefja með því
að spyrna út af vellinum. Þetta þýðir minni leiktöf, — skemmtilegri leik.
Bannað að senda til markvarðar . . .
Þá verður og bannað að senda boltann til
markvarðar - en þetta hefur oft gert mönnum
gramt í geði. Nú verða varnarmennirnir að haf
a fyrir því að snúa upp í sókn gegn framherjunum.
„Múrinn lifandi“ hverfur . . .
Eitt af því sem hverfur við nýju reglumar er
„lifandi múrinn“, sem settur er upp í varnar-
skyni i aukaspyrnunum nærri marki. í reglunum
segir svo að engin rangstaða sé dæmd í auka-
spyrnu og því verður það þýðingarlaust að bygg
ja slíkan „múr“.