Vísir - 16.06.1965, Page 10
10
VI S IR . Miðvikudagur 16. júní 1965.
SL Y S A V ARÐSTOFAN
Opið allan sólarhringinn. Sími
21230. Nætur- og helgidagslæknir
I sama sima
Næturvarzla vikuna 12.—19.
júní Lyfjabúðin Iðunn.
Næturverzla f Hafnarfirði að-
faranótt 17. júní: Eiríkur Björns-
son Austtirgötu 41. Sími 50235.
Helgidagavarzla 17. júní og að-
faranótt 18. júní: Kristján Jó-
hannesson Smyrlahrauni 18 Sími
50056.
færa o. þ. h.
22.10 Lög unga fólksins Bergur
Guðnason kynnir.
23.30 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Miðvikudagur 16. júní.
17.00 Fræðsluþáttur um skóla-
mál.
17.30 Surrival.
18.00 Spurninga- og skemmti-
þáttur.
18.30 Sannsögulegt ævintýri:
Ferðaþáttur.
19.00 Fréttir.
19.30 Þáttur Dick Van Dyke.
20.00 Bell Telephone Hour.
21.00 Wanted Dead or Alive: Kú
rekaþáttur.
21.30 The Untouchables.
22.30 Kvöldfréttir. ■
22.45 Kvikmynd: „Give Me a
Sailor“.
ÍJtvtiirpið
Miðvikudagur 16. júni.
16.30 Síðdegisútvarj
18.30 Lög úr kvikmýndum.
20.00 Píanómúsfk: Ingrid Habler
leikur.
20.20 I Akureyrarskóla fyrir 50
árum Freymóður Jóhanns
son flytur minn'ingarþátt.
20.50 íslenzk tónlist lög eftir
Sigfús Halldórsson.
21.10 „Rauðviðarkistan", smá-
saga eftir Anton Tjekov
Elín Guðjónsdóttir les.
21.20 „Concerto RoyaI“ nr. 3
eftir Couperin.
21.40 Varizt slysin Þórður Run-
ólfsson öryggismálastjóri
flytur síðari þátt sinn um
hættur í meðferð verk-
Fréttatilkynning
FRÁ NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN ISLANDS
Nýlega hefur danskur læknir,
dr. A. Norgaard, fært Náttúru-
fræðistofnun íslands verðmætt
skordýrasafn að gjöf. Hér er um
að ræða allstórt safn danskra
skordýra, sem dr. Norgaard hef
ur safnað sjálfur, en slík söfnun
hefur um langt skéið verið tóm-
stundaiðja hans. Meginuppistað-
an í safni þessu eru danskar
bjöllur, en dr. Norgaard hefur
4agt sérstaka rækt við söfnun
þéirra. Náttúrufr.stofnuninni er
mikill fengur að þessari rausnar
legu gjöf, sem eflaust mun koma
ígóðar þarfir þegar hafizt verð-
ur handa um uppbyggingu og
endurskipulagningu skordýra-
safns stofnunarinnar, en þess ger
ist nú brátt mikil þörf.
Árnað heilla
Spáin gildir fyrir fimmtudag
inn 16. júnf.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú átt góðan dag í vænd
um, en talsvert annríki og um
. svif. Ekki ósennilegt að þú verð
1 ir fyrir einhverju happi í sam-
j bandi við atvinnuna.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Farðu gætilega í skiptum við
áhrifamenn, fyigdu málum eftir
af festu en þó með lagni og
gát. Reyndu ekki að knýja
fram úrslit er á dag líður.
Tvíburamir, 22. maí til 21.
júní: Þú getur óhræddur hald-
ið þínu striki, en varastu samt
árekstra eftir megni, einkum
á vinnustað. Treystu me'ira á
sjálfan þig en loforð annarra.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Hafðu þig ekki um of í frammi
— það gæti orðið til þess að
eggja aðra til nokkurrar and-
stöðu við áhugamál þín. Farðu
gætilega í fjármálum.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Taktu daginn snemma, þá mun
þér verða vel ágengt, leggðu
áherzlu á gott samstarf á vinnu
stað — og gerðu þér svo glatt
kvöld með vinum þínum.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept
Sennilega einhverjir örðugleik-
ar fyrri hluta dagsins, sem ræt-
ist þó úr undir kvöldið. Taktu
ekki um of mark á orðrómi eða
sögusögnum.
V -in, 24. sept. til 23. okt.:
Þú mátt eiga von á heimsókn,
að öllum líkindum langt að,
sem fær þér nóg að hugsa á
næstunni. Það er þó bjart yfir
deginum •— fyrir hádegi a. m.
k. ,
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Stilltu í hóf dómfýsi þinni, sér
í lagi hvað snertir samstarfs-
fólk þitt. Láttu heldur undan
síga í bili en deilur verði af
ólíkum sjónarmiðum.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til
21. des.: Þú dylur eitthvað með
þér, sem þú vilt ekki við kann-
ast, en veldur þér þungum á-
hyggjum. Sýndu sjálfum þér
fulla hreinskilni — og öðrum.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Vertu ófeim'inn við að
segja meiningu þína, en reiði-
laust. Þú þarft ekki að búast
við miklu fylgi við fyrirætlanir
þínar hjá þfnum nánustu.
Vatnsberinn, t. jan. til 19.
febr.: Sæmilegur dagur til
ákvarðana og undirbúnings en
varla til nýrra framkvæmda.
Láttu þér nægja það sem unn
izt hefur að undanförnu.
Fiskamir, 20. febr. til 20.
marz: Þú átt margra góðra
kosta völ. en farðu samt með
gát og vertu ekk'i of bráður í
vaiinu. Komdu sem mestu í
verk fyrir hádegið.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Óskarí J. Þor-
lákssyni ungfrú Arnheiður Guð-
rún Agnarsdóttir og John Ólafur
L’indsay bifvélavirkjanemi. Heim
ili þeirra er á Hraunteigi 20.
(Ljósmynd Studo Gests Laufás-
vegi 18)
VIÐTAL
DAGSINS
29. maí vom gefin saman í
hjónaband af séra Óskari J. Þor
lássyni ungfrú Kristjana Einars
dóttir og Helgi John Fortece Álf
heimum 21. (Studio Guðmundar,
Garðastræti 8)
Sigurlaugur
Þorkelsson
— Hvaða áhrif hefur verk-
fallið haft á ferðir skipa Eim
skipafélagsins?
— Það hefur verið sú reynsla
undanfarin ár að verkföll hafa
stórskemmt fyrir hjá okkur,
ekki sízt fyrir Gullfossi, íslenzk
ir ferðamenn hafa ekki aðeins
orðið fyrir óþægindum heldur
ekki síður þeir útlendu. Margt
af þessu fólki, sem kemur til
landsins hefur með sér bifreið
ar og þótt það fari með flug-
vél til baka verður það þó að
skilja bílinn eftir.
— Hvað gerið þið til þess að
bæta þvi tjónið?
— Við reynum að véita þvi
alla þá fyrirgreiðslu, sem hægt
er. Við greiðum því farmiðann
aftur en eitt óþægilegasta
vandamálið er að margt af því
kemur með ódýra farrýminu
og þarf svo að kaupa sér flug
far heim, sem er miklu dýrara
og sá kostnaður lendir allur á
farþeganum. Þetta veldur far
þeganum óþægindum og út-
gjöldum og er félaginu til leið
jnda.
— Hefur dregið úr farþega-
fjölda ykkar síðan Kronprins
Olav hóf ferðir?
— Ekki með Gullfossi en
við getum að vísu ekki sagt
um það fyrir víst. Okkur grun
ar að það sé orðið meira um
ferðalög með skipum en áður,
'en ég held að Krónprinsinn
taki ekki meira frá okkur en
Drottningin gerði.
— Hefur það færzt í vöxt að
fólk ferðist með skipum?
— Það er atriði, sem ekki
er gott að sjá en það dregur
ekki úr því. Það er nokkuð
Áttafíu með
unglingapróf
Laugalækjarskólanum í Reykja
vík var slitið 31. maí s. 1. Skóla
stjórinn, Guðmundur Magnús
son, gat þess m. a. í skólaslita-
Það er rétt Silky. Ég held að það áður én þau stungu af. Pete sagði, hvað sem það var. Hann sagði við mig, „ég verð
hún hafi ætlað að segja Kirby Láttu mig dæma um það Bella Jæja, Pete hafði tómstundaiðju. að segja þér frá hundunum."
éitthvað en ég gat ekki heyrt hversu mikilvægt það var sem Hann ól upp stóra varðhunda.
tíð umsögn manna sem ferðast
með skipum að um borð á
skipi getj þeir hvílt sig, sem
sé ógerlegt, þegar þeir fari
fljúgandi, það taki svo stuttan
tíma að þeir eru komnir strax
aftur en fái ekki þá hvíld, sem
þeir þarfnast, og eiginkonurnar
eru sérstaklega fegnar að þurfa
ekki að elda enda er kappkost
að að hafa matinn, sem allra
beztann og er maturinn um
borð á Gullfossi orðlagður. í
þessum hraða nútímans þykir
mönnum gott að geta staldrað
við og fá sér hvíld á sjó, sem
ekki er hægt að fá annars stað-
ar.
— Hvernig er með þátttöku
í hringferðum Gullfoss?
— Hún hefur ekki aukizt
mikið yfir sumartímann en mik
ið yfir vetrar tímann, þær ferð
ir voru til skamms tíma alveg
óþekktar. Fóik getur búið alveg
um borð og þarf ekki hótelgist
ingu og þegar er búið að selja
upp alla miða í tvær fyrstu
ferðirnar i haust. í þessar ferð
ir hefur farið m. a. fólk, sem
hefur aldréi farið út áður og
þarna tala allir íslenzku, þetta er
eins og að vera á íslenzku heim
ili.
— Hver var heildartala far-
þega, sem fóru með Gullfossi
s. 1. ár?
— Sú mesta sem talin hefur
verið með Gullfossi, eða rúml.
7 þúsund farþegar.
— Hvernig er með nýja Gull
foss?
— Það er hafinn undirbún-
ingur að nýjum Gullfossi en
það tekur langan tíma að laga
þá teikningu sem fara á eftir
en það er sjálfsagt mál að
það verða fléiri farþegarými.
Annars hefur Gullfoss reynzt
mjög vel, Pétur Bjömsson, sem
var fyrsti skipstjóri á honum
gat ekki skilið hvernig hægt
væri að fá betra skip. Gullfoss
okkar hefur ver'ið happasælt
skip en tímarnir breytast og
nýjungar koma og það verður
að fylgjast með tímanum. Það
hafa verið gerðar stórfelldar
umbætur á Gullfossi á undan
förnum tveim árum svo að það
þarf að vera gott skip í okkar
augum, ef það á að vera betra
en það er núna, það er nú
einu sinni svo að við erum dá-
lítið stoltir af Gullfossi.
ræðu, að skólinn útskrifaði nú í
fyrsta skipti nemendur með ungl
ingaprófi.
82 nemendur tóku unglinga-
próf og stóðust það 80. Hæstu-
einkunn á unglingaprófi hlaut
Bergþóra Jónsdóttir, 9,14.
10 nemendur hlutu bókaverð-
laun fyrir góð námsafrek.
Annar áfangi skólans er nú í
smíðum og verður væntanlega
fullbúinn í byrjun næsta skólaárs.
Happdrætti
Fimmtudaginn 10. júní var
dregið í 6. flokki Happdrættis
Háskóla íslands. Dregnir voru
2.200 vinningar að fjárhæð
4.020.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 200.000
krónur, kom á heilmiða númer
26.272. Annar heilmiðinn var
seldur í umboðinu á Hvolsvelli
en hinn hjá Frímanni Frímanns
syni, Hafnarhúsinu.
100.000 krónur komu einnig á
héilmiða númer 29.550. Voru báð
ir heilmiðamir seldir í umboði
Þóreyjar Bjamadóttur, Lauga-
vegi 66.