Vísir - 16.06.1965, Page 16
bmmzsnz
Tvær stúlkur hreppa efstu sætin
lagur lo. juni
\A^^\AA/VW\AAAAAAAA/\
Ríkið
lokað
Áfengisverzlun ríkisins hefur
lokað í dag og gildir það um all
ar útsölur hennar. Ráðstafanir
þessar eru á vegum fjármála-
ráðherra og gerðar til þess að
minnka ölvun á þjóðhátiðar-
daginn 17. júni.
Fyrsta sinn að stúlka ,,dúxar##
í stærðfræðideild
Svo skemmtilega vildi til, að
tvær stúlkur urðu efstar sín í
hvorri deildinni á stúdentsprófi,
— það er í fyrsta sinn sem
stúlka „dúxar“ í stærðfræði-
deild. Það hefði í eina tíð þótt
saga til næsta bæjar, en nú er
farið að líta á það sem sjálf-
sagðan hlut.
„Eins og þægileg og
skemmtileg vinna“.
Borghildur Einarsdóttir er
dóttir Einars Braga. rithöfund-
ar, hún er 19 ára gömul og „litla
bamið I bekknum" að eigin
sögn. Borghildur hlaut alls 12
verðlaun fyrir námsafrek. þeirra
á meðal „Gullpennann“ fyrir
hæstu einkunn í íslenzkri rit-
gerð og verðlaun fyrir hæstu
einkunn í latlnu. Vfsir hitti Borg
hildi og Sigrúnu Helgadóttur í
Hljómskálagarðinum að skóla-
slitum loknum og rabbaði við
þær.
Framh. á bls. 6
LAND OG LÍÐVELDI
Fyrra bindi ritverks um sjálfstæbi Islands og
stjórnarskipun eftir dr. Bjarna Benediktsson
Út eru komnar á vegum Al-
menna bókafélagsins þrjár nýj-
ar bækur. Mesta athygli mun
ritverk eftir dr. Bjarna Bene-
diktsson forsætisráðherra vekja.
Er það bókin Land og lýðveldi,
fyrra bindi, og er það marzbók
félagsins. Síðara bindið mun
koma út f haust.
Land og lýðveldi er í megin-
dráttum samtímalýsing þeirra
viðburða, sem hæst ber í sögu
Islands á síðustu áratugum,
speglar viðhorf þjóðarinnar I
sókn og sigmm, en einnig á-
tökin að baki atburðanna. Hér
fylgjast lesendurnir stig af stigi
með baráttunni fyrir endurreisn
hins fslenzka lýðveldis, gerast
vitni þess, hvernig þjóðin sækir
með festu og þrautseigju rétt
sinn í hendur stórveldum og
síðast en ekki sízt, hvernig
henni tekst að tryggja sjálf-
stæði sitt og vinna málstað sín-
um helgi á alþjóðlegum vett-
vangi. I fyrra bindi ritsins, sem
hér birtist, er einkum fjallað
um þá þætti þjóðmálabaráttunn-
ar, sem að öðrum þræði vita út
á við. Þar eru m, a. rakin ýmis
sagnfræðileg rök sjálfstæðis-
baráttunnar. I síðara bindinu,
sem út kemur í haust, er að
meginhluta rætt um önnur þau
mál, sem nánar vita að efna-
hagslegri og menningarlegri
sérstöðu íslendinga, og enn-
fremur er þar að finna ritgerðir
og minningarþætti um nokkra af
helztu afburðamönnum þessa
tímabils.
Bókina hefur Hörður Einars-
son búið til prentunar. Hún er
288 bls., prentuð i Víkingsprenti
en bókbank hefur Sveinabók-
bandið annazt.
Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra
Sigrún og Borghildur í Hljómskálagarðinum í gærdag að skólaslit-
um loknum.
Söguleg bílvelta
í gærmorgun snemma, hringdí
maður til lögreglunnar hér 1
Reykjavík og kvaðst þá nokkru
áður hafa velt bifreið sinni á Þing-
vallaveginum ekki langt frá vega-
mótum Vesturlandsvefpr.
Maðurinn taldi bifreiðina þar. illa
komna og voru því ráðstafanir
gerðar til að senda kranabíl eftir
henni.
En áður en samtali mannsins og
lögreglunnar lauk, spurði lögreglan
hvort allt væri í lagi með hann
sjálfan. Jú, maðurinn taldi það
hafa verið á meðan hann sat undir
stýrinu en það væri ekki lengur
þvf hann hefði byrjað að cfrekka
SKIPIN FARIN AD STOÐ VAST
VEGNA VERKFALLSINS
Fyrstu skipin eru að stöðv-
ast i Reykjavíkurhöfn vegna
verkfalls matreiðslu og fram-
reiðslumanna. Mánafoss stöðv-
að'ist í fyrradag, þá Herjólfur
og Skjaldbreið og í morgun
kom Hekla frá Norðurlöndum
úr fyrstu hringferð sinni og
stöðvast nú vegna verkfallsins.
Úr þessu kemur eitt skipið af
öðru og stöðvast og áður en
varir verður höfnin full af sk'ip
um, ef ekki verður samið.
Yfirmatsveinninn á Heklunni,
Magnús Árnason var að hella
upp á sfðustu könnnuna áður
Henrik Sv. Björns-
son ambassador
París
i
Utanríkisráðuneytið tilkynnti í
gær, að ákveðið hefði ver'ið að
skipa Henrik Sv. Bjömsson am-
bassador f París í stað Péturs
Thorsteinssonar, sem nýlega var
skipaður ambassador í Washing-
ton. Henrik hefur verið sendiherra
í London frá því 1961. Hann hefur
starfað í utanríkisþjónustunni síð
an 1939, m. a. sem sendiráðunaut
ur í Washington, Oslo og París og
sem ráðuneytisstjóri utanríkisráðu
neytisins 1956-61. Auk þess hefur
hann verið fulltrúi Islands á mörg
um alþjóðaráðstefnum. Ekkert
hefur verið tilkynnt um hver verði
eftirmaður hans sem ambassador
f London.
en haldið skyldi í land. Þegar
v'ið komum um borð. Hann
tæmdj úr kaffipakka f könnuna
og hellti á. Starfsfólkið um borð
var að leggja sfðustu hönd á
verkin. „Messaguttarnir" voru
að skúra gólfin og þjónar og
þernur voru að ganga frá sín
! um hlutum.
Á Heklunni eru 2 matsvein-
ar, 2 búrmenn, 7 þjónar, 4 þern
ur og 7 vikap'iltar, alls 21, sem
fer f verkfall.
Með Heklunni komu m. a.
14 útlendingar, sem gista ætl
uðu um borð í skipinu og fara
síðan aftur út með því. Vegna
verkfallsins, verður fólkið að
búa í landi, þar eð enga þjón-
ustu er að fá um borð í skip-
'inu. „Við verðum að koma
fólkinu fyrir á hótelum, sem að
vísu er erfitt um þessar
mundir“, sagði Guðjón Teits-
son, forstjóri Skipaútgerðar
ríkisins í morgun. „Og ef verk
Framh. á bls. 6
eftir að hann kom úr þessari ó-
happaför. Framh. á bls 6
Dregið
í kvöld
1 kvöld verður dregið f hinu
glæsilega Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins. Eins og
kunnugt er, eru vinn'ingar tvær
glæsilegar bifreiðir af Ford
Fairlane-gerð. Samanlagt verð-
mæti 660 þús. kr.
Miðar verða seldir úr happ-
drættisb'ifreiðunum við Útvegs
bankann í dag, og ennfremur
verður skrifstofa happdrættis-
ins í Sjálfstæðishúsinu við Aust
urvöll opin til klukkan 10 í
kvöld. Nauðsynlegt er að allir
þe'ir sem ekki hafa gert skil
geri það í dag, en nokkuð vant
ar enn á að félagar í Sjálfstæð
isfélögunum og aðrir, sem hafa
fengið miða senda, hafi gert
skil.
Það er mjög árfðandi fyrir
starfsemi Sjálfstæðisflokksins,
að þeir, sem ekki hafa feng-
senda miða geri skil, sem og
aðrir þeir sem ekki hafa feng-
'ið senda miða kaupi sér miða
í dag.
Henrik Sv. Björnsson
ambassador
BREYTT ÞJODHA TÍDAR-
HÖLD í REYKJA VÍK
Þjóðhátíðarnefnd kynnti
blaðamönnum í gær dagskrá
þjóðhátíðardagsins 17. júní í
Reykjavík. Nokkrar breytingar
hafa verið gerðar á dagskránni
frá því sem verið hefur undan-
farin ár, m. a. verður hátíða-
höldunum slitið kl. 1 eftir mið
nætti í staðinn fyrir kl. Þá
kemur nýr dagskrárliður: Dans
bama og unglinga kl. fjögur
um daginn í Lækjargötu. Eng-
inn pallur verður reistur á Arn
arhóli, og ekki heldur í Lækjar
götu. Fara skemmtiatriði á
Arnarhóli fram uppi við stytt-
una og hljómsveitimar sem
leika fyrir dansi i Lækjargötu
verða uppi við Miðbæjarbarna-
skólann.
Að öðru leyti eru hátíðahöld
in skipulögð með svipuðu snið'i
og undanfarin ár. Dagskráin
hefst kl. 10 f. h. með samhljóm
kirkjuklukkna i Reykjavík kl.
10.15 leggur varaforseti borgar
Framh. á bls. 6.