Vísir - 29.09.1965, Síða 3

Vísir - 29.09.1965, Síða 3
VlSIR . Miðvikudaginn 29. september 1965 3 Þegar vinið er búið að „hressa andann“ sæmilega vel verða allir vinir og láta vináttu sina i ljós með faðmlögum, og þá eru það jafnvel þrír eða fjórir sem faðmast í einu. Stóðrétt var , Þverárrétt í Borgarfirði s. 1. sunnudag. Að afliðandi hádegi komu gangna- menn með stóðreksturinn niður af Tvídægru, riðu greitt nið- ur Kjarardalinn og niður til Þverárréttar. Þótt stóðhrossin væru mörg i réttinni þennan dag, er þó sennilegt að bílamir við réttina hafi verið ennþá fleiri, svo ekki sé talað um fólkið sem skipti þúsundum. Það var greinilegt að þama var hátið haustsins og gleðin jókst því lengur sem á réttar haldlð leið. Hjá sumum mun hún meira að segja hafa orðið fullmikil, þvi sýnilegt var að þeir vissu hvorki í þennan heim né annan áður en lauk. Það var fegursta veður i Þver árrétt á sunnudaginn, glamp- andi sólskin, en nokkuð svalt. En það sem elnkenndi réttar haldið var fyrst og fremst það að skepnumar sem réttaðar voru, voru þama í mlklum minni hluta fyrir bflum — marmfólki — og brennivínsflöskum. ☆ kéttarpelinn er jafn sjálfsagður í réttum og mannfólklð skepnurn- ar og réttirnar sjáifar. Þar fer enginn laumuiega með peiann sinn, og enginn blygðast sín fyrlr að súpa á fyrir allra augum. Þegar líður á réttarhaldið er setzt að í einu dilkshorninu með gítar og unglingamir setjast kring- um gítarleikarann og taka lagið með honum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.