Vísir - 06.11.1965, Side 1
Gott veður og vegir lagast
Ve&ur var orðið gott um land
allt í gær síðdegis og horfur á
góðu veðri í dag. Fært var orðið
um Borgarfjarðarhérað og norð
ur og fært var í Dali og fært frá
Þingeyri í Önundarfjörð.
Þegar Vísir átti tal við Veður-
stofuna í gærkvöldi fékk hann
eftirfarandi upplýsingar um veðr
ið klukkan 5: Veður var gott um
land allt, þó hvasst enn á ann-
nesjum norðanlands, en lygn-
andi. í Grímsev voru enn 10 vind
stig klukkan 5 en horfur á að
lægja myndi. — Alls staðar var
frostlaust á láglendi, 1—6 stig.
en á Hveravöllum og Hólsfjöll-
um var tveggja stiga frost. Úr-
komulaust var alls staðar Heið-
skírt var austan lands og heita
Framh. á bls. 6.
Mæðiveiki komin á ný í Mýrasýslu
Niðurskurður fyrirskipaður á Hreimsstöðum í Norðurárdal
ins fjár. Mæðiveiki hefur ekki
fundizt nema í þessari einu
kind — sem þó er einni kind
of margt — en hins vegar hef-
ur garnaveikj færzt þar nokkuð
í aukana. Meðal annars varð
hennar nú vart á a.m.k. 6 bæj
um þar sem hún hafði ekki ver
ið áður. Taidi Guðmundur lækn
ir að þarna væri f og með að
kenna vanrækslu á bólusetningu
auk flutnings fjár milli bæja án
þess að nægilegra varúðarráð-
stafana sé gætt. Og enda þótt
bólusetning sé framkvæmd er
hún engan veginn einhlít_ Hún
heldur sjúkdómnum fyrst og
Framh. á bls. 6.
Málflutningur fyrir
í gær var enn langur málflutn- opinberra starfsmanna við ríkis- starfsmanna enn uppi niálflutn-
ingur fyrir Kjaradómi i vinnudeilu valdið. Héldu fulltrúar opinberra ingi og varð honum ekki Iokið,
Kjaradómi
þegar hlé var gert á sjötta tím-
anum i gærkvöldi. Verður dómur
settur aftur klukkan hálftvö i dag
og hefst þá með málflutnlngi op-
inberra starfsmanna. Er búizt við,
að honum ljúki í dag, eftir að
hafa staðið yfir í þrjá daga. Kem-
ur þá röðin að Jóni Þorsteinssyni,
lögfræðingi, sem flytur málið af
hálfu rikisvaldsins. Myndin er tek-
in i dómsal í gær og er Haraldur
Steinþórsson kennari í ræðustól
að flytja mál opinberra starfs-
manna. Til hliðar við hann situr
Hrólfur Ásvaldsson frá Kjararáði
opinberra starfsmanna og síðan
dómendumir Eyjólfur Jónsson
skrifstofustjóri, skipaður af
BSRB, Svavar Pálsson endurskoð-
andl, Sveinbjörn Jónsson hæsta-
réttarlögmaður og Benedikt Sig-
urjónsson hæstaréttarlögmaður,
alíir þrír skipaðir af Hæstarétti,
og Jóhannes Nordal bankastjóri,
skipaður af fjármálaráðherra.
Fremst er Jón Þorsteinsson lög-
fræðingur og albingismaður, yzt
til hægrl, og Jón Erlingur Þor-
lákss. tryggingafræðingur, starfs-
maður samninganefndar ríkisins.
Mæðiveiki hefur nú
skotið að nýju upp koll-
inum í Mýrasýslu, en
þar hefur hennar ekki
orðið vart frá því er féð
var skorið niður fyrir
mörgum árum. Þykja
þetta hin válegustu tíð-
indi í hvívetna og ómögu
legt að segja hverjar af-
leiðingar kunna að
verða.
Sjúkdómseinkenni fundust
ekki nema í einni kind frá bæn-
um Hreimsstöðum í Norðurár-
dal Þóttust menn sjá á henni
mæðiveikieinkenni, og er henni
var slátrað fyrir rúmri viku
voru lungun send, ásamt lung
um úr öðru fullorðnu fé í svo
kölluðu Mýrahólfi að Keldum
til rannsóknar. Þar staðfesti
Guðmundur Gísiason læknir að
kindin hafi verið mæðiveikisjúk
Sl. þriðjudag var svo tekin á-
kvörðun um að lóga öllu fé
bóndans á Hreimsstöðum. Aðr-
ar ráðstafanir telur mæðiveiki-
nefnd sér ekki unnt að gera að
svo komnu máli.
Frá því að mæðiveikin skaut
að nýju upp kollinum vestur í
Dalasýslu fyrir nokkrum árum
hefur verið uggur í bændum
í norðanverðri Mýrasýslu, þeim
sem afrétt eiga að mörkum
Dalasýslu, að fé þeirra ' ynni
að hafa smitazt. Enda gekk fé
beggja sýslanna saman unz
veikin kom upp í Dalasýslu.
Þessi ótti hefur því miður ekki
reynzt ástæðulaus, því nú hef-
ur hann orðið að raunveruleika.
Haustslátrun f Borgarnesi og
Hurðarbaki f Reykholtsdal er
nú að mestu lokið, en þar hefur
fullorðnu fé verið slátrað síðast
og fylgzt vel með bæði lungum
og görnum úr Mýrahólfinu, en
einkum görnum úr Borgarfjarð
arsýslu
Þeir Sæmundur Friðriksson
framkvæmdastjóri Sauðfjárveiki
varnanna og Guðmundur Gísla
son læknir á Keldum skýrðu
Vísi frá því að úr Mýrahólfinu
hafi garnir og lungu verið skoð
að úr hátt á 3 þúsund fuliorð
Á
SJÓSL YSANÍFNDIN BIRTIR ÝMSAR TIL-
BLAÐIÐ i DAG
LÖGUR TIL ÖRYGGIS 0G ÚRBÓTA
Sagt frá skýrslu hennar um skiptapa o/ völdum árekstra, bruna og leka
Sjóslysanefnd sú, sem skipuS
var af samgöngumálaráðuneyt-
inu sumarið 1963, til að rann-
saka orsakir hinna tíðu skips-
skaða í íslenzka fiskiflotanum,
hefur nú skilað áliti. Álit þetta
birtist í heild í nýútkomnu hefti
af Sjómannablaðinu Víkingi, en
hluti úr því er birtur í blaðinu
í dag.
Skýrslan er alllöng og skiptist
niður í marga kafla, hér verða
rakin í stuttu máli nokkur atriði
úr henni.
ÁREKSTRAR
Á tímabilinu 1946-1964 sukku níu
skráðir bátar af árekstrum, sam-
tals 378 rúmlestir og af þessum
sökum drukknuðu 7 manns. At-
hyglisvert er að sjö af þessum á-
rekstrum urðu í björtu veðri Gef
ur það til kynna að þeir sem í sök
inni eru annað hvort þekki ekki
siglingareglurnar nægilega vel eða
breyti ekki eftir þeim. Tveir á-
rekstrar urðu í þoku og slæmu
skyggni yfir Austurlandi og orsök
uðust af ógætilegri siglingu og van
rækslu á að halda tilhlýðilegan
vörð. í sambandi við þetta leggur
nefndin áherzlu á að strangar
kröfur séu gerðar til aðgæzlu skip-
stjóra og kunnáttu og láta þá sæta
ábyrgð, sem slysum valda. Einn-
ig leggur nefndin til að nýju sigl-
ingareglurnar sem gengu i gildi í
september verði rækilega kynntar.
BRUNAR
Nefndin hefur kynnt sér 12 rétt
árrannsóknir sem fjallað hafa um
bruna í fiskiskipum á árunum 1960
1964. í 10 af þeim tilfellum var um
algert tjón að ræða, en f tveimur
verulegt tjón. Brunatjón í skipum
eru þó miklu fleiri en þessar tölur
géfa til kynna. Frh. á bls. 6.