Vísir - 06.11.1965, Qupperneq 2
2
V í SIR . Laugardagur 6. nóvember 1963,
„ Við gerum allt til að vinna"
— segja KR-ingar, sem mæta sænsku meisturunum i Evrópubikar-
keppninni á morgun — Utlit fyrir fj'ólmenni á Keflavikurflugvelli
Á morgun er Evrópu-
bikar„slagur“ á Keflavík
urflugvelli. Án efa fylla
íþróttaunnendur hús
varnarliðsins á flugvell-
inum og hrópa með KR,
— sem vel að merkja á
sigurvon gegn sænsku
meisturunum frá
Bromma, flugvallar-
hverfi Stokk aólmsborg-
ar.
Enn einu sinni hafa
varnarliðsmenn skotið
skjólshúsi yfir íslenzka
íþróttamenn, en væntan
lega þarf ekki að leita
mikið lengur á náðir
þeirra með stærstu leik-
ina í körfuknattleik og
handknattleik. Ein stór
breyting hefur þó orðið
á ferðalagi til Keflavík-
urflugvallar. Nú má
komast á rennsléttri
steinsteypu a*a leið upp
að dyrum íþróttahússins
á hálftíma eða svo.
EINAR BOLLASON - fyrirliði
Æfingarnar hafa tekið 9 kiló
9f h.nmim!
„Við erum ákveðnir í að
sigra Svíana“, sagði fyrirliði
KR-liðsins, Einar Bollason í
gær. „Við höfum æft mjög vel
að undanförnu, æfingar á hverj-
um degi bæði I Reykjavík og
á Keflavikurflugvelli undir leið-
sögn þjálfarans okkar, Phil
Bensing, sem hefur reynzt okk-
ur sérstaklega vel“.
Bensing, sem er radartækni-
fræðingur á flugvellinum, átti í
rauninni að vara farinn til Banda
ríkjanna, en fékk framlengt dvöl
sinni hér til áramóta. NU er það
KR-inganna að sýna i leiknum á
morgun hvað þeir hafa lært af
Bensing og vonandi sjáum við
hressilega tekið á.
Svíamir koma hingað með
sína aðalstjömu Svidén, sem
var sóttur gagngert til Sviss þar
sem hann dvaldist í vetur, en
önnur stjarna Hanson er við nám
í Bandaríkjunum og kemst ekki
til keppninnar og er það vissu
lega skaði fyrir liðið.
y
Dómarar á morgun eru enskur
aðaldómari og með honum belg-
ískur aðstoðardómari. KR-ingum
voru að berast fréttir af því frá
alþjóðasambandinu að þeim beri
skvlda til að greiða allan kostn
að af dómurunum og er það
mikill baggi sem leggst á þá þar.
Auk þess þurfa þeir að kosta
uppihald liðsins á hótelinu á
leika fyrir leikinn og f hléi. Ferð
ir úr Reykjavík eru kl. 14.30 frá
BSl við Kalkofnsveg. Aðgöngu-
miðasala ^fur gengið ágætlega
bæði í Reykjavík og Keflavík, en
miðar em einnig seldir við Flug
vallarhliðið. f tilefni af lei'knum
var viðtal við Einar Bollason,
Halldór Sigurðsson, form. körfu
knattleiksdeildar KR og hmn
bandaríska þjálfara í Keflavíkur
sjónvarpinu f fyrrakvöld.
Liðin verða þannig skipuð:
KR: Kolbeinn Pálsson, Gunnar
Gunnarsson, Kristinn Stefáns-
son, Jón Otti Ólafsson, Skúli
Kristbergsson, Þorvaldur Blönd-
al, Guttormur Ólafsson, Hjörtur
Hansson og Einar Bollason (fyr-
liði).
KRISTINN STEFÁNSSON -
hefur sýnt einna mestar
framfarir að undanfömu.
Keflavíkurflugvelli og utanför
sína til Svíþjóðar á fimmtudag-
inn, en á laugardag verður leikið
aftur við Alvik f Eriksdalshallen
f Stokkhólmi.
Leikurinn á morgun hefst kl.
16 og mun Lúðrasveitin Svanur
ALVIK: Kent Gunná, Anders
Grönlund, Kjell Gunná, Egon
Hákansson, Lennart Preutz, örj
an Svidén, Peter Adler, Leif
Bjöm, Bo Lundemark og Kaj
Hákansson (fyrirliði. Þjálfari Kðs
ins er Rolf Nygren.
„Aðalskipulag
Reykjavíkurborgar
og þróun borgar-
innar næstu tvo áratugi"
nefnist ræða Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra á almennum fundi
Varðarfélagsins n.k. mánudag kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
SJÁLFSTÆÐISFÓLK
FJÖLSÆKID FUNDINN
Lnndsniálafélagið V Ö R D U R