Vísir - 06.11.1965, Blaðsíða 6
6
V1SIR . Laugardagur 6. nóvember 1965.
Lamdshapp-
drætti ÍSf
Dregið hefur verið hjá borgar-
dómaranum í Reykjavík í Lands-
happdrætti ÍSÍ og komu upp þessi
númer:
15031 bifreið, Ford Cortina
15916 Willy’s Jeep
14479 Westinghouse
kæliskápur
1. Nr. 15031
2. — 15916
3. — 14479
4. __ 35884
5. — 39489
6. — 43061
7. — 17620
8. — 58996
9. — 20471
10. — 1021
11. — 41656
12. — 29741
Vinninganna má vitja í skrifstofu
íþróttasambands Islands, íþrótta-
miðstöðinni, Laugardal, sími 30955.
Mannanöfn —
Framh. af bls. 16
vera íslenzk nöfn, sem svo hafa
verið frá fomu fari, t. d, Bjöm,
Karl o. s. frv. Sama máli gegn
ir um nöfn, sem misst hafa
nefnifallsendingu frá því í
fommáli í samræmi við hljóð
lögmál tungunnar, t. d. Amór,
Halldór Steinþór, o, s. frv.
4. Endingarlaus mega einnig
vera ýmis tökunöfn, sem fótfestu
hafa náð t. d. Friðrik, Gottskálk,
Gústaf, Hinrik, Konráð og Þiðrik.
Þó má benda á, að sum þessara
nafna hafa einnig íslenzkulegra
form. t. d. Friðrekur, Gottskálk-
ur (sjaldgæft), Heiðrekur, Kon-
ráður, Þjóðrekur (Þiðrekur), og
er vitanlega fullkomlega Ieyfi-
legt að endurlífga þessar nafn-
myndir.
5. Endingarlaus skulu vera
tökunöfn, sem aldrei hafa haft
nefnifallsendingu í íslenzku, t. d.
Jón, Hans, Hannes, Jóhannes,
o. s. frv., enn fremur samsett
nöfn, sem enda á -mann, hvort
sem þau eru tökunöfn eða gerð
síðar í san.ræmi við tökunöfn, t.
d. Hermann, Kristmann, Guð-
mann og Ármann.
Heimspekideild áskilur sér rétt
til að úrskurða síðar um endingu
eða endingarlevsi karlkenndra
mannanafna, sem hér er ekki
vikið að.
Spítali
' Framh. af bls. 16
legra væri að slík stöð væri i sam-
bandi við spílala.
Úlfar sagði að engin ný fræðsla
væri í því sem Alfreð hefði sagt,
allir vissu að Borgarspítalinn ætti
að flytja úr heilsuverndarstöðinni
og stjóm heilsuverndarstöðvarinnar
væri að sjálfsögðu farin að
íhuga til hvers mætti
nota það rúm. Hún myndi á sínum
tíma leggja tillögur sínar um það
fyrir borgarstjórnina. Líkti hann
þessari tillögu við sögu eina úr
írsku byltingunni f Dublin, þegar
framíslettumaður einn vildi alltaf
vera að senda de Valera skrifaða
miða með skoðunum sínum á því
hvemig ætti að fara að því að ger-
sigra Breta og stökkva þeim á
flótta.
Lagði hann til, að í stað þess að
borgarstjóm samþykkti þessa tii-
lögu um að fela stjórn heilsuvernd
arstöðvarinnar að vinna að ákveðnu
máli, þá skvldi borgarstjórn sam-
þykkja að vísa þessari tillögu til
umsagnar stjórnar heilsuverndar-
stöðvarinnar. Að vísu dálítið óvenju
leg afgreiðsla en eðiileg vegna þess
að tillagan var Ifka óeðlileg. Varð
bað úr að svo var gert.
Fleiri tóku til máls um þetta efni
m. a. Þórir Kr. Þórðarson sem
minnti á, að þegar hefði komið
fram á fundi í borgarstjórn fyrir
nokkru, að húsnæði það sem nú
rýmkist var ætlað að nokkru leyti
fyrir langlegusjúklinga, sem ekki
þarfnast læknisaðgerða, en hinn
mikli skortur á sjúkrarými fyrir þá
veldur hinum almennu sjúkrahúsum
miklum erfiðleikum.
Sjóslys —
Framh. af bls. 1
Þau skip, sem eyðilögðust alger
lega af bruna voru 10, samtals 341
rúmlest að stærð. Athyglisverð er
sú stórlega aukning sem orðið hef
ur á þessu, því að á tímabilinu 1946
1959 ónýttust aðeins 7 fiskiskip,
samtals 294 rúmlestir.
Það er sameiginlegt einkenni þess
ara brunatjóna að eldsupptök eru
í öllum tilvikum, að einu undan-
skildu, í vélarrúmi skipsins. Vélar
rúmin voru mannlaus þegar eldur
kom upp og hans varð fyrst vart
þegar reyk tók að leggja upp úr
vélarrúmi en þá var ekki viðlit að
fara þangað niður til þess að kom
ast að eldinum. Erfitt er að full
yrða um orsakir brunanna, en allar
líkur benda til þess að íkviknun sé
út frá rafmagni.
Til að ráða bót á þessu telur
nefndin æskilegt að kolsýrueldvarn
arkerfi verði sett í vélarrúm fiski
skipa, en það er einkennilegt atriði
sem kemur fram í skýrslunni, að
tryggingafélögin eru ekki reiðu-
búin til að taka þátt í kostnaði við
að setja slfk kerfi upp. Kostnaður
við það er um 25 þús. kr. á bár
Þá leggur nefndin til að Skipa-
skoðuniri ráði sérfróðan mann til
þess að framkvæma skyndiskoðanir
á rafkerfum fiskibáta.
LEKI
Langur kafli er í skýrslunni um
skiptapa af völdum leka. Á 14 ára
tímabilinu 1946-1959 fórust 20
skip, samtals 1242 rúml. af þeim
sökum eða um 1,4 skip á ári. En
á fimm ára tímabilinu 1960-1964
verður stóraukning á þessu og
hafa á því styttra tímabili farizt
18 skip af völdum leka samtals
1552 rúmlestir. Á fyrra tímabilinu
fórust 5 menn af þessum sökum,
en á seinna tímabilinu tveir menn.
Skipin sem farast með þessum
hætti eru flest komin til ára sinna
en samt eru undantekningar frá
því.
Það er einkennandi fyrir skip-
tapa af þessu tagi að erfitt er að
upplýsa ástæðuna fyrir því að leki
kom að skipunum. í sumum tilvik
um er þó Ijóst að bilun hefur orð
ið á byrðingi þeirra en um orsök
hennar er sjaldan hægt að segja'
mpð fullri vissu.
Sennilegast verður að telja, að
algengasta orsök leka á tréskipum
,sé sú að skipin „slái úr sér“ þ. e.
hampþétting skipsins gengur úr eða
dettur úr en við það á sjórinn
greiðan aðgang inn í skipið. Þetta
getur gerzt án þess að skipin verði
fyrir óeðlilegu hnjaski t.d. þegar
um gömul skip er að ræða ,en í öðr
um tilvikum orsakast þetta af þvi
sð skipunum hefur verið ofboðið
með ógætilegri siglingu á móti
vindi og sjó og telur nefndin það
hina venjlilegu ástæðu.
Nefndin bendir á að f þessu sam
bandi getur það haft alvarleg á-
hrif þegar stærri og öflugri vélar
eru settar í gömul skip og telur
nefndin að skipaeftirlitið eigi að
hafa heimild til að hafa hönd f
^agga með þessu.
Þá leggur nefndin til að reglur
verði settar um að hafa færanlegar
dælur í hveriu fiskiskipi vfir 35
rúmlestir að stærð og einnig að
'"kaviðvörunarkerfi verði sett f
skipin en Skipaskoðun ríkisins hef
ur nú til athugunar og revnslu siálf
virkt viðvörunarkprfi er vefur frá
<ér hvellt hHóð Síðar verður sagr
frá öðrum hlutum skvrslunnar.
Minningarorð
ÞÓRA INGÓLFSDÓTTIR
Hinn 30. október sl. lézt í
sjúkrahúsi í Keflavík ung merkis-
kona og húsmóðir, Þóra Ingólfs-
dóttir, Baldursgötu 11 hér í borg
ein hinna hljóðlátu í röð kynsystra
sinna Kom andlát hennar ættingj
um og vinum mjög á óvart, en hún
andaðist af völdum ólæknandi sjúk
dóms eftir skamma en kvalafulla
veikindalegu. Þótt sjúkdómur þessi
hafi vafalaust átt sér nokkurn að-
draganda, reyndist hann vera ann
ars eðlis en upphaflega var talið.
Sjálf tók hún honum af æðruleysi
og ró, svo sem vænta mátti af
konu með hennar skapferli.
Þóra fæddist f Reykjavík 14. nóv
ember 1939 og var því aðeins tæpra
26 ára að aldri, er hún lézt. Hún
var yngst 3 barna hjónanna Guð-
rúnar Pálsdóttur og Ingólfs Ás-
mundssonar, Smáragötu 8A hér
í bæ. Eru báðir foreldrar hennar
og bæði systkini á lífi. Þóra gift-
ist 24. október 1958 eftirlifandi
maka sínum, Eggert Jónssyni, járn
smið, efnismanni, sem var mjög
jafnaldri hennar. Þau eignuðust 4
dætur, sem allar eru á lífi, korn
ungar að sjálfsögðu. Má geta sér
nærri um hvert áfall það er þeim,
þegar eiginkona og móðir er köll
r
Arbær —
Framh. af bls. 16
hugsa til þess að á þessu svæði
munu búa eftir tiltölulega fáa
mánuði um 3000 manns. En
þetta mun skiptast þánnig riið-
ur, að þarna verða 128 einbýlis-
hús, 570 fbúðir í fjölbýlishúsum
og 50 garðhús. Alls mun þetta
því gera 748 íbúðir. Nú mun
meðal fjölskyldustærð reiknast
fjórir manns, svo að alls ætti
þetta því að gera rétt um 3000
íbúða.
Mæðiveiki —
Framhald at bls I
fremst niðri, en kemur ekki' í
veg fyrir sýkingu. Þess vegna
getur verið mjög varhugavert að
selja fé milli bæja þótt sjáanleg
sjúkdómseinkenni séu ekki á
því.
Á Hurðarbaki í Reykholtsdal
var um 1500 fjár rannsakað við
slátrun, hvort garnaveiki fynd-
ist f því, en þar virtist hvergi
um nýja sýkingu að ræða.
uð burt í blóma lífsins svo snögg
lega, sem raun bar vitni. Þóra heit
in var góð kona og göfug, hlý og i
notaleg börnum sfnum, húsmóðir
hin ágætasta. Hún var kvenna feg
urst sýnum, einkum voru augun
sérkennilega fögur og lýsti úr þeim
í senn bæði ástúð og blíðlyndi.
Jafnan var hún glaðlynd, æðrulaus
og hýr í bragði. rausnarsöm og þó
ráðdeildarsöm, tók prýðilega gest
um og gangandi,. sem aö garði
bar, Naut hún mjög vinsælda allra
þeirra, er henni kynntust. Hún var
ekki ein þeirra kvenna, er hreykja
sér hátt, en bar þó gott skyn á
ýmsa hluti, hugleiddi margt f kyrr
þey, tók sér stefnu eftir þvf og al
drei af tilviljun eða sjónhendingu
Útför hennar verður gerð f dag
laugardaginn 6 nóv. kl. 10.30 f.h.
frá Fossvogskapellu. Mynd þessar
ar dagfarsprúðu, geðþekku ungu
konu, mun lengi geymast í hugum
ættingja hennar og vina.
Magnús Pálsson.
Lögmæt kosn-
ing í Stykkis-
hólníi
Prestskosningar í Stykkishólmi
hafa farið fram voru 533 á kjörskrá
og greiddu atkvæði 439.
Atkvæði féllu þannig: Séra Hjalti
Guðmundsson frá Reykjavík 273 at
kvæði, séra Þórarinn Þór á Reykhól
um 110 atkvæði, og séra Ásgeir
Ingibergsson, Hvammi í Dölum 54
atkvæði.
Var því séra Hjalti Guðmundsson
kosinn lögmætri kosningu.
| Lilcið sennilena
1 ai útlendincpi
| Allar líkur benda ril þess að lík
I ið sem belgískur togari fann SA aí
I Ingólfshöföa í fyrrad. ?é a? úí!
sjómanni. Var hldð flutt til Nord
' íjarðar ai' varðskipinu Þór, og bar
:fór fram rannsókn á Iíkfundinum
: í gaar.
Benti klæðnaður mannsins og
fleira til þess að um útlending væri
að ræða, en engin skilríki fundust
á líknu. Ekki er kunnugt um hvarf
5 mönnum á þessum slóðum að
undanförnu og hefur enginn erlend
ur aðili tilkynnt uin slíkt.
Greinilegt er að líkið hefur ekki
verið nema stuttan tíma í sjó og
er ekki ósennilegt, að maðurir.n
hafi verið með rússneska síldveiði
flotanum, sem hafðist þarna við
fvrir nokkru, en þar voru þá
200 rússne-': ldveiðiskip, móður-
skip og flutningaskip.
Unnsteinn Beck;
URnsteinn Beck
borgarfógeti
TJnnsteir.n Beck toligæzlustjóri |
hefur verið skipaður borgarfógeti
i við embætti yfirborgarfógeta í j
Revkjavík frá 1. desember n. k. að ;
telja. Unnsteinn er fimmtugur að
aldri, sonur Hans Jakobs Beck
bónda á Sómastöðum í Reyðarfirði
og konu hans Mekkinar Jónsdóttur. ;
! Hann varð lögfræðingur frá H í
S árið 1943 og var síðan fulltrúi hjá
j borgarfógeta og borgardómara. áð j
! ur en hann v rð tollgæzlustjóri
Aðrir umsækjendur um embættið j
Jvoru Bjarni Bjarnason. fyrrverandi
' bæjarfógeti. Sigurður Sveinsson. og I
Viggó Tryggvason, ulltrúar vfir-
! borgarfógeta.
Bazar í Kópavogi
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda held
ur bazar í Sjálfstæðishúsinu f Kópa
vogi sunnudaginn 7. nóvember kl.
3 s. d.
Sýning Sigfúsar
Málverkasýning Sigfúsar Hall-
dórssonar í Félagsheimilinu í Kópa ’
vogi hefur saðið yfir þessa viku
og aðsókn verið góð. Á sunnudag-
inn er síðasti dagurinn og er hún
þá opin frá kl. 10 um morguninn til
kl. hálf tólf um nóttina.
Þrír sóttu um
Hufnurfjörð
Þrír sóttu um sýslumannsembætt
ið í Gullbringu- og Kjósarsýslu og
bæjarfógetaembættið í Hafnarfirði.
Embættið var, auglýst 4. október og
er umsóknarfrestur nú útrunninn
Um sóttu Björn Sveinbjömsson,
settur sýslumaður á sama stað, Ein-
ar Ingimundarson, bæjarfógeti á
Siglufirði, og Jóhann Gunnar Ólafs
son, sýslumaður og bæjarfógeti á
ísafirði.
Vegir —
Framh. af bls. 1
mátti að heiðskírt væri norðan
lands, og léttskýjað á Suður-
iandi og Vesturlandi. — Gert var
ráð fyrir góðu veðri í dag (laug
ardag) og batnandi verði á mið-
unum og ef til vill veiðiveðri í
dag.
Fært var orðið um Borgar-
fjarðarhérað og norður í gær og
fært var í Dali. Frá Þingeyri var
fært í Önundarfjörð, en talið að
samgöngur væru stöðvaðar frá
Króksfjarðamesi. Ófrétt var
hvort leiðin væri opin til ísaf jarð
ar.
Vegir munu ekki hafa orðið
fyrir skemmdum í Borgarfjarðar
héraði þar sem flæddi yfir eftir
vöxtinn í Norðurá, 'n möl runn
ið sums staðar vegunum með
vatninu. Vinnuflokkar voru
þar til leiðbeiningar og aðstoðar.
ef þyrfti.
Mikilvægt er hve veður var
batnandi í gær og haldist góð-
viðrið mun það að sjálfsögðu
flýta fyrir að samgöngur komist
alls staðar í venjulegt horf fyrr
en ella
ESSSay.ST* 5E3