Vísir - 06.11.1965, Blaðsíða 16
Laugardagur 6. nóvember 1965.
Borgin úr lofti séð
3000manna bær aS rísa vio Arbæ
Árbæjarhverfið i smíðum. Elliðaárnar neðst til vinstri, niður að þeim sjást hús í smiðum við þvergötumar Fagrabæ, Glæsibæ, Þykkva-
bæ og Vorsabæ. Til samræmis verður Suðurlandsbrautinni á þessu svæði gefið heitið Rofabær og ný Suðurlandsbraut með tvöfaldri
akbraut lögð fyrir norðan hverfið.
Loftmyndin af borginni,
sem birtist hér í dag, sýnir
nýtt borgarhverfi, sem er nú
sem óðast að rísa upp. Þegar
við ókum þarna um fyrir
nokkrum mánuðum var ekk-
ert að sjá þar nema mela og
klungur á aðra hönd með
nokkrum skreiðarhjöllum og
á hina hönd smáhús, sem upp
haflega voru sumarbústaðir
með görðum í kringum.
En nú er allt I fullum gangi,
nýjar götur hafa verið lagðar
og ióðarhafar koma og taka
grunninn, og síðan gengur þetta
sína leið, mótum er slegið upp
og steypubílar koma akandi
þungu hlassi.
Við skulum líta nánar á mynd
ina. Neðst á henni í vinstra
horninu sér í Elliðaárnar, sem
eru þarna í tveimur kvíslum
með eyri á milli. Síðan kemur
einbýlishúsahverfið, sem nær
alla leið upp að Suðurlands-
brautinni, en hún sést skýrt
sem Ijóst strik þvert yfir mynd-
ina. Handan við hana er svo
í smíðum stórt svæði með íbúða
blokkum, þar sem bæjarkjarna
með verzlunum verður komið
fyrir. Lengst til vinstri ofan við
Suðurlandsbrautina má greina
garðhúsahverfið, sem er í smíð-
um, en það er nýjung hér á
landi.
í meiri fjarlægð má svo sjá
kartöflugarðana í Smálöndum,
svo kemur Grafarvogur, þá Gufu
nes og má greina verksmiðjuna
þar. Enn lengra má sjá Geld-
inganes og Álfsnes og þar fyrir
handan Akrafjall og Skarðs-
heiði og Esjuna.
Byggingarframkvæmdirnar í Ár-
bæjarhverfinu eru vissulega
stórfelldar. Það er undarlegt að
Framh. á bls. 6.
HERFERÐIN
Aðalfjársöfnunardagur Herferð-
ar gegn hungri er i dag og verð-
ur þá gengið i hvert hús í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnar-
firði, Keflavík, Akureyri, Sel-
fossi og víðar. Um 1000 ung-
menni taka þátt í fjársöfnun-
inni í Reykjavík og verður farið
eftir hverfaskiptingu presta-
kalla. Hefst söfnunin kl. 2,1 en
söfnunarfólk er beðið að mæta
ekki siðar en kl. 1.30.
Engar viðræður
Engar viðræður eru í gangi í deilu
togaraeigenda og yfirmanna á togur
unum þessa dagana og hafði sátta-
semjari ekki boðað aðila til fundar
í gærkvöldi.
Straagur úrskurBur Hehaspeki-
deildar uai lögmæti mannanaina
Heimspekideild Háskóla ís-
lands hefur fellt örlagaríkan úr-
skurð um mannanöfn, þar sem
ákveðin er mynd allmargra karl
mannsnafna. Þessi úrskurður á
væntanlega eftir að hafa mikil
áhrif á nafngiftir, því að prest
ar landsins eru skyldir að skíra
einungis samkvæmt lögum ís-
lenzkrar tungu, en Heimspeki-
deildin ákveður, hvað sé rétt is-
lenzk tunga.
Úrskurður þessi er kominn
vegna fyrirspurnar frá sr. Jóni
Auðuns dómprófasti, þar sem
hann óskaði úrskurðar um lög-
mæti eða ólögmæti nokkurra
karlmannsnafni án nefnifalls-
endingar 1
í úrskurði Heimspekideildar
segir:
1. Alíslenzk (norræn) nöfn,
sem endingu höfðu að fornu og
yfirleitt hafa varðveitzt með
endingu til nútímamáls, skulu
látin halda henni, t. d. Ásberg
ur. Erlingur, Haraldur, Hallfreð
ur, Ólafur, Sigurður, Valgarður,
Vilbergur, Þorvaldur o. s. frv. 1
þessum tilvikum er óheimilt að
sleppa nefnifallsendingunni -ur.
2. Sama máli gegnir um orð,
sem hafa endinguna harður og
-valdur, t. d. Bernharður eða
Bjarnharður, Vernharður, Rík-
harður og Ósvaldur, jafnvel
þótt erlend kunnj að vera að
uppruna.
3.1 Endingarlaus í nf. skulu
Framhald á bls. 6.
BROTIZT INN Á
Aukið húsrými í Heilsuvemd- FIMM STÖÐUM
arstöð er Borgarspítali flytur
Heilsuvemdarstöðin var nokkuð
til umræðu á borgarstjómarfundí
á fimmtudaginn, en þannlg stendur
á því, að nú á næsta ári mun borg
arspítalinn nýl i Fossvogi taka til
starfa og vð það mun núverandi
Borgarspítali sem aðsetur hefur
haft f húsnæði Heilsuverndarstöðv
arinnar flytja þaðan í burtu og mik
ið húsnæði losna vlð það.
Nú fyrir þennan borgarstjórnar-
fund lagði Alfreð Gíslason læknir
og borgarfulltrúi kommúnista frarn
tillögu um að borgarstjórnin feli
stjórn Heilsuverndarstöðvarinnar
að athuga hvort ekki sé þörf fynr
þetta húsnæði til aukins heilsuvernd
arstarfs.
I sambandi við þetta flutti Al-
frc' framsöguræðu, þar sem hann
vó að stjórn heilsuverndarstöðvar-
innar og hélt því fram að lítils á-
huga virtist gæta hjá henni á heilsu
verndarmálum t d. virtist hún ekki
hafa áhuga á að koma upp sjón
verndarstöð.
Til að svara þessari ræðu stóð
. upp Úlfar Þórðarson borgarfulltrúi,
Svaraði h?nn allsnúðugt ræðu fram
sf:_ .imanns. Sagði hann að sér hefði
komið þessi ræða á óvart og sér
þætti furðulegt að ræðumaður
skyldi láta sér sæma að gera ger-
samlega óverðskuldaða árás á stjórn
heilsuverndarstöðvarinnar. Þá benti
hann á það. að óheppilegt væri
að hafa sjónverndarstöð í sambandi
við heilsuverndarstöð því að heppi-
Framh. á bls. 6
Svo virðist sem innbrotafarald-
ur sé að hefjast í okkar ástkæru
höfuðborg, því tvær undanfamar
hætur var brotizt inn á fimm stöð
um, sem lögreglunni var kunnugt
um.
Aðfaran. fimmtud. var brotizt inn í
fiskverzl. Sæbjörgu á Laugavegi
27. Ekki varð séð að þar hefði öðru
verið stolið en einni sveðju og ein
um flatningshníf.
Sömu nótt var brotizt 'inn í sölu
turninn á Hverfisgötu 2. Þaðan var
stolið 23 pakkalengjum af Camel
vindlingum, þar skildi þjófurinn
eftir stærðar kúbein sem hann hef
ur notað til þess að brjótast inft
með Á kúbeinið er greypt nafnið
Griffin, og ef einhver kannaðist
við þetta kúbein, væri rannsóknar
lögreglunni þægð í að fá vitneskju
um það.
I fyrrin. var brotizt inn í veitinga
stofuna í Skipholti 21, stolið það-
an um 900 kr. í peningum og all
miklu af tóbaksvörum bæði vindl-
ingum og vindlum og nemur and-
virði þeirra samanlagt 3-4 þús. kr.
í sama húsi var brotizt inn í
Tómstundabúðina og stolið þaðan
nokkur hundruð krónum úr pen
ingakassa.
Loks var brotizt inn í afgreiðslu
Smjörlíkisgerðanna í Þverholti í
fyrrin. en litlu mun þar hafa verið
stolið.