Vísir - 16.11.1965, Side 5
VÍSIR . Þriðjudagur 16. nóvember 1965.
útlönd í’morsun utlönd 1 morgun
1 morgun
utlond í morgun
Brezka þingið samþvkkti
undir morgun lagafrumvarpið
sem veitir stjórninni heimild
til nauðsynlegra aðgerða vegna
afleiðinga þess, að lýst var ó-
löglega yfir sjálfstæði í Rhode-
siu og að þar fer nú ólögleg
stjóm með vald. Frumvarpið
var afgreitt sem lög og hefir
Wilson nú heimild til þess að
gefa út tilskipapir um ráðstaf-
anir vegna ástandsins í Rhode-
siu.
Ýmsir þingmenn úr íhalds-
flokknum gagnrýndu stefnu og
ráðstafanir stjómarinnar og
töldu of langt gengið. Meðal
gagnrýnenda var Salisbury lá-
varður, en frumvarpið náði
fram að ganga þrátt fyrir þessa
gagnrýni mótatkvæðalaust,
vegna þess að flokksforustan
krafðist þess eindregið, að rík-
isstjóminni væri sýnd hollusta
og traust í málinu.
Einn þingmanna Ihalds-
flokksins andmælti strangari
refsiaðgerðum og sagði, að ef
reynt yrði að beita olíubanni
við Rhodesiu, yrði unnið gegn
slíkum refsiaðgerðum með
kjafti og klóm.
I lögunum segir, að Rhodesia
sé áfram eitt af samveldislönd-
um drottningar. Brezka þingið
og stjórn Bretlands fara með
æðstij ráð yfir landinu og hefir
stjómin heimild til þess að fella
úr gildi öll lög, sem samþykkt
eru af núverandi þingi Rhode-
siu og gefin út af stjórn henn-
ar.
Talið er, að lögunum sé
beint eigi síður gegn þeim
Asíu- og Afríkuríkjum, sem
Stjórn NorÍur-
Vietnam vildi
fund / Rangoon
Það er nú komið I ljós, að stjórn
Norður-Vietnam ■ vildi fund um
Vietnam, fund til þess að þreifa
fyrir sér um samkomulag um
vopnahlé, en Bandaríkjastjórn
hafnaði uppástungunni.
Var það vegna þess, að Banda-
ríkjastjórn trúði 'því ékía, áð ^UPP-
ástungan væri £ einlægni fram
borin. Það var U Thant fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sem færði henni boð um
þetta.
he’imta hervaldsaðgerðir af Bret
um, en Rhodesiu sjálfri, en
stjórn Smiths er á þessu stigi
algerlega andvíg hervaldsbeit-
ingu — og ákveðin í að vísa á
bug öllum tilraunum til þess að
fá sent friðargæzlulið á vegum
Sameinuðu þjóðanna til Rhode-
siu.
Er þess minnzt, að á dögun-
um sagði Wilson, að ónotalegt
væri til þess að hugsa, er
„rauðir hermenn með bláa
hjálma Sameinuðu þjóðanna"
ættu eftir að sj4st í Afríku eða
ná þar fótfestu.
Wilson flutti ræðu í Borgar-
stjóraveizlunni I Lundbúnum í
gærkvöldi og endurtók, að þess
sæjust merki, að verið væri að
koma á fót lögregluríki í Rhode
siu, en mark stjórnarinnar
væri að koma þar á fót lög-
legri stjórn hið fyrsta. Hann
endurtók að landstjórinn einn
hefði rétt til valds og fram-
kvæmda.
Vamaðarorð Smith.
Ian Smith varaði embættis-
menn, lögreglumenn og her-
menn við hvers konar tilraun-
um til þess að grafa undan
valdi stjórnar og þings Rhode-
siu Hann sakaði Wilson um að
vinna að því að gera Rhodesiu
að nýlendu, sem yrði stjómað
frá London.
Öryggisráðið,
frestaði í gærkvöldi í einn
sólarhring fundi sínum um
Rhodesiu til þess að betri tími
fengist til þess að ná samkomu
lagi um framkomnar tillögur 1
málinu.
Bifreiðir grýttar.
Nokkuð er farið að örla á
þvi, að blökkufólkið sé farið
að ókyrrast. I blökkumanna-
hverfum Salisbury og víðar
hefir það grýtt bifreiðir hvítra
manna.
I
I
i
Blökkufólk í Rhodcsiu á skemmtistað undir bem iofti.
r
n g s j á V í s i s
þingsjá Vísis
þ i n g s j á V í s i s
Rætt um ai fellu húsuleigulögin úr gildi
Húsnæðismálastofnun
ríkisins.
Fundir voru í báðum deildum
Alþingis í gær og sameinuðu
þingi. Á fundi í sameinuðu þingi
fór fram rannsókn á kjörbréfi
Karls Guðjónssonar, en hann tek-
ur sæti á Alþingi í fjarveru Ragn-
ars Arnalds. Einnig' fór fram at-
kvæðagreiðsla á tveim þingsálykt
unartillögum um nefnd, en þær
eru: Samdráttur I iðnaði og kaup
Seðlabankans á víxlum iðnaðar-
ins. Samþykkt var að vísa báðum
málunum til allsherjamefndar.
Bygging leiguhúsnæðis.
Á fundi í neðri deild var fram-
haldið I. umræðu um byggingu
leiguhúsnæðis, en Einar Olgeirs-
son fylgdi frumvarpi þessu úr
hlaði í s. I. viku.
Einar Ágústsson (F) -sagðist
vera sammála flutningsmanni, að
byggingarkostnaður myndi lækka
vemlega, ef farið yrði eftir þeim
leiðum sem frumvarpið gerir ráð
fyrir. Einar sagði að það væri
ekk einhlítt að þær byggingar
sem ríkið stæði að væru ódýrari
en hjá öðrum, og benti í því sam-
bandi .. reynslu Reykjavíkurborg
ar í þessum efnum. Málinu var síð
an vísað til 2. umræðu og nefnd-
ar.
Barnaheiraili
og fóstruskólar.
Einar Olgeirsson mælti fyrir
frumvarpi til laga um aðstoð rlk-
isins við rekstur og byggingu al-
mennra barnaheimila og um
fóstruskóla. I frumvarpi þessu er
lagt til, að ríkið greiði, 1/3 rekstr
arkostnaðar við barnaheimilin. Þá
er lagt til, aö ríkið greiði hálfan
kostnað við byggingu barnaheim
ila, sem reist eru, eftir að lög
þessi öðlast gildi.
Þótt fyrst . j fremst sé gert ráð
fyrir, að sveitarfélög með yfir
1000 íbúum þurfi á þessari aðstoð
að halda, þá er þó með 3. gr.
frumv. heimilað að veita minni
sveitarfélögum einnig slíka að-
stoð. Málinu var sfðan 'i'ísað til
2. umræðu og menntamálanefnd-
ar.
Hvalveiðiskip.
Á fundi í efri deild í gær var
frumvarp til laga um heimild fyrir
ríkisstjórnina, til þess að leyfa
H.f. Ilval innflutning á hvalveiði-
skip, samþykkt óbreytt sem lög
frá Alþingi.
Þetta var fyrsta málið sem Al-
þingi hefur afgreitt á þessu þingi.
Framhaldið var 2. umræðu um
Húsnæðismálastofnun ríkisins.
Fyrstur á mælendaskrá var Karl
Kristjánsson (F) og taldi réttara
að endurskoða húsaleigulögin áð-
ur en þau væru felld úr gildi,
þvi með afnámi þeirra gæti losnað
um skriðu, fólki til óþurftar.
Félagsmálaráðherra Eggert G.
Þorsteinsson sagði að lögin um
hámark húsal. hefðu verið lengi
þverbrotin, og væru ekki til nokk
urs gagns fyrir þá sem þurfa á
leiguhúsnæði að halda. Ráðherra
vitnaði síðan I ræðu Karls Krist-
jánssonar £ sambandi við skriðu
fall og taldi að húsaleigulögin
væru nú aðeins til þess að tefja
fyrir byggingu leigulbúða sem
væru leigðar út með eðlilegum
hætti.
Fjármálaráðherra Magnús Jóns-
son sagði að hámark húsaleigu I
lögum sem ekki væri farið eftir
gæti haft ill áhrif I sambandi við
framtöl til skatts. Ráðherra ræddi
um tekjuöflun sem gert er ráð
fyrir I frumvarpinu og taldi hana
eðlilega og réttmæta. Sagði ráð-
herra að áður hefði verið frá því
skýrt, að fjár yrði aflað með fast-
eignaskatti eða einhverjum svip-
uðum ráðstöfunum. Taldi ráð-
herra að með þessari tekjuöflun
til húsnæðismála væri ekki farið
inn á tekjustofn sveitarfélaga
enda ekki á neinn hátt verið að
fara inn á fasteignagjöld sem eru
allt annars eðlis en það sem hér
er um að ræða. Ráðherra vék
nokkrum orðum að upphæð
skattsins og þeirri áætlun sem um
hann hefur verið gerð. Taldj hann
erfitt að gera nákvæma áætlun I
þessu sambandi, en gert hafi ver-
ið ráð fyrir að fá með þessum
tekjustofni 40 millj. kr. en reynsl
an hafi sýnt að aðeins helming-
ur þeirrar upphæðar hefði náðst
samkvæmt fyrri áætlun. Þær ráð
stafanir sem nú eru gerðar eru I
beinu framhaldi af þvl sem á-
kveðið var I fyrra.
Ólafur Jóhannesson (F) gerði
ýmsar athugasemdir við
ræðu fjármálaráðherrh vegna fást
eignaskattsins. Ólafur sagðist ,við
urkenna að fasteignamat væri of
lágt. Þá minntist hann á húsa-
leigulögin og sagði að þau væru
I gildi þótt þeim væri fundið
margt til foráttu, þar til ný lög
væru settt.
Fjármálaráðherra Magnús Jóns
son tók aftur til máls og ræddi
um tekjuöflun frumvarpsins og
þau rök sem fyrir þv£ liggja að
afla fjár á þann hátt sem frum-
varpið gerir ráð fyrir.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S) vék að ræðu Ólafs Jóhannes-
sonar og sagði að mörg mikilvæg
atriði í frumvarpinu væru utan
við samkomulag það sem rikis-
stjórnin gerði við verkalýðsfélög
in s. 1. sumar. Þorvaldur sagði að
málflutningur framsóknarmanna i
þessum umræðum væri bundinn
við aukaatriðin. Rakti Þorvaldur
þá þróun sem verið hefur I lánum
til húsnæðismála og sagði að
stór átök hefðu verið gerð I þeim
málum og betur að þeim staðið
heldur en gert var á vinstristjóm
arárunum.
Ný mál.
Stjórnarfrumvarp til laga um
bátaábyrgðarfélög.
Stjómarfruníivarp til laga um
Samábyrgð Islands á fiskiskip-
um. Tillaga til þingsályktunar um
stofnun klak- og eldisstöðvar fyr
ir laxfiska. Flm. Jónas G. Rafnar.
Karl Kristjánsson, GIsli Guð-
mundsson, Bjartmar Guðmunds-
son, Ingvar Glslason, Bjöm Jóns-
son.