Vísir - 03.05.1966, Page 3
VlSIR . Þriðjudagur 3. maí 1966,
3
Byrjunaratriðið í kránni. Hópur glaðværra stúdenta er þar samankominn með skáldinu Hoffmann.
Óperan hefst í kjallarakrá
Luthers. Skáldið Hoffmann kem
ur þar inn með hóp stúdenta til
þess að fá sér hressingu. Stú-
dentamir fá Hoffmann til þess
að segja frá hinum þrem konum
ÆVINTÝRIHÖFFMÁNNS
í lífi sínu og yfir rjúkandi skál
af púnsi hefur hann frásógn sina
Þannig hefst „Ævintýri Hoff-
manns“ eina óperan, sem Offen
bach samdi og hefur náð mikl
um vinsældum. Aðalpersónan
er þýzka skáldið Hoffmann en
aðrar persónur óperunnar eru
teknar úr ævintýrafrásögnum
Hoffmanns sjálfs.
Frumsýningin verður á föstu
dag og brá myndsjáin sér á eina
æfinguna fyrir skömmu
Leikstjóri er Leif Söderström
ungur og efnilegur Svíi, sem
Hinn ólánssami Hoffmann verður að viðurkenna sér til almenns athlægis að hafa elskað brúðu. Nik-
laus, vemdarvættur hans, Sigurveig Hjaltested og Magnús Jónsson sem Hoffmann.
í verkstæði dúkkusmiðsíns Spalanzanis. Coppelius, Guðmundur
Jónsson og Spalanzanis, Guðmundur Guðjónsson eigast við.
heimsótti Iandið í fyrra og leik
stýrði Madame Butterfly. Jafn-
framt leikstjórninní gerir Söder
ström öll leiktjöld og.iuppkast
að búningum.
Magnús Jónsson syngur hlut
verk hins ólánssama skálds Hoff
manns, Guðmundur Jónsson
með sína bassarödö lelkur djöf-
ulinn sjálfan holdi klæddan í
fjórum persónum. Hinn góða
anda Hoffmanns, Niklaus sem
tónskáldið ákvað að yrði sung-
inn af mezzo-sópran leikur Sig-
urveig Hjaltested. Hinar 3 konur
í Iífi Hofftnanns eru dúkkan Ol-
ympia, sem sungin er af Eygló
Viktorsdóttur, \ntonia, sem
Svala Nielsen syngur og Giuli-
etta, vændiskonan, sem Þurjður
Pálsdóttir syngur.
Ýmsir aðrir okkar þekktustu
söngvara syngja í óperunni sem
er eitt erfiðasta verkefni sinnar
tegundar, sem Þjóðleikhúsið hef
ur ráðizt í.
í höll Giulietta í Feneyjum tekur Hoffmann þátt í miklum fagnaði. Frá vinstri: Niklaus, Sigurveig Hjaltested og Hoffmann, Magnús
Jónsson.