Vísir


Vísir - 02.07.1966, Qupperneq 8

Vísir - 02.07.1966, Qupperneq 8
8 VÍSIR . Laugardagur 2. júlí 1966. VISIR Utgefandi: BlaSaOtgátan VISIR Ritstjórl: Gunnar G. Schram Aðstoðarrltstjðrl: Axel Thorstelnson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn ó. Thorarensen Auglýsingastj.: Malldór Jónsson Auglýsingar Þingholtsstræti 1 Afgreiðsla: Túngötu 7 Rltstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 7,00 elntakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f Óbreytt víðhorf það er ekki óalgengur misskilningur að menn hyggja að mikilvægi íslands í varnarkerfi vestrænna þjóða sé nær að engu orðið hin síðustu ár, í heimi lang- drægra flugskeyta og kjarnorkukafbáta. í ágætri ræðu, sem utanríkisráðherra, Emil Jónsson flutti við upphaf Atlantshafsráðstefnunnar á föstudaginn benti hann einmitt á að enn væri landið hið mikilvægasta sem birgða- og f jarskiptastöð í miðju Atlantshafi. Það er þess vegna, sem þjóðir Atlantshafsbandalagsins telja enn sem fyrr mikilvægt að ísland sé aðili aö samtökum þeirra, þótt þjóðin leggi ekki fram neinn her. Okkar hagur af þessari varnarsamvinnu, þessu sterka bandalagi, er í dag jafn augljós sem fyrr. Hann er sá að skildi öflugustu hervelda heims er fyrir ís- land ætíð brugðið í varnarskyni. Við þurfum ekki sjálf ir að hafa af því armæðu eða ærinn kostnað að halda uppi okkar eigin vörnum og við tökum heldur ekki á okkur hættu hinnar litlu hlutlausu þjóðar. Þáð er vegna þessa sem hvorki kommúnistar eða Þjóðvarn- armenn hafa náð hlustum þjóðarinnar, er þeir tala um varnarmálin. Annað mál er það, að í framtíðinni er eðlilegt að við íslendingar leggjum fram okkar skerf til varna landsins að því er varðar önnur störf en hermennsku, svo sem störf við tækniþjónustu og samgöngukerfi. Um það verður varla deilt. Að bræða smjörfjallið JJvers eiga Reykvíkingar að gjalda í mjólkursölu- málum? Bæði íbúar Akureyrar og Suðurnesja fá mjólk í nýjum og prýðilegum neytendaumbúðum, þar sem heimilið getur m.a. keypt í einu mjólk til vikunnar. En Mjólkursamsalan í Reykjavík heldur fast við hin- ar gamaldags hyrnur. Smjörfjallið er bændum eðli- lega áhyggjuefni. En svo virðist ekki vera með um- boðsmenn þeirra hjá Mjólkursamsölunni. Þeir gera sitt til að stækka fjallið daglega með því að hvergi er hægt að fá keypta mjólk á kvöldin í allri Reykjavík og verða íbúar höfuðborgarinnar að fara í nágranna- byggðarlög til þess að ná í mjólkurdropa eftir kl. 6 á daginn og síðdegis á laugardögum. Og nú hefur Sam salan jatnvel uppi ráðagerðir um að loka mjólkur- búðunum alveg á sunnudögum! Þá færi enn meiri mjólk í vinnslu og smjörfjallið stækkaði að sama skapi. Á tímum Thors Jensens og Mjólkurfélagsins var mjólkin send heim í Reykjavík. Nú er sú þjón- usta alveg úr sögunxú, jafnvel þótt neytendur séu fúsir til að berga fyrir hana. Myndi hún þó vissu- iega auka mjólkursöluna, ekki síður en það einfalda ráð að byrja að auglýsa mjólk eins og aðrar þjóðir gera. Rpykvíkingar eru margir ættaðir úr sveitum og vilja gjarnan hjálpa bændum til að minnka smjör fjallið með því að auka mjólkumeyzlu. Óskandi væri að ráðamenn Mjólkursamsölunnar vildu einnig veita þar liðsinni sitt. Bylting án blóðsúthellinga í Argentínu Peronistar eru taldir 6 milljónir, en flokkur þeirra er klofinn Juan Carlos Ongobia — skipaöur forseti. ^ jgylting án blóðsúthellinga átti sér stað í Argentínu fyrri hluta vikunnar. Illia forseta var vikið frá, en herinn tók völdin í landinu og fer nú þriggja manna hemaðarlegt ráð (junta) með stjóm. Það var Pascual Pistarini, hershöfðingi, yfirmaður land- varnanna, sem lét til skar- ar skríða, eftir að Illia for- seti hafði vikið honum frá og kvatt til herlið sér til vamar í forsetahöllinni. Leit út fyrir í fyrstu, að þetta lið myndi ekki bregðast honum, því að það tók sér stöðu við allar inngöngudyr og í göngum í höllinni, en sam- tímis var lesin yfirlýsing í út- varp frá Pistarini þess efnis, að herinn, flugherinn og flotinn, heföu fulit vald á öllu í landinu, og myndu sjá um að ró héldist og friður. Pistarini sendi herlið til þess að umkringja höllina og allt átti þetta sér stað án þess al- menningur í Buenos yrði var við — allur þorri manna vissi ekk- ert um hvað var að gerast fyrr en menn hlustuðu á útvarps- fréttimar. Bandaríkin og Venezuela rufu stjómmálatengsl við Argentínu, Illia forseti — hrakinn frá völdum. eftir að Illia hafði verið vikið frá, Hann er 65 ára og hætti störfum sem héraðslæknir í þorpi nokkru fyrir 3 árum til þess að taka við forsetaembætt- inu. Óstaðfestar fréttir herma, að hann verði hrakinn í útlegð eða kyiTsettur á eynni Martin Garcia, þar sem Arturo Frond- izi fyrrverandi forseti var ein- angraður eftir byltinguna, sem herinn gerði 1963 Pascual Pistarini — hafði her, flota og flugher aö baki sér, er á reyndi. Óstaðfestar fréttir hermdu, að varaforsetinn, Carlos Perette væri flúinn yfir La Plata-fljót til Uruguay og myndi leita þar hælis. MEÐ GÆTNI OG Á GRUNDVELLI LAGA Illia stjórnaði af gætni og frjálslyndi og á grundvelli laga, en í potti hemaðarsinnanna kraumaöi vegna óánægjunnar yf ir, aö peronistum og kómmún- istum var klappað með silki- hanzka á höndum. Og að lok- um skarst í odda milli hershöfð- ingjanna og Illia og þá sauð upp úr pottinum. Það, sem hér líggur á bak við, er, að peronistar hafa ver- íð að hafa sig æ meira i frammi og herinn haft beyg af. Rétt fyrir byltinguna hafói Illia fyrirskipað að taka Pistar- ini höndum, en hann lýsti þeg- ar fyrirskipun forsetans ógilda. og krafðist þess, að hermála- herranum Leopold Suarez, yröi vikið frá. „MIÐDAGUR — HIN BEINA ORSÖK“ í yfirlitsgrein segir, að hin beina orsök þess að til bylting- arinnar var stofnaö nú, hafi vet ið miðdegishóf, sem Caro hers- höfðingi, yfirmaður hersveit- anna I Rosario, eða þriðja mesta herumdæmis landsins — sat án leyfis hersins. Auk Caro’s sat veizluna bróð- ir hans, sem er þingmaður og úr flokki peronista, og vill að Per- on, hinn útlægi þjððarleiðtogi, sem dvalizt hefur 11 ár 1 Mad- rid, komi heim aftur. Þetta var fyrir viku (föstudag s.l.). í veizl unni átti að ræða deiluna milli Suarez hermálaráðherra og yf- irstjómar hersins — eða eins og herstjómin síðar sagði: ... „ hvemig hindra mætti að peron- istar næðu aftur völdunum. Þess hefur annars lengi orðið vart, að samkomulag var ekki svo sem vera átti milli forsetans og yfirmanns landvamanna annars vegar og æðstu manna hersins hins vegar. FLOKKUR PERONISTA FJÖL- MENNUR, EN KLOFINN Það er sagt, að 6 milljónir manna í Argentínu aðhyllist peronisma — en peronistar eru klofnir, og það var til að reyna að sætta þá, aö Franco fyrir nokkru sendi hina ungu konu sína til Argentínu. — í átta fylkjum þar sem kosningar hafa farið fram á undangengnum mánuðum hafa peronistar sigr- að í öllum nema einu. Um hvað ofan á verður nú þora menn litlu að spá.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.