Vísir - 24.08.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 24.08.1966, Blaðsíða 8
8 VISIR Otgefaadi: Blaðafltgátan VISIR Ritstjðri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjðri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jónas Kristjánsson Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Auglýsingar Þingholtsstræti 1 Afgreiðsla: Túngötu 7 Rltstjórn: Laugaveg: 178 Sfmt 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuöi innanlands. i lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Vlsis — Edda h.t Er nafnbreyting í aðsigi? ]y[álgagn kommúnista hefur það eftir Einari Olgeirs- syni s.l. sunnudag, að „umbrot séu í aðsigi í stjóm- málum Norður og VesturEvrópu, og eigi síður hér á landi. Sósíalistiskir flokkar séu í umsköpun. Flokka- vald almennt tekið til endurskoðunar“. Segir Einar ennfremur, að nú sé „alvarlega til íhugunar, hvort samfylking er ekki heppilegasta form þeirra pólitískra samsteypna, er sameina skulu frelsi út á við og inn 3 viö“. Vísi er ókunnugt um, hvaðan Einari kemur sú vitneskja, að umbrot séu í aðsigi í stjómmálum Norð- ur- og VesturEvrópu og hér á íslandi. Má vera, að það sé aðeins óskadraumur hans sjálfs. Honum hætt- ir stundum til að gera ekki glögg skil á draumi og veruleika, þegar hann talar eða ritar um stjómmál. Það er ekki nýtt að Þjóðviljinn tali um „samfylk- ingu“ og „samsteypu“. Eitt nafnið á flokki kommún- ista er „Sameiningarflokkur alþýðu“, og Alþýðu- bandalagið átti að verða samsteypa allra vinstri sinn- aðra afla í landinu, að sögn Þjóðviljans og ýmissa for- ustumanna í liði kommúnista. Eins og flestir vita fer fylgi kommúnista þverrandi hér á landi, og á Norðurlöndum og í Bretlandi má kalla að þeir séu fylgislausir. Og sama er að segja um Vestur-Evrópu alla. Hér á landi hafa þeir, eins og alþjóð veit, hvað eftir annað gripið til þess ráðs, að skipta um nafn á flokknum. Hin nýja nafngift hefur hverju sinni verið valin með það fyrir augum, að véla til fylgis við flokkinn vinstri sinnað fólk, sem ekki er kommúnistar. Þetta herbragð hefur þó ekki heppnazt betur en svo, að flokkurinn hefur um langt skeið verið að tapa fylgi, og nokkurn veginn víst að hann nær aldrei aftur því hlutfalli í kosningum, sem hann hafði þegar vegur hans var mestur. Þeirri þró- un fá engar „samfylkingar" eða „samsteypur“ breytt, eins og reynslan hefur þegar sannað. Þessar hugleiðingar Einars um „sósíalisma og samfylkingu" benda mjög til þess, að hann telji nú tímabært að flokkurinn skipti ennþá einu sinni um nafn. Það er a. m. k. víst, að hann rís varla undir því langa nafni, sem hann hefur nú. Þjóðviljinn hefur það líka eftir Einari, að núver- andi ríkisstjórn hafi „með stjórnleysi glatað tæki- færum bezta góðæris, sem yfir ísland hefur komið“, og þess vegna þurfi nú „umsköpun" í stjórnmálum. Eitthvað hlýtur að vera bogið við hugsanagang manns sem þannig talar. Allar staðreyndir vitna gegn þess- ari skoðun. Alþýða íslands hefur aldrei búið við betri kjör en nú, atvinna aldrei meiri og hagur landsins út á við aldrei betri. Er ^ð hliðsjón af þessu er ef til vill skiljanlegt, að kommúnistar þurfi enn að skipta um nafn! VlSIR. Miðvikudagur 24. ágúst 1966. i——i „SAS stafar alvarleg hætta af Loftleiðum44 „Litli bróðir frá sögueynni..." Á morgun hefst sem kunnugt er í Kaupmannahöfn fundur fulltrúa utanríkisráðuneyta Norðurlanda (íslands, Noregs, Danmerkur og Svfþjóðar), vegna tilmæla Loftleiða um að fá lend- ingarleyfi fyrir hinar stóru RR- 400 flugvólar sínar í löndunum þremur, sem að SAS standa. Og eins og að líkum lætur er mlkið um Loftleiöir skrifað um þess- ar mundir hjá „bræðraþjóðun- um“ og ekki allt beinlínis með blæ velvildar og skilnings, og m.a. var SAS sjálft á feröinni með greinargerð og tölur löngu fyrirfram og virðist það hafa verið létt verk fyrir Loftleiöir, að sýna fram á, að sá grundvöll ur sem staöhæfingar í greinar- gerðinni byggðust á, fékk ekki staðizt. Hér veröur nú nokkuö sagt frá efni greinar, sem birtist í Berlingske Aftenavis í Kaup- mannahöfn sl. laugardag og nefnist „Litli bróðir frá sögu- eynni... SAS stafar aivarleg hætta af Loftleiöum“ og er sagt frá köflum úr greininni sem sýnishom um þaö hvemig um máliö er skrifaö f Noröurlanda- blöðin nú. 1 greininni kemur fram, aö al- menningsálitið sé Loftleiðum í vil, og sé það vegna þess að ó- dýru fargjöldin séu ..snaps fá- tæka mannsins" eins og þaö er orðaö — og svo kemur einnig fram, aö LoftleiÖir hafa „tromp- spil á hendi" og þetta trompspil nefnist Keflavík (flugvöllurinn) — þess vegna geti Loftleiöir haft lægri fargjöld en IATA á- kveður og séu borin fram mót- mæli við CAB (flugmálastjóm- ina í Bandaríkjunum) yppti menn þar öxlum og segja: Seg ið þeim það þama í Pentagon (aðalherstjómarstöð Bandaríkj- anna) og svo er jafnvel í grein þessari minnzt á það að í upp- hafi hafi guð almáttugur ákv. stöðu Islands á hnettinum — og manni skilst, að við öllu þessu beri lítinn árangur að amast. Og verður nú hér sagt frá nokkmm köflum í greininni. Með þessum samkomulagsum leitunum, segir í greininni, bein ist athyglin aftur að deilu Loft- leiða og SAS, deilu, sem hafi staðið í mörg ár og með hana sem bakhjarl, hafi menn dregið upp í hugum sér „rnyndir" af Loftleiðum og SAS, sem erfitt muni reynast að breyta. „Myndin af Loftleiðum er myndin af litlum hópi hug- djarfra íslendinga, sem finna á fjöllum uppi mannlausa flugvél sem hefur verið nauðlent þar. Hún er aö hálfu í kafi í snjó. Þeir grafa hana upp, gera við hana og hafa þar með fengið grunn til þess aö stofna flugfé- lag, sem þeir reka með hagnaði af því að fargjöldin eru lág, miklu lægri en þau, sem önnur flugfélög krefjast... Þessi mynd af Loftleiðum er rétt — en segir ekki alla söguna. Hin myndin, myndin af SAS er af flugfélagi með 3 rikisstjórn ir að bakhjarli, „telst til hinna stærstu flugfélaga í heiminum og víðkunnustu. SAS — félagiö — sem á heilan flota af farþega þotum og flýgur til staða út um allan heim. Hið volduga félag, sem ekkert kýs frekara en að knosa „litla bróður“, sem er duglegur, en gerir stóra bróöur hinn mesta óleik.“ ... Einnig þessi mynd er rétt, en segir ekki alla söguna. SAS vill ekki knosa „litla bróður,“ sem er samkeppni á jafnræðisgrund- velli. Loftleiðir hafa aldrei haft alvarlegan áhuga á samstarfi. V ' ALMENNINGSÁLITIÐ MEÐ LOFTLEIÐUM Almenningsálitið er fortaks- laust með Loftleiðum, segir í greininni. Hin lágu fargjöld fé- lagsins til Bandaríkjanna eru „snaps fátæka mannsins“ — sem enginn — og sérstaklega ekki SAS — má hrófla við. Sag an um flugvélina og fönnina eyk ur samúöina, og rökin gegn SAS eru þessi: Sjá, hve ódýr far- gjöld Loftleiðir geta boðið upp á Það hlýtur að vera eitthvað bog- ið við þá í SAS, ef þeir veröa að hafa svo há fargjöld sem reynd ber vitni á sömu flugleið um. Og ef þetta er að kenna IATA-ákvæðum, hvers vegna segir SAS sig þá ekki úr IATA? Þá fengi' félagið þá samkeppnis aðstöðu á jafnræðisgrundvelli er kvartað er yfir, að SAS hafi ekki. Þetta kunna að sýnast haldgóð rök en þau eru það ekki TVÖ MEGINATRIÐI Það eru tvö meginatriöi, sem ekki er almennt kunnugt um og er ekki við því að búast, en of- angreind rök hrynja fyrir þess- um tveimur meginatriðum. 1. Án aðildar að IATA væri SAS ekki tU. 2. Litli bróðirinn íslenzki knár þó hann sé smár, ræð- ur yfir trompspili, sem af leiðir, að Loftleiðlr er öfl- ugra en nokkurt annað flug félag í heiminum. Við skulum nú líta á aðild SAS að IATA, sem er skamm- stöfun á Intematlonal Air Trans port Association — og er hér um að ræða samtök eða sam- bandsfélag stóru flugfélaganna SAMSTARF ÞEGAR ARIÐ 1919 Þegar árið 1919 höfðu stjórn- endur fimm Evrópuflugfélaga komizt að raun um, að ekki var hægt að stunda alþjóða á- ætlunarflug án samstarfs. Elzta flugfélag heims „Det Danske Luftfartselskab" — Danska flug félagið — skammstafað DDL — hinn danski félagi í SAS — var eitt þessara fimm flugfélaga, sem 28. ágúst 1919 stofnuðu IATA. Stofnandi og fyrsti for- stjóri DDL Willie Wulff var „höfundur alþjóðafarmiðans", sem í næstum óbreyttu formi er í notkun um heim allan hjá þeim um það bil 100 flugfélög- um, sem eru í IATA, og annast 96% af alþjóða flugferðum í heiminum (eru þá undanskilin Sovétrikin og fylgirfki þeirra). Ekkert einstakt flugfélag get- ur haft með höndum flugferða- þjónustu um heim allan, þess vegna eru flugferöir á leiðum bessara félaga samræmdar og '“oulagðar í öllum greinum nar skilgreint í greininni). Þetta-kerfi hefir SAS byggt upp á næstum hálfrar aldar ferli. Fyrir flugfarþegann hefir þetta þá þýöingu, að hvar sem er inn- an vébanda IATA fær liann sömu þjónustu hvar sem er, fyr- ir sjálfan sig, fyrirgreiðslu með flutning o. s. frv. Þá er í grein- inni getið annarra ástæðna, sem knýja flugfélögin til samstarfs, Framh. á bls. 5. <a

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.