Vísir - 27.09.1966, Qupperneq 3
/
Keppninrti lauk við Höfðatún
meö því að ökumenn óku yfir
skífur.
Lokaþrautin í góðaksturskeppninni: Ekið yfir skífu og það virðist
hafa tekizt vel hjá ökumanni númer 14. Keppnisbílarnir voru
merktir með gulum biöðrum.
Við Góðtemplarahúsið atti að aka eins nálægt vegg og ökumenn
framast þorðu og hér er verið aö mrela fjarlægðina hjá einum
ökumanni, eftir að hann hafði stöðvað bifreiöina.
Úrslitin eru ekki kunn ennþá,
þar sem dómnefnd sem skipuö
var fulltrúum Iögreglunnar, Bif-
reiðaeftirlitsins og BFÖ þarf að
bera vel saman bækur sínar áö-
ur en hægt er að sjá hver hef-
ur orðiö sigurvegari. Meðal þátt
takenda voru sigurvegari og
númer 2 úr síðustu góðaksturs-
keppni, sem fram fór 1963, þeir
Ómar Ragnarsson og Úlfar
Sveinbjömsson. Hvort þeir
halda titlum sínum verður fróð-
legt að vita.
Keppnisstjóri var Ásbjöm
Stefánsson,
í SIR . Þriðjudagur 27. september 1966.
IM
Vestur við Háskólabió sýndu ökumenn hæfni sina i að aka eftir ýmsum umferðarmerkjum.
KEPPT í GÓÐAKSTRI
Hve langt skulu háljós lýsa
fram á veg ?
60 m., 100 m. eða 120 m. ?
Hve langt skulu lágljós lýsa
fram á veg ?
15 m., 30 m. eða 60 m. ?
Geta lesendur Myndsjárinnar
svarað þessari spumingu ?
Þetta var ein af 10 spurning-
um sem þátttakendur í Góð-
■ aksturskeppni Bindindisfélags
ökumanna áttu að svara á laug-
ardaginn var, er þeir reyndu og
sýndu hæfni sína í akstri.
Það kom á daginn að öku-
menn voru ekki alveg vissir á
þessu atriði, eins og reyndar
fleimm, en rétt svar er, að há-
Ijós skulu Iýsa 100 m. og lág-
Ijós 30 m.
Góðaksturskeppnin, sem var
að þessu sinni fjölskyldukeppni
þar sem ökumaðurinn átti aö
hafa farþega í bílnum, fór i alla
staði hið bezta fram.
KI. 2 á laugardag safnaðist
stór hópur manna saman við
Bifreiðaeftirlitið við Borgartún,
bæði tilvonandi þátttakendur
svo og áhorfendur, sem vildu
sjá er ökumenn ækju úr hlaöi.
Er bílar höfðu verið athugaöir
gaumgæfilega og víst var að
þeir væru keppnishæfir hélt
tyrsti af 21 keppenda af stað.
Voru keppendur flestir ungir
menn, eða réttar sagt ungt fólk,
þvi að í hópnum var ein stúlka,
nýbúin aö taka bílpróf og þvi
með allan Iærdóminn ferskan í
kollinum.
Ekið var í ótal krókum um
bæinn allt austán frá Háaleitis-
braut og vestur að Háskólabiói
og víða á leiðinni þurftu öku-
menn að leysa ýmsar ökuþraut-
ir. Við 23 staði voru varðmenn
sem gættu hvort ökumenn
hefðu framfylgt vissum atriðum
Einna flest atriöin þurfti að at-
huga á gatnamótum Háaleitis-
brautar og Miklubrautar en þar
óku ökumenn austur Miklu-
braut, beygðu til vinstri inn á
Iláaleitisbraut, síðan til hægri
við Fellsmúla og aftur til hægri
og óku suður Háaleitisbraut og
enn kom hægri beygja inn á
Miklubraut. Þama áttu varð-
menn að athuga eftirtalin atriði:
Stefnuijós, rétta vinstri beygju,
stefnuljós, rétta hægri beygju,
stefnuljós, rétta staðsetningu
fyrir hægri beygju, rétt stöðvun
við stanzskyldu, rétta hægri
beygju.
Háaleitisbrautargatnamótin
veitast flestum ökumönnum
erfiö og myndast þar oft um-
ferðarhnútar og svo varð í Góö-
aksturskeppninni að ýmsir voru
ekki alveg vissir á beygjunum.
Vestur við Háskólabíó áttu
keppendur að aka eftir um
ferðarmerkjum sem komiö hafði
verið fyrir á opnu svæði og við
Góðtemplarahúsið átti að aka
upp á þverplanka og bakka að
vegg og síðan átti að sýna kunn
áttu i hjálp í viðlögum.
Er ekið var um Snorrabraut
var stanzað viö Umferðardeild
lögreglunnar, gengið frá bílun-
um og ökumenn siðan spurðir
10 spuminga, m.a. fyrrgreindrar
spumingar.
Við Hallgrímskirkju þurfti að
Ieysa þrautir, cins og t.d. að
aka áfram og bakka síðan eftlr
planka, fella keilur, bakka i bíl-
skúr og fleira.
Ómar Ragnarsson, sigurvegari úr síðustu góðaksturskeppni mætti
með Bronco-inn „Hveli“ og virtist hann ekki eiga i erfiöleikum
meö að bakka með annað hjólið á planka.
I