Vísir - 29.10.1966, Side 3
\ V í SIR . Laugardagur 29. október 1966,
3
Hann er ekki hár í loftinu þessi, enda var hann 6 ára rétt utan
viö húsið, þar sem pabbi hans var að byggja. — Og hann tók
hamarinn í fangiö, þegar lögreglukonan sagði honum að klukkan
væri orðin 8 og hann ætti að vera kominn inn. Síðan sótti hann
spýtuna sem hann var að smíða og flutti sig inn til pabba.
böm sín út í myrkrið yfir um-
feröargötur og að sjoppuopun-
um til þess aö verzla, kannski
til þess aö spara sjálfu sér
sporin. Ganga þannig í berhögg
við almennar og nauðsynlegar
reglur, neyða bömin bókstaf-
lega til þess að gerast brotleg.
Þau spor geta orðið dýr, Jafn-
vel þó að ekkert slys ber; að
höndum. — Annars vegar sekt-
armeðvitundin og hins vegar sá
hættulegi og alltof almenni
hugsunarháttur, að þegar ein
regla sé brotin skipti ekki svo
miklu með hinar jafnvel hinar
stærri.
Sem betur fer virðast for-
eldrar einmitt taka bessum mál
um af skilningi og fullri alvöru
í flestum tilfellum, en þó er til
það fólk sem lætur sig þessa
hluti litlu varða í hugsunarleysi,
skeytir engu um útivist barna
sinna á kvöldin, eða jafnvel
stuðlar aö henni.
Barnaverndarnefnd hefur að
undanförnu haft í frammi áróð-
ur gegn útivist barna, slíkur
áróður er einnig hafður f
frammi í skólunum. Og lögregl
an hefur tekið að sér fram-
kvæmd eftirlits með útivist
bama ásamt barnavemdar-
nefnd.
Vísir fékk að fylgjast með
einni slíkri eftirlitsferð uiij eitt
hverfi borgarinnar fyrir
skömmu og fylgjast með af-
skiptum hins opinbera af úti-
vist, sem veröur að teljast af-
brot, þessara yngstu þegna
sinna.
Slíkt 'eftirlit er auðvitað ekki
í þeim tilgangi að „hanka“ böm
in, standa þau að verki, eins og
afbrotamenn, heldur til þess að
leiða þeim og foreldrunum, þá
sjaldan þess gerist þörf, fyrir
sjónir nauðsyn þess að böm
séu inni á kvöldin. Sagði fólkið,
sem unniö hefur að þessu eftir-
liti undanfarin kvöld að því
væri undantekningarlítið vin-
samlega tekiö af foreldrum, þeg
ar komið væri heim með böm
þeirra og þessi herferð, sem
gerð hefur verið undanfarið
virtist hafa mikil áhrif til hins
betra.
„Ég á heima þama,“ sagði sá stutti fremst á myndinni, sem tekin er framan við eltt söluopanna í
borginni.
Eftirlitsfólkiö safnaðist stman í skóla þess hverfis, sem fara á um það kvöldið. I betta sinn var þáð
Árbæjarskóli. Á myndinni eru talið frá vinstri: Ásta Björnsdóttir frá Barnaverndarnefnd, Reimond
Steinsson, lögregluþjónn, Auður Elr Vilhjálmsdóttir frá kvenlögreglunni, Sigrún Schneider starfs-
kona Bamavemdarnefndar og Guðlaug Sverrisdóttir lögreglukona.
Haustmyrkriö felur óneitan-
lega fjölda freistina. Hver sá
ekki einhverja hulda leyndar-
dóma í kvöldhúminu á haustin,
þegar hann var ungur. Og hvern
þyrstir ekki í leyndardóma,
kannski einkum, þegar þeir eru
forboðnir?
En haustnóttin felur oftast
allt annað, en það sem fyllir
ímyndun ungs drengs eða
stúlku. Hún felur í sér hættur
af umferðinni, sem sífellt fær-
ist í aukana, hættur af vafa-
sömum vegfarendum. — Um-
ferðarslys eru aldrei tíðari en
á haustin og á engum eins tíö
og bömum. Þó aö Reykjavík
sé ekki oröin nein stórborg og
glæpir hennar jafnist ekki á við
það sem gerist í slíkum borg-
um, á hún þó sínar skugga-
hliðar og þeir atburðir hafa
gerzt, sem slegið hafa fólk óhug
og kvíða.
Þó aö slys og glæpir heyri
til undantekninga, sem betur
fer, þá er önnur hætta og ó-
Ijósari, sem stöðugt bíður
bama, sem eru á ferli á kvöld-
in. — Það er hálffullorðið fólk,
sem leitar afþreyingar á sælgæt
issölum borgarinnar, flest ungl-
ingar, sem ekki hafa fengið
aðra lausn á eirðarleysi gelgju-
skeiðsáranna, en „sjoppugötin"
og sígarettumar, sem þeir stel
ast til að reykja þar. Slíkum
samkundum fylgir jafnan annar
legt andrúmsloft, blandið van-
hugsuðu tali, sem sízt er hollt
bömum.
Það er því sorglegt, að hugs-
andi fólk skuli beinlínis reka
Og það er ekki skilið við bömin fyrr en þau eru komin inn heima.
Þessir þóttust heldur betur menn með mönnum og sýndu lögreglu-
konunni nafnskírteini upp á að þeir væru orðnir 12 ára og mættu
þar meö vera úti til kl. 10. — „Ég á meira að segja 12 ára afmæli
í dag,“ sagði sá til vinstri, kotroskinn.
Utivist barna