Vísir - 29.10.1966, Side 5
5
*} VÍSIR. Laugardagur 29. októher J98S.
I
(
j
I
(
■Á: i
Haldió
.
ili
Verðandi mæöur fara í af- fimitíma, rythmaleikfimi eða
slöppunarleikfimi til þess að jazzballett til að liöka sig og
vera betur undir fæðinguna bún styrkja vöðvana, sem slappazt
ar og nokkru eftir að barnið hafa við fæðinguna.
er fætt fara þær gjarnan í leik- Ungbamið, sem „rekur“
Það hafa aliir gott af að „hjóla“, einnig ungbörn. Teygið og réttið
úr fótleggjunum til skiptis.
mömmuna í leikfimi, þarf líka
sína leikfimi. Sænska neytenda-
blaðið Rád og Rön, sem Kvenna-
síðan hefur áður vitnað í, birti
fyrir skömmu grein um ung-
barnaleikfimi og seríu af mynd-
um til leiöbeininga.
I’ greininni segir, aö leikfim-
ina megi ekki byrja, fyrr en
barnið er orðiö fjögurra mánaöa
gamalt, og það verði að fara
hægt af stað. Bezta „íþrótta-
svæðið“ er stórt borð með
þykku teppi á.
Greinarhöfundur segir, aö
meiningin meö leikfiminni sé
ekki að gera barnið að litlu
„vöðvaknippi“, heldur aðeins aö
styrkja það svolítið. En mæður
eru þó minntar á, að bezta al-
hliða hreyfingu.fái barnið þó á-
vallt með því að fá aö liggja
frjálst og velta sér á teppi á
gólfinu.
í sama blaði er grein um
barnastóla, rólur og þess háttar
ungbarnatæki og segir læknir
við barnasjúkrahús þar, að slík
tæki séu ekki nauðsynleg heil-
brigðum börnum og því eigi
ekki að nota þau nema nauö-
syn beri til, t. d. á barnaheim-
ilum og barnasjúkrahúsum.
Við skulum líta á meðfylgj-
andi myndir og skýringar með
þeim óg sjá hvaða leikfimiæf-
ingum ungböirn hafa bezt af.
Svona má hressa upp á garnla vetrarkjólinn. Líning undir hnapp-
ana, kragi, mansjettur og belti geta gert kjólinn óþekkjanlegan.
Eins og sjá má hefur beltið verið flutt úr mittinu niður á mjaðmir
og þar með er gamli kjóllinn oröinn svo til óþekkjanlegur. í stað
gamla bundna beltisins má loka nýja beltinu með skemmtilegri
spennu.
Um frystan fisk
Takið undir handarkrika bamsins og haldið því
eins og myndin sýnir.
handarkrikann. Gott fyrir hálsvöðvana.
JJjúpfryst fiskflök þurfa 3—4
stundir til að þiðna að fullu.
En þar serr mörgum húsmæðr-
um, einkum þeim, sem vinna
úti finnst þetta of langur tími,
má flýta þessu svolítið.
Fiskflökin má t. d. matreiða
á eftlrfarandi hátt:
Frosna fiskstykkið er lagt á
alúmínpappír, salti stráð yfir og
ef til vill smjörklínu og alúmín-
pappírnum pakkað vel utan um
fiskinn. „Pakkinn“ er settur í
sjóðandi vatn og látinn sjóða í
20 mínútur.
Ef fiskurinn er látinn þiðna
„sjálfur" ríður á að sióða hann
strax og allt frr.st er farið úr
honum svo aö hann missi ekki
neitt af safanum og bragðist þvf
sem bezt.
Þegar steikja á djúpfrystan
fisk er bezt að skera fiskstykk-
ið í þykkar sneiðar, áður en það
fer að þiðna (gott að setja hníf
inn fyrst í heitt vatn).
Hitt og þetta
jViöursuöuvörur þykja nú orð
ið ómissandi, eins og reynd
ar frystar matvörur — enda
má segja að niðursoðnar og
frystar matvörur séu undirstaða
fyrir því að fölk geti lifað í
fjölmennum samfélögum, þar
sem erfitt er aö hafa ávallt nýj
ar matvörur á boöstólum.
Þegar matvörur eru soönar
niður drepast vissir gerlar, þann
ig að fæðan helzt fersk lengi —
getur haldizt óskemmd í nokk-
ur ár. En um leið og fæðunni
er tryggð þessi ending gerist
annað, fjörefnunum og steinefn-
unum er eytt. Hitaeiningafjöld-
inn helzt aftur á móti nokkurn
veginn óbreyttur.
Athugun sem gerð var á nið-
ursuðuvörum leiddi í Ijós að
það er full ástæða til að áminna
fólk að vera vel á verði gegn C-
fjörefnisskorti, einkum á vet-
urna, þegar lítiö er um nýtt
grænmeti á markaðnum og
notast verður við niðursoðið
grænmeti, eða grænmeti sem
geymt hefur verið ,,nýtt,“ t.d.
kartöfiur, en fjö.refnið í þeim
„gufar“ smám saman upp.
C-fjörefni varöveitist betur ef
grænmetið er fryst, en þegar það
er soðið niður, einkum ef um
sykursultu er aö ræða.
Frysting er sömuleiðis bezta
aðferðin til að geyma kjöt. Þeg-
ar kjötið er fryst fara engin
fjörefni forgörðum, en þegar það
þiðnar aftur má gera ráð fyrir
að 10-15% af B-fjörefnunum
eyðist. Þegar kjöt er soöið
niður tapast mun meira af þessu
fjörefni, vegna þess hve kjötið
er soðið við mikinn þrýsting.
Að lokum er vert að minna
húsmæöur á að láta matinn ekki
standa lengi á heitri plötu og
„malla“ eftir að hann er soðinn.
Þegar grænmeti hefur verið látið ,
„mallá“ eina klukkustund má
gera ráð fyrir að fjörefnistapið
sé 40% og eftir tvær stundir
er tapið orðiö 60-70%. Ef fjöl-
skyldan getur ekki öll borðað á
sama tíma, borgar sig ekki aö
láta matinn standa á plötunni
þaö er betra að leyfa honum að
kólna og hita hann upp seinna
því að við upphitunina tapast
ekki nema 10-20% af fjörefnun-
um.
UNGBARNALEIKFIMI
— styrkir bak og fótleggi
Vöðvamir í iljunum fá góða Þessi hreyfing styrkir fótleggi Haldiö fótunum föstum við borð
þjálfun ef bamið er látið grípa og magavöðva: Rétt úr fótleggj- ið með annarri hendi og takið
með tánurn um bb'ant eða unum og þeim ýtt varlega upp hinni um báða úlnliðina og togið
penna. á við að maganum. barnið rólega upp I réttstöðu.
Þessi æfing á aö vera góð fyrir
alla vöðva.