Vísir - 29.10.1966, Blaðsíða 16
VISIR
Laugardagur 29. október 1966
Flugfélagið í Frankfurt:
segir Niels P. Sigurðsson i utanrikisráðuneytinu
en eins og fyrr segir er fastlega
búizt við því að viðbrögð Þjóð-
verja verði jákvæð.
Forsaga þessa máls er sú, að i
fyrra sóttu íslenzk stjómvöld um
lendingarleyfi fyrir flugvélar Flug-
félags Islands í Frankfurt. Virtist
sem einhver dráttur væri á svari
Framh. á bls. 2.
Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis í gær af framkvæmdum við hinn nýja bráðabirgðaveg, sem á að taka
mestu umferðina af Rofabæ. Myndin er tekin nær þeim. enda, þar sem vegurinn tengist Suðurlandsvegi,
þ.e. við Rauðavatn.
Brdðabirgðavegur opnuður í næsta mdnuði:
Léttír umferð af Rofabæ
Lagning hins nýja bráöabirgða-
vegar, sem á að létta af mestu um-
ferðinni af Rofabæ gengur mjög
vel að því er þeir Ingi Ú. Magnús-
son, gatnamálastjóri og Gústaf
Pálsson borgarverkfræðingur tjáðu
Vísi í stuttu samtaii í gær. Undan
farið hefur verið stöðugt unnið við
veginn, sem verður um 2 km lang
ur. Mun hann verða tekinn í notkun
í næsta mánuði.
Ingi O. Magnússon, gatnamála-
stjóri sagði að vegur þessi væri
ætlaður sem bráðabirgðalausn á
hinum mikla umferðarþunga, sem
nú hvíldi á Rofabæ, en það er gata
sú, sem liggur um mitt nýja Ár-
bæjarhverfiö. Hinn endanlegi Suð
urlandsvegur ætti að koma vestan
megin við Elliðaárnar eins og gert
væri ráð fyrir honum f aðalskipu
laginu. Sagði Ingi að bráðabirgða
vegurinn væri 2 km á lengd. Hann
kæmi inn á Vesturlandsveg við svo-
Aldarf jórðungur frd
upphafi kennslu í
viðskiptafræðum
Um þessar mundir eru liöin 25
ár frá bví að kennsla í viðskipta-
fræðum hófst hér á landi. í dag
gengst Hagfræðafélag íslands og
Félag viöskiptafræðinema viö Há-
skólann fyrir hátíðahöldum til að
minnast þessa mikla og merka á-
fanga. Hefst hátíðasamkoma á veg
um fyrrgreindra aðila í Hátíöasal
Háskólans kL 2 e.h. I dag en í kvöld
verður haldin skemmtun á Hótel
Borg á vegum Félags viðskipta-
fræöinema og hefst hún með borð-
haldi kl. 7.
Hátíðin í Hátiðasal i dag hefst
með þvf að formaður hátíðanefnd-
ar, Júlíus Sæberg Ólafsson stud.
oecon. setur samkomuna meö
stuttu ávarpi. Því næst flytur dr.
Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamála-
ráðherra ávarp en hann hefur veriö
viðriðinn starfsemi deildarinnar í
um tvo úratugi, en hann réðst ung
ur til kennslu í deildinni nýkominn
frá námi erlendis. Að ávarpi við-
skiptamálaráðherra loknu, flytur
Jónas H. Haralz, hagfræðingur og
forstöðumaður Efnahagsstofnunar-
/ Framh. á bls. 2.
kallaða Borgarmýri, en gatnamót
nýja vegarins og Suðurlandsvegar
væru við Rauðavatn. I framtíðinni
yrðu á veginum tvær sjö metra
breiðar akbrautir, en nú til að byrja
með væri aðeins um að ræða að
fullgera aðra akbrautina. Þessa dag
ana eru vörubifreiðir að ljúka við
að fylla upp í vegarstæðið, en fyrir
nokkru var lokið við að steypa yfir
hitaveitustokksskuröi. Ingi sagði
að lokum, að vegurinn yrði tekinn
í notkun f næsta mánuði.
Síðustu forvöð að
sjá Skarðsbók í dag
— 3000 manns hafa jbegar séð hana
ustu forvöð fyrir almenning aö sjá
Skarðsbók í dag.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um áður hér í Vísi, hefur Skarðs-
bók undanfarna daga verið til sýn-
is í Þjóðminjasafninu við Hring-
braut. Að því er Ólafur Halldórs-
son, starfsmaður Handritastofnun-
arinnar tjáði blaðinu í gær hafa um
200 manns komið að skoða dýr-
grip þennan daglega frá því á
mánudag, en sl. sunnudag komu
um 2000 manns að sjá bókina, en
þá var hún sýnd almenningi í fyrsta
skipti.
Það mun því láta nærri að um
3000 manns hafi séö bókina. Hún
verður sýnd í síðasta sinn í dag
og verður Þjóðminjasafnið opið til
kl. 9.30 í kvöld. Síðan mun bókin
verða flutt úr Þjóðminjasafninu til
geymslu, en á þeim stað verður
hún ekki til sýnis. Það eru því síð- Friðrik Ólafsson — Vann
_________________________________$> skákina.
FRIDRIK VANN KINZFL
I annarri umíerð Ólympíuskák-1 gær lentu íslendingar á móti Aust-
mótsins á Kúbu, sem tefld var í | urríkismönnum, sem taldir eru
Myndin er tekin úr leiðangri Flugbjörgunarsveitarinnar til Grænlands nýlega.
Væruí vandræíum, efkall-
aðir út til leitar
— Flugbjörgunarsveitin i fjárhagsvandræð-
merkjasóludagur i dag
um
Bifreiöir Flugbjörgunarsveit-
arinnar eru orðnar úr sér gengn
ar enda 14 ára gamlar og svara
ekki kröfum tímans. Mun af-
rakstur merkjasöludagsins í ár
renna til þess að útbúa okkur
betri bílakost, sagði Sigurður
Waage varaformaður Flug-
björgunarsveitarinnar í viðtali
við blaöið í gær, en hinn árlegi
merkjasöludagur svcitarinnar er
í dag.
Sagði Sigurður ennfremur að
bifreiöakosturinn væri núna:
ein sjúkrabifreið fyrir 4 sjúkl-
inga og væri hún meö drifi á
öllum hjólum og var eina
sjúkrabifreiðin í Reykjavík út-
búin á þann veg, þegar Flug-
björgunarsveitin fékk hana til
umráða. Nú hefur Rauði kross
íslands aflað sér einnar slikrar
Framh. á bls. 2.
eiga eina af 4 sterkustu sveitunum
í riðli íslands.
Leikar fóru þannig, að Friðrik
vann sína skák á 1. boröi, gegn
Kinzel, en allar hinar skákir ís-
lendinga fóru f bið, skák Inga R.
og Stoppels, Guðm. Pálmasonar og
Winiwarters, Freysteins og Jant-
scheks. Hafa íslendingar sem sagt
1 vinning og 3 biðskákir eftir 2
umferðir, en 1. umferðina sátu þeir
hjá eins og getið hefur verið.
Úrslit í öðrum skákum i riðli
íslands voru þessi: Júgóslavía vann
Mongólíu á öllum borðum, fá þar
sem sagt 4 vinninga, en Mongólía
var jafnvel taFm eiga möguleika á
öðru sæti í riðlinum jafnframt ís-
landi og Austurríki og þessi ósigur
þeirra veikir þá möguleika, en er
Islendingum hins vegar mjög f hag.
Júgóslavía er hins vegar talin ör-
ugg um 1. sæti í riölinum. Tyrkiand
og Indonesia unnu sfna skákina
hvort í sinni viðureign en tvær
fóru í bið.
Biðskákir úr 1. umferðinni voru
einnig tefldar í gær. Biðskák Júgó-
slavlu og Tyrklands varð jafntefli,
Mongólía vann aðra biðskákina
Framh. á bJs. 2.
Finnski kvennakór-
inn syngur í kvöld
Kvennakór alþýöunnar í Helsinki
kom til íslands í nótt á leið hehn
úr mjög vel heppnaðri söngför til
Bandaríkjanna og Kanada. Hér
mun kórinn halda eina söngskemmt
un á vegum Finnlandsvinafélagsins
Suomi og veröur hún í Austur-
bæjarbíói í kvöld kl. 19. Mun kór-
inn, sem skipaður er 44 konum
syngja gömul og ný lög bæði eftir
finnska höfunda og annarra þjóöa
tónskáld.
Að því er Níels P. Sigurösson,
deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu
tjáði Vísi í gær „gerum við okkur
góðar vonir um að leyfi fáist fyr-
ir Flugfélagið að lenda vélum sín-
um í borginni Frankfurt í Þýzka-
landi“. eins og deildarstjórinn
komst að orði. Svar hefur ekki bor-
izt enn frá þýzkum stjómvöldum,