Vísir - 11.02.1967, Síða 8
00 0
V í SI R . Laugardagur 11. febrúar 1967.
VISIR
Utgefandi: Blaðaútgáfaa VISIK
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kxistjánsson
AOstoOarritstjóri: Axe) Thorsteinson
Fróttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson.
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, slmar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Rltstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 Unur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 7,00 elntakið
PrentsmiOjs Vísis — Edda h.f
Vilja þeir enn höft og
skömmtun ?
Jgins og alþjóð e’r kunnugt, var það lengi mjög sterk
og útbreidd trú innan Framsóknarflokksins, að Ey-
steinn Jónsson kynni öllum mönnum betur að stjórna
fjármálum ríkisins og velferð lands og þjóðar væri
undir því komið, að hann yrði fjármálaráðherra með-
an honum entist líf og heilsa. En eftir fall vinstri
stjórnarinnar mun trúin á óskeikulleika hans hafa
rénað talsvert, og Tíminn lofsyngur hann nú orðið
miklu sjaldnar en áðu'r fyrir fjármálavit, enda hafa
risið upp nýir spámenn innan flokksins, sem mikið
láta að sér kveða. Má þar sérstaklega nefna þing-
mennina Helga Bergs og Halldór E. Sigurðsson.
Sá fyrrnefndi hefur undanfarið verið að gefa ríkis-
stjórninni 'ráð um fjármálastjórn, og er svo að sjá, að
Tíminn telji að í tillögum hans sé að finna lausn á
öllum vanda. Hin merkasta þeirra er sú, að nota nú
strax mikinn hluta af gjaldeyrisvarasjóði þjóðarinn-
ar til kaupa á vélum og tækjum ýmiss konar, og þá
aðallega fyrir iðnaðinn. Þetta finnst Tímanum svo
snjöll hugmynd, að annarra ráða þurfi varla að leita
til þess að sigrast á erfiðleikum atvinnulífsins í
landinu.
Framsóknarmenn hafa um nokkurt skeið ekki linnt
látum um að gjaldeyrisvarasjóðnum yrði eytt með
eínhverjum ráðum. Þykir mörgum þetta undarleg
kenning ú'r þeirri átt, því að það sem Eysteinn Jóns-
son deildi hvað harðast á nýsköpunarstjórnina fyrir,
var, að hún notaði gjaldeyriseignina, sem hún tók við,
til nauðsynlegra kaupa á atvinnutækjum, m. a. ný-
sköpunartogurunum, sem Eysteinn, í hita ræðunnar,
kallaði óþarft „gums“. „Útkoman varð sú“, segir Tím-
inn í fyríadag, „að gjaldeyriseignin eyddist öll á
tveimur árum og meira til. Næsta ríkisstjóm varð
ekki aðeins að grípa til ströngustu gjaldeyrishafta,
heldur einnig víðtækrar skömmtunar“.
Nú gerir einn helzti fjármálaspekingur flokksins,
Helgi Bergs, það að tillögu sinni, að gjaldeyrisvara-
sjóðurinn sé notaður á líkan hátt og nýsköpunar-
stjórnin gerði og Eysteinn Jónsson fordæmdi þá svo
eftirminnilega!
En látum þessa ósamkvæmni vera, eins og við-
skiptamálaráðherra sagði í Alþýðubl. á dögunum:
„Hún er klaufaskapur. Hitt er alvarlegra, að áhrifa-
mikill þingmaður og ritari næststærsta stjórnmála-
flokks þjóðarinnar skuli annars vegar vera jafn
sneyddur skilningi á hlutverki gjaldeyrissjóðs og
þessi tillaga ber vott um og hins vegar jafn fáfróður
um það, sem verið hefur að gerast varðandi innflutn-
ing véla og tækja á undanfömum árum“. Sá innflutn-
ingur hefur verið aukinn stórlega.
Væri gjaldeyrisvarasjóðnum eytt, kæmu á eftir
gjaldeyrishöft og skömmtun. Er það enn þetta, sem
Framsókn raunverulega vill?
i
Podgornij á fundi páfa... þeir ræddust við í 70 mínútur.
Páfinn hefir sín
í einu Norðurlandablaðinu
var undirfyrirsögn fréttagreinar
á þessa leið: Með heimsókn
Podgomijs forseta Sovétríkj-
anna í Vatikanríkið hefir Páll
páfi hafið „diplomatiska sókn“
gagnvart kommúnistalöndunum.
Oschab, forseti Póllands ... er
honum líka boðlð til Rómar?
Hér mætti vafalaust við bæta:
í þeim tilgangi að fá þau til
samstarfs í þágu góðra málefna.
Heimshorna sniiBi
► Eftir tveggja ára rannsóknir
hafa 8 menn á aldrinum 17-22 ára
verið handteknir í Karlstad í Sví-
þjöð, en þar er stórt eiturlyfjamál
nú til meðferöar. Flestir hinna hand
teknu eru námsmenn.
► Á kosningafundi í Indlandi í
vikunni var varpaö steini í andlit
ið á Indiru Gandhi forsætisráö-
herra og meiddist frúin á nefi og
vörum.
En í aðalfyrirsögn var ekki
verið að fela neitt í hjúpi orð-
anna og sagt: Allar leiðir Austur-
Evrópu liggja f dag til Rómar.
Hvort of sterkt er til orða
tekið skal ósagt látið, en mikla
athygli hefir það vakið hve
mikla áherzlu Hans Heilagleiki
leggur á, að koma á góðu sam-
starfi viö kommúnistalöndin. Ef
það tækist væri þaö mikilvægt
fyrir friöarviðleitni páfa í heild
og jafnframt veröa til þess aö
nýtt og betra viðhorf skapaðist
hjá stjórnarvöldum kommún-
istalanda til milljóna römversk-
kaþólskra manna í löndum
þeirra. í áðurnefndri grein var
minnt á það, að hann Stalin
heitinn hefði einu sinni spurt
í háði: Hve mörg herfylki hefir
páfinn? Og blaðið svarar:
„Þau eru ófá herfylkin, sem
páfinn hefir í Sovétríkjunum
og Austur-Evrópulöndunum —
milljónir rómversk-kaþólskra
manna, sem hafa orðið að líöa
fyrir trú sína, — og svo eru
aðrar milljónir rómversk-
kaþólskra manna, sem eru hik-
andi, í vafa um hvort þeir eigi
að verða við kröfum stjómar-
valdanna byggðum á þeirri
hugsjóna- og stjórnmálastefnu,
sem ríkjandi er, eða þeirri trú-
arstefnu, sem kirkja þeirra
býður þeim.
ERU MÚRAR AÐ
HRYNJA?
Því er haldið fram í áður-
nefndri grein og í ýmsum öör-
um blöðum, aö meö heimsókn
Podgornijs í Páfagarð hafi veriö
stigið hið mikilvægasta skref til
þess að koma sambúö hinna
kommúnistisku valdhafa og
kirkjunnar í eðlilegt horf. Múrar
séu að hrynja. Og menn benda
á, að þetta sé aðeins upphafið
— næsti gestur í Páfagarði
veröi Oschab, forseti Póllands,
en í Póllandi hafa lengi veriB
hörð átök milli valdhafa og
kirkju, og hefir rómversk-
kaþólski kardínálinn þar 1 landi,
Vyshynski, einarður maður og
fylginn sér, oft orðið til þess
að varpa ljósi á það í stólræðum
frá hans bæjardyrum séð hvað
um sé deilt.
Ambassadoraskipti?
Blaðið „Messagero" f Róma-
borg hefir birt frétt um þaö, aö
á fundi þeirra Heilagleikans og
Podgomijs hafi náöst samkomu-
lag um ambassadoraskipti.
Sennilega hefir Messagero þó
verið fullfljótt á sér, er það
minntist á þetta, en enginn vafi.
aö þetta hefir komiö til oröa
Ólíklegt er ekki, að samkomu-
lag hafi náðst í grundvallarat-
riðum, líkt því, sem náðist við
Júgóslavíu í fyrra. Skiiyröi al
hálfu Páfastólsins yrði m. a.,
að trúarleg réttindi 10 milljóna
rómversk-kaþólskra manna í
Sovétríkjunum yröu tryggö.
Ákvæði til styrktar trúfrelsi
verði tekin upp í stjórnarskrá
þá, sem í undirbúningi er í
Sovétríkjunum í tilefni hálfrar
aldar afmælis byltingarinnar á
hausti komanda. (í núverandi
stjórnarskrá er viðurkennt, aö
trú sé einkamál, en bannaður
áróöur fyrir trúarskoðunum).
. . . „Ifka til Póllands“
Fyrir nokkru kom pólski
erkibiskupinn Kominck í Páfa-
garö og hefir dvalizt þar síöan,
— að sögn vegna þess, að í
undirbúningi eru viðræður viö
valdhafa Póllands, og ef til vill
til undirbúnings því, að mon-
signor Augostino Casaroli, aðai-
samningamaður Páfastóls viö
kommúnistaríkin, fari ekkj að-
eins í heimsókn til Moskvu
heldur og .. . líka til Póllands.
(Að mestu þýtt) — a.