Vísir - 11.02.1967, Blaðsíða 11
V1SIR. Laugardagur 11. febrúar 1967.
■i
■* BORGIN | ■*■ da& | BORGIN \<i
LÆKNAÞJONUSTA
Slysavarðstofan 1 Heilsuvemd-
arstöðinni Opin allan sólar-
tiringinn — aðeins móttaka slas-
aðra — Sími 21230
Upplýsingar um læknaþjónustu
i borginni gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavíkur. Sim-
inn er 18888
Næturvarzla apótekanna f Reykja
vik, Kópavogi og Hafnarfirði er
að Stórholti 1 Simi- 23245
Kvöld- og næturvarzla apótek-
anna í Reykjavík 11.-18. febr.
Ingólfs Apótek — Laugarnes-
apötek.
Kópavogsapótek er opið alla
virka Jaga kl. 9—19, laugardaga
kl. 9—14. helgidaga kl 13—15.
Helgarvarzla í Hafnarfirði til
mánudagsmorguns 11.-13. febr.:
Jósef Ólafsson Kviholti 8, simi
51820.
Ráðgjafa- og upplýsingaþjón-
usta Geðverndarfélags íslands.
Skrifstofa aö Veltusundi 3. sími
12139. Viðtalstímj Fél.ráðgjafa
mánud. kl. 4 — 6. Almenn skrif-
stofa á sama stað. Opin alla daga
nema laugard. frá kl. 2—3.
ÚTVARP
Laugardagur 11. febrúar.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Óskalög sjúklinga.
Sigríður Sigurðardóttir
kynnir.
14.30 Vikan framundan.
Baldur Pálmason og Þor-
kell Sigurbjörnsson kynna
útvarpsefni.
15.00 Fréttir.
15.10 Veðrið í vikunni.
Páll Bergþórsson veður-
fræöingur skýrir frá.
15.20 Einn á ferð.
Gisli J. Ástþórsson flytur
þátt í tali og tónum.
16.00 Veðurfregnir.
Þetta vil ég heyra.
Salóme Þorkelsdóttir velur
sér hljómplötur.
17.00 Fréttir.
Tómstundaþáttur barna og
unglinga.
Öm Arason flytur.
17.30 Úr myndabók náttúrunnar.
Ingimar Óskarsson flytur
yfirlit um slöngur.
17.50 Á nótum æskunnar.
Dóra Ingvadóttir og Pétur
Steingrímsson kynna nýjar
hljómplötur.
18.20 Veðurfregnir.
18.30 Tilkynningar.
18.55 Dagskrá kvöldsins og
veðurfregnir.
19.00 Fréttir.
19.20 Tilkynningar.
19.30 „Skrifað stendur", smásaga
eftir Jakobínu Sigurðar-
, dóttur. Þorsteinn Ö.
Stephensen les.
20.00 Kórsöngur: Frá alþjóðlegu
móti háskólastúdenta í
New York á liðnu ári.
20.25 Leikrit: „Refimir" eftir
Lillian Hellman.
Þýðandi:Bjami Benedikts-
son frá Hofteigi.
Leikstjóri: Gísli Halldórs-
son.
22.30 Fréttir og veðurfregnir.
22.40 Lestur Passíusálma. (18)
22.50 Danslög. (24.00 Veður-
fregnir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur 12. febrúar.
8.30 Létt morgunlög.
8.55 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.10 Veðurfregnir.
9.25 Morguntónleikar.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju.
Prestur: Séra Jakob Jóns-
son dr. theol.
Organleikari: Páll Hall-
dórsson.
12.15 Hádegisútvarp.
13.15 Úr sögu 19. aldar.
Gils Guðmundsson alþingis
maður flytur erindi um
útgerðina.
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Glímulýsing.
Hörður Gunnarsson lýsir
glímum frá skjaldarglímu
Ármanns 1. þ. m.
16.00 Veðurfregnir.
Endurtekið efm.
a. Dr. Steingrfmur J. Þor-
steinsson prófessor flytur
fyrra erindi sitt um Jón
biskup Vídalín.
b. Pétur Þorvaldsson selló-
leikari og Gísli Magnússon
pianóleikari flytja stutt lög
eftir Couperin, Haydn,
Pergolesi, Godard og
Marie.
17.00 Bamatími: Anna Snorra-
dóttir kynnir.
18.00 Stundarkom meö Handel.
18.20 Veðurfregnir.
18.30 Tilkynningar.
18.55 Dagskrá kvöldsins og
veöurfregnir.
19.00 Fréttir.
19.20 Tilkynningar.
19.30 Kvæöi kvöldsins.
Sigvaldj Hjálmarsson velur
kvæðin og flytur.
19.40 „Jámið skaltu hamra heitt"
Þættir úr smiðjunni í sam-
antekt Ágústu Bjömsdóttur
20.30 íslenzk kvæði og tónlist
við þau: „Gunnlaugur
Ormstunga og Helga in
fagra“. Vilhjálmur Þ. Gísla
son útvarpsstjóri talar um
kvæðin í Gunnlaugssögu.
Þuríður Pálsdóttir syngur.
Guðrún Kristinsdóttir leik-
ur undir á píanó.
21.00 Fréttir, íþróttaspjall og
veöurfregnir.
21.30 Söngur og sunnudagsgrín.
Þáttur undir stjórn Magn-
úsar Ingimarssonar.
22.20 Danslög.
23.25 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÖNVARP REYKJAVÍK
Sunnudagur 12. febrúar.
16.00 Helgistund.
16.20 Stundin okkar.
Þáttur fyrir bömin í um-
sjá Hinriks Bjarnasonar.
17.15 Fréttir.
17.25 Myndsjá.
Kvikmyndir úr ýmsum
áttum.
17.45 Grallaraspóamir.
Nýr teiknimyndaþáttur þar
sem ýmsir kynlegir kvistir
úr dýraríkinu koma við
sögu.
18,10 Iþróttir.
SJÚNVARP KEFLAVlK
Laugardagur 11. febrúar.
10.30 Discovery.
11.00 Captain Kangaroo.
13.00 Bridgeþáttur.
13.00 Kappleikur vikunnar.
17.00 E. B. Film.
17.30 Heart Of The City.
18.00 Beethoven.
18.55 Þáttur um trúmál.
19.00 Fréttir.
19.15 Coronet Films.
19.30 Skemmtiþáttur Jacgie
Gleasons.
20.30 Perry Mason.
21.30 Gunsmoke.
22.30 Have Gun Will Travel.
23.00 Kvöldfréttir.
23.15 Leikhús norðurljósanna.
„Dead Reckoning".
Sunnudagur 12. febrúar.
14.00 Guðsþjónusta.
14.30 Leikþáttur um alvarleg efni
15.00 Sögð saga keppnisliösins
The Boltimore.
16.00 íþróttaþáttur.
17.15 Hnefaleikakeppni.
17.30 Spurningaþáttur háskóla-
nema.
18.00 Smithsonian.
18.30 Odyssey.
19.00 Fréttir.
19.15 Þáttur um trúmál.
19.30 Fréttaþáttur.
20.00 Bonanza ,
21.00- Þáttur Ed SuIIivans.
22.00 Þáttur úr „villta vestrinu"
22.30 Whats My Line.
23.00 Kvöldfréttir.
23.15 Leikhús norðurljósanna.
„Luck Of The Irish".
MESSUR
Háteigskirkja.
Bamasamkoma kl. 10.30. Séra
Jón Þorvarðsson. Messa kl. 2.
Tómas Sveinsson guðfræðinemi
predikar. Séra Arngrímur Jóns-
son.
Laugameskirkja.
Messa kl. 2 e.h. Bamaguðsþjón
usta kl. 10 f. h. — Séra Garðar
Svavarsson.
Kópavogskirkja.
Messa kl. 2. Bamasamkoma kl.
10.30. Séra Gunnar Ámason.
Neskirkja.
Barnasamkoma kl. 10.30. —
Messa kl. 2. Séra Jón Thoraren-
sen.
Mýrarhúsaskóli.
Barnasamkoma kl. 10. — Séra
Frank M. Halldórsson.
Langholtsprestakall.
Barnasamkoma kl. 10.30. Séra
Árelíus Nielsson. Guösþjónusta
kl. 2. Séra Sigurður Haukur Guð-
jónsson.
EUiheimilið Grund.
Guösþjónusta kl. 2. Séra Gísli
Brynjólfsson, fyrrv. prófastur
messar. — Heimilispresturinn.
Ásprestakall.
Bamaguðsþjónusta í Laugarás-
bíói kl. 11. Messa 1 Laugames-
kirkju kl. 5. Séra Grímur Gríms-
son.
Fríkirkjan.
Messa kl. 5. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Hallgrímskirkja.
Barnasamkoma kl. 10. Systir
Unnur Halldórsdóttir. Messa kl.
11. Dr. Jakob Jónsson.
Bústaðaprestakall.
Bamasamkoma kl. 10.30 í Rétt
arholtsskóla. Guðsþjónusta kl. 2.
Séra Ólafur Skúlason.
Grensásprestakall.
Messa í Breiðagerððsskóla kl.
2. Bamasamkoma kl. 10.30. Séra
Felix Ólafsson.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messa kl. 2. Við guðsþjónust-
una er sérstaklega vonast eftir
þátttöku barna, sem ganga til
spurninga, og foreldra þeirra.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30, Þor-
geir Ibsen, skólastjóri, ávarpar
börnin. Séra Garðar Þorsteinsson.
rhuspá
Spáin gildir fyrir sunnudaginn
12. febrúar.
Hrúturinn, 21. marz — 20.
apríl: Notaðu þennan hvíldar-
dag eins og vera ber — til að
hvíla þig í orðsins fyllstu merk-
ingu. Sofðu eftir því sem þér
er urint, haltu þig heima og
safaðu kröftum undir vikuna.
Nautið, 21. apríl — 21. maí:
Það er ekki ólíklegt að einhver
smávægileg vonbrigði fyrir há-
degið geri þér gramt í geöi í
svipinn, þótt það, sem um er
að ræða, geti ekki talizt þess
viröi, ef að er góð.
Tvíburamir, 22 maí — 21.
júnf: Hvfldu þig vel, enda er
ekki sérlega gott útlit hvað
ferðalög snertir. Aftur á móti
er dagurinn vel til þess fallinn
að yfirvega í næði starfið fram-
undan.
Krabbinn, 22. júní — 23. júlí:
Hvíldu þig vel, að minnsta
kosti fram eftir degininn ,enda
verður þá heldur dauflegt yfir.
Úr þessu rætist þó, þegar á dag-
inn líður, og verður þá gott að
vera í hópi vina.
Ljónið, 24. júli — 23. ágúst:
Það er í rauninn; heppilegt, að
þetta skuli vera hvíldardagur,
því að störf og viðskipti myndu
varla bera mikinn árangur,
þótt á virkum degj væri. Njóttu
því hvíldarinnar.
Meyjan, 24. ágúst — 23. sept:
Framan af aö minnsta kosti
veröur dagurinn ekki sérlega
skemmtilegur, en þó rætist
heldur úr ,þegar á líður. Hætt
er við að eitthvað, sem þú hef-
ur undirbúið fari út um þúfur.
Vogin, 24. sept. — 23. okt.:
Einhver vonbrigði veröa til þess
að þú verður ekki sem ánægð-
astur með daginn, enda verður
hann heldur dauflegur, dráttur
á flestu og tafir, að minnsta
kosti fram eftir.
Drekinn, 24. okt. — 22. nóv.:
Gefðu gaum að heilsufari þínu,
og hvíldu þig vel fram eftir deg
inum. Frestaðu heimsóknum ef
þú ert ekki vel fyrir kallaður,
og sjáðu svo um að þú hafir ró
og næði.
Bogmaðurinn. 23. nóv. — 21.
des.: Frestaðu því, sem þú hef-
ur í undirbúningi, heimsóknum,
ferðalögum og öðru sliku, þar
sem það mundi einungis valda
óánægju og vonbrigðum. Not-
aðu daginn til hvíldar.
Steingeitin, 22. des.—19. jan.:
Harla dauflegur og jafnvel leið-
inlegur sunnudagur, og ekki
heppilegur til annars en njóta
hvíldar og safna kröftum fyr-
ir vikuna. Jafnvel kvöldið verð-
ur dauflegt. <
Vatnsbcrinn, 21. jan. — 19.
febr.: Notaðu daginn til aö at-
huga gaumgæfilega fjárhaginn,
atvinnuhorfumar og yfirleitt
hvar þú stendur og hvaða breyt-
ingar og endurbætur þú ættir
að gera á næstunni.
Fiskarnir, 20. febr. — 20.
marz: Þar sem allt bendir til
að dagurinn verði heldur dauf-
legur skaltu nota hann til hvfld-
ar fyrst og fremst. Þá ættirðu
líka að skipuleggja starfið í
vikunni framundan.
VERKFÆRI
VIRAX Umboðið
SIGHVATUR EINARSS0M&C0
SÍMI 24133 SKIPHOLT If
Auslýsið í Ifðsi
Benz'm- og hjólbarba-
bjónustan
— Vitatorgi—
Við veitum góða þjón-
ustu
Til dæmis Bridgestone snjó-
og sumardekk með eða án snjó-
nagla einnig munstrum við
slitna hjólbarða önnumst einnig
hjólbarðaviðgerðir.
Einnig höfum við BP-bensín
Alla þessa þlónustu fáið þið
virka daga frá kl. 8.00 til 24.00.
Laugardaga frá kl. 8.00 til 0 01.
Sunnudaga frá kl. 14 00 til 24.00
Benz'm- og hjólbarba-
bjónustan
- VITATORGI -
fHomi Lindargötu og Vitastigs)
(Nýir eigendur)