Vísir - 11.02.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 11.02.1967, Blaðsíða 16
Hundapestin úr sögunni Hundapestin sem ceisaöi á Suðurlandi seinni hluta síðastliðins árs, hefur nú alveg hjaönað að því er virðist. — Pestin varð skæðust í Flóanum og i Hreppum og drap þar marga hunda. Einnig féllu nokkrir hundar í Mýrdal og á fleiri stöðum, en hún náði aldrei að breiðast út milli Þjórsár og Jökulsár á Sólheimasandi. — Hundaeigendur á svæðinu frá Hvalfirði og austur að Mýrdals- sandi hafa verið skvldaðir til að halda hundum sínum heima, tjóðr- uðum eða innilokuðum, fyrst um sinn til að koma í veg fyrir, að pestin geti breiðzt út aftur. Samkvæmt upplýsingum yfir- dýralæknis, Páls A. Pálssonar, er hér aðeins um öryggisráðstöfun að ræða. — Ekki hefur orðið vart við nýtt pestartilfelli siðan löngu fyrir áramót. — Þaö skal tekið fram, að hundar, sem flækjast að heim- an eru réttdræpir. Skátamiðstöð við Saorrabraut í síðastliðinni viku var auglýst eftir tilboðum í nlöurrif á hluta af byggingum skátahreyfingarinnar við Snorrabraut. Blaðið hafði sam- band við Guðmund Ástráðsson og spurði hann ástæðna fyrir auglýs- 'ingu þcssarS. Guðmundur sagði m. a. Á undanförnum árum hefur skáta hreyfingin verið að flytja sig smátt og smátt úr húsnæöinu við Snorra- braut, og dreifa starfseminni um Datt og brotnaði Um 70 ára gamall maður, Árni Vilhjálmsson til heimilis aö Barma- hlíð 21, varð fyrir því óhappi, þeg- ar hann sté út úr strætisvagni við hornið á Grettisgötu og Snorra- braut um hádegi s.l. miðvikud. að stíga á hálku og detta. Var hann fluttur á Slysavarðstofuna og síðan á Landspítalann, þar eð talið var, að hann mundi hafa beinbrotnáð. bæinn. Nú er svo komið, að eSn-® göngu stærri fundir og skemmtan- ir eru haldnar í Skátaheimilinu við Snorrabraut, at skátahreyfingunni var afhent lóðin þar árið 1962. í ráði er að byggja þar upp miðstöð fyrir hreyfinguna, en hafa smærri aösetursstaöi dreifða um borgina. Þannig verður til dæmis byrjað á byggingu fyrir hreyfinguna í Bú- staðahverfi í vor. Það, sem nú veröur rifið af Skáta heimilinu eru tvær álmur, en álm- an við Snorrabraut og sú sem búð- in er í, verða látnar í friði enn um sinn. Nýtt frímerki 800 þús. boðnar í Isborg Togarinn ísborg var á uppboöi i i fyrradag. Var boðið í hann 800 þús. kr. Annað uppboð verður við skip- ' ið þar sem það liggur við Faxa- garð á mánudag kl. 1.30. Brezkur miðill kominn Brezkur transmiðill, Horace Hambling kom til Reykjavíkur í gaáíkvöldi. Kemur hann á vegum Sálarrannsóknafélags íslands og heldur hér einkafundi fyrir félags- menn og að auki opinbera fjölda- fundi „þar sem stjórnandi hans, Moontrail, flytur boðskap að handan og svarar nokkrum skrifleg um fyrirspurnum frá fundargest- um“ eins og það er orðað í fréttatil kynningu frá Sálarrannsóknafélag- inu. Hambling er um sjötugt og hefur 600 þús. bárust Strandarkirkju s.l. ár í áheitum og gjöfum — Kirkjan endurnýjuð og stækkuð i úr 600 þús. bárust Strandar- kirkju í gjöfum og áheitum á s.l. ári. Er upphæðin 100 þús- undum hærri en árið 1965, en þá bárust kirkjunni 500 þúsund krónur á sama hátt. Talaði blað ið við biskupsritara, sem veitti þessar upplýsingar. Sagði hann að hin árlega upphæð, sem Strandarkirkju bærist, færi allt- af hækkandi með hverju árinu sem liði. Nú stendur til að endurnýja Strandarkirkju að einhverju leyti í ár og verður byrjað á framkvæmdum í vor. Verða fún ir innviöir kirkjunnar rifnir út og nýir settir í staöinn. Enn- fremur verður komið fyrir söng lofti og kirkjan raflýst. Einnig verða gerð snyrtiherbergi, sem eiga að fylgja kirkjunni, en eins og kunnugt er kemur fjöldi manns í heimsókn að Strandar- kirkju einkum á sumrin. Hefur endurnýjun Strandarkirkju ver ið í bigerö undanfarin ár. Sl. ár voru geröar teikningar aö endur nýjuninni og stækkuninni hjá húsameistara ríkisins, en útlit kirkjunnar verður óbreytt aö mestu eftir endurnýjunina. I sjóði Strandarkirkju eru nú liðlega 8 milljónir króna. starfað sem miðill í hálfa öld. Hef- ur hann haldið fundi í Albert-Hall í London tvívegis fyrir fullu húsi en þar rúmast 5000 manns. Þá hef ur hann komið fram í BBC-sjón- varpinu og eins í Ástralíu. Fyrsti fjöldafundurinn verður haldinn laugardaginn 18. febr. n.k. kl. 15 í Iðnó. Nýtt frímerki hefur veriö boö að af Póst- og símamálastjóm- inni og kemur það út 16. marz n.k. meö mynd af himbrima að verð- gildi 20 kr. Fyrirhuguð er útgáfa á frímerki næsta sumar i tilefni af heimssýningunni í Kanada. Þá kem ur Evrópufrímerkið út og verð- ur að þessu sinni meö mynd eftir Belgíumann, Oscar Bonnevalle að nafni. Loks er fyrirhuguð út- gáfa á frímerki í tilefni af 50 ára afmæli Verzlunarráðs íslands síð ar á árinu. Stálvinnsla í Kópavogi Nýlega var stofnað nýtt fyrir- tæki í Kópavogi, en fyrirtæki þetta er nokkuð sérstakt hvað varðar stofnunartilgang. Tilgangurinn er bygging og rekstur jámvinnslu- stöðvar, verzlun með steypustál og hvers konar aðrar byggingarvörur og annar skyldur atvinnurekstur. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Magnús Teitsson, Þinghólsbraut 63 í Kópavogi og sagði hann í stuttu viðtali við blaðið að aðal- verkefni fyrirtækisins yrði undir- búningsvinna á steypustyrktar- jámi, þ.e.a.s. klippa það niður, beygja og flytja á byggingastaö. Þetta væri alger nýlunda hérlend is og mundi flýta fyrir við bygg- ingarframkvæmdir. Magnús sagði ennfremur að fyrirtækið hefði feng ið lóð í Kópavogi og meiningin væri að hefja byggingafram- kvæmdir í vor. Stofnendur hins nýja fyrirtækis voru 107 talsins en nú er félaga- talan 126. Flestir félaganna em húsasmíðameistarar og múrara- meistarar, en allir eru meðlimirnir áhugamenn um byggingafram- kvæmdir. Hlutafé er tvær millj. kr. söfnun þess lokið og hlutaféð hef ur þegar verið greitt. Formaður stjórnarinnar er Magn ús Vigfússon, húsasmíðameistari, en framkvæmdastjóri er Magnús Teitsson, eins og fyrr var getið. Ársliátíð haldin í Þjóðleikhúsinu mmM H m Það óhapp varð £ gær, að flutningabíll valt út af veginum á beygjunni vestan við Fossá í Hvalfirði. Sprakk á öðru framhjóli bílsins og missti bílstjóri nn stjóm á honum með framangreindum afleið- ingum. Lenti bíllinn ð ræsi og brotnaði framhjóla útbúnaður og skemmdist bíllinn mikið. (Ljósm. PG) Árshátíð Kennaraskólanema verður með nokkuð sérstökum hætti að þessu sinni. Hátíðin verður haldin mánudaginn 16. marz. Skemmtiatriði fara fram í Þjóðleikhúsinu, sem er algjör nýlunda og dansinn verður svo stiginn í Lídó. Visir átti tal við Einar Hólm, formann Skólafélags Kennara- skólans fyrir skemmstu og sagði hann að upphaflega hefði veriö ætlunin að fá Háskólabíó og Sögu, en húsin hefðu ekki verið laus þá daga, sem komu til greina, þá hefði verið gripið til þessa ráðs, til þess að tryggja þaö að allir nytu þess, sem fram færi. Nemendum Kennaraskól- ans hefur fjölgað um allan helm ing seinni árin og eru nú um 480, þar við bætast svo kenn- arar og aðrir gestir, en í veit- ingahúsunum hér nýtur allur sá fjöldi engan veginn skemmti atriða, sem eru jafnan fjöl- breytt á árshátiðum Kennara- skólans. Það vakti mikla athygli í fyrra, þegar menntaskólanem- um var leyft að setia Herra- nótt sína upp í Þjóðleikhúsinu og þótti ýmsum of langt geng- íð, hvað svo sem mönnum kann að finnast um heimsókn Kenn- araskólans á Þjóðleikhússviðið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.