Vísir - 26.04.1967, Blaðsíða 1
57. árg. — Miðvikudagur 29. aprfl 1967. — 94. tbl.
FLOTI FRA NATO I
HEIMSÓKN í MORGUN
Um kl. 11 í morgun sigldu
fjögur brynvarin herskip inn á
Reykjavíkurhöfn, tveir banda-
rískir tundurspillar, einn hol-
lenzkur og eiin brezk freigáta.
Skipin eru í fiotadcild Atlants-
hafsbandalagsins á Atlantshafi
og heimsókn þeirra hingaö er
liður í sérstakri dagskrá, sem
hófst í janúar f vetur og stend-
ur fram á sumar, Matchinaker
III.
Skipin munu stainda hér við
til 29. þessa mánaðar og fá
Reykvíkingar tækifaeri til þess
að fara um borð og skoða þau
næstu daga.
Bryndrekamir komu á ytri höfnina í morgun.
Árangurslaus fundur lyf-
sala og lyfjafræöinga
Torfi Hjartarson, sáttasemjari
ríkisins, boðaði til fundar f gær-
kveldi með deiluaðiium í kjaradeilu
lyfjafræðinga við Iyfsala.
Fundurinn stóð frá kl. 9 til 2 e.
m., en samkomúlag náðist ekki.
Eins og kunnugt er, hófst verkfall
lyfjafræðinga bamn 10. apríl s.l.,
en lyfsalar hafa sjálfir annazt af-
greiðslu lyfja í verzlunum sínum.
Læknafélag Reykjavikur hefur
sent heilbrigðismálaráðherra bréf,
þar sem farið er fram á að hann
beiti sér fyrir lausn málsins, vegna
varhugaverðs ástands í lyfjaverzl-
unum.
# stórhættu
Milljöna skaðabótamól ■ uppsiglingu en
Síldarútvegsnefnd hafnar allri dbyrgð
Saltsíldarkaupendur á Norðurlöndum eru afar
óánægðir með afstöðu íslenzku síldarútvegsnefnd-
arinnar í síldafskemmdamálinu, og kemur þessi
óánægja greinilega fram í Norðurlandablöðum. Yf-
irlýsing sú, sem Síldarútvegsnefnd gaf um málið
fyrir helgina, hefur verkað eins og olía á þennan
eld. Er nú talað um, að saltsíldarsala íslendinga
til allra Norðurlandanna sé í stórhættu.
Síðan yfirlýsing Síldarútvegs-
nefndar var gefin hafa ýmis blöð
á Norðurlöndum, ■ þ. á m. Berg-
ens Tidende, kannað hve um-
fangsmiklar skemmdirnar eru.
í Ijós hefur komið, að kryddsíld-
in, sem þessi lönd hafa fengiö
frá íslandi í vetur, er meira og
minna skemmd og ónýt. 40%
af kryddsfldinni, sem fór til Nor
egs, er ónothæf til vinnslu. —
Finnar eru óánægðir með um
70% af þeirri kryddsíld, sem
þeir hafa fengið. Nákvæmar upp
lýsingar eru ekki til frá Dan-
mörku og Svíþjóð, en þar rfkir
sama óánægjan með kryddsíld-
ina. Eru nú væntanleg milljóna
króna skaðabótamál vegna þess-
arar síldar.
Yfirlýsing Síldarútvegsnefnd-
ar gekk út á að gera lítið úr
þessu vandamáli og að nefndin
bæri enga ábyrgð, því kaupend-
urnir hefðu í upphafi samþykkt
að taka á móti meginhluta þess-
arar síldar. Þessi yfirlýsing hef-
ur valdið mikilli hneykslun á
Norðurlöndunum. Þar hefur yfir
lýsingin verið túlkuð sem alger
neitun af hálfu íslendinga um
að taka tillit til óánægjunnar
með síidina. Ekki hefur bætt úr
skák, að formaður Síldarútvegs-
nefndar hefur verið í feluleik
við blaðamenn frá Norðurlönd-
unum, sem hafa viljað spyrja
hann um ákveðin atriði, er þeir
teija að nefndin hafi rangfært
Hefur það verið lagt út sem ,má).
ið væri feimnismál fyrir Síldar-
útvegsnefnd.
I rauninni er milljóna skaða-
bótamál minnsti þátturinn í mál
inu. Alvarlegast er, að kaupend-
urnir eru svo reiðir, að framtíð
síldarútflutnings til Norðurland-
anna er í mikilli hættu. Það
stoðar litt fyrir íslendinga að
vinna skaðabótamál, ef við-
skiptasambandið er eyðilagt.
Eggert G. Þorsteinsson sjávar-
útvegsmálaráðherra hefur boðað
Sfldarútvegsnefnd á sinn fund
á morgun vegna þessa máls.
Ráðherrar skoða fisk-1 Trillubátur í hrakningum á
vinnslustöðvar í Eyjum
Ályktanir geröar á lokafundi ráöherranna í dag - Loft-
leiðamálið lagt fyrir ríkisstjórnir Norðurlandanna
Meöal þeirra mála, sem til um-
ræðu voru á fundi utanríkisráð-
herra Norðurlanda í gær, var Loft-
leiðamálið. Það er lendingarleyfi
Loftleiða á Norðurlöndum. Fundur-
inn mun ekki taka ákvarðanir um
það mál og verður þaö tekið til
aánari athugunar af rikisstjómum
Norðurlanda.
Ráðherrafundinum lýkur í dag
ið Hótel Sögu og í dag klukkan
arjú leggja ráðherrarnir upp í
Surtseyjarflug með flugvél Flugfé-
ags íslands. Síðan munu þeir fara
stutta heimsökn til Vestmanna-
iyja, skoða þar fiskvinnslustöð og
iitja boö bæjarstjómar Vestmanna
iyja.
málið, nema Hans Salvhoi, wtan-
ríkisráðherra Dana, sem flaug utan
í morgun.
Lokafundur ráðherranna hófst
klukkan 11 í morgun og veröur í
dag gengið frá ályktunum fundar-
ins. Meðal þeirra mála, sem fundur
inn hefur rætt eru: Aðild Færeyja
að Norðurlandaráði, afnám vega-
bréfaáritunar almennt, sameigin-
leg afstaöa Norðurlanda til ýmissa
mála af vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna. — Fundurinn ræddi m. a. af-
stöðu Norðurlanda til málefna Suð-
vestur-Afríku og friðarumleitan-
ir\ f Víetnam. Þá var byltingin í
Grikklandi einnig til umræðu á
fundinum og svo loks afstaða
Ráðherramir fljóga utan í fyrra-Norðurlanda til afvopnunar.
Eyjafirði í nótt
Vélarvana og búið að stela árunum
A Akureyri var saknað í nótt
ungs manns, að nafni Sveinn Egg-
ertsson, sem reri þaðan á hand-
færi á trillu sinni um fjögurleytið
í gærdag. Þegar aðstandendur hans
spurðust fyrir um hann, hafði eng-
inn oröið hans var og hófu menn
aö leita að trillunni í morgun. Leit-
In barst um allan Eyjafjörð, alit út
undir Kljáströnd, en án árangurs.
Loks fann svo flugvél frá Norður-
flugi bátinn á reki undir Hauganesi
þegar hún flaug frá Akureyri í
morgun kl. 8. Gerði flugmaður henn
ar viðvart í landi og var trillan sótt.
Sveinn var kominn heim tll sín, áð-
ur en blaðið fór í prentun í morg-
un og náðum við tali af honum.
Hér fer á eftir frásögn hans :
„Ég lagði af staö kl. 4 í gær og
var byrjaður að dorga við Hjalteyri
um kl. 6, þegar hann byrjaði að
hvessa. Sneri ég þá við og ætlaði
inn, þegar vélin klikkaði. Þá vildi
óhappið til.
Ég var að bauka við að koma
vélinni [ gang aftur, þegar ég missti
stykki úr henni ofan í bátinn og
þaöan náöi ég því ekki aftur. Þar
með hafði ég ekki meira gagn af
vélinni Ég reyndi þá að róa í land,
en það gekk nú brösugt, því ekki
alls fyrir löngu hafði árunum ver-
ið stolið úr bátnum frá mér. Varð
ég þvf að reyna að notast við fjö.1,
sem ég var meö um borð í bátnum.
Það sóttikt eðlilega seint, en þó
komst ég svo nærri landi, að ekki
var lengra en svo sem 500 metrar
i land, en þá réði ég ekki við
strauminn, sem er anzi harður meó
landinu. Og það þótti mér blóðugt
Komst ég því aldrei að landi.
Annaö þótti mér líka ergilegt
Enginn veitti mér neina athygli, þr
var þarna töluverð umferð. Bakka
foss fór hjá mér, en þar tök eng-
inn eftir mér. Reyndi ég þó til þess
að vekja athygli þeirra á mér. —
Fleiri skip og bátar voru á firðinum
en voru eins og staurbiindir.
Mest allri olíunni eyddi ég í blys
ser.i ég bjó til úr ónýtum galla
sem ég hafði í bátnum. Ég yar að
vona, að þeir á Hjalteyri sæju þá
til mín, en allt kom fyrir ekki
En'ginn sá neitt.
Það var ekki fyrr en í morgun,
að flugmaður vélarinnar frá Norður
flugi sá mig og kastaði hann niður
Framhald á bls. 10.