Vísir - 26.04.1967, Síða 7
VÍSIR. Miðvikudagur 26. apríl 1967.
7
morgun útlönd í morgim útlönd í morgun
Konstantín konungur í vanda —
á aðeins um tvennt að velja
Norðurlandablöð birta fréttir um
að Konstantin konungur verði brátt
að velja um tvennt: Afsala sér
konungsveldi eða viðurkenna hem-
aðarlegu stjórnina. Eins og sakir
standa reynir hann að fresta valinu
og að finna meðalveg.
Herdðmstólar
hafa verið settir á stofn í 10
borgum Grikklands. Allir, sem
brjóta í bága við herlög, sem nýja
stjómin setti á byltingardaginn,
verða leiddir fyrir rétt.
Grikkland svipt hernaðaraðstoð ?
Bandaríkjastjóm hefir til endur-
skoðunar hernaðarlega og efnahags-
lega aðstoð við Grikkland, vegna
viðburðanna undangengna daga. —
Þetta hefir verið staðfest af tals-
manni utanríkisráðuneytisins.
Fyrri fréttir vom á þessa leið:
Talsmaöur brezka sendiráösins í
Aþenu staðfesti í gær að brezki
ambassadorinn, Sir Ralph Murrey,
fór á fund Konstantins konungs
og ræddi við hann. Samtímis segir
New York Times, að Konstantin
konungur hafi í viðtali við banda-
ríska ambassadorinn, Phiiips Tal-
bot, látið í Ijós óánægju yfir at-
burðum síðustu viku.
Oplnberlega staðfest.
Það var opinberlega staðfest i
Aþenu í gær, að Konstantin konung
ur tók á móti báðum sendiherrun-
um/eftir að byltingin var gerð að-
faran£tts föst udags.
Talsmaður brezka sendiráösins,
sem' að ofan getur, viidi ekkert
segja um það, hvað þeim hefði far-
ið á milli, konungi og ambassadom-
um, né heldur hvar þeir ræddust
við.
Bandarískur talsmaður sagöi, aö
konungur hefði tvívegis rætt við
Talbot ambassador í sumarhöll kon
ungs fyrir utan Aþenu.
Konungur neitar að flytja
ræðu, stjóminni til stuðnings.
New York Times segir konung
hafa sagt Talbot, að hann hefði
reynt 3 berta áhrifum sínum
til andspyrnu gegn hernaðarlegri
stjóm og tii þess aö mynduð yrði
stjórnarskrárleg stjóm á ný.
Þá segir blaðið að svo Mti út,
að áliti stjómmálamanna í Wash-
ington, að afstaða konungs einkenn
ist af andspymu gegn hemaðar-
legu stjóminni, sem komi fram í
því að hann neiti að undirrita til-
skipanir um að felia úr gildi stjórn-
arskrárleg réttindi og aö koma fram
og tjá stjórninni fylgi sitt í opin-
berri rreðu.
Eftirlit.
Samband varð nokkru greiðara
við umheiminn í gær, en stjórnin
fylgist nákvæmlega með því, sem
skrifað er í blöðin og hvaö símað
er til útlanda. Blöðin verða aö
senda leiðréttar prófarkir til blaða-
eftirlitsins og fyrirsagnir í blööum
voru svipaöar, að með byltingunni
heföi verið komið í veg fyrir „blóö-
baö“ af völdum kommúnista.
Saloniki.
Lagt er mikið kapp á að sann-
færa menn um að leiðtogar vinstri
flokkanna hafi ætlað að undirbúa
stórkostlega göngu til Saloniki sl.
sunnudag og aö Georges Pappan-
dreu hafi átt aö halda þar ræöu.
Pappaudreu.
Hann er nú 79 ára. Hann var
handtekinn byltingamóttina og var
sendur í sjúkraliús vegna blóðtappa
Hann er ekki f haldi lengur og
læknarnir segja líðan hans góða. I
seinustu fregnum var talaö um
„grun“ um að hann þjáðist af blóð-
tappa.
Westmoreland segir hermenn
s'ma uggandi út af gagn-
rýninni á Vietnamstefnu
stjórnarinnar
Westmoreland hershöfðingi USA
sætti harðri gagnrýni í gær í öld-
ungadeildinni fyrir að vinna að þvf
að kæfa frjálslega gagnrýni á Vi-
etnamstefnu stjórnarinnar, en
Westmoreland er nú vestra og er til
gangur hans að fá loforð fyrir full-
um stuðningi þings og þjóöar t!I
mjög aukinna hernaðaraðgerða í
Vietnam, og mun hann ávarpa þjóð-
ina í sjónvarpi í því skyni.
Fyrri fregnir hermdu, að hann
myndi fara fram á mjög aukið liö f
Vietnam. Heyrzt hefur, að Johnson
forseti muni ætla að láta til sín
heyra á eftir Westmoreland og
styðja hann. Eftir Westmoreland
er haft, að bandarískir hermenn í
Vietnam séu mjög uggandi vegna
Italska sýningin 4.-14. maí
Upplýsingaskrifstofa opin í anddyri Háskóla-
bíós kl. 11—12 fyrir hádegi og 1—4 eftir há-
degi. — Sími 2214€.
gagnrýninnar heima fyrir á stefnu
stjórnarinnar.
Fulbright öldungadeildarþingmað
ur, formaður utanríkisnefndar, var
sá, sem talaði um tilraunir Wést-
morelands til að kæfa frjálsa gagn-
rýni, og annar þingmaður í deild-
inni sagði, að með hinum auknu
loftárárásum á Noröur-Vietnam,
þvert ofan í fyrri yfirlýsingar um
að gera ekki árásir á flugvelli, væri
stigið c i eitt skrefið f áttina til 3.
heimsstyrjaidarinnar — þannig sé
ekkert skeytt um þá hættu, að
Kína kunni að flækjast inn f styrj-
öldina.
Loftbardagar
og árásir.
Kínverjar segjast hafa skotið nið-
ur tvær Phantom-þotur yfir Kwang
si f gær og verði flugmennirnir, i
sem gerðu það sæmdir heiöurs-
merkjum. Bandaríkjamenn hafa
ekki viðurkennt að flugvélar þeirra
hafi flogið inn yfir Kína.
Loftárásirnar í gær á Hanoi og
Haiphong voru á skotmörk, sem
bandarískum flugmönnum hafði áð-
ur verið sagt að forðast að gera
árásir á. Segir Hanoi-útvarpið aö
15 hafi verið skotnar niöur, en
Bandaríkjamenn viöurkenna aðeins
4 og segjast hafa skotiö niður 2
MIG-þotur í loftbardaga.
ÝMISLEGT YMISLEGT
88Pö
Tökum að okkur hvers konar múrbroi
og sprengivinnu f húsgnmnum og ræs
um. Leigjum út loftpressur og vibra
sleöa. Vélaleiga Steindórs Sighvats
sonar, Álfabrekku viö Suöurlands
braut, sími 30435.
Trúin flytur fjölL — Við flytjum allt annað
SENPiBÍLASTÖÐIN HF.
BlLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Veizlubrauðið
frá okkur
Sínv 20490
Si S 8 © S12íjiíi
SÍIVII 23480
Vlnrtuwélar til leigu
Rafknúnlr múrhamrar með borum og fleygum. - Steinborvélar. -
Steypuhrærivélar og hjólbörur. - Raf-og benzlnknúnar vatnsdælur.
Vfbratorar. - Stauraborar. - Upphitunarofnar. -
■ 3 '
..wmM
Traktorsgröfur
Traktorspressur
Loftpressur
I yðar þjónustu — Hvenær sem er — Hvar sem er
TÖKUM AÐ OKKUR:
Múrbrot MÝ TÆKI — VANIR MENN
^aigingar SÍMON SÍMONARSON
Ámokstur .|f«3i»aBGiK élaleiga.
Jöfnun lóða Álfheimum 28. — Sími 33544
:
Einangrunargler — Einangrunargler
Húseigendur — byggingameistarar, getum útvegað tvö-
falt einangunargler með ótrúlega stuttum fyrirvara.
Önnumst einnig máltöku og fsetningu. Hringiö og leitið
tilboða. Vanir menn sjá um ísetningu. —■ Uppl. i síma
17670 og á kvöldin f síma 51139.
Sendibílaeigendur
Vil taka á leigu sendibíl, 1 tonn eða stærri, í
3—5 vikur. — Uppl. í síma 10903 kl. 5—8 í
kvöld.
• •
LANDSMÁLAFELAGIÐ VORÐUR
Almennur fundur verður haldinn fimmtudaginn 27. þ.m. kl. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Fundarefni: Bslenzkur iðnuður í nútíð og frumtíð
Stutt framsöguerindi flytja:
i ’ \ ■■ \ : .
Sveinn Guðmundsson, nflþ.m. — Ingólfur Finnboguson húsusm.m.
Dnvíð Sch. Thorsfeinsson frkvstj. — Grímur Bjurnuson# pípul.m.
Að erindunum loknum verða frjálsar umræður Stjdrnin.