Vísir - 26.04.1967, Side 16

Vísir - 26.04.1967, Side 16
FARANCUR ÍONNÝIAR PARKiR í geymsluhorni < húsakynnum rannsóknarlögreglunnar aö Borgar- túni 7, liggia nokkrir pappakassar 03 fátæklegir plastpokar meö bók- um, og láta lítiö yfir sér. Annars 'eru í herberginu óskila- munir sem rannsóknarlögreglan hefur tekið í vörzlu sína, en þess- um föggum er haldið aðskildum, enda vart hægt að segja að þetta cáu óskilamunir. nema að nafninu f-,1 Þetta eru með öðrum orðum eftirstöðvar af farangri þeim, sem ún Bonný hafði með sér til lands- ins, sællar minningar Nú höfum við það fyrir satt, '' sá kornin á hæli í heimalandi sínu Bandaríkjunum, en munirnir bíða þess að verða sendir til hennar. í pappakössunum er mestmegnis fatnaður, en bækurnar eru ekki af verri endanum; The new American Encyclopedia (alfræði- orðabók), í nokkrum bindum, Webster’s new American dictionary, einnig í nokkrum bindum. Eitt hefti af Reader’s Digest og síðast en ekki sízt heilög biblía, mynd- skreytt og. hvít að lit. Á titilblaði sendur eftirfarandi í íslenzkri þýð- ingu: Til Bonny Lyman, frá mömmu og pabba á jólunum 1948. REYKVÍKINGAR HIRÐA LÍTT AÐ SÆKJA TÝNDA MUNl SÍNA — Rabbað við Harald Jóbannesson um óskila- munina i vörzlu rannsóknarlögreglunnar 0 í næsta mánuði verða boðnir upp óskila- munir hjá rannsóknarlögreglunni í Reykjavík. í til- efni þess heimsóttum við Harald Jóhannesson, en hann sér um þá deild rannsóknarlögreglunnar, sem hefur með óskilamunina að gera og hefur aðsetur sitt að Borgartúni 7. í geymslum embættisins ægir saman ólíkustu hlutum, sem fólk hefur glatað hér og þar. Gleraugu, armbandsúr, tóbaks- baukar og pontur, fundarham- ar, blokkflauta, munnharpa, skólabækur, húfur, og hattar, hjólkoppar, peningaveski. skart gripir, reiðhjól, þríhjól, barna- kerrur og margt margt fleira. Haraldur sýnir okkur munina. — Margir hlutir koma til okk ar merktir, veski með skilríkj- um eða einhverri vísbendingu um eigandann. Viö höfum sam band við eigendurna í þeim til- fellum, en það undarlega er að þeir sækja samt ekki hlutina. — Hvernig stendur á því? — Ætli það stafi ekki af trassaskap. — Hér eru kassar með veskj um og fleiru þess háttar. — Þessi kassi kom frá Stræt- isvögnum Reykjavíkur. Þeir skila venjulega tvisvar þrisvar á ári. Hreyfill og Steindór hafa líka komið með óskilamuni til okkar. Þá hluti sem merktir eru, setjum við í umslög og boð um þá, en eins og ég sagði áðan, skeður það sjaldan að þeir séu sóttir. í raun og veru ættu þessir hlutir ekki að stoppa hjá okkur. — Verður fólk ekki að sanna eignarrétt sinn á þeim hlutum sem það kémur til að sækja? — Við látum það lýsa hlut- unum, útliti þeirra og tegund ef um slíkt er að ræða. Ekki, Framhald á bls. 10. Fjórði hver íslend- ingur er í skóla <&- Skólaárið 1966—67 sitja 53.286 nemendur í samtals 420 skólum á íslandi. Við skóla okkar starfa þrjú þúsund og fjögur hundruð kennar- ar. Frá þessu segir í nýútkominni skýrslu Fræöslumálaskrifstofunnar um nemendafjölda. Þar af sitja 26.976 nemendur i m barnaskólunum og 11.818 nemendur | í skólum gagnfræðastigsins. í | framh.skólum og sérskólum ýmiss i konar eru taldir 14.492 nemendur. I Þess ber að gæta að sumir nem- . endur sitja í tveimur skólum. I Framhaldsskólanemendur sitja til dæmis sumir í tónlistarskóla, handíða- og myndlistarskóla eða málaskóla, , Með hæfilegum frá- drætti miðað viö þetta er fjöldi einstaklinga í öllum skólum lands- i ins 50.686. 1 Háskóla íslands eru 1180 nem- endur, í menntaskólunum 1778, í Kennaraskólanum 514, í verzlunar- skólum 600. Iðnskóla stunda 2217 : nemendur tónlitarskóla rúml 2 þús. nemendur og handíða- og mvnd- ’ arskóla nærri fímrn hundruð | nemendur. Námsmenn við erlenda skóla j ■ voru um áramót samtals 1153, | | þar af 527 við háskóla. Haraldur stendur viö einn skápinn, og heldur á skúffu fullri af gleraugum. Geíverndarfélag íslands byggir 3 hús ai Reyk/alundt Þarna er farangur Bonnie Parker. Samvinna hefur tekizt milli Geðvenndarfélags íslands og SÍBS um aö Geðverndarfélagið taki að sér að byggja þau þrjú hús, sem eftir er að byggja á Reykjalundi samkvæmt skipulaginu þar. Verö- ur bygging fyrsta hússins hafin í sumar. Sem kunnugt er hafa geðsjúkl- andarík/amenn f/ölmenn- astir erlendra ferðamanna í'nýútkominni ársskýrslu Ferða- malaráðs er getið um fjölda er- lendra ferðamanna, sem komu til iandsins á s.l. ári. Eins og komið hefur fram í Vísi nam tala þeirra 43.733, sem er 20.9% af heildar- fjölda landsmanna. I þessari tölu eru 9 þúsund erlendir ferðamenn, sem komu hingað með skemmti- ferðaskipum og höfðu hér skamma viðdvöl. 1 skýrslunni segir ennfremur að flestir hinna erlendu fcrðamanna hafi verið Bandaríkjamenn eða 11.756, næstir hafi verið Danir* 1 5.856, þá Vestur-Þjóðverjar eða 4.580, Englendingar voru 3.718, Svíar 1.891, Norðmenn 1.627 og Frakkar 899 ingar fengiö aðstöðu til endurhæf- ingar að Reykjalundi undanfarið. Verða þessi hús hugsuð sem endur hæfingarheimili og eru þáttur i aö tryggja þeim, sem hafa við geð- leg vandamál að stríða aðstöðu til endurhæfingar að Reykjalundi. Mun Geöverndarfélagið á næstunni koma upp aðstööu þar fyrir 20— 30 sjúklinga í viðböt við þá sem fyrir eru. Skýröi Kjartan J. Jóhannsson, læknir, formaöur Geðverndarfélags íslands, blaðinu frá þessu í morgun, en í gær var aðalfundur félagsins haldinn í Tiarnarbúð. Var fundur- inn fjölmennur. Meðal þess sem kom fram á fundinum var, að fé- lagatala Geðverndarfélagsins hefur aukizt um nær 60% á liðnu ári. Framkvæmdastjóri var ráðinn til Geövemdarfélagsins, Ásgeir Bjarna son, og skrifstofa þess opnuð að Veltusundi 3, sem opin er dag- lega frá kl. 2 — 3. Einu sinni í viku mætir þar félagsmálaráðgjaf- inn, Kristín Gústafsdóttir, sem ráð in hefur verið til félagsins til að sinna bessu starfi. 1 samræmi við þessa auknu starfsemi félagsins hefur styrkur til félagsins frá Al-1 þingi og Reykjavíkurborg verið hækkaður úr 25 þúsundum frá AI- þingi í 75 þúsund og úr 20 þús- unduni í 25 þúsund frá Reykjavík- urborg. Meðal þeirra, sem sátu fundinn í gærkvöldi var Þórður Benedikts- son forseti SÍBS, sem fagnaði þeirri samvinnu, sem hefði komizt á milli SÍBS og Geðverndarfélags Islands. Einnig sat fundinn prófess or Tómas Helgason, sem flutti er- indi um geðlækningar Ekið á kyrrstæðan bíl Aðfaranótt laugardagsins var ekið á kyrrstæðan Volkswagen. rauðan á lit, sem stóð á bifreiöa- stæðinu fyrir framan Álfheima 54 —58. Atvikið mun hafa átt ser stað einhvem tíma frá kl. 12 á miðnætti fram undir kl. 8 urn morguninn. Þeir sem kynnu aö hafa orðið varir við atburö þennan, eru vinsamlegast beðnir um að gera lögreglunni viðvart.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.